Alþýðublaðið - 09.11.1985, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 9. nóvember 1985
KRISTINN GUÐNASON HF.
BMW gæðingurinn
Rœtt við Högna Jónsson, sölustjóra hjá Kristni
Guðnasyni, um vestur-þýska hágœðabíla, sem einnig
fást sem fjölskyldubílar á skaplegu verði, og um BMW
mótorhjólin, sem auglýst eru þannig í Bandaríkjunum;
„ tollirðu á því, þá kauptu það”
Högni Jónsson, sölustjóri: Þjóðverj-
arnir líta á íslenskar aðstœður, sem
vissa áskorun á þýskan bílaiðnað.
BMW mótorhjólið sem lögreglan i Hafnarfirði er komin á og senn þjónar einnig
lögreglunni í Keflavik: Haldið ykkurfast strákar og farið varlega, það erfjórar sek-
úndur í hundrað km. hraða.
Nýlega varð nokkur lækkun á
aöflutningsgjöldum bíla til lands-
ins og vakti þaö vonir bifreiðaeig-
enda um stefnubreytingu hjá opin-
berum aöilum í tollalagningu bif-
reiða. Bifreiö er fyrir löngu orðin
hrein nauðsyn hér á landi, sem og
annarsstaðar í veröldinni, þótt fjar-
lægðirnar hér og landshættir geri
auknar kröfur á góða bíla. Sérstak-
lega með tilliti til öryggis í umferö-
inni er óeðlilegt að bifreiðar verði
of gamlar, en hætta er á því, ef þær
eru of dýrar.
Vestur þýskir bílar hafa löngum
haft orð á sér að vera sérstök gæða-
vara, enda á þýskur iðnaður langa
sögu að baki og sumir þýskir bílar
þótt í sérflokki hvað varðar gæði og
endingu. Það er mikilvægt fyrir
þjóð sem treysta verður á endingar-
gæði bifreiða að vita af góðum bíl-
um. Til þess að fregna nokkuð af
þessum frægu bílum og heyra
nokkrar tölur um verð, hittum við
Högna Jónsson, sölustjóra hjá
Kristni Guðnasyni við Suðurlands-
braut, en það fyrirtæki flytur inn
sjálfan gæðirtginn, vestur-þýska
gæðabílinn BMW.
Högni. sagði að BMW-inn væri
framleiddur í þremur seríum 300,
-500, -700 seríunum. Hann hefði
verið hannaður upphaflega sem há-
gæðabíll og héldi þeim eiginleikum
sínum, þótt aukin áhersla væri nú á
að framleiða hann sem fjölskyldu-
bíl á verðum sem allir réðu við. Nýj-
ar verksmiðjur í Regensburg, ná-
lægt Munchen tryggðu um hálfrar
milljón bíla framleiðslu á ári og
ætti þá að vera hægt að anna eftir-
spurn, en gífurleg eftirspurn hefði
verið eftir BMW undanfarna ára-
tugi og bíllinn nánast verið stöðu-
tákn um víða veröld. Nafnið eitt
væri trygging fyrir endingu og gæð-
um auk þeirrar frægðar sem hann
nyti á kappaksturs- og rallý-braut-
unum.
EÖlisávísun
Átak á öllum hjólum í aldrifi, bœtir aksturseiginleika og eykur hœfni í snjó og
ófœrð. Takið eftir að mölin spýtist undan öllum hjólunum. Þetta er BMW 32S i með
aldrifi og fœst nú til afgreiðslu í 1986 módelum.
Kj örbókareigendur nj óta góðra kj ara hvenær sem þeir leggj a inn.
Þeir sem safna rata á Kjörbókina.
Klassiskar linur og fagur yfirsvipur einkennir gœðinginn frá BMW. Þetta er 535 i,
meðþriggja og hálfs lítra 160kw/218 PS mótor er hann 7,2 sek. að ná hundrað km.
hraða á klst.
