Alþýðublaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 12
12 Fimmtudagur 11. júlí 1985 Frumvörp 12 hanna Sigurðardóttir fluttu saman þingsályktunartillögu um að skip- uð yrði sjö manna nefnd, er hefði það verkefni að meta þjóðhagslegt gildi heimilisstarfa og gera úttekt á því hvernig félagslegum réttindum og mati á heimilisstörfum er háttað samanborið við önnur störf í þjóð- félaginu. Ákvæði barnalaga sam- ræmd skattalögum Jóhanna Sigurðardóttir flutti frumvarp er felur í sér samræmingu á ákvæðum barnalaga um fram- færsluskyldu því ákvæði skattalaga sem kveður á um frádrátt meðlags- greiðenda á helmingi greiddra með- laga með barni. 1981 voru sam- þykkt lög þar sem framfærslu- skyldan fór úr 17 í 18 ár og allt upp í 20 ár vegna menntunar eða starfs- þjálfunar barns. Hins vegar gleymdist að samræma þetta skattalögum og í þeim tilgangi var frumvarpið flutt. Frumvarpið var samþykkt. Átak til fjármögnunar krabbameinslækninga- deildar Jóhanna Sigurðardóttir og 7 aðr- ir þingmenn stjórnarandstöðunnar Iögðu fram tillögu til þingsályktun- ar um fjármögnun krabbameins- lækningadeildar, þar sem ríkis- stjórninni var falið að stofna til þjóðarátaks, til að fullgera megi deildina á Landspítalalóðinni á næstu 3—4 árum. Endurreisn Viðeyjarstofu Jón Baldvin Hannibalsson flutti tillögu um að fjármagni yrði varið til endurreisnar Viðeyjarstofu. Samþykkt. Land í þjóðareign Þetta frumvarp Kjartans Jó- hannssonar og annarra þingmanna Alþýðuflokksins snerist um það, að öll þau landssvæði, sem aðrir en ríkið hafa ekki eignarheimildir fyr- ir, verði eign þjóðarinnar í umsjá ríkisins og Alþingis. Á þetta við um öll fasteignaréttindi, svo sem vatns- réttinda, jarðhita, námuréttinda og annarra réttinda sem bundin eru eignarrétti lands, en beitarréttindi og veiðiréttindi yrðu óbreytt frá því sem er. Háhitaorkan sameign þjóðarinnar Þetta frumvarp Kjartans Jó- hannssonar og annarra þingmanna Alþýðuflokksins fól það í sér að orka sú, sem fólgin er í háhitasvæð- um sé sameign þjóðarinnar, þ. e. djúphiti á háhitasvæðum, en jarð- varmi á lághitasvæðum yrði háður einstaklingsrétti landeigenda. Stjórnarráðið yfirtaki Seðlabankahöllina Jón Baldvin Hannibalsson og Jóhanna Sigurðardóttir fluttu um það tillögu, að ríkisstjórninni yrði falið að ljúka byggingu Seðla- bankahallarinnar sem fyrst, hún síðan yfirtekin handa Stjórnarráð- inu, en Seðlabankanum icomið fyr- ir í húsnæði Framkvæmdastofnun- arinnar við Rauðarárstíg. Þessi til- laga var óbeint samþykkt sem ályktun Alþingis, eftir að hún hafði verið „milduð“ nokkuð. Afnám einkasölu á eldspýtum Karl Steinar Guðnason og Eiður Guðnason fluttu um það frumvarp að afnumin yrði einkasala og inn- flutningur ríkisins á vindlinga- pappír og eldspýtum. Afnám bílakaupa- fríðinda ráðherra Eiður Guðnason og Karl Steinar Guðnason endurfluttu frumvarp til laga um afnám bílakaupafríðinda ráðherra — enda stangast slík fríð- indi á við réttarvitund almennings. Greiðslubyrði fari aldrei umfram launaþróun Þettaer frumvarp Jóhönnu, Jóns Baldvins og Karvels um breytingu á lögum um stjórn efnahagsmála, þar sem einkum er tekið á óhóflegri aukningu á greiðslubyrði í þjóðfé- laginu: Markmið þessa frumvarps er að fyrirbyggja að versnandi lífskjör auki greiðslubyrði verðtryggðra lána langt um fram eðlilega greiðslugetu fólks. Hugmyndin er sú að fresta greiðslu á þeim hluta verðtrygginar sem er umfram al- mennar launahækkanir í landinu. Þetta verði gert með lengingu láns- tímans þannig að hækkun árlegrar greiðslubyrði sé ekki meiri en sem nemur hækkun almennra launa á sama tímabili. Bjórinn verði leyfður Jón Baldvin Hannibalsson og nokkrir aðrir þingmenn lögðu fram frumvarp til laga um bjórinn, þess efnis að hann yrði leyfður hér á landi. Öll vitum við hvernig fyrir þessu máli fór. Útrýming heilsu- spillandi húsnæðis Kjartan Jóhannsson flutti um það frumvarp að stjórnir verka- mannabústaðakerfanna færu með kaup og sölur á íbúðum er voru byggðar til útrýmingar heilsuspill- andi húsnæði, en eftir gildistöku laga 1980 vantaði hreinlega ákvæði um endursölu slíkra íbúða. Þetta frumvarp var samþykkt. Aðflutningsgjöld af öryggistækjum Maríanna Friðjónsdóttir flutti ásamt nokkrum öðrum þingmönn- um