Alþýðublaðið - 22.08.1984, Qupperneq 13
Miðvikudagur 22. ágúst 1984
13
Kjartan Jóhannsson formaður Alþýðuflokksins:
Er verið að hafa fórnir
launafólks og aldraðra
að háði og spotti?
en um langt árabil ef eitthvert mark hættumörk í erlendum lántökum.
er takandi á verðbólgumælingum Hún er líka komin iangt yfir það
og við erum með einhverja hæstu sem hún lofaði sjálfri sér og þjóð-
vexti í hópi sambærilegra þjóða. inni og sumir ráðherrar tóku svo til
001483827 æ
SEÐlABANKi •'$}
ÍSLANDS '
Peningamálastefna ríkisstjórnarinnar er ekki miðuð við hagsmuni
launafólks. Aðrir hagsmunir standa nœr hjörtum stjórnarliða.
Orsök viðskiptahallans er ekki
aó vextir hafi verið of lágir. Orsökin
er of miklar erlendar lántökur. Það
sér auðvitað hvert mannsbarn að
fyrir þessi erlendu lán er keyptur
varningur til landsins. Þetta er það
fé sem þjóðin hefur á milli hand-
anna umfram það sem hún aflar
fyrir með útflutningi. Þess vegna er
innflutningur meiri en útflutningur
eða með öðrum orðum, halli á við-
skiptum við útlönd.
Ríkisstjórnin upplýsti þjóðina
um það fyrir skömmu að viðskipta-
hallinn væri of mikill og útgerðin í
kröggum og hvoru tveggja yrði að
bjarga. Niðurstaða ríkisstjórnar-
innar var að hækka vexti og auka
enn á erlendar lántökur. Aukning
erlendra lána mun þó enn auka við-
skiptahallann eins og öllum ætti að
vera ljóst og hækkun vaxtanna mun
ekki breyta því.
Vaxtahækkun
tilefni verðhækkana
Fyrir fáeinum mánuðum töluðu
ráðherrarnir um lækkun vaxtanna
sem lið í hjöðnun verðbólgu. Nú
eru þeir komnir í hring og tala um
vaxtahækkun til þess að lækka
verðbólguna. Samkvæmt þessu eru
alltaf rangir vextir og það eitt að
breyta þeim ætti að lækka verð-
bólguna. Þetta er vitaskuld hunda-
logik. Ef við hringluðum nægilega
mikið með vextina upp og niður í sí-
fellu mundi verðbólgan hverfa sam-
kvæmt þessari kenningu. Sannleik-
urinn er vitaskuld sá að við ríkjandi
aðstæður er hækkun vaxtanna Iík-
leg til að verða tilefni verðhækkana
og þar með aukinnar verðbólgu. í
ofanálag voru hér hærri raunvextir
Hættuleg erlend
skuldasöfnun
Erlenda skuldasöfnunin er hins
vegar hættuleg bæði í bráð og
lengd. Það er verið að njörva okkur
niður á skuldaklafa. Lánin sem tek-
in eru núna þýða einungis verri lífs-
kjör seinna. Þau á nefnilega að
greiða á skuldadögum. Efnahags-
Iegt sjálfstæði okkar — og þar með
sjálfstæðið sjálft — er í hættu.
Lönd hafa tapað sjálfstæði vegna
skulda. Og bankastofnanir hafa í
raun tekið við efnahagsstjórn hjá
ýmsum skuldugum löndum. Þetta
má ekki henda hjá okkur.
Ríkisstjórnin er komin langt yfir
orða að tækist ekki að halda þessi
mörk hefði ríkisstjórninni mistek-
ist og hún ætti að fara frá. Það var
rétt, en jafnvíst virðist, að ríkis-
stjórnin stendur ekki við þetta heit
sitt og loforð frekar en önnur. Það
er partur af hennar móral að gefa
fyrirheit, yfirlýsingar og loforð,
sem hún gerir ekkert með, stekkur
frá og svíkur, þannig að útkoman er
ómark og þvaður.
Við þessar aðstæður er það kór-
ónan á sköpunarverkið að taka
meiri erlend lán en frysta jafnframt
innlent fé í vaxandi mæli í Seðla-
banka. Mörgum þætti skynsam-
legra að frysta minna af því fé sem
við eigunr en láta ógert í staðinn að
auka erlendu lánin.
Vaxandi misrétti og
aðför að öldruðum
Launafólk hefur nú fórnað um
fjórðungi af kaupmætti sínum um
langa hrið. Ellilífeyrir og örorkulíf-
eyrir hefur vérið skertur í sama
mæli. Allt var þetta gert og við það
unað til þess að takast mætti að
eyða verðbólgunni og stöðva er-
lenda skuldasöfnun. Sanrt er verð-
bólgan enn á bilinu 12-15% sam-
kvæmt opinberu mati og ríkis-
stjórnin heldur áfrarn að hlaða upp
erlendum skuldum, sérstaklega til
þess að reka ríkissjóð.
