Alþýðublaðið - 01.05.1984, Síða 7
ÞriOjudagur 1. maí 1984
Verkalýð ssamtökin
og alþýða þessa lands
í þessu blaði birtum við talsvert
af efni úr tæplega 50 ára gömlu 1.
maí riti Alþýðuflokksins. Eftir-
farandi grein vakti athygli okkar.
Hún er fróðleg og skemmtileg
lesning:
Verkalýðsstétt okkar íslend-
inga er ennþá ung og óþroskuð,
hún á ennþá við ýmsa byrjunar-
örðugleika að stríða — örðug-
leika, sem að ýmsu leyti eru eðli-
legir, þegar litið er á það, hvað til-
tölulega er stutt síðan að þessari
stétt varð það ljóst, að hún hafði
sinna sérhagsmuna að gæta og
sérstakt sögulegt hlutverk að inna
af hendi.
Það er fyrst eftir að bæir og
þorp fara að rísa upp hér á landi,
að þessi stétt fer að verða áberandi
í þjóðlífi okkar íslendinga.
Þetta eru mennirnir, sem finnst
of þröngt um sig heima í sveitinni;
þeir flytja að sjónum, „á mölina“
eins og það er kallað; þeir sækja
gullið í greipar Ægis, þeir byggja
upp bæina, kauptúnin og sjó-
þorpin allt í kringum strendur
þessa Iands. í hafinu eru auðæfin
fólgin, sem veita þeim björg og
brauð. Þar er þeirra framtíð. í
staðinn fyrir að leita til annara
heimsálfa og gjörast þar land-
nemar, setjast þessir menn að í
sínu eigin föðurlandi og hefja þar
nýtt landnám.
Fyrir orku þeirra, strit og þraut-
segju byggðist iand vort að nýju;
þeir sóttu út á hafið og báru gullið
að landi; þar varð það aftur að
vinnu og skapaði afkomumögu-
leika fyrir nýjar stéttir manna,
sem uxu upp og lifðu á verðmæt-
um þeim, er numin voru úr skauti
Ægis.
Fyrir orku og vinnu þessarar
stéttar hefir allt orðið til, sem gert
hefir verið til framfara og bóta hér
á landi á síðari tímum; þeir hafa
lagt vegina, byggt brýrnar, reist
húsin, smíðað skip og báta, hafn-
armannvirki, lagt götur o.fl., o.fl.
En hvað hefir verkalýðurinn
sjálfur borið úr býtum. Hefir fall-
ið í hans skaut arður af striti hans
í réttu hlutfalli við afköst hans og
þau verðmæti, sem hann hefir
skapað?
Þegar verkamaðurinn eða
bóndinn flytur á mölina, hefir
hann ekkert til að lifa af nema
vinnu sína; hann varð að selja
vinnuafl sitt atvinnurekandanum
á staðnum, sem í mörgum tilfell-
um var kaupmaðurinn eða sel-
stöðuverzlunin í því þorpi, er
hann tók sér bólfestu í. Hann varð
að vera upp á atvinnurekandans
náð og miskunn kominn að Öllu
leyti; honum var skammtað kaup-
ið eftir geðþótta þess er vinnuna
veitti og vinnutíminn sömu leiðis;
allt varð hann að taka út í reikning
hjá kaupmanninum og borga svo
með vinnu hjá honum eða afla
hlut sinn úr sjó. Honum var
skammtað verðið fyrir sinn fisk
eftir geðþótta kaupmannsins, og
hann gat þar engu um þokað.
Honum var talin trú um, að at-
vinnurekandinn væri hans guð-
lega forsjón, sem með föðurlegri
umhyggju væri vakinn og sofinn
að hugsa um hag þeirra, er hjá
honum ynnu, og fyrir þá væri
hann að ráðast í allskonar fram-
kvæmdir, sem ekkert gerðu annað
en leggja afkomu hans og at-
vinnurekstur í rústir.
Það má segja um íslenzkan
verkalýð hið fornkveðna, að
„neyðin kennir naktri konu að
spinna". — Neyðin kenndi honum
það, sem hún var búin að kenna
verkalýð í öðrum löndum löngu
áður, að út úr þrældómshúsinu
var aðeins ein leið, sú, að taka
höndum saman, og með samtök-
um og samheldni að vinna að
kjarabótum fyrir sig og sína stétt.
— Verkamennirnir stofnuðu því
með sér sín verkalýðsfélög. Þar
sáu þeir fyrst, að þó að hver einn
einstakur þeirra væri vanmátta og
lítils megnugur, væru þeir allir
sameinaðir stór kraftur, sem gátu
miklu til leiðar komið. Þeir hófu
baráttuna og lögðu grundvöllinn
undir þær kjarabætur, sem al-
þýða þessa lands hefir nú þegar
FYRSTA
SKÓFLUSTUNGAN
OPIÐ HÚS
í dag 1. maí kl. 16:00 verður fyrsta skóflu-
stungan tekin að byggingu söluíbúða fyr-
ir aldraða félagsmenn Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur.
