Alþýðublaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 11. júlí 1985 13 Kristján Ó. Skagfjörð, tölvudeild Samræmi, þægindi og gæði — er aðall Ericsson tölvanna. Rœtt við sölumennina Ingibjörgu Hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð hitt- um við sölumennina í tölvudeild, þær Sjöfn Ágústsdóttur og Ingi- björgu Gísladóttur. Talið barst að Ericsson-tölvunum og lögðu þær áhersiu á, að í framleiðslu þeirra reyndu framleiðendur eins og hægt væri að aðlaga tölvurnar einstakl- ingnum — notandanum — en ekki öfugt. Vinnuvistfræðin væri aðall- inn í framleiðslu Ericsson-tölv- anna. Tölvan væri lítil og nett, hljóðlát og skjárinn sérstaklega þægilegur fyrir augun og þetta væru IMB samræmdar tölvur. Tölvurnar kostuðu á bilinu 91 þús- und krónur upp í 200 þúsund krón- ur. Þeir hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð byðu heildarlausn á tölvuþörf fyrir- tækja og einstaklinga. Við sölumennsku á Ericsson PC- EPC-töIvunum væri lögð áherlsla á eftirfarandi: 1. Samræmi (IBM PC compatability). 2. Vinnuvistfræði (ergonomy). 3. Samskipti við móð- urtölvu eða einkatölvu og 4. Gæði (ekki verð). í kynningarritum Kristjáns Ó. Skagfjörð segir um einkatölvur, Er- icsson PC-tölvuna og hina hentugu nýjung, fartölvuna: Hvers vegna einkatölva? Tölva fyrir þig. Til að hjálpa þér í starfi. Til að auka afköst þín. Til að hjálpa þér að ná betri árangri. Til að gera þér kleift að takast á við ný verkefni. Fjölhæft tæki, með eiginleikum sem þú sjálf(ur) stjórnar. Tæki sem er í rauninni það sem þú ákveður að það sé. Töfrar litlu tölvunnar. Ef þú hef- ur unnið við stóra tölvu en ekki einkatölvu þá á margt ánægjulegt eftir að koma þér á óvart. Það sem þú átt eftir að veita einna mesta at- hygli, varðar hugbúnaðinn. Hugbúnaður á stórar tölvur er óskaplega dýr. Til þess að hægt sé að réttlæta uppsetningu á sérstök- um hugbúnaði, verða margir not- endur að hafa sömu þarfir. Slík uppsetning tekur þar að auki tíma. Þetta þýðir að langur tími getur lið- ið frá því að komist er að raun um að eitthvað vantar og þar til hægt er að byrja að nota hugbúnaðinn. Hugbúnað á einkatölvuna má kaupa víða, sem gerir það að verk- um að þú getur byrjað að vinna strax. Þrátt fyrir að hugbúnaður á einkatölvuna kosti aðeins brot af verði sams konar hugbúnaðar fyrir stórar tölvur, þá er hann oft mun afkastameiri og hraðvirkari. Flestir sem unnið hafa með ritvinnslu Sjöfn Ágústsdóttur og Gísladóttur. bæði á stórri tölvu og einkatölvu, vita hvað við erum að tala um. Mun meira úrval er til af hugbún- aði fyrir einkatölvur en stórar tölv- ur. Þúsundir hugbúnaðartegunda sjá um að koma til móts við alls konar sérþarfir. Mörg þessara for- rita eiga sér engan jafnoka þegar stórar tölvur eru annars vegar. Hvers vegna Ericsson PC? Einkatölva getur reynst þér stór- kostlegt hjálpartæki við dagleg störf. Þó eru ekki allar einkatölvur eins — þær eru ólíkar innbyrðis. Þetta á líka við um einkatölvur sem sagðar eru samræmdar ein- hverjum viðurkenndum iðnaðar- staðli. Einhvers konar samræmi (compatibility) er af flestum álitið nauðsynlegt, en ekki nægilegt eitt sér. Samræmi er aðeins byrjunin hjá Ericsson en ekki endir í sjálfu sér. Og Ericsson-staðall felur í sér miklu meira. Ericsson-staðall. Allt hand- bragðið ber vott um gæði. Einnig val á efnishlutum og tæknilegar úr- lausnir og allt annað sem snýr að notandanum. Gæði