Alþýðublaðið - 01.05.1984, Side 8
8
Þriðjudagur 1. maí 1984
Á baráttudegi alþýðunnar
1984 er ekki úr vegi að rifja upp
punkta úr sögu alþýðunnar og
aðdraganda stofnunar lands-
samtaka verkalýðshreyfingar-
innar 1916. Þróun íslensks auð-
valdsþjóðfélags fór seint af stað
en í sveitum ríkti oft sárasta
neyð. Fólk flykktist til þéttbýlis-
staða og til Ameríku á síðari
hluta 19. aldar og eiginleg
verkalýðsstétt varð til um alda-
mótin. Hér fylgja á eftir nokkrir
punktar úr sögu alþýðunnar og
verkalýðshreyfingar frá 1861 til
þess er Alþýðusamband íslands
var stofnað.
1861: Alþýða manna býr við af-
leiðingar margvíslegra áfalla en þó
einkum fjárkláða og aflatregðu.
Útlend fiskiskip spilla fiskimiðum.
Konungi send beiðni um lán til
kornkaupa handa íbúum Iandsins.
1864: I áætlun um gjöld Reykja-
vikurkaupstaðar er 1475 ríkisdöl-
1904: Verkalýðsfélagið Fram á
Seyðisfirði stofnað á ný.
1904: Verkalýðs- og sjómanna-
félagið Bjarmi stofnað á Stokks-
eyri. Þá var einnig stofnað Sjó-
mannafélagið Báran á Eyrarbakka.
1905: Hundruðir bænda ríða
suður til að mótmæla nýja ritsím-
anum.
1906: Verkamannafélagið Dags-
brún stofnað í Reykjavík. Mark-
miðið m.a. að styðja og efla atvinnu
félagsmanna, að koma á fót betra
skipulagi að því er alla daglauna-
vinnu snertir, að takmarka vinnu á
öllum sunnu- og helgidögum, að
auka menningu og bróðurlegan
samhug innan félagsins og að
styrkja þá félagsmenn eftir megni,
er verða fyrir slysum eða öðrum ó-
höppum.
1906: Fyrsta verkamannablaðið
gefið út og nefndist Alþýðublaðið.
Ritstjóri þess var Pétur G. Guð-
mundsson.
1906: Hið íslenska bókbindara-
félag stofnað.
1906: Alþýðumenn stofna Pönt-
unarfélag Reykjavíkur í því skyni
„Að halda niðri kaupinu
og jafnvel lækka það“
um og 32 skildinguro varið til fram-
færis sveitarómaga og styrks handa
þurfamönnum. Var það rúmlega
41% af gjöldum.
1867: Útlendum ferðamönnum
þykir athyglisvert að konur í
Reykjavík vinna margvíslega erfið-
isvinnu, en karlmenn lifa hcglífi...
1869: Úr þjóðólfi: Voðaleg mat-
arekla er nú orðin almenn hér um
sveitir og eigi annað fyrir að sjá en
dauðans neyð, áður en lýkur; en
auk þess er lífsframdráttur sumra
orðinn í því horfi, að þeir ganga á
þær fáu bjargræðisskepnur, sem
settar voru á í vetur“.
1872: Sakir ills áferðis og erfiðrar
afkomu alls almennings, bæði í
sveit og við sjó, hafa sveitaþyngsli
vaxið stórlega undanfarin ár...
Beiningaferðir fátækra förumanna
milli hreppa og héraða, sem mjög
hafa tíðkast á Islandi hafa þó farið
minnkandi vegna aðgerða til að
draga úr slíku.
1872: Enski ferðamaðurinn Ric-
hard Burton: íslendingar eru bláfá-
tækir, drykkfelldir, blygðunarlaus-
ir og féfíknir...
1873: Á þriðja hundrað íslend-
inga flytjast til Ameríku og fjöldi
manns albúinn að hverfa úr landi
þegar tækifæri gefst.
1874: Þórarinn prestur Böðvars-
son gefur út bókina Lestrarbók
handa alþýðu á íslandi.
1875: 60—70 manns gerast stofn-
félagar að Sjómannafélagi í
Reykjavík, sem var einna helst
„klúbbur" til menntunar og endur-
næringar þá er sjómenn eru í landi.
1876: Á fjórtánda hundrað ís-
lendinga flytjast alfarnir til
Kanada.
1876:Úr bréfi til Þjóðólfs: „Ég er
óvanur að sjá konur hafðar fyrir
áburðarösnur og finnst það vera
skrælingjalegt í mesta máta..“
1877: Hallærisástand viða við
Faxaflóa sakir eindæma aflaleysis
tvö ár t röð... „Svo sem við var að
búast, er lánstraust fátæklinga fyrir
Iöngu þrotið, og hafa þó kaupmenn
ýmsir reynst hjálplegir. Margir, sem
áður voru taldir bjargálna og jafn-
vel efnaðir, eru nú þrotnir að efn-
um“. Fjölmörg heimili alveg bjarg-
brota.
