Alþýðublaðið - 22.08.1984, Qupperneq 9
9
Miðvikudagur 22. ágúst 1984
„Heima hjá mér. Hér er heimilis-
fangið"
Þau kyssast einusinni enn og
ungfrú Ásta fer út. Ég læðist út úr
skápnum og læsi skrifstofuhurð-
inni. „Jæja“, segir Tvífarinn. „Það
er Ásta eða dauðinn." „AHt í Iagi“,
segi ég sorgmæddur. „Ég skal ekki
reyna að telja þig af því lengur. Hun
lítur út fyrir að vera ágætis stelpa.
Reglulega aðlaðandi. Hver veit
hvað hefði gerst ef hún hefði unnið
hér á meðan ég vann hjá fyrirtæk-
inu..I‘ Ég sé að Tvífarinn bregst
hinn versti við og lýk ekki meining-
unni. „En þú verður að gefa mér
smáfrest til að kippa þessu í lag“,
segi ég. „Hvað ætlarðu að gera? Frá
mínum sjónarhól séð geturðu ekki
gert neitt“, segir Tvífarinn. „Ef þú
ætlast til að ég fari aftur heim til
konu þinnar og barna eftir að ég
hef fundið Ástu..I‘ Ég þráttaði um
frestinn í smátíma.
Hvað ég ætlaðist fyrir? Einfald-
lega þetta. Tvífarinn skipar nú upp-
haflegu stöðuna mína. Nuverandi
ástand er óþolandi að hans mati.
En þar sem hann hefur meiri lyst á
raunverulegu frjálsu lífi, en ég hafði
nokkurn tímann, vill hann ekki
hverfaaf yfirborði jarðar. Hann vill
yfirgefa konu mína og tvær hávær-
ar dætur, fyrir hina unaðslegu,
barnlausu ungfrú Ástu. Jæja þá,
hversvegna skyldi ekki lausnin mín
— margföldunin — henta honum
einsog hún hentaði mér? Allt er
betra en sjálfsmorð. Ég þarf bara
frest til að búa til einn Tvífara í við-
bót, sem getur dvalist hjá konu
minni og börnum og mætt í vinn-
una á meðan þessi Tvífari (upp-
runalegi Tvífarinn einsog ég mun
kalla hann héðan í frá) heldur við
ungfrú Ástu.
Seinna um morguninn fékk ég
lánaða peninga hjá honum svo ég
gæti farið í tyrkneskt bað og þrifið
mig, látið klippa mig og raka hjá
rakaranum og til að kaupa mér-
samskonar föt og hann var í. Hann
stakk upp á því að við hittumst á
litlu vertshúsi t gamla bænum, þar
sem óhugsandi var að hann rækist á
einhvern sem þekkti hann. Ég veit
ekki hvað hann óttast. Að borða há-
degisverð og vera staðinn að því að
vera að tala við sjálfan sig? Að sjást
með mér? en ég er fullkomlega
frambærilegur nú. Og ef við sjá-
umst saman, hvað er þá eðlilegra en
tveir ósundurgreinanlegir fullorðn-
ir tvíburar, í samskonar fötum, sem
borða hádegisverð saman og ræða
málin af miklum móði? Við pönt-
um báðir spaghettí al Burro og bak-
aðan skelfisk. Eftir þrjá snafsa
fellst hann á tillögu mína. Hann
fellst á að bíða vegna tillitssemi við
konu mína — en ekki mín vegna,
endurtekur hann nokkrum sinnum
með drembilegri rödd. En bara í
nokkra mánuði, alls ekki lengur. Ég
bendi honum á að ég heimti ekki að
hann sofi ekki hjá ungfrú Ástu á
meðan, bara að hann fari leynt með
framhjáhaldið.
Það er erfiðara að búa til seinni
Tvífarann en þann fyrri. Sparifé
mitt er búið. Verð á plasthúðlíki og
annar efniskostnaður, laun raf-
tæknifræðingsins og listamanns-
ins, hafa stigið á tæpu ári. Ég gæti
auk þess bætt því við að laun Tví-
farans hafa staðið í stað þrátt fyrir
aukið álit yfirmannsins á honum.
