Alþýðublaðið - 22.08.1984, Page 21

Alþýðublaðið - 22.08.1984, Page 21
Miðvikudagur 22. ágúst 1984 21 stofnunum öðrum, enda er sú ákvörðun enn alfarið í hendi Seðla- bankans. Innstæður af ávísana- og hlaupareikningum fara í 12%, voru í 5%. Sparisjóðsreikningar sem bundnir eru til 12 mánaða taka 24% vexti. Þá hefur Verslunar- bankinn tekið upp nýjan innláns- reikning, Kaskóreikning, sem á að veita bestu ávöxtun sparifjár, sem bankinn býður upp á hverju sinni. Víxilvextir í Verslunarbankanum eru 23% og af skuldabréfum 25%. Vextir af verðtryggðum lánum eru 8% og 9% eftir lánstíma. Búnaðarbankinn Sparireikningar í Búnaðarbank- anum með þriggja mánaða upp- sögn taka 20% vexti, en með 12 mánaða uppsögn 21%: Þá býður Búnaðarbankinn nýtt innlánsform; sparireikninga með 18 mánaða uppsögn og bera þeir 24% vexti og 25,4% ársvexti. Tékkareikningar bera 5% vexti, en spariskírteini — 6 mánaða, 23% og verðtryggðir sparireikningar til sex mánaða, 2,5%. Forvextir víxla í Búnaðarbankan- um eru með 22% vexti, en við- skiptavíxlar taka hærri vexti, eða 23%. Almenn skuldabréf bera 25%, en viðskiptaskuldabréf 28%. Verðtryggð lán miðuð við láns- kjaravísitölu bera 4%—5% vexti miðað við timalengd. Iðnaðarbankinn f Sparisjóðsreikningur með 6 mánaða uppsögn og 1,5% bónus ber 24,5% vexti í Iðnaðarbankan- um í 26% á ársgrundvelli. Það eru. Ávöxtun á sparisjóðsreikningum með 6 mánaða uppsögn er 23%, verðtryggðir reikningar með 6 mán- aða uppsögn bera 4,5% og verð- tryggðir reikningar með 6 mánaða uppsögn og 1,5% bónus eins og bankinn nefnir það, bera 6% vexti. Forvextir víxla hafa 22,5% vexti, yfirdráttarlán á hlaupareikningi 22%, ný skuldabréf 25%, verð tryggð lán í allt að tveimur og hálfu ári, 9% og ef tímalengdin er yfir 2 og 'A ár, þá eru vextirnir umfram verðtryggingu 10%. Alþýðubankinn 12 mánaða sparireikningar í Al- þýðubankanum bera 23,5% vexti fyrir sparifjáreigendur og er ársá- vöxtun þeirra upp á 24,9%. Sex mánaða verðtryggðir reikningar hafa 4,5% umfram verðbólgu. Vextir af ávísanareikningum eru 15%, en af hlaupareikningum 7%. Innlánsskírteini með sex mánaða uppsögn bera 23% vexti. Hvað útlánin varðar, þá eru víxil- vextir 22%, skuldabréfalánin taka 24,5%, eða á ári 26%. Vextirhir á verðtryggðu lánunum eru 7,5% ef lánstíminn er minna en þrjú ár, en þeir fara í 9% ef lánstíminn er lengri. Útvegsbankinn Sparisjóðsreikningar með 2ja mánaða uppsögn bera 18% vexti í Útvegsbankanum, með fjögurra mánaða uppsögn 21%, en með sex mánaða uppsögn 24,3%. Verð- tryggðir reikningar til sex mánaða eru með 6% vexti, en vextir á ávís- ana- og hlaupareikningum bera 7%. Innlánsskírteini eru með 24,3% vöxtum. Forvextir á víxlum eru 20,5%, skuldabréf bera 23% en verðtryggð lán eru með 8% vöxtum, ef þau eru til skemmri tíma en 2Vi ár. Samvinnubankinn Sparisjóðsreikningar með þriggja mánaða uppsögn í Sam- vinnubankanum bera 19,9% vexti, ef reikningarnir eru til 12 mánaða þá hækka vextirnir í 22,1%. Verð- tryggðir reikningar miðað við þriggja mánaða uppsögn bera 2% vexti, en sé miðað við sex mánuði, þá eru vextirnir 4%. Víxilvextir (forvextir) í Sam- vinnubankanum eru 22,5%, skuldabréf með 26% og vextir á verðtryggð lán til minna en 2 og Vi árs eru með 8%, en taka 10% vexti ef tímalengd lánsins er meiri. Sparisjóðirnir Sparisjóðirnir á landinu bjóða allir upp á sömu vaxtakjör. Spari- sjóðsskírteini taka 23% vexti með ársávöxtun upp á 24,3%. Spari- reikningar með 6 mánaða uppsögn bera 23,5%. Verðtryggðir reikning- ar með sex mánaða uppsögn taka 5% vexti, en tékkareikningar 12%. Útlánsvextir hjá sparisjóðunum eru þannig að forvextir af vixlum eru 23%, skuldabréfalán 25,5%, verðtryggð lán í allt að 1 og Vi ár, 8% verðtryggð lán til lengri tima taka 9% vexti. í þessari yfirferð hefur verið drepið á nokkra helstu inn- og út- Iánaflokka banka og sparisjóða. Þessi yfirferð er að sönnu ekki tæmandi. Hins vegar geta lesendur séð að nokkur munur getúr verið milli banka á þeim kjörum er boðið er upp á. Sums staðar eru útlána- vextir meira að segja lægri en inn- lánavextir annars staðar. í lokin skal á það minnt að opin- berar tölur hafa sýnt svart á hvítu að það er ekki sauðsvartur almúg- inn, einstaklingurinn, sem eru hinn þungi baggi á bankakerfinu, hvað lánafyrirgreiðslu varðar, því tölur sýna að einstaklingar taka aðeins í sinn hlut lítinn hlut af því stóra hlutfalli sem þeir eiga, þegar litið er til innlánsreikninga bankanna. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN Nokkrir nemar verda teknir í RITSÍMANÁM nú í haust. Inntökuskilyrði eru; a. Grunnskólapróf b. Almenn heilbrigði c. Lágmarksaldur 16 ára Námið tekur 15 mánuði, bæði bóklegt nám og verkleg þjálfun og verður hluti þess í bréfaskóla- formi. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá dyraverði Landssímahússins við Austurvöll og póst- og símastöðvum um allt land. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 26000. Umsóknir, ásamt heilbrigðisvottorði, sakavott- orði og prófskírteini eða staðfestu afriti af því skulu berast skólanum fyrir 10. september 1984. IANDCRUISE Toyota Land Cruiser kemur fyrstur upp í huga manna þegar talað er um torfærubíla, enda 28 ára reynsla að baki. Hann ekur hvern veg á enda og áfram ef þörf krefur. Aflmikil vél, vandaður fjaðrabúnaður, sterkt drif og hæð frá jörðu gera Land Cruiser kleift að yfirstíga allar hindranir. Sérhver Land Cruiser er þeim kostum búinn að hann uppfyllir ströngustu kröfur hvers og eins, hvar sem er, hvenær sem er. Á vegi jafnt sem vegleysum og við öll veðurskilyrði hefur Land Cruiser sýnt og sannað að hann stenst öðrum fremur íslenskar aðstæður. Láttu ekki Land Cruiser fram hjá þer fara, því þú gerirgóð kaup. Um þaðer reynslan ólygnust. TOYOTA Nýbýlavegi 8 200 Kópavogi S 91-44144 Söludeild Hafnarstræti 7 101 REYKJAVÍK S 9125111

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.