fela líka í sér meiri hagkvæmni, bæði fyrir not- andann og einnig fyrir framleið- andann sem einsetur sér langtíma- markmið og ábyrgð — fyrir Erics- son. Annað sem greinir Ericsson PC frá öðrum samræmdum einkatölv- um, er hversu vel tölvan er aðlöguð notandanum, manneskjunni sjálfri. Hvaða gagn gerir afkastamikil tölva og stórkostlegur hugbúnaður ef slíkt er ekki notað rétt? Það er ekki erfitt að sjá að út- færslan á Ericsson PC er frábær, enda hefur vinnuvistfræðin (í nýju orðabókinni þýðing á orðinu „er- gonomics“) verið lögð til grundvall- ar. Ericsson-fyrirtækið hefur verið leiðandi á þessu sviði síðan Erics- son hóf framleiðslu á tölvuskjám fyrir meira en fimmtán árum. Skoðaðu t. d. Ericsson skjáinn með gulum stöfum á brúnum bak- grunni. Sérlega heppileg samsetn- ing fyrir augun. Með 640x400 punkta myndupplausn. Og skján- um er auðvelt að halla og snúa, svo þú getur haft hann í þeirri stöðu sem þér finnst þægilegust. Þá er hann lítill, svo hann má auðveldlega hafa á borði sem notað er fyrir aðra vinnu. Annar kostur er sá að vélin er hér um bil hljóðlaus. Eitthvað sem þú í fljótu bragði gætir haldið að skipti litlu jnáli, en ef þú hefur haft Sjöfn Ágústsdóttir, sölumaður. reynslu af öðru þá veistu um hvað verið er að ræða. Og þar sem umræðuefnið er vinnuvistfræði þá er ekki úr vegi að nefna lyklaborðið. Það þarf varla að taka það fram að það er laus- tengt tölvunni, Iágt og allmiklu minna og léttara en þau lyklaborð sem þú hefur hingað til séð, þrátt fyrir að það sé rýmra. Það hefur Iíka ljós á lykli fyrir hástafalæsingu og talnalæsingu. Allt ofangreint gerir það að verkum að Ericsson PC gefur þér meiri afköst og þæg- indi. Við höfum nú skoðað þrjá grundvallarþætti í Ericsson-staðl- inum, samræmið, gæðin og vinnu- vistfræðina. En ekki er allt komið enn, ekki hjá Ericsson. Einkatölva getur orðið of mikil „einka“-tölva. Þá er hún bara ein og sér án þess að komast í samband við umheiminn. Með ofangreint í huga og einnig það að Ericsson er með þeim fremstu í heiminum á sviði fjar- skiptatækni og skjákerfa, þá er auðvelt að finna út hvar Ericsson slær öðrum við. Nefnilega á sviði Ingibjörg Gísladóttir, sölumaður. tölvusamskipta. Hvort sem það eru tölvusamskipti innan fyrirtækisins eða við einhvern hinum megin á hnettinum. Hvort sem það er SNA eða Videotex, IBM eða DEC. Fjögur grundvallaratriði. Og ár- angurinn? ERICSSON PC einka- tölvan. Nýjung frá Ericsson — fartölva Notar þú stundum einkatölvu? Ef svo er þá veistu hversu mikil hjálp er að slíku tæki við vinnu þína. En hvað gerirðu þegar skrif- borðið er ekki við hendina? Þú gæt- ir þurft að vinna mikilvæg verkefni fjarri skrifstofunni og kannski gerir þú talsvert af því. í slíkum tilvikum kæmi sér vel að hafa einkatölvu sem þú getur tekið með þér hvert sem þú ferð. ERICSSON kynnti nýlega far- tölvu sem nýtir sér alla möguleika ERICSSON PC-einkatölvunnar sem nú þegarhefur.,slegið í gegn“. Fartölvan var fyrst kynnt á Hann- over ’85 tölvusýningunni sem hald- in var í Þýskalandi í maí sl. Á þess- ari tölvusýningu voru kynntar allar nýjungar sem komið hafa fram á einkatölvumarkaðinum, síðan á Hannover ’84. Fartölvur, fram- leiddar í Evrópu og Japan, voru það sem athygli vakti. Af fartölvun- um skaraði ERICSSON fartölvan fram úr fyrir frábæra hönnun og það að bjóða upp á alla möguleika einkatölvunnar. Eini raunverulegi munurinn