Alþýðublaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 11. júlí 1985 7 Einar Þór Vilhjálmsson, framkvœmdastjórí Steypuverksmiðjunnar Ós. Kristján Guðjónsson, markaðs- og skrifstofustjóri Ós hf _________„Vönduð vara og hagstœtt verð“:_ Markmið Óss hf. er að framleiða ósvikna gæðavöru — segja þeir Einar Þór Vilhjálmsson, framkvœmdastjóri og Kristján Guðjónsson, Hjá Steypuverksmiðj- unni Ós í Hafnarfirði hitt- um við þá Einar Þór Vil- hjálmsson, framkvæmda- stjóra og Kristján Guð- jónsson, markaðs- og skrifstofustjóra. Við innt- um þá fregna af Steypu- verksmiðjunni. „Ós hf., steypuverksmiðja, sem tók til starfa í nóvember í fyrra, er samruni Rörsteypunnar hf. í Kópa- vogi og Byggingarfélagsins Ós. Við framleiðum hér rör, milliveggja- plötur, gangstéttahellur, garð- og götusteina, hleðslu- og skrautsteina ásamt allri steypu fyrir húsbyggj- endur. Til nýjunga telst að við framleið- um nú í fyrsta skipti rör í tveggja metra lengjum, sem flýtir allri lagn- ingu um a.m.k. helming. Við erum nú að Ijúka framleiðslu á 7.500 skrifstofustjóri hjá Osi í Hafnarfirði metra leiðslu fyrir flugstöðina í Keflavík. í fyrra lækkuðum við verð á gangstéttarhellum um 25% og helst það verð enn. Einnig má segja að markaðsverð hefur ekkert breyst einmitt af þessum völdum. Við er- um með steypu 5% undir skráðu verði og veitum venjulegan stað- greiðsluafslátt. Nýlega gerðum við samning við íslenska járnblendifélagið um kaup á tvö þúsund tonnum af kvartsi á ári. Þetta efni notum við í hellurnar og náum þannig slitþoli sem er margtugfalt miðað við þá vöru sem gengur og gerist á hinum almenna markaði. Öll útkeyrsla á steypu og að- keyrsla efnis hér hjá steypustöðinni er í höndum verktaka. Ókkar skoð- un er sú, að þar sem allur þessi tækjakostnaður var hvort sem er til í landinu, þá var ástæðulaust að flytja inn rándýr tæki til þess að auka enn á fjárfestingarkostnað- inn. Þetta sparar líka gjaldeyri og hf steypuverksmiðju okkur finnst nær að bæta frekar nýtingu þeirra tækja, sem lands- menn áttu fyrir, með auknu verk- efnaframboði. Þetta kemur lika viðskiptavinun- um, til góða, því við' höfum getað verið með 5% lægra verð en skráð verð. Steypustöðin sjálf er altölvu- vædd og hér vinna um 30 manns. Heildarverðamætasköpun er á ann- að hundrað milljónir á ári. Þegar viðskiptavinurinn fær steypu af- henta þá fær hann einnig útskrifað blað með sundurliðuðum efnisþátt- um, sem tölvan vinnur samstundis. Hann veit sem sagt nákvæmlega hvers konar steypu hann er að kaupa og í hvaða ástandi hún er. Á steypunni eru mjög hagstæð kjör, verulegur staðgreiðsluafslátt- ur eins og áður segir og lán í allt að sex mánuði til að byrja með“, sögðu þeir Einar Þór Vilhjálmsson og Kristján Guðjónsson hjá Steypu- verksmiðjunni Ós að lokum. Allar nánari upplýsingar hjá Útsýn. Feróaskrifstofan ÚTSÝIM KÁNTEÝ ’85 Ekta kúrekastígvél á Kántrýhátíðina Efni: Leður Litir: Grátt og Baige Verð aðeins kr. 895,- Sendum í próstkröfu AUSTURSTRÆTIÍO SIMI 27211 Hestamenn Evrópumót íslenska hestsins 1985 Hópferð til Svíþjóðar og Danmerkur í ágúst Ferðatilhögun: Flogið til Gautaborgar 15. ágúst og gist þar í 4 nætur á meðan mótið fer fram í Várgarda. Frá 19.—25. ágúst verður dvalið á Hótel Marienlyst í Helsing- ör, sem er eitt af glæsilegri hótelum á Norðurlöndum, staðsett við eina bestu baðströnd Danmerkur. Síðustu dagana, 25.-27. ágúst, verður dvalið á Hótel Cosmo- pol í Kaupmannahöfn. Verð frá kr. 18.900 15.—21. ágúst. Verö frá kr. 28.500 15.—27. ágúst. Fararstjóri hinn kunni hestamaður Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Austurstræti 17, sími 26611

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.