Alþýðublaðið - 09.11.1985, Blaðsíða 18
18
Laugardagur 9. nóvember 1985
GÚMMIVINNUSTOFAN HF.
Innlend verðmætasköpun
og gjaldeyrissparnaður
Núna þegar fyrsti vetrarsnjórinn
er að falla, þarf að huga að vetrar-
akstri og sérstaklega að vetrarhjól-
börðum bifreiða. Til þess að ræða
þessi mál nánar og sérstaklega til
þess að kynna okkur það sem helst
er í boði hér á landi í snjódekkjum
hittum við Viðar Halldórsson, for-
stjóra Gúmmivinnustofunnar að
máli.
Viðar lagði í upphafi höfuð-
áherslu á það, að snjómunstur vetr-
arhjólbarða skiptu gífurlega miklu
máli í öryggismálum umferðarinn-
ar hér á landi. Aðstæðurnar hérna
væru mjög sérstakar, einkum vegna
hinna snöggu veðrabrigða hér á vet-
urna, en slíkt gerði miklar kröfur til
hjólbarðanna, ef fyllsta öryggis
væri gætt í umferðinni. Sérstaklega
benti Viðar á hin miklu slagviðri
hér sem kæmu á svellbólgna vegi
eða ú vegi þakta snjó. Þetta gerði
kröfur á bestu fáanlegu snjómunst-
ur og einnig neglda hjólbarða.
AUur samanburður við önnur
lönd í þessum efnum væri mjög erf-
iður vegna þess að þar væri oftast
eina vandamálið hálka og ísing en
hér hefðum við mikið fannfergi að
auki, sem og hin fyrirvaralausu og
hættulegu slagveöur, sem ger-
breyttu aðstæðunum á vegunum í
einu vetfangi.
Mikill
gjaldeyrissparnaður
Viðar sagði að þeir hjá Gúmmí-
vinnustofunni hefðu hannað sér-
stSflct snjómunstur, sem þeir notuðu
í sóluðu dekkin hjá sér og kölluðu
þetta NORÐDEKK. Þetta væri af-
burðagott snjómunstur og þyldi vel Unnið við hina nýju vestur-þýsku kaldsóiningarvél Gúmmívinnustofunnar: Besta tcekni sem völ er á í veröldinni.
Rætt við Viðar Halldórsson, forstjóra Gúmmívinnustofunnar hf
um NORÐDEKK, heppilegt snjómunstur fyrir íslenskar aðstæð-
ur, íslenska iðnframleiðslu á heimsmœlikvarða, gjaldeyrissparnað
og nýja vesturþýska kaldsólningarvél, sem tvöfaldar afköstin og
stórbœtir öryggi og gœði dekkjanna.
hjólbarðasólun. Öll aðstaða er þar
af Ieiðandi betri en þekkst hefur
hingað til. Aðalhæðin er að gólf-
fleti 2000 m2. Þar er fullkomin að-
staða fyrir m.a. sólningu, lager, við-
gerðir og móttöku. I kjallara er lag-
eraðstaða á 1000 m2 gólffleti.
Vörubílaþjónustan býður upp á
inniaðstöðu fyrir stærstu flutninga-
bíla. Bílstjórar geta valið um að
taka undan bifreiðum sínum sjálfir
eða notfæra sér þjónustu starfs-
manna Gúmmívinnustofunnar.
Fólksbílaþjónustan er alveg að-
skilin frá vörubílaþjónustunni. Það
býður upp á bætta þjónustu á báð-
um stöðum. Allir fólksbílar eru
teknir inn og einnig þar hafa bíl-
stjórar möguleika á að taka undan
bifreiðum sínum sjálfir. í vetrar-
kuldanum mátti sjá bílstjóra nýta
sér inniaðstöðuna með því .að þvo
bíla sína og/eða skipta um perur,
meðan viðgerð á hjólbörðum fór
fram. Gúmmívinnustofan notar öll
fullkomnustu tæki sem völ er á, s.s.
affelgunarvélar og tölvustýrðar
bafancevélar.
Ávallt eru til á lager allar helstu
stærðir af nýjum og sóluðum hjól-
börðum.
Hjólbarðar eru sólaðir við kald-
sólningu og heitsólningu. Alls stað-
ar í heiminum hefur þróun í sóln-
ingu verið sú að hagkvæmast sé að
kaldsóla vörubíladekk og heitsóla
fólksbíladekk.
Gúmmívinnustofan hefur tekið í
notkun fullkomnustu suðupotta
sem völ er á, fyrir heitsólun á radial
dekkjum. Hin nýja tækni við þessa
suðupotta eykur til muna gæði
sólningarinnar og kemur í veg fyrir
Sjö nýir heitsólningarpottar tryggja fjörutíu þúsund heitsóluð dekk á ári. Munstrið
NORÐDEKK er sérstaklega liannað fyrir hinar erfiðu íslensku aðstœðut. .
neglingu. Þessi dekk væru heitsól-
uð og væri afkastagetan um fjöru-
tíuþúsund dekk á ári undir fólks-
bíla. Þessi framleiðsla sparaði
þjóðarbúinu svona milli 25 og 30
milljónir á ári í gjaldeyri miðað við
innfíutning á nýjum dekkjum. Auk
þess hefðu milli 35 og 40 manns
vinnu hjá fyrirtækinu og allt væri
þetta innlend verðmætasköpun.