á milli Ericsson-fartölvunnar og Er- icsson-borðtölvunnar er stærðin. Sami hugbúnaður er notaður og flytja má gagnadiskettur vand- ræðalaust á milli fartölvunnar og annarra samræmdra einkatölva. Skjár fartölvunnar á engan sinn líka og var sá eini sinnar tegundar á Hannover ’85. Þetta er flatur „plasma“-skjár sem sýnir 25 línur og 80 dálka eins og á Ericsson- einkatölvunni. Eins og við var að búast af Ericsson þá er skjárinn þægilegur fyrir augað og stafirnir mjög skýrir. Öll grafík ’kemur einn- ig mjög vel út á skjánum. Allt þetta er hægt með skjá sem ekki nær því einu sinni að vera 40 mm að þykkt! Lyklaborðið, sem er auðvitað laustengt, hefur alla sömu lykla og Ericsson-borðtölvan. Talnalyklarn- ir eru hafðir aðgreindir á sama hátt og á borðtölvunni til þess að auka hraða og nákvæmni við talnainn- slátt. Hægt er að fá innbyggðan prent- ara með fartölvunni og má bæði prenta á venjulegan pappír og líka á hitapappír (thermal paper). Prent- arinn tekur einnig grafík. Sérstakan 512 Kb-rafeindadisk má fá með fartölvunni sem gerir það að verkum að keyra má hug- búnað mun hraðar en á flestum borðtölvum. Innbyggt módem er einnig fáan- legt sem aukabúnaður svo auðvelt er að hafa samskipti í gegnum síma- kerfið við allar gerðir af einkatölv- um og einnig við stærri tölvur. Bæta má sérstakri einingu við fartölvuna sem hefur rými fyrir tvö viðbótarspjöld. Einnig má tengja annað diskettudrif tölvunni til við- bótar við innbyggt 5 !4 diskettudrif- ið. Tölvan kemur standard með 256 Kb-vinnslunni sem er stækkanlegt í 512 Kb. Þar að auki er 1 innbyggt brautartengi (internal bus port), tengi fyrir viðbótardiskettudrif, 1 raðtengi og 1 samsíða tengi fyrir prentara. Rafhlöðudrifin klukka er innbyggð í tölvuna svo og dagatal. Miðað við allt sem fartölvan býð- ur upp á, þá gætir þú fengið þá grillu að hún væri fyrirferðar eins og ferðataska, en það er langt í frá. Hún vegur aðeins 7,6 kg í grunnút- gáfu og málin eru svipuð og á nettri skjalatösku eða 115x310 mm. Með ferðatölvu í hendi ertu því fullbú- in(n) til þess að vinna hvaða verk sem er, hvar sem er. Samkvæmt síðustu upplýsingum þá býst Kristján Ó. Skagfjörð hf. við að geta boðið yður þessa frá- bæru fartölvu til kaups með haust- inu. Landid helga og Eggptaland Ævintýraferð sem aldrei gieymist. Egyptaland — Kairo — píramídarnir miklu — sigling á IMíl — Suður-Egypta- land — Luxor og Asswan. Ekið um bedúínabyggðir Sinai-eyðimerkur frá Kairo til Jerúsalem. Heimsóttir sögu- staðir Biblíunnar: Betlehem — Betania — Jórdansdalur — Dauðahafið — Jeriko — Nasaret. Dvalið við Gene- saretvatn. 2 síðustu ferðadagarnir við hlýja baðströndina í Tel Aviv. Hægt að fá Lundúnadaga á heimleið. Val skipulögð rólogheitaferð um fjögur lönd og ógleymanlega sögustaði. Athugið verðið. Það er ótrúlegt. MALLORCA Kynningarverd kr. 26.900,- — 3 vikur, 2 í íbúd Innifalið flugferðir og akstur milli Landsins helga og Egypta- lands. Gisting á fyrsta flokks hótelum ásamt morgunverði og kvöldverði alla ferðina. Fararstjóri: Guðni Þóröarson sem farið hefur á annan tug hóp- feröa meö íslendinga um þessar slóöir. Kynnið ykkur góða feröaáætlun og einstakt verö og pantiö strax því þegar er búið aö ráöstafa meira en helmingi sæta áöur en þessi fyrsta auglýsing birtist. FIUCFERDIR = SGLRRFLUG Vesturgötu 17 símar 10661,15331, 22100.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.