Afleiðingar stjórnarstefnunnar
hafa jafnframt birst í auknu launa-
misrétti og vaxandi skattbyrði. Ó-
réttlætið í skattamálum tekur á sig
hrikalegar rnyndir, eins og skatt-
leysi lóðakaupenda í Stigahliðinni
ber nýjasta og ljósasta vitnið um.
Þannig hefur misréttið, sem ærið
var fyrir, stóraukist á undanförnum
misserum. Það gildir varðandi
launafólk almennt en sérstaklega
gagnvart öldruðum og öryrkjunt
þeim sem læknishjálpar þurfa að
njóta. Allt eru þetta afleiðingar
stjórnarstefnunnar.
Ríkisstjórnin
hæðist að fólkinu
Sú fórn sem launafólk hefur fært
var ekki gerð i þessum tilgangi. Hún
var heldur ekki færð til þess að rík-
isstjórnin héldi áfram að auka er-
lend lán. Þvert á móti var hún færð
Kjartan jóhannsson formaður Al-
þýðuflokksins.
einmitt til þess að sú aukning yrði
stöðvuð.
Með framferði sínu er ríkis-
stjórnin í raun að hæðast að fólk-
inu í landinu. Hver háðungin rekur
aðra á þeim ferli. Þegar halli var
fyrirsjáanlegur á ríkissjóði var
lausnarorð rikisstjórnarinnar ekki
að draga úr útgjöldum eða auka
tekjur heldur að taka erlent lán.
Þegar viðskiptahalii var fyrirsjáan-
legur voru viðbrögðin eins, nefni-
lega, að auka erlend lán, sem hefur
þau áhrif að auka enn á viðskipta-
hallann!
Þannig hefur stjórn ríkisfjár-
mála og peninganrála mistekist,
enda er þolinmæði fólks að þrjóta.
En svo mikið er víst, að launafólk,
aldraðir og öryrkjar hafa þegar
fórnað svo miklu, að þeir eiga kröfu
á ábyrgum og markvissum aðgerð-
um af hálfu stjórnvalda sjálfra á
eigin heimili. Og þeir hafa fórnað
of miklu til þess að það megi gerast
að verðbólgan rísi á ný. Verkefnið er
að bæta kjörin svo ekki verði land-
flótti og koma fram við sjúka og
aldraða af mannúð. Verkefnið er að
sneiða ofan af skuldasöfnuninni er-
lendis. Því miður stefnir ríkis-
stjórnin í þveröfuga átt.
LANGBEZTA VHS MYNDBANDSTÆKID HER
BEZTIVESTUR-ÞÝZKALANDI,.
'T* s*4--
video
Vestur-þýzka tímaritið VIDEO prófaði
nýlega öll helztu myndbandstækin á
vestur-þýzka markaðinum; 100 tæki frá
30 framleiðendum, en vestur-þýzki mark-
aðurinn er án efa stærsti og kröfuharðasti
markaðurinn í Evrópu. Niðurstaða sér-
fræðinga tímaritsins, sem birtist í apríl-
heftinu, var sú, að ORION væri bezta
VHS myndbandstækið, í almennum
verðflokki, á vestur-þýzka markaðinum.
„GULLGRÍSINN“ j FINNLANDI
iii
Finnska tæknitímaritið TM (Tekniikan
Maailma: Heimur tækninnar), sem er
stærsta tímarit sinnar tegundar á Norður-
löndum, prófaði myndbandtæki frá
ORION í nóvember-hefti sínu. TM veitti
ORION myndbandstækinu „Gullgrís-
inn“, sem er táknræn heiðursverðlaun
tímaritsins fyrir frábæra eiginleika, tækni-
lega fullkomnun og hagstætt verð; „beztu
kaupin“.
32.900
STAÐ.GR. MEÐ FJAR.ST.
n. ívitzu rjAn.ö i. j j y y
AF HVERJIIODYRAST AISLANDI?
Utanlandsdeild NESCO, sem er einkaumboðsaðili fyrir
ORION verksmiðjurnar á Norðurlöndum, er orðin einn
stærsti, ef ekki stærsti, seljandi myndbandstækja á Norður-
löndum, og kemur u.þ.b. sjötta hvert myndbandstæki, sem
selst á Norðurlöndum í ár, frá utanlandsdeild NESCO? Þetta
gerir innanlandsdeild NESCO kleift, að bjóða ORION mynd-
bandstækin hér með um 20% verðlækkun.
i tæki bera Luma. Nesco oq Xenon vörumerki, auk Onon vörumerkisins.
LAUGAVEG110 SIMI27788
FYRIRTÆKIÐ. SEM LÆKKAR VÖRUVERÐ Á ÍSLANDIMEÐ ÞÁTTTÖKU í ALÞJÓÐA VIÐSKIPTUM
6jARN> DAGUÞ AjGI Tf KNtS'Of A