Það fer í taugarnar á Tvífaranum
þegar ég heimta að hann sitji fyrir
hjá listamanninum í stað mín, þeg-
ar útlitsmótunin og andlitsmáln-
ingin fer fram. En ég bendi honum
á að ef seinni Tvífarinn sé mótaður
eftir mér er hætta á að eftirmyndin
verði ekki nógu nákvæm. Það leik-
ur enginn vafi á að einhver útlits-
munur er orðinn á mér og uppruna-
lega Tvífaranum, þó svo ég eigi
sjálfur erfitt með að koma auga á
hann. Ég vil að seinni Tvífarinn lík-
ist honum í öllum smáatriðum sem
ber á milli okkar.-Ég verð að taka
þá áhættu að seinni Tvífarinn sé
haldinn sömu mannlegu ástrið-
unni, sem eyðilagði notagildi upp-
runalega Tvífarans fyrir mér.
Loksins er seinni Tvífarinn tilbú-
inn. Samkvæmt kröfu minni sér
upprunalegi Tvífarinn (með hang-
andi haus auðvitað, því hann vill
eyða frítímanum með ungfrú Ástu)
um þjálfun hans og aðlögunartíma,
sem stendur í nokkrar vikur. Síðan
rennur stóri dagurinn upp. Seinni
Tvífarinn tekur við lífi upprunalega
Tvífarans í miðjum föstudags-
hornaboltaleiknum í sjónvarpinu, í
sjöundu lotu. Því hefur verið kom-
ið þannig fyrir að upprunalegi Tví-
farinn fari út að kaupa pulsur og
kók handa konu minni og börnum.
Það er upprunalegi Tvífarinn sem
fer út en sá seinni kemur aftur hlað-
inn mat og drykk. Upprunalegi Tví-
farinn smokrar sér inn í leigubíl, af
stað í opinn faðm ungfrú Ástu.
Nu eru liðin níu ár. Seinni Tvífar-
inn býr með konu minni og hefur
það hvorki betra né verra en ég
hafði það. Eldri stúlkan er i
menntaskóla, sú yngri á unglinga-
stiginu, og þau hafa eignast nýtt
barn, strák, sem er sex ára nú. Þau
eru flutt í sameignaríbúð á Skógar-
hæðum; konan mín er hætt að
vinna úti; og seinni Tvífarinn er orð-
inn aðstoðarmaður aðstoðarfram-
kvæmdastjórans í fyrirtækinu.
Upprunalegi Tvífarinn fór í fram- —
haldsnám og vann fyrir sér sem
þjónn á meðan; ungfrú Ásta lauk
kennaraprófi. Hann er núna arki-
tekt með vaxandi umsvif; hún
kennir ensku í gagnfræðaskóla
Júlíu Richmann. Þau eiga tvö börn,
son og dóttur, og eru aðdáunarlega
hamingjusöm. Stundum heimsæki
ég báða Tvífarana mína — en aldrei
án þess að hressa upp á útlitið áður,'
þið skiljið. Ég lít á sjálfan mig sem
ættingja, guðföður þeirra, stund-
um frænda barna þeirra. Þeir eru
ekkert yfir sig ánægðir með að sjá
mig, kannski vegna tötralegs útlits
míns, en þeir hafa ekki hugrekki til
að éísa mér á dyr. Ég stoppa aldrei
lengi, en óska þeim gæfu og gengis
og óska sjálfum mér til hamingju
með á hversu réttlátan og ábyrgan
hátt mér hefur tekist að leysa
vandamál þessa eina stutta lífs, sem
mér hlotnaðist.
Þýðing: Sáf.
á vörubílahiolbörðum
YOKOHAMA frá Japan
900x20-14pl.afturdekk....... Kr. 11.312,-
1000 x 20 -12 pl. framdekk ... Kr. 12.998,-
1000 x 20 -14 pl. framdekk ... Kr. 14.166,-
1000 x 20 -14 pl. framdekk ... Kr. 14.720,-
NOKIA frá Finnlandi
11R20-I6pl. framdekk ......... Kr. 17.281,-
11 R 20 -16 pl. afturdekk.... Kr. 18.328,-
Frábær greiðslukjör.
Láttu ekki happ úr hendi sleppa.
Bestu kveðjur,
BíLVANGURsf
HOFÐABAKKA 9 5IMI 687300
NÚ LDKSINS
AÐ UTANHÚ
ÞURFI AÐ AN
ÞAÐ HEFUR
THOROSE/
GERT í 70 AR
GJA ÞEIR
MÁLNING
THOROSEAL vatnsþéttingarefnið hefur
verið notað á ísiandi um 12 ára skeið, með^
góðum árangri. Þar sem önnur efni hafa
brugðist, hafa Thoro efnin stöðvað leka,
raka og áframhaldandi steypuskemmdir.
Kynnið ykkur THORO efnin og berið þau
saman við önnur efni.
rii
StórhÖfða16 sími 83340-84780