Alþýðublaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 11. júlí 1985
3
G. Srvarahlutir:
Innan skamms verða nánari þátt-
tökureglur auglýstar og vill Mazda-
umboðið á íslandi, Bílaborg hf.,
hvetja sem flesta íslendinga til þátt-
töku.
Varahlutaþj ónustan
mikilvægur þáttur
— í rekstri bílsins
Rœtt við Guðmund M. Sigurðsson í G. S-varahlutum um dýra, ódýra og
góða varahluti og ýmis mál bílainnflutningsins
Guðmundur M. Sigurðsson hjá
G. Si-varahlutum sagði ýmislegt
vera að gerast hjá varahlutaverslun-
inni í bíla þessa dagana. Samkeppn-
in væri hörð og sum bílaumboðin
væru meira að segja farin að selja
varahlutina álagningarlaust til þess
að ná kúnnunum inn fyrir dyrnar.
Tekjurnar væru bara teknar ein-
hvers staðar annars staðar inn og þá
væru hlutirnir seldir á margföldu
verði.
Menn kvörtuðu undan háum
tryggingagjöldum á bíla, en vær;
litið á verðlagninguna á sumun
varahlutum þá væri þetta ekker
skrýtið. Þetta væru jú hlutir sen
tryggingafélögin þyrftu að kaupa ti
þess að annast viðgerðirnar og surr
bifreiðaumboð kynnu sér ekki hóf
verðlagningu vara sem þeir hefði
sjálfdæmið með.
Guðmundur sagði að þeir hjé
G. Srvarahlutum legðu höfuð-
áherslu á að kaupa varahlutina til
landsins beint frá framleiðendun-
um erlendis milliliðalaust, enda
væru þeir umboðsmenn ýmissa
varahluta. Margir stæðu í þeirri trú
að bifreiðaumboðin gætu alltaf
keypt frá erlendu varahlutafram-
leiðendunum beint og því væru
hlutirnir bestir og ódýrastir þar.
Þetta væri þó stundum á mis-
skilningi byggt því bifreiðaumboð-
in hér væru oft skuldbundin til þess
að skipta við framleiðendur bíl-
anna sem þau flyttu inn með vara-
hluti, en þeir þyrftu ekki að vera
upprunalegir framleiðendur vara-
hlutanna eða yfirleitt hlutanna sem
notaðir væru í bílinn. Bifeiðaum-
boðin þyrftu þá að kaupa varahlut-
ina gegnum bílaframleiðendurna
sem umboðsaðili, og þá væri kom-
inn óþarfa milliliður, sem beinir
umboðsaðilar varahíutaframleið-
endanna losnuðu við.
Bílaframleiðendur biðu auk þess
oft núna út einstaka verkþætti í
bílaframleiðsluna og tækju þá
gjarnan ódýrustu hlutina í bílinn,
sem auðvitað þyrftu ekki að vera
bestir. Aðrir varahlutaframleiðend-
ur gætu þá verið með betri hluti í
bílinn en sjálfir framleiðendurnir,
þótt það væri ekki stimplað sem
„original" varahlutur.
Einnig virtust sumir hafa lag á
Ljósmyndakeppni
MAZDA haldin
annað árið í röð
Nýlega tilkynnti Mazda Motor
Corporation að Fjölskylduljós-
myndakeppni Mazda yrði nú haldin
í annað skiptið.
í fyrra bárust á fimmta þúsund
myndir til keppninnar frá flesturri
þjóðlöndum heims, en ef miðað er
við fólksfjölda bárust samt lang-
flestar myndir frá íslandi eða 80.
Einn íslendingur vann til verðlauna
og hlaut hann 3000 bandaríkjadali
eða jafnvirði ca. 126 þúsund króna
á gengi í dag. Var vinningsmyndin
síðan notuð í almanak Mazda fyrir
árið 1985.
Fjölskylduljósmyndakeppni
Mazda fyrir þetta ár verður með
svipuðu sniði og í fyrra, öllum er
heimil þátttaka og ekki er nauðsyn-
legt að þátttakendur eigi eða kaupi
Mazda-bíl.
Aftur er til mikils að vinna, því
veitt verða 12 1. verðlaun, hver að
upphæð 3000 bandaríkjadalir (ca.
126 þúsund krónur) og 48 2. verð-
laun, hver að upphæð 500 banda-
ríkjadalir (ca. 21 þúsund krónur).
Frestur til að senda inn myndir til
keppninnar rennur út 31. júlí næst-
komandi.
því að pakka varahlutunum fallega
inn og ætluðu greinilega að selja
svo umbúðirnar sem gæði. Alla-
vega virtist það vera einasta skýr-
ingin á verði sumra varahluta, því
innihaldið væri ekki pakkningunni
samboðið.
Guðmundur sagði það greinilegt
vandamál á íslandi — þessu fá-
menna landi — hversu bílategund-
irnar væru margar og af mörgum
gerðum. Þegar hann færi t. d. á
varahlutasýningar erlendis og gerði
pantanir, þá þyrfti hann að panta
álíka mörg framleiðslunúmer og
maðurinn við hliðina á honum sem
væri að panta fyrir milljónaþjóð.
Magnið væri bara ólíkt og því ólík
aðstaða til bess að hafa áhrif á verð.
Framh. á bls. 12
Guðmundur Sigurðsson, forstjóri G.S. Varahlutir. Varahluturþarf ekki að
vera betri þótt hann sé vel inn pakkaður.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Fjárfesting eða fjárhættuspil?
Á íslandi lítur hópur manna á bílavið-
skipti sem fjárhættuspil.
Þessir menn, sem stundum eru kallaðir
bilabraskarar, fylgjast náið með öllum
hreyfingum á bílamarkaði. Þeir bíða
rólegir eftir heppilegri „bráð" - bíl
sem þeir telja sig geta selt fljótt aftur
með hagnaði.
Oftast gengur dæmið upp og stundum
er hagnaðurinn mikill. En þá tapar Ifka
oftast einhver annar, einhver sem ekki
fylgist jafn vel með.
Sá sem á OPEL þarf ekki að óttast að
verða óvart þátttakandi f fjárhættu-
spili.
Eins og aðrir vinsælir þýskir bílar -
MercedesBenz,Audi, BMW ogVWGolf
- er OPEL þekktur fyrir mjög góða
endingu. OPEL bflarnir eru með þeim
allra vinsælustu á bílasölunum - bflar
sem alltaf þarf að borga toppverð fyrir.
Nýr OPEL er því góð fjárfesting.
Og stórskemmtilegur bfll!
—