LANDSBANKINN
Græddur er geymdur eyrir
Sem dæmi um verð sagði Högni
að Standard BMW 316, fimm
manna fjölskyldubíll, fimnv gíra
með lituðu gleri, rafdrifnum spegl-
um auk sérstakra aukahluta fyrir
kalt loftslag („Cold Climate
Spesification“) fengist nú glænýr
fyrir rúmar sex hundruð þúsundir
króna.
Þá væri hægt að fá díesel útgáfu,
þ.e. BMW 324, fjögurra dyra,
módel 1986 á um 750 þúsund krón-
ur. Þessi bíll væri einnig til sjálf-
skiptur og ykist þá verðið um ca.
fimmtíu þúsund krónur. Vélin væri
86 hestöfl með 2,4 lítra brennslu-
rými.
í>á væri einnig boðið uppá beina
innspýtingu (innjection) í 300 týp-
unni, þ.e. 323 i. Hann væri einnig
núna framleiddur með 2,5 lítra, 171
hestafla vél, gífurlega hraðskreiður,
og væri framleiðslunúmer hans 325
i. Fengist hann einnig með drifi á
öllum hjólum, (aldrifi) og væri
átakshlutfallið 63/37 á aftur og
framhjól. Ef bíllinn tæki að spóla
tryggði rafeindastýring átaksfærslú
á önnur hjól, þannig að hann væri
mjög öflugur í ófærð. Þessi bíll
væri með ABS-bremsukerfi, splitt-
að drif og vökvastýri og væri dýr-
asta módelið á um tólf hundruð
þúsund krónur. 325 i fengist aftur á
móti „standard“ á kr. 900 þúsund.
Þá væru hinar frægu 500 og 700
seríur einnig til afhendingar í 1986
módelum og væru verðin á bilinu
750 þúsund (518) uppí 1200 þúsund.
(528 i) og 700 serían á bilinu 1280
þúsund (728 i) og uppí tæpar tvær
milljónir, (hinn stórkostlegi 745 i),
ásamt BMW M635 csi, (2.7 millj.).
Högni sagði að samband íslenska
BMW-umboðsins við aðalstöðv-
arnar í Miinchen væri mjög gott,
fulltrúar framleiðendanna kæmu
hingað reglulega 'og kynntu sér
markaðsaðstæður, einnig færu þeir
hjá Kristni Guðnasyni reglulega út
til Þýskalands og ræddu þá ýmis
sérmál íslenska bílamarkaðarins.
Þjóðverjarnir hefðu mjög mikinn
áhuga á íslandi og Iitu á það sem
vissa áskorun að framleiða bíla sem
dygðu vel við íslenskar aðstæður,
sem væru vægast sagt all sérstæðar
allt frá einstöku vegakerfinu uppí
aðflutningsgjöld, sem þrefalda bíl-
verðið. Framleiðendurnir væru þó
ýmsu vanir, enda seldist BMW-
gæðingurinn út um allan heim,
meira að segja í Japan. Þeir hefðu
þó sérstakan áhuga á að koma til
móts við íslenskar aðstæður, enda
væri rótgróin vinátta á milli þjóð-
anna, sem kristallaðist t.d. í sameig-
inlegum menningararfi.
Högni benti einnig á, að BMW-
verksmiðjurnar framleiddu einnig
mótorhjól sem t.d. lögreglan í
Hafnarfirði og væntanlega í Kefla-
vík notuðu. Þau væru gífurlega afl-
mikil og tæki þau t.d. 4 sekúndur að
ná 100 km. hraða. í Bandaríkjun-
um væru þau m.a. auglýst þannig,
__að héldistu á baki, þá skyldirðu
kaupa þér hjól. Það væri nú þeirra
kímnigáfa fyrir vestan, en auðvitað
væri það fyrsta einkenni gæðings-
^ins að knapinn tylldi á baki. BMW-
bíllinn hefði alla kosti góðs gæð-
ings, auk þeirra vestur-þýsku ná-
kvæmni og tækni, sem enn frekar
stuðlar að því að gera hann að ein-
um eftirsóttasta og þekktasta bíl
veraldar.