Alþýðublaðið - 09.11.1985, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 09.11.1985, Blaðsíða 14
14 Laugardagur 9. nóvember 1985 ISLENSKAR GETRAUNIR Hjá íslenskum getraunum i Iþróttamiðstöðinni í Laugardal hittum við framkvæmdastjórann, Birnu Einarsdóttur, viðskiptafræð- ing og spurðum hvernig gengi með íslenskar getraunir. — Hverer munurinn á Getraunum og öðrum happdrættum? Munurinn á getraunum og öðr- Potturinn nálgast tvær millj ónir Rœtt við Birnu Einarsdóttur, framkvœmdastjóra íslenskra getrauna um þessa miklu lyftistöng íslenskra íþrótta um hefðbundnum happdrættum er aðallega sá að í getraunum er þátt- taka þín meiri, þú getur haft einhver áhrif á vinningslíkur þínar. í get- raunum er alltaf greitt út helmingur af sölu í vinning. Engir óseldir mið- ar . . . — Er ekki nauðsynlegt að hafa marga seðla til að vinna? Birna Einarsdóttir viðskiptafrœðingur og framkvœmdastjóri íslenskrar getrauna: íþróttahreyfingin algjört karlaveldi. Birna með fjallhressu starfsfólki sínu á skrifstofu íslenskra getrauna í íþróttamiðstöðinni i Laugardal. Þessar fraukur eru á góðri leið með að afla islenskri íþróttahreyfingu yfir hundrað milljóna tekna á ári. Gerið betur strákar. Það er alls ekki nauðsynlegt að spila stórt til að vinna en auðvitað eru möguleikarnir meiri ef þú ert með fleiri seðla rétt eins og í öðrum «:« m 1. november. Öll innlend og erlend • / Næturhólf — geymsluhólf. Símanúmerið er óbreytt, 78855. Verið velkomin, það er alltaf heitt á könnunni. BliNAÐARBANKINN TRAUSTUR BANKI happadrættum. Þó það heyrist kannski mest í þessum stórtippur- um þá fer stærri hluti vinningpotts- ins til þeirra sem aðeins spila á einn seðil. — Þarf maður ekki að vita allt um ensku knappspyrnuna til að vinna? Það geta allir tekið þátt í getraun- um, þetta er einfalt og spennandi. Úrslit í fótbolta geta verið svo ótrú- leg þannig að oft getur verið best að vita sem minnst um hann. Enda sýnir það sig að hér fær ótrúlegasta fólk vinning. — Hvernig er sölufyrirkomulagið? íþrótta- og ungmennafélög sjá um sölu og dreifingu á getrauna- seðlum. Þessir aðilar fá oft stærsta hluta tekna sinna af getraunasölu og fjármagna þannig þjálfaralaun og annan kostnað. Svo að um leið og þú kaupir þér seðil þá ertu um leið að styrkja gott málefni. — Nú hef ég heyrt að eitthvað sér- stakt sé á döfinni í 14. leikviku? Já í 14. leikviku 23. nóvember þá ætlum við að hafa sérstaka get- raunaviku. Umboðsmenn um allt land ætla þá að selja meira en venjulega þannig að vinningspott- urinn ætti að fara nokkuð yfir tvær milljónir. — Svo við snúum okkur að þér sjálfri hvernig var að byrja svona ung nýkomin úr námi í slíkri ábyrgðarstöðu? Það hefur gengið ágætlega, þótt því sé ekki að neita, að stjórn íþróttamála sé algert karlaveldi. En hér er gott samstarfsfólk sem tók mér strax mjög vel. Salan hefur gengið vel og vinnan þannig farin að skila árangri og það er alltaf ánægjulegt, sagði Birna Einars- dóttir að lokum. Komið úr felum! Samtök aðstandenda vtmuefnasjúkra rw'vj'.A. < Kjörörð okkar:„Éitur aí eyju“ * V 1- r .1 Stofnaði9c6. 1985. Gíró 63890-0 Áhðlta ÖSkað Nánari -tupplýsingar SAVES Post restante R-9 Réykjavík Byggjum hyítdárheimiii fyrir þreytta aðstandendur. Skráning almennra féletga er að hefjast.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.