Alþýðublaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 11. júlí 1985 Stjórnstöð ígeimstöð? Nei, þetta er stjórnstöð í nýtísku steypuverksmiðju. Eins og sjá má eru það tölvur sem stjórna verkinu og tölvuskjáir og prentarar eru á fullu við að þjónusta viðskiptavininn. Það er steypustjórinn Guðni Vignir Jónsson, sem situr við símann og matar tölvuna jafnharðan en markaðsstjórinn Kristján Guðjóns- son fylgist spenntur meá Verslunin Torgið lífgar uppá bæjarbraginn Það lifnaði heldur betur yfir miðbænum um daginn, þegar Verslunin Torgið við Austurstræti hélt tískusýningu við Austurstræti. Diskótónlistin ómaði um bæinn og múgur og margmenni flykktist að til þess að horfa á hið eldhressa sýn- ingarfólk og tískuvarninginn sem það sýndi. Bílar þeyttu flautur sínar og fólkið klappaði og síðan fengu allir kaffi inní versluninni. Undir lokin stillti sýningarfólkið sér upp fyrir Alþýðublaðið. Eins og sést á myndinni er fatnaðurinn við allra hæfi dömur og herra, að ógleymdri yngri kynslóðinni. Ferðablaðið Land komið út Ferðablaðið LAND er nú komið út öðru sinni og mega Iandsmenn eiga von á að fá það inn um bréfa- lúgur sínar á næstu dögum. LAND er án efa útbreiddasta tímarit sem gefið er út á íslandi, en það er prentað í 80.000 eintökum og dreift ókeypis á hvert einasta heimili á Iandinu. Ferðablaðið LAND er 180 bls. að stærð og komið í tímaritsbrot í stað dagblaðabrotsins í fyrra. Ritið hef- ur að geyma mikið magn upplýs- inga er að gagni mega koma þeim íslendingum sem hyggjast ferðast innanlands í sumaríeyfinu. Útgef- andi er E. THORSTEINSSON HF. Ferðablaðið LAND er ársrit sem hóf göngu sína í fyrra og mæltist þá þegar vel fyrir. Hefur efni blaðsins nú verið aukið að mun, þótt enn skorti því miður nokkuð á að alls staðar sé um tæmandi upplýsingar að ræða. í blaðinu er fjallað ítarlega um hvern landshluta fyrir sig og fjöl- mörg sveitarfélög eru kynnt og rak- in sú þjónusta sem þau bjóða ferða- mönnum. Þá er og fjallað um all- mörg fyrirtæki sem ferðamálum sinna og rætt við fjölda einstakl- inga sem starfa í þessari ungu en ört vaxandi atvinnugrein. Ferðablaðið LAND hefur einnig að geyma aragrúa uppflettiatriða. Þar er að finna tímatöflur fyrir áætlunarferðir á landi, sjó og í lofti; sömuleiðis opnunartíma ýmissa safna, sundstaða o.s.frv. LAND er þannig að mörgu leyti eins konar ferðahandbók og getur áreiðanlega í mörgum tilvikum komið í stað slíkra. Matthías Bjarnason, samgöngu- ráðherra, fylgir blaðinu úr hlaði með ávarpi og segir þar m.a. að veruleg breyting hafi að undan- förnu orðið á afstöðu bæði almenn- ings og ráðamanna til ferðamála sem atvinnugreinar. Síðast en ekki síst má geta þess að LAND er prýtt miklum fjölda fag- urra litmynda víðs vegar að af land- inu og eru þær flestar teknar af Mats Wibe Lund. HÚSNÆÐIS REIKNINGUR Landsbankinn býður nú nýja sparireikninga fyrir verðandi húsráðendur. REGLUBUNDINN SPARNAÐUR MEÐ SKATIAFRÁDRÆXn HÁRRI ÁVÖXTUN OG LÁNTÖKURÉTTI Skattafrádráttur. Fjórðungur árlegs sparnaðar er frádráttarbær frá tekjuskatti. Reglubundinn sparnaður. Samið er um sparnaðarupphæð til eins árs í senn. Hún þarf að vera á bilinu 3 til 30 þúsund krónur ársfjórðungs- lega. Há ávöxtun. Ávallt er boðin besta ávöxtun sem Landsbankinn veitir á almennum innlánsformum. Innstæður eru verð- tryggðar og vextir þeir sömu og á 6 mánaða verðtryggð- um reikningum. Áuk þess er reiknuð vaxtauppbót ef ávöxtun annarra almennra innlánsforma reynist betri. Lántökuréttur. Lántökuréttur í lok 3ja til 10 ára sparnaðartíma er tvöfaldur til fjórfaldur sparnaðurinn. Hámark 400 þúsund til ein milljón krónur. Úttekt. Hægt er að taka út af Húsnæðisreikningi eftir 3 til 10 ár. Upplýsingabæklingur. Kynnið ykkur frekar þennan nýja sparireikning Landsbankans í upplýsinga - bæklingi sem liggur frammi í afgreiðslum bankans. LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir HUSNÆÐIS REIKNINGUR

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.