Núna væru þeir hjá Gúmmí-
vinnustofunni að taka nýjar vestur-
þýskar kaldsólningarvélar í notkun
og myndi það tvöfalda kaldsólning-
argetu fyrirtækisins. Algengt væri
að vörubílaeigendur kæmu með
gömlu hjólbarðana og létu kaldsóla
þá, en auðvitað væri hægt að kald-
sóla öll dekk, Þessi vesturþýsku
tæki væru af Autoclafgerð og væru
ein þau fullkomnustu sem völ væri
á, öll framleiðsla Gúmmívinnustof-
unnar seldist jafn óðum og væri nú
fyrst með tilkomu þessara tækja
hægt að anna eftirspurninni og
byggja upp einhvern lager.
75% sóluð dekk
Þegar menn kæmu sjálfir með
Viðar Halldórsson, forstjóri Gúmmí-
vinnustofunnar: Saltausturinn á gö-
turnar á veturna er stórvarhugaverður.
Saltið leysir upp tjöruna í malbikinu,
sest á hjólbarðana og þegar bíllinn
lendir á vegi með snjólagi, þá er hann
háll sem hann vœri á vel smurðum
skiðum.
gömlu dékkin til sólningar væri
svipaður gjaldeyrissparnaður af
starfseminni eins og í heitsóluninni,
þannig að gjaldeyrissparnaður bara
hjá þessu eina fyrirtæki væri svona
Reykvlsk fegurð úr Bolungarvíkinni neglir dekk eins og ekkert sé með bros á vör í lok kvennaáratugarins.
um fimmtíu milljónir króna eða um
ein og hálf milljón á hvern starfs-
mann. Þjóðhagslegt gildi svona
starfsemi væri þess vegna augljóst.
: Þar sem unnt væri að kaldsóla
hjá Gúmmívinnustofunni um tíu
þúsund dekk á ári, þá væri heildar-
framleiðslan hjá þeim í heit og
kaldsólun svona um fimmtíuþús-
und dekk á ári. Notkun sólaðra
dekkja væri nú um 75% heildar-
notkunar á íslandi.
Við spurðum Viðar því næst út í
sögu fyrirtækisins og helstu atriði
kaldsólningar og heitsólningar.
Fyrirtækiö Gúmmívinnustofan hf.
Fyrirtækið var fyrst til húsa að
Laugavegi 71, árið 1939, og hét þá
Gúmmívinnustofa Reykjavíkur.
Síðar flutti það að Grettisgötu 18
og var rekið þar fram til ársins 1960
er það flutti í nýtt eigið húsnæði f
Skipholti 35. Um það leyti var nafn-
inu breytt í Gúmmívinnustofan hf.
Árið 1969 byrjaði fyrirtækið að
sóla hjólbarða og hefur síðan rekið
sólningarverkstæði jafnhliða við-
gerðarþjónustu, hjólbarðasölu og
innflutningi á hjólbörðum.
I maí 1982 var tekin fyrsta skóflu-
stunga að sérhönnuðu húsi fyrir
Gúmmívinnustofuna og þrettán
mánuðum síðar eða í júlí 1983 var
sólningaverksmiðja og öll vörubíla-
þjónusta flutt úr Skipholti 35 og
starfsemi hafin að Réttarhálsi 2.
Fólksbílaþjónusta ásamt hjól-
barðasölu er jafnframt starfrækt á
báðum þessum stöðum.
Húsnæðið að Réttarhálsi 2 er sér-
hannað fyrir hjólbarðaviðgerðir og
skekkjur og aflögun dekkja í sóln-
ingu. Þessir suðupottar eru frá
fyrirtækinu CIMA á Ítalíu, sem er
eitt hið stærsta sinnar tegundar í
Evrópu. CIMA hefur framleitt sér-
hönnuð sólningarmót fyrir
Gúmmívinnustofuna en við fram-
leiðslu þeirra var stuðst við áratuga
reynslu bæði hér á landi og á hinum
Norðurlöndunum hvað varðar gerð
munsturs á sumar- og vetrarhjól-
börðum. Við framleiðum þessa
hjólbarða undir nafninu NÓRÐ-
DEKK. Aðeins eru sólaðir bestu
tegundir af dekkjum til þess að
tryggja að seld séu eingöngu sóluð
dekk í hæsta mögulega gæða-
flokki. Stefnan hefur verið að
kaupa eingöngu Michelin dekk til
sólunar. Viðskiptavinir Gúmmí-
Framhald á bls. 23