Tíminn - 01.04.1967, Síða 16
FæV
73. tbl. — Laugardagur 1. apríl 1967. — 51. árg.
Jóni G. Maríassyni
þakkað á ársfundi
Seðlabanka íslands
IGÞ, Reykjavík, föstudag.
Seðlabanki fslands bauð í dag til
árlegs hádegisverðar, þar sem
blaðamenn hlýddu m.a. á ræðu
dr. Jóhannesar Nordals, banka-
stjóra og fengu árskýrslu bankans
í hendur. Er ræðunnar og skýrsl-
unnar getið á öðrum stað í blað-
inu. Tilkynnt var á þessum fundi,
að Jón G. Maríusson, bankastjóri,
hefði sagt starfi sínu Iausu frá
1. ágúst n.k.
Jón G. Maríasson.
Á ársfundi bankans í dag stað-
festi dr. Gylfi Þ. Gíslason reikn-
inga bankans. Á fundinum var til-
kynnt að bankastjórnin hefði kosið
dr. Jóhannes Nordal formann
bankastjórnarinnar næstu þrjú ár.
Ársfundinuum stjórnaði Birgir
Kjaran, formaður bankaráðsins.
Við hádegisverðinn skýrði Birgir
frá fyrrgreindri ákvörðun Jóns G.
Maríarsonar að hætta störfum
I. ágúst. Sagði hann í því sam-
bandi, að Jón hefði manna lengst
stundað bankastarfsemi eða í hart
nær hálfa öld. Sagði hann að þann
II. janúar 1916 hefði Jón hafið
sin fyrstu bankaviðskipti með því
að leggja peninga í sparisjóð á
ísafirði og ætti hann þennan banka
reikning enn í dag. Jón hóf svo
störf við Landsbankann á ísafirði
árið 1919. Ellefu árum síðar tók
hann við störfum við aðalbankann
í Reykjavík. Árið 1934 varð hann
aðalbókari bankans og bankastjóri
árið 1945. Bankastjóri Seðlabank-
ans varð hann árið 1957. Sagði
Birgir að innistjórn Landsbankans
hefði einkum hvílt á herðum hans
meða.i hann var þar bankastjóri.
Þakkaði Birgir honum gott sam-
starf, og persónulega þakkaði hann
Framhald á bls. 15.
Skýrt frá rannsókn á rækjuveiðum í Arnarfirði og ísafjarðardjúpú
Verða rækjuveiðar
þar alveg bannaðar
„BERFÆTT ORD'
Ný AB-bók eftir Jón Dan komin út
Komin er á markaðinn ný bók
eftir Jón Dan, og nefnist hún
BERI’ÆTT ORÐ. Er þetta þriðja
bókin, sem Almenna bókafélagið
gefur út eftir þennan vinsæla
höfund, en jafnframt er það fyrsta
ljóðasafnið, sem hann sendir frá
sér.
Jón Dan hóf snemma að iðka
skáldskap, einkum sagnagerð, en
hefur alla tíð gert sér meira far
um vandvirkni en afköst. Hann
vakti fyrst á sér athygli fyrir smá
sögur, sem birtusrt í tímaritum og
höfði sumar hverjar aflað honum
verðlauna. Þótti hann þá strax
Jón Dan
auðkenndur af persónulegum stíl
og sérstæðu efnisvali, og þegar
fyrsta bók hans, smásagnasafnið
Þytur um nótt, kom út árið 1956
voru ntdómendur á einu máli um
það, að sumar sagnanna, er þar
birtust, væru meðal hins fremsta
í þeirri grein íslenzkrar skáldlist-
ar. Seinna hefur hann færzt meira
d fang og aukið hróður sinn að
sama skapi. Skáldsagan Sjávarföll,
1958 og Tvær bandingjasögur 1960
leiddu ótvírætt í ljós, að þar var
á ferðinni vandlátur og vaxandil
höfundur.
Berfætt orð hafa að geyma þr já-
tíu os fimm kvæði og skiptir höf-
undurinn þeim í fimm kafla, sem
heita í gömlu liúsi, Vegfcrð um
nótt, Orðaljóð og Barnaleg ljóð.
Auðsæjasta einkenni þessara
kvæða er sennilega það, hve þau
eru strax skemmtileg aflestrar og
er slíkt. að sjálfsögðu mikill kost-
ur, svo framarlega sem það leiðir
menn ekki frá því að skyggnast
undir sjálft yfirborðið. En við
nánari kynni af þessum kvæðum
mun lesendum einmitt verða tjóst,
að þau eru bersýnilega til orðin
fyrir djúpa ihygli og reynslu, sem
skilar sér vel í hnitmiðun hins
hljóðláta ljóðforms. En menningar
leg hófsemi er einmitt eitt af ein-
kennum bessa geðfellda höfundar,
sem virðist nægilega óbundinn af
hefð og tízku til að styðjast við
hvort tveggja sér til ávinnings.
EJ—Reykjavík, föstudag.