frumvarp til laga þess efnis að aðflutningsgjöld yrðu felld niður af öryggisbeltum, barnavögnum, hlutum og öryggissætum fyrir börn í ökutækjum. í tengslum við frum- varpið um afnám aðflutningsgjalda af ýmsum öryggistækjum barna fluttu Maríanna og nokkrir aðrir þingmenn frumvarp þess efnis að fellt yrði niður 24% vörugjald af barnavögnum og hlutum til þeirra. Þjóðgarður við GuIIfoss og Geysi Eiður Guðnason, Jóhanna Sig- urðardóttir og Sighvatur Björgvins- son fluttu um það tillögu að ríkis- stjórninni yrði falið að hefja nú þegar undirbúning að stofnun þjóðgarðs umhverfis Gullfoss og Geysi. Vaxtafrádráttur til jöfnun- ar húsnæðiskostnaðar Jóhanna Sigurðardóttir, Kjartan Jóhannsson og Karl Steinar Guðnason fluttu þingsályktunartil- lögu þess efnis að fela ríkisstjórn- inni að kanna, hve'rnig skattafrá- dráttur vegna vaxtagjalda nýtist húsbyggjendum og íbúðarkaup- endum til jöfnunar á húsnæðis- kostnaði með tilliti til mismunandi tekna og fasteignaveðskulda. Einn- ig að meta hvort þennan frádrátt megi nýta betur eftir öðrum leiðum. Þróunarverkefni á Vestfjörðum Sighvatur Björgvinsson flutti ásamt Þorvaldi Garðari Kristjáns- syni og Ólafi Þ. Þórðarsyni tillögu til þingsályktunar, þar sem Fram- kvæmdastofnun ríkisins var falið að semja álitsgerð um framkvæmd þróunarverkefna í atvinnumálum á Vestfjörðum í því skyni að hraða nýsköpun í atvinnulífi, örva fram- tak einstaklinga og félaga, efla vöxt byggðakjarna og auka fjölbreytni í atvinnustarfsemi. Sjávarútvegsráðherra með fiskiræktarmálin Kjartan Jóhannsson ásamt nokkrum öðrum þingmönnum fluttu tillögu þess efnis að Alþingi skoraði á ríkisstjórnina að gera breytingu á fyrirliggjandi reglugerð frá 1969, sem fæli í sér að fiskeldi, klak og skyld starfsemi í fiskrækt- arstöðvum verði á verksviði sjávar- útvegsráðuneytisins. Lækkun á bindisskyldu í Seðlabanka Eiður Guðnason og nokkrir aðr- ir þingmenn stjórnarandstöðunnar fluttu undir lok þinghaldisins frumvarp þess efnis að bindis- skylda innlánsstofnana á sparifé landsmanna í Seðlabanka yrði aldrei meiri en 15°7o. Bindisskyldan er 18% og með því að lækka hana í 15% má losatæplega 800milljónir króna. Bankaráðin burt og ný kosin Menn muna eflaust eftir því er upp komst að bankaráð nokkurra ríkisbanka höfðu samþykkt 450 þúsund króna vísitölutryggðan launaauka handa bankastjórum banka sinna i stað bifreiðahlunn- inda. Fluttu Jóhanna Sigurðardóttir og þrír aðrir þingmenn Alþýðu- flokksins frumvarp til laga þess efnis að umboð núverandi banka- ráða yrði fellt niður og ný kosin, enda vísitölubindingin ólögleg og siðlaust að veita þannig launa- hlunnindi, sem samsvara nærfellt þreföldum lágmarkslaunum og fjórföldum framfærslulífeyri fjölda elli- og örorkulífeyrisþega. FÞG tók saman. G.S.-varahlutir Framh. af bls. 3 Sumir gleymdu líka einfaldlega varahlutaþættinum, þegar þeir hæfu innflutning á bílum. Um að gera að hafa tegundirnar bara nógu margar og bílasýninguna nógu glæsilega með svona 40 til 50 teg- undum af sama bílnum, og væri þá hverju barni augljós óhagræðið í framhaldinu með varahlutaþjón- ustuna. Erlendis tíðkaðist það til dæmis sums staðar, að yfirvöld settu fram tryggingarkröfu á varahlutaþjón- ustu, áður en verslunar- og inn- flutningsleyfi væru veitt viðskipta- aðilum með bíla. Menn ættu aldrei að gleyma þessum málum þegar þeir keyptu bíl og ef þeir gaum- gæfðu þetta losnuðu þeir við ýmis vandamál í bílarekstrinum, sem annars gætu auðveldlega orsakað það, að nýlegur bíll væri þeim ónýt- ur yfir langan tíma. Varahlutaþjónustua væri mjög stór þáttur í bílarekstrinum og það reyndu þeir hjá G. Srvarahlutum að hjálpa fólki með, sagði Guðmund- ur M. Sigurðsson að lokum. Blái borðinn og heftibyssa, til þess að gera þak- pappan fokheldan. Heftibyssur í 4 gerðum og heftivír t 5 stærðum P> RAWLPLUG Með því að hefta CYCLOP plastborðann á jaðra þak- pappans, fæst ólíkt betri fest- ing pappans á þakið, og útilok- ar, að hann fjúki þó verður rjúki upp. Þessi aðferð er þeim mun nauðsyniegri sem lengri tími líður þar til gengið er endanlega frá þakinu. IKRISTJÁN Ó 12 mm. breidd. Hkristjan o . . SKAGFJÖRD HF cyklop Hoimasloð4. 101 Reykjavik s. 24120

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.