Alþýðublaðið - 22.08.1984, Blaðsíða 18

Alþýðublaðið - 22.08.1984, Blaðsíða 18
18 Miðvikudagur 22. ágúst 1984 Leitin að hinni fullkomnu konu Ein af nektarmyndunum, sem orsakaði það að Vanessa missti krúnuna. Þátttakendur í keppninni um ungfrú leggjalöng. Vanessa Williams var f'yrir nokkru afkrýnd, sem fegurðar- drottning Bandaríkjanna, nokkr- um mánuðum áður en hún átti að afhenda nýrri „ungfrú Ameríku“ krónuna. Hún fékk að kenna á því að fegurðardrottning á að vera eggj- andi, en gangi hún of langt, getur það verið tvíeggjað. Vegna nokk- urra gamalla nektamynda, sent mánaðaritið Penthouse birti af Vanessu, missti hún titilinn. í Bandaríkjunum eru fegurðar- samkeppnir milljónafyrirtæki. Al- heims fegurðarsamkeppninni er sjónvarpað beint til 50 landa og um 600 milljónir áhorfenda sjá hana. Fyrirtækið kostar um 9 milljónir króna og gefur í aðra hönd um 75 milljónir króna. Þriggja ára fegurðar- drottning Ungfrú Ameríka er kosin eftir að búið er að halda 3000 smærri feg- urðarsamkeppnir í Bandaríkjun- um. Þátttakendur eru um 80.000 talsins og er gróðinn af þessum keppnum um 30 milljón krónur á ári, er haft eftir hinum 71 árs Albert Marks Jr., sem hefur verið stjórn- andi „Ungfrú Ameríka incí‘ í 23 ár. „Allt í allt þénum við um 150 milljónir á þessu“, segir hann, „og aldrei er skortur á þátttakendum". Árlega eru haldnar fleiri þúsund smá fegurðarsamkeppnir í Banda- ríkjunum. „Ungfrú frístundaveið- ari“, og „ungfrú djúpfryst", sem er haldið á bílastæðum fyrir framan matvörumarkaði. í þessar keppnir streyma stúlkur hvaðanæva að í von um frægð og frama. Það eru líka haldnar fegurðarsamkeppnir fyrir Konur eru eins og borgir! smábörn. Allt niður í þriggja ára aldur. Bandaríkin leita með logandi Ijósi að fyrirmyndum og átrúnaðar- goðum. Þeir kalla þetta ekki feg- urðarsamkeppni, því að þeirra mati þarf meira til en snoppufegurð og íturvaxinn líkama, svo manneskjan geti komið fram sem fulltrúi þjóð- arinnar. Hin eina og sanna „Ungfrú Ameríka“, verður Iíka að hafa per- sónutöfra og vera sæmilega vel gef- in. Dómararnir eiga að velja stúlku, sem er típískur fulltrúi fyrir kyn sitt, en auk þess á hún að hafa sín séreinkenni og hafa óvanalega mikla persónutöfra. Dómararnir eru á höttunum eftir hinni „full- komnu konu“, hún á að hafa heila- bú, vera ýmsum gáfum prýdd, hafa formfagran skrokk, bera af sér góð- an þokka, og hafa hæfileika á ein- hverju sviði. Snoppan skiptir líka máli, en þó ekki öllu. Þær eru eins og borgir Andstætt við „Ungfrú Ameríku" keppnina, þar sem dómararnir eru á launum og eru valdir úr mismun- andi þjóðfélagsstéttum, eru dómar- arnir í „Ungfrú alheimur“ keppn- inni eingöngu þekkt andlit, mest kvikmyndastjörnur ogeru þeir ekki launaðir. Harold Glasser er forstjóri I fyr- irtækinu „Ungfrú alheimur". í við- tali sem birtist við hann, segir hann. „Margir halda að búið sé að ákveða sigurvegarann fyrirfram, en það er ekki rétt. Dómararnir verða að hugsa um mannorð sitt. Þeir fórna því ekki fyrir svindl. Þeir eru þekkt- ir úr fjölmiðlum og því mjög hæfir Framh. á síðu 22

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.