„Að mínu áliti er tímabært að
stöðva rækjuvciðar í ísafjarðar-
djúpi og Arnarfirði nú þegar“.
Þetta er niðurstaða athugana á
rækjuveiðum á þessu svæði, og
birtast í tímaritinu Ægi, en þar
skrifar Unnur Skúladóttir, fiski-
fræðingur, grein um þetta mál.
í grein þessari segir m. a.: —
„Fyrir Arnarfjörð verður heildar
aflinn mestur um 201 smálest við
um 2100 togtíma meðalsókn á
ári. Fyrir ísafjarðardjúp er heild
araflinn mestur um 724 smálestir
við 5.500 togtíma meðalsókn á
ári. Þess skal getið að sé reiknað
með meðalsókn 4 ára þá verður
hápunkturinn við um 5000 tog-
tíma með heildarafla um 787 smá-
lestir. Má því fullyrða að meðal
sóknin í rækjustrfninn í ísafjarð
ardjúpi eigi ekki að vera meiri
en 5.500 togtímar á ári. Ef reikn
að er með sömu sókn 1966 og
1967, má reikna með að stofninn
gefi af sér um 195 smálestir í
Arnarfirði og 147 smálestir í ísa
fjarðardjúpi á ári. Sé sóknin auk
in verður aflinn ef til vill meiri
fyrst í stað, en fer síðan síminnk-
andi. Þess skal getið, að 8. marz
1967 var meðalsóknin í Arnarfirði
orðin um 2090 togtímar. Má reikna
með að meðalsóknin þar aukist um
a. m. k. 37 togtíma á viku eftir
þetta. Er því ráðlegt að hætta veið
um þar sem fyrst.
í ísafjarðardjúpi er meðalsókn
1. marz 1967 um 6980 togtímar.
Má hór reikna með að í það
minnsta 167 togtímar bætist við
meðalsóknina með hverri viku. í
lok marzmánaðar verður meðal-
sóknin þá orðin a.m.k. 7650 tog-
tímar og svarar það til heildar-
afla á milli 500 og 600 smálesta á
ári. Er ástandið þá orðið mjög
svipað og það var árin 1962 og
1963.
Á það skal bent að stækkun
rækjuvarpna og um leið aukin
veiðihæfni veldur einnig aukinni
sókn. Enda þótt meiri afli á tog
tíma fáist með því móti, er það
ek'ki nein vísbending um aukna
stofnstærð rækjunnar. Sú aukning
á heildarafla sem þannig mundi
fást er því ekki varanleg.
Tekið skal fram að höfundur
lagði til að veiðar yrðu takmarkað
ar í ísafjarðardjúpi, þannig að inn-
djúpinu og fjörðunum yrði lokað
í byrjun febrúar þetta ár. Var
þetta gert í samræmi við þær niður
stöður, sem hér er um ritað og
eimfremur til að hvetja rækju-
skipstjóra til að veiða fremur
stærri rækju og jafnframt reyna
á nýjum svæðum. Um þetta varð
nokkur samstaða hjá rækjusjó-
mönnum um tíma og harma ég að
af þessu hefur enn ekki orðið. Er
það oft svo að erfitt reynist að
hætta meðan leikurinn stendur
sem hæst. Raddir hafa heyrzt um
að öllum takmörkunum á þessum
veiðum verði aflétt. Af því sem
hór hefur verið sagt má sjá að
slíkt er mjög óráðlegt, nema menn
vilji enn einu sinni treysta á
kraftaverk og hætta á þriggja ára
lægð í veiðum“.
Ekki œunu allir sammála þess
um aðvörunarorðum. Hafa sumir,
máli sínu til stuðnings, bent blað
inu á ummæli norska fiskifræð-
ingsins B. Rasmussen, er birtust í
Ægi 1965, en þar segir m. a. að
„rannsóknir á líffræði rækjunnar
hafa sýnt, að staðbundin friðun á
veiðisvæði, hvort sem það er úti
á hafi eða inni í firði, hefur lítil
eða engin áhrif á rækjustofninn á
viðkomandi svæði“ og síðar „líf
fræði rækjunnar er í algerri mót-
sögn við allt tal um ofveiði, jafn-
vel þótt veiðarnar séu sóttar af
kappi“. Fjallar þessi grein um
rækjuveiðar við Noreg, og kröfur
sem þar höfðu fram komið um að
LEIT ÁRANGURSLAUS
EJ-Reykjavík, föstudag.
Leitin að gúmmbátnum, sem
fjórir af áhöfn færeyska bátsins
Nolsoyar Páli fóru um borð í
fyrir viku, hélt áfram í dag,
en án árangurs. Verður leitinni
haldið áfram á morgun.
í fréttatilkynningu frá banda
rísku upplýsingaþjónustunni
segir, að ca. 67 fermílna svæði
hafi verið kannað af skipurn og
t'lugvélum, en leitin engan ár-
angur borið. lugvélar af Kefla-
víkurflugvelli, ásamt flugvélum
íra íslandi, Skotlandi og banda
rísJcum vélum frá Þýzkalandi,
tóku þátt í leitinni, ásamt skip-
urn frá mörgum ríkjum. Leitar
veður hefur verið gott frá því
á miðvikudag.