Athöfnin fer fram á lóð væntanlegrar
byggingarað Hvassaleiti 56-58 í nýjamið-
bænum.
Aðkeyrsla er frá Hvassaleiti.
Að lokinni athöfninni verður opið hús á
skrifstofu félagsins í Húsi verzlunarinnar
og þareröllum félagsmönnum boðið upp
á kaffiveitingar.
Stjórn Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur
Reykvísk Alþýða
Mætum öll I kröfugöngu í dag.
Safnast verður á Hlemmtorgi kl. 13.30 og lagt af staö kl.
14.
1. maínefnd fulltrúaráðs verkalýðsfélaga í Reykjavík.
hlotið. Oft hefir baráttan verið
erfið og brautin grýtt, en þrátt
fyrir allskonar örðugleika hefir sú
von og fullvissa fylgt allri baráttu
verkalýðsins, að hann væri að
berjast fyrir háleitum og göfug-
um hugsjónum, að aldagamlar
skoðanir og sannindi væru að
hrynja í rústir og til einskis nýt
framar, að hlutverk alþýðunnar
væri, að byggja sér sjálf sitt eigið
skipulag, nýtt og betra en það,
sem á undan er gengið. Alþýðunni
er það vel Ijóst, að jafnframt og
hún gegnum sín félagslegu sam-
tök skapar sér betri lífskjör í
hækkuðu kaupi og bættum
vinnuskilyrðum, lærir hún að
vinna saman og lyfta með sam-
eiginlegu átaki þeim Grettistök-
um, sem hverjum einum er um
megn að ráða við. Þetta er höfuð-
atriði í allri okkar baráttu, að
þroska félaga vora í þeim skiln-
ingi, að samstarfið og samheldnin
sé fyrir öllu, að einstaklingurinn
sé því aðeins sterkur, að hann sé
tengdur öðrum einstaklingum, og
hver fái stuðning og orku frá öðr-
um, að koma fram í skipulagðri
og sterkri fylkingu, í staðinn fyrir
að vera dreifðir og máttlausir.
Verkamaðurinn og verkakon-
an, hvar sem er á landinu verða að
gera sér ljósa grein fyrir þeim
sannindum, að hún eða hann eru
hlekkir í þeirri miklu keðju, sem
tengir saman verkalýðsstétt vora.
Því betur sem þau vinna að mál-
efnum alþýðunar, því sterkari
verður þessi keðja. Því meiri alúð
og ástundun, sem þau leggja við
sitt stéttarfélag og reyna eftir
megni að gera þau sterk og áhrifa-
rík hvert í sínu byggðarlagi, hvar
sem er á þessu landi, því sterkara
og voldugra verður félag félag-
anna, Alþýðusamband íslands.
Það er okkar höfuðvígi til sóknar
og varnar fyrir málefnum vorum.
Án þess væri hvert stéttarfélag út
af fyrir sig máttvana og gæti ekki
innt af hendi þær skyldur, sem því
eru ætlaðar, eins og hver einstakl-
ingur er máttlaus, án stéttarfélags.
Nú er 1. mai, dagur alþýðunnar
— dagurinn, sem hún raðar sér
undir fána sína og sýnir samtaka-
mátt sinn og baráttuvilja. Ennþá
er íslenzk alþýða ekki búin að
skilja til hlýtar þýðingu þessa dags
fyrir hana og samtök hennar.
Ennþá er henni ekki fyllilega
ljóst, að þennan dag á hún sjálft,
og þá á hún óskipt og með fullri
alvöru að fylkja sé undir merki
þeirra félaga, sem hún sjálf hefir
byggt upp og heldur uppi. Þau eru
hold af hennar holdi og sköpuð í
hennar eigin mynd. Það er hin
eina og sanna samfylking, sam-
fylking, sem verkalýðurinn er fyr-
ir löngu búinn að koma auga á;
þessa samfylkingu hefir verkalýð-
urinn verið að byggja uþp frá því
fyrsta að augu hans opnuðust fyr-
ir samtökunum og þýðingu
þeirra. Hver sá verkamaður, sem
ekki fylkir sér undir merki alþýð-
unnar þennan dag, er liðhlaupi og
svikari við sína stétt og sitt félag.
Hann hjáipar óvinum vorum að
rífa niður það mikla starf, sem
unnið hefir verið í þágu verkalýðs-
hreyfingarinnar á liðnum árum.
Það er trú mín, að enginn karl eða
kona úr alþýðustétt vilji bera heit-
ið verkalýðssvikari. Því, félagar,
söfnumst við öll sem einn maður
I. maí út á götuna undir merki AI-
þýðusambands íslands. Þar er
okkar rétti staður, þar eigum við
að berjast og sigra.
Z. Jónsson
t Öryggisins vegnal
<D
I Nú eru fyrirliggjandi Bridgestone radial og diagonal sumar-
Q)
| hjólbarðar.
f Óbreytt verð frá í fyrrasumar!
BÍLABORG HF.
Smiöshöföa 23 sími 812 99