Punktar úr sögu
alþýðunnar og
verkalýðshreyf-
ingarinnar 1861-
1916
1878: Stofnaður i Flensborg al-
þýðuskóli...
1881: Vinnumenn að Gröf í
Hrunamannahreppi funda um kjör
sín. Senda Alþingi ályktun.
1882: Fannkoma og nístingskuldi
um hásumar, hallæri ríkir um land
allt, fjöldi bænda allslaus.
1883: Björn Jónsson um þing-
menn í þinglok (ísafold): „Höfðu
kæft undir sér nýtilegan vísi til að
hrinda af sér oki iðjulausra og
óspilunarsamra þurfamanna, mál-
ið um rétt hreppsnefnda i fátækra-
málum".
1884: „Hagur manna er afar
ískyggilegur í hvers þess manns aug-
um, sem gætir þess, hvernig fram
fer. Fátæklingunum fjölgar, hinir
efnuðu kafna undir ofurþungum
álögum..“
1887: Prentarafélag stofnað i
Reykjavík.
1887: Um 8000 manns hafa flutst
til Vesturheims.
1887: Bjargleysi og vaxandi ör-
birgð af völdum gífurlegs skepnu-
fellis. Heimiii flosna upp og víða
fyrir norðan hafði fólk ekki annað
til að leggja sér til munns en hor-
kjötið af skepnunum sem voru að
horfalla...
1887: Yfir 150 manns fórust á sjó.
1891: íslendingum fækkaði um
1518 manns síðasta áratug.
1894: Holdsveiki er þrefalt tíðari
sjúkdómur á íslandi en í öðrum ná-
lægum löndum.
1894: Eftir að útgerðarmenn höfðu
stofnað í Reykjavík félag til að
vinna að hagsmunum sínum tóku
sjómenn sig til og komu á samtök-
um sín á milli, „enda munu þeir
hafa fengið veður af því að tilgang-
urinn með stofnun útgerðarmanna-
félagsins væri m.a. sá að halda niðri
kaupi sjómanna og jafnvel lækka
það“. Félag sjómanna var nefnt
Báran og var stofnað 14. nóvember.
1896: Þorsteinn Erlingsson
stofnar blaðið Bjarki, er fylgdi
sósíahsma og studdi upphaf verka-
lýðshreyfingar á íslandi.
1897: Sívaxandi gremja almenn-
ings vegna linnulausrar ásóknar
enskra botnvörpunga á öll fiskimið
í Faxaflóa og athafnaleysis danska
varðskipsins.
1897: Hið íslenska prentarafélag
stofnað.
1897: Verkamannafélagið Fram
stofnaðá Seyðisfirði en var lagt nið-
ur eftir aldamót.
1899: íslensk botnvörpuútgerð
hefst með 40 sjómönnum á 5 skip-
um. Fjöldi fólks ráðinn til fiskverk-
unar hjá útgerð Thor Jensens.
1899: Trésmiðafélag Reykjavikur
stofnað.
1901: Múr- og steinsmiðafélag
Reykjavíkur stofnað.
að útvega meðlimum sínum kaup-
staðarvöru allskonar með lægra
verði en kostur er hjá kaupmönn-
um.
1906: Verkamannafélag ísfirð-
inga stofnað.
1907: Verkamannasamband ís-
lands (hið fyrra) stofnað.
1907: Kvenréttindafélag íslands
stofnað.
1911: Verkamannafélag Husa-
víkur stofnað.
1913: Kvenréttindafélagið fundar
um kjör verkakvenna. Var sam-
þykkt að senda atvinnurekendum
bréf og óska eftir samningum um
kjör og kaup verkakvenna.
1914: Verkakvennafélagið Fram-
sókn stofnað í Reykjavík.
1915: Thor Jensen útgerðarjöfur
biður presta og tvo menn kjörna af
Dagsbrún að úthluta til bágstaddra
heimila í Reykjavík nauðsynjavöru.
Alls 177 bágstaddar fjölskyldur
nutu góðs af.
1915: Togarasjómenn stofna Há-
setafélag Reykjavíkur.
1915: Verkalýðsfélag Stykkis-
hólms stofnað.
1916: Verkalýðsfélagið Baldur
stofnað á ísafirði.
1916: Fyrsta verkfall togarasjó-
manna og fá mikla hækkun á lifrar-
verði.
1916: Alþýðusamband íslands
stofnað, allsherjarsamtök verka-
manna- og iðnaðarmannafélaga á
landinu. Ottó N. Þorláksson fyrsti
forseti.
(Úr Öldinni okkar og fleiri heimildum,
samantekt FÞG)