Áætlanir mikils-
vert hjálpartæki
Ráðstefnu Sambands íslenzkra
sveitarfélaga um framkvæmdaáætl
anir sveitarfélaga, lauk í Reykja-
vík i dag. Ráðstefnan hófst í morg
un með framsöguerindi Torfa Ás-
gcirssonar, skrifstofustjóra í Efna
hagsstofnuninni, um fræðsluáætl-
anir, og urðu umræður um skóla-
mál frarn að hádegi. Ráðstefnunni
AI
\/„r
Fran.j rfélag Akraness lield
ur skemmtisamkomu í félagsheim-
ili simi Sunnubraut 21, sunnu-
dagskvöldið 2. apríl n.k. kl. 8,30
síðdegis. Til skemmtunar: Fram-
sóknarvist og kvikmvndasvning
Öllum deimilt af^’angur meðan
lnísrúm ieyfir.
lauk síðari hluta dags og í slita-
ræðu sinni sagði Páll Líndal, for-
maður sambandsins, frá því, að
sambandið hefði haldið fjórar ráð-
stefnur á tveimur árum, og hefðu
tekið þátt í þeim rúmlega 300
Við lok ráðstefnunnar var sam-
þykki svofelld ályktun: „Ráð-
stefna um framkvæmdaáætlanir
sveitaríélaga haldin í Reykjavík
dagana 29.—3C. marz 1967, að til-
hlutan Sambands ísl. sveitarfólaga,
hvetur sveitarstjórnir til að at-
huga möguleika á gerð fram-
kvæmdaáætlnana til nokkurra ára
í setin þar sem ráðstefnan telur,
ið -lík áætluanrgerð sé mikils-
erl .valpartæki við stjórn sveitar
i félaí,a".
vernda þyrfti rækjumiðin á einn
eða annan hátt.
Rækjuveiði hefur verið góð
þessa síðustu dagana. Fréttaritari
blaðsins á Bíldudal símar, að 5
bátar stundi þar rækjuveiðar og
hafi komið með á fjórða tonn að
landi á hverjum degi nú síðustu
dagana, en þeim sé leyfilegt að
koma með 3,5 tonn samtals á
hverjum degi. Veiðist rækjan víðs
vegar um Arnarfjörð.
Þá er rækjuveiði ágæt í ísafjarð
ardjúpi, og rækjan stór að sögn
fréttaritara blaðsins þar. Hafa
veiðarnar batnað mjög síðustu dag
ana, hver sem framtíðin verður.
„ORATOR“
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
Úlfljótur, tímarit Orators, fé-
lags laganema við Háskóla íslands,
3. tbl. 1966, er kominn út. í blað-
inu er m .a. grein eftir prófessor
Ólaf Jóhannesson, er hann nefnir
„Umboðsmenn þjóðþinga á Norð-
urlöndum“.
Jakob R. Möller ritar um 15.
mót norrænna laganema og ungra
lögfræðinga, sem haldið var í Upp
sölum s. 1. sumar. Þorsteinn Skúla
son, stud. jur. ritar um Oodex —
félag sænsikumælandi laganema í
Helsingfors — 25 ára.
Ýmislegt annað efni er í blað-
inu, svo sem yfirlit yfir embættis-
próf í lögfræði í maí 1966.
UNGLINGA-
KLÚBBUR FUF
Unglingaklúbbur FUF í Reykja-
vík og Kópavogi heldur skemmt-
un í Glaumbæ næstkomandi mið-
vikudagskvöld,
5. apríl, og hefst
skemmtunin
kl. 8,30. Hin vin
sæla hljómsveit
hússins leikur fy
ir dansi, Jón
Gunnlaugsson
skemmtir me’i
eftirhermum og
gamanvisnasnög
Jón Fleiri skemmti
atriði verða auglýst síðar. Allir
unglingar í Reykjavík og Kópavogi
eru velkomnir á þessa skemmtun
meðan húsrúm leyfir. — Miðar
verða afhentir á miðvikudag að
Tjarnrrgötu 26 og við inngang-
inn. — Stjórn Unglingaklúbbsins.
Forseti Israel
hingað í júní
Forseti íslands hefur nýlega
boðið forseta ísraei, herra Zalman
Shazar að koma í opinbera helm-
sókn tii íslands í sumar.
Hr.fut forseti ísraels þegið boð-
ið og eru heimsóknardagarnir á-
kveðnir 4.—7. júní n.k.
Aðalfundur B.í.
Aðaifundur Blaðamannafélags
íslaiids verður haldinn sunnudag-
inn s aprí) n.k. og hcfst kl. 2.
Fundarstaðui nánar auglýstur síð-
ar Oagskrá: ' enjulcg aðalfundar
stört. Önnur mál. — Stjórnin.