Alþýðublaðið - 22.08.1984, Blaðsíða 10
10
Miðvikudagur 22. ágúst 1984
Fanny og
Alexander:
Regnboginn: Fanny og Alexander
Svíþjód, 1982
Handrit og leiksljórn: Ingmar
Bergman
Kvikmyndun: Sven Nykvist
Búningar: Marik Vos
Framleiðandi: Jörn Donner
Aðalhlutverk: Ewa Fröling, Jarl
Kulle, Allan Edwall, Jan Malmsjö,
Erland Josephson, Gunn Wállgren,
Pernilla Allwin, Bertil Guve, Börje
Ahlstedt, Stina Ekblad, Harriet
Andersson o.fl.
Lengd: 188 mínútur.
Það er engin tilviljun að Fanny
og Alexander, kvikmynd Ingmars
Bergman, endi á tilvitnun í
„Draumleik" August Strindbergs.
Þessir tveir listamenn bera ægis-
hjálm yfir landa sína, hvor á sínu
sviði. Báðir voru landflótta hluta úr
æviskeiði sínu. Yrkisefnum þessara
tveggja andans jöfra svipar líka um
margt saman og kemur þar til svip-
aður bakgrunnur þó rúm hálf öld
skilji á milli fæðingardaga þeirra.
Báðir eru upprunnir úr mjög borg-
aralegu umhverfi og list þeirra
beggja lituð af því. í verkum þeirra
beggja er faðirinn fulltrúi þröng-
sýni, strangleika og heftingar.
Heimur fullorðinna
frá siónarhól barna
Hann pískar burt alla sköpunar-
gleði ogeitrar út frá sér svo lífsgleð-
in verður að víkja fyrir angist og
hræsni. Það er ýmislegt annað, sem
Tillögur áfengismálanefndarinnar:_
Aðgengi fólks
að áfengi
verði torveldað
þessir tveir eiga sammerkt. Þó af-
staða þeirra til konunnar, sé langt
því frá að vera sú sama, skipar hún
öndvegi í verkum beggja. Leik-
konugallerí Bergmans er vel þekkt
og nægir að nefna nöfn einsog
Harriet Andersson, Liv Ullman,
Bibi Andersson og nú í Fanny og
Alexander, Ewa Fröling.
Kvikmyndin hefst á aðfangadag í
byrjun aldarinnar. Alexander (Ber-
til Guve) eigrar um mannlausa en
ríkmannlega íbúð Ekdahl fjöl-
skyldunnar. Hann hrópar á for-
eldra sína og systur en enginn svar-
ar. Strax í þessu byrjunaratriði
komumst við að raun um að heim-
urinn er ekki allur þar sem hann er
séður; stytta í horni stofunnar öðl-
ast líf, lyftir upp hönd sinni.
Sá heimur, sem Bergman gengur
út frá í kvikmynd sinni, er heimur
Ekdahl fjölskyldunnar, háborgara-
leg fjölskylda, sem rekur leikhús
borgarinnar og veitingastaði. í
byrjun myndarinnar er okkur boð-
ið á jólasýningu leikhússins. Þar er
fæðing frelsarans sviðsett og
þyngdarpunkturinn lagður á, að
það verði að flýja burt með Guðs
soninn, vegna þess að Heródes kon-
ungur hafi fyrirskipað að öllum
sveinbörnum skuli útrýmt, því hon-
um hefur borist til eyrna að frelsari
ísrael sé fæddur og þar með sé valdi
hans ógnað.
Eftir sýninguna er haldin veisla
fyrir leikhúsfólkið og þá heldur
leikhússtjórinn, Oscar Ekdahl (All-
an Edwall), faðir Fanny og Alex-
anders smá ræðu. Meginboðskapur
þeirrar tölu hans er að rétt sé að
hlúa að þeim litla heimi sem maður
lifir og hrærist í innan leikhússinjs
eða fjölskyldunnar því hinn stóri
heimur sem er fyrir utan þessar
stofnanir sé þess eðlis að við fáum
lítt hans böli breytt. Leikhúsið á að
opna augu fólks fyrir veröldinni,
gefa fólki með augnabliksmyndum
ný sjónarhorn á tilveruna, Ijúka
upp fyrir áhorfandanum nýjum
sannindum um Iífið og dauðann og
síðast en ekki síst að fá fólk til að
gleyma stað ogstund,skemmta því
og losa það undan fargi eigin
vandamála. Þetta er nákvæmlega
það sem Bergman gerir í Fanny og
Alexander.
