Alþýðublaðið - 09.11.1985, Side 11

Alþýðublaðið - 09.11.1985, Side 11
Laugardagur 9. nóvember 1985 11 Bókafréttir Nýjar bækur frá Setbergi Fyrst skulu nefndar minningar Jóns Á. Gissurarsonar skólastjóra, en bókin heitir „Satt best að segja“. Endurminningarnar hefjast í byrj- un aldarinnar að Drangshlíð undir Eyjafjöllum, en þeim lýkur í Reykjavík, þegar höfundur gerist þar skólastjóri. Jón Á. Gissurarson lýsir fólki og átthögum sínum, rifj- ar upp námsár og starfsár í Hafnar- firði, á Akureyri og í Reykjavík. Segir frá dvöl í Þýskalandi Hitlers og bregður upp skærri mynd af Reykjavík í skugga stríðsótta og kreppu. Fjöldi manna kemur við sögu og skortir höfund hvorki ein- urð né bersögli. Sitja þar við sama borð æðstu menn og umrenningar. í bókinni „Reykjavík bernsku minnar" segja 19 Reykvíkingar, fæddir á árbilinu 1900—1930 frá bernsku og æskuárum í borginni. Þeir ólust upp við mismunandi að- stæður og lýsa fjölbreytilegri reynslu úr hinum ýmsu götum og hverfum. Þessi eru meðal þeirra nítján sem segja frá: Vigdís Finn- bogadóttir forseti íslands, Þorvald- ur Guðmundsson forstjóri, Jónas Árnason rithöfundur, Ólöf Benediktsdóttir menntaskólakenn- ari, Guðmundur J. Guðmundsson alþingismaður, Örn Clausen hæsta- réttarlögmaður, Ágústa Pétursdótt- ir Snæland og tólf aðrir Reykvík- ingar. Fjöldi mynda er í bókinni. Nú kemur þriðja bókin eftir Her- "mann Gunnarsson fréttamann, „Hlæjum hátt með Hemma Gunn- 1000 brandarar og gamansögur“. Hver stenst skotin hans Hemma Gunn? Hér gerir hann hvorki meira né minna en 1000 tilraunir til þess að gleðja okkur með góðu gríni. Margar skemmtilegar teikningar eftir Ólaf Pétursson eru í bókinni. Finnski rithöfundurinn Antti Tuuri hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1985 fyrir bók sína „Dagur í Austurbotni“. Sagan gerist á sólheitum júlídegi í Austur- botni. Allfjölmenn fjölskylda hef- ur safnast saman til að skipta með sér lítilfjörlegum arfi. Fljótlega kemur í ljós innri spenna milli þessa fólks, enda hefur því vegnað mis- munandi vel í lífinu. Þótt sagan ger- ist einungis á einum degi, þá er blóði drifin saga héraðsins á bak- sviði. Sagan er afhjúpun úreltrar hetjuhugsjónar, sem harla lítið stendur eftir af. Mótvægi við hina málglöðu karlmennsku bræðr- anna, skapar móðir þeirra, hin sannkallaða hljóða hetja - því að lífinu verður að lifa hvað sem yfir dynur. Þýðandi bókarinnar er Njörður P. Njarðvík. Hin þekkta leikkona Liv Ullman sló í gegn á nýju listsviði, þegar hún sendi frá sér fyrstu bók sína „Um- breytinguna“. Nú fáum við í hendur þessa nýju bók „Þáttaskil“, sem fylgir hinni fyrri vel á eftir. Hér stillir Liv Ullman sér upp í miðju mannlífsins sem leikari, manneskja og ekki hvað síst ástfangin kona, sem hlustar, sér, finnur, skilur og segir frá. Lesendur munu njóta þessarar ferðar með Liv Ullmann í gegnum brim og boða mannlífsins- og verða auðugri eftir. Þýðandi bókarinnar er frú Guðrún Guð- mundsdóttir. „Klukkubókin“ auðveldar börn- um að læra á klukku. Þetta er lit- prentuð harðspjaldabók með létt- um texta og skýrum myndum. Og fyrir litlu börnin byrjar nú bóka- flokkurinn um Pöndu, en fyrstu þrír titlarnir eru: „Panda læknir“, „Panda könnuður" og „Panda töframaður“. Ofanskráðar fjórar bækur hefur Vilbergur Júlíusson skólastjóri þýtt og endursagt. Og ný bók, hin sjötta í röðinni, eftir Danielle Steel. Þessi heitir „Vegur ástarinnar“ í þýðingu Skúla Jenssonar. Að endingu skal þess getið að Setberg gefur út þriðju bókina eftir Robert Ludlum, sem oft er nefndur meistari spennusögunnar. Þessi nýja bók heitir „Scarlatti-arfur- inn“. Þýðandi er Gissur Ó. Erlings- son. Framh. á bls. 2.3 Borgarbókavörður LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG • Reykjavikurborg auglýsir lausa stöðu borgar- bókavarðar I Reykjavík til umsóknar. Staðan veit- ist frá og með 1. janúar 1986. Samkvæmt ákvæðum laga skal forstöðumaður að jafr> aði vera bókasafnsfræðingur. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skila til borgarstjórans í Reykjavík eigi síðar en 1. desember nk. Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri Reykjavík- urborgar í síma 18800. Borgarstjórinn i Reykjavik. Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. • Staða forstöðumanns íþróttavalla í Laugardal (vall- arstjóra) er laus til umsóknar. Staðan veitist frá og með 1. febrúar 1986. Upplýsingar um starfið veitirframkvæmdastjóri Iþrótta og tómstundaráðs, Fríkirkjuvegi 11, sími 21769. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum um- sóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00, þriðju- daginn 19. nóvember 1985. STÚRVEISIA GJORIÐ SVO VEL Nú bjóðum við til stórveislu. Við höfum um stundarsakir lækkað heildsöluverð á kindakjöti um 20%. íslenska Iambakjötið mun vera eitt hið gómsætasta í heimi enda nærast íslensku lömbin á safaríkum gróðri í ómengaðri náttúru. Þetta verður því veisla í lagi og í þetta sinn fyrir íslendinga sjáffa. Við treystum kaupmönnum auðvitað til þesss að láta lækkunina ganga til neytenda eins og til er ætlast. Þetta ætti að vera meðalverð nú: Lambalæri kr. 281 pr.kg. Lambahryggur kr. 225 pr.kg. Ennþá veglegri verður veislan þegar keyptir eru heilir skrokkar í einu, þá er kjötið ótrúlega ódýrt 175 kr. kg. í smásölu. Þá fær kaupandinn sem svarar Vi skrokki ókeypis miðað við sölu í stykkjum. Þó er skrokkurinn niðursagaður að vild. Nú verður veisla í hverju húsi. Framkvæmdanefhd búvörusamninga

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.