„Aftur eru komin jól, aftur eru
komin jól og þau munu rikja fram
að páskum, en það er ekki rétt, það
er ekki rétt, því á milii þeirra kemur
fastan", syngja veislugestir í jóla-
boði hjá Helenu Ekdahl (Gunn
Wállgren), og með þessum gamla
sænska jólasöng má segja að Berg-
man leggi beinagrind að kvikmynd-
inni fyrir áhorfandann. Auðvitað
væri æskilegt að eilíf veisla ríkti, en
lífið er sem betur fer margþættara
en svo.
I veislunni ríkir gáski og fjör og
þar fáum við að kynnast meðlimum
fjölskyldunnar. Þær eru dregnar
upp með skýrum dráttum og verða
strax í upphafi ljóslifandi fyrir
áhorfandanum, jafnt þær persónur
sem mest mæðir á, svo og allar hin-
ar. Það er natni og skarpskyggni
höfundarins, sem einkennir allt
verkið, að ógleymdri tiltilfinningu
hans fyrir spaugilegum hliðum lífs-
ins.
Einsog áður sagði kemur fastan á
milli jóla og páska. Hún hefst með
því að faðir barnanna, leikhússtjór-
inn, geispar golunni þegar hann er
að æfa hlutverk í Hamlet. „Nú
myndi ég slá í gegn sem vofan í leik-
ritinu", segir hann rétt áður en hann
gefur upp öndina. Og mikið rétt —
Bergman tekur hann á orðinu og
lætur hann spila vofuna í sorgar-
gleðileik sínum, því faðirinn yfir-
gefur ekki sviðið þó hann deyi.
Hann er alltaf nálægur. í kvikmynd
Bergmans eru mjög ógreinileg skil
milli lífs og dauða. Hinir dauðu
Tillögur stjórnskipaðrar áfengis-
málanefnóar, sem vinnur að heild-
arm ör kun opinberrar áfengismála-
stefnu ha.a vakið mikla athygli.
Þær eru heldur ekki óumdeildar.
Tillögurnar eru að flestu leyti
grundvallaðar á þvi, að minnkandi
aðgengi að áfengi verði til þess að
draga úr heildarncyslunni og þar
með áfengissýki.
Tillögurnar skýra sig að öllu leyti
sjálfar. Þær fara hér á eftir eins og
þær komu frá áfengismálanefnd:
1. Torveldað verði aðgengi að á-
fengi með eftirtöldum ráðum:
a) Afengisútsölum og vínveit-
ingastöðum verði ekki fjölg-
að næstu tvö árin, eða á
meðan nefndin starfar.
b) Sett verði hnitmiðuð ákvæði
um framkvæmd skoðana-
kannana um opnun og lokun
áfengisútsala þannig að þær
skuli auglýstar með minnst
eins mánaðar fyrirvara.
c) Standi til að opna nýja áfeng-
isútsölu í Reykjavík eða á
öðrum stöðum þar sem á-
fengisútsala er þegar leyfð,
skal meiri hluti kjósenda vera
því samþykkur.
d) Skoðanakannanir, sbr. b- og
c-lið, fari eingöngu fram urn
leið og sveitastjórnarkosn-
ingar.
e) Endurskoðaður verði opn-
unartími áfengisútsala með
styttingu fyrir augum og til-
liti til hátíðisdaga (t.d. að-.
fangadags og gamlársdags).
0 Undir engum kringumstæð-
um verði heimilað að veita
Framhald af bls. 14
Ein aðaluppspretta áfengisneyslunnar ku fyrirfinnast á
skemmtistöðunum.
24,9%
Arsávöxtun
- stutt binding
Hafnfiröingar, nágrannar, kynniö ykkur nýju
ávöxtunarkjörin í Sparisjóðnum.
Til dæmis bjóöum viö nú um 24,9% ársávöxt-
un á sparireikningum meö aöeins 6 mánaöa
bindingu.
Allt starfsfólk Sparisjóösins er þér innan
handar varöandi hagkvæmustu ávöxtunar-
kjörin.
5PARIEJÚÐUR
HAFNARFJARÐAR
Hagur heimamanna
Strandgötu 8—10. Reykjavíkurvegi 66.