Alþýðublaðið - 09.11.1985, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 09.11.1985, Blaðsíða 15
Laugardagur 9. nóvember 1985 15 LANDSBANKI ISLANDS Minnkar gengisáhættu 1. nóvember s.l. tók Landsbanki íslands upp skráningu afurða- og rekstrarlána útflytjenda sjávaraf- urða í 3 gjaldmiðlum til viðbótar sérstökum dráttarvöxtum (SDR) það eru Bandaríkjadalir, Bresk pund og Vestur-þýsk mörk. Landsbankinn hefur kynnt sölu- samtökum útflytjenda sjávaraf- urða vinnubrögð sín við fram- kvæmd þessarar kerfisbreytingar. Það er afurðalánadeild aðal- banka Landsbankans og útibú bankans sem fjalla um óskir um myntbreytingar með eftirfarandi hætti. — Aðalreglan er að veðsetning af- urða sé í væntanlegri sölumynt hennar, veðsetji framleiðandi í annarri mynt en SDR. — Upphafleg veðsetningarmynt á að fylgja vörunni alla leið, frá veð- setningu til skila á afurðaverði. — Þeir sem þess óska geta breytt um veðsetningarmynt á eldri fram- leiðslu (framl. fyrir 1.11.1985) innan þeirra marka sem áður greinir. Við véðsetningu afurða á að skila einni framleiðsluskýrslu (birgða- skýrslu) fyrir hverja tegund gjald- eyris, sem láns er óskað í, og skal gjaldeyrisins getið á skýrslueyðu- blaðinu. Sækja þarf um breytingu á láni úr SDR í annan gjaldmiðil, og verð- ur þá að fylgja með framleiðslu- skýrsla (birgðaskýrsla) yfir hlutað- eigandi birgðir og magn. Notað verður miðgengi (þ.e. meðaltal kaup- og sölugengis) við uppgreiðslu á SDR en kaupgengi á þeirri mynt sem breytt er í. Lánum vegna framleiðslu frá 1984 er ekki hægt að breyta í aðrar Rannsóknir á sam- vinnumálum Eiður Guðnason alþingismáður er meðal flutningsmanna ályktun- artillögu um rannsóknir á sam- vinnumálum sem nú liggur fyrir Norðurlandaráði. Þar er lagt til að ráðið mæli rrieð því við Norrænu ráðherranefndina að 'samin verði samnorræn rannsóknaáætlun fyrir samvinnufélög, útvegað verði fjár- magn til þess hluta hennar sem einkum beinist að málefnum neyt- endasamvinnufélaga, og að stuðlað verði að eflingu nýrra hugmynda og framþróunar jafnt að því er varðar samvinnufélög framleiðenda og neytenda. Tillagan er mjög ítarleg og í henni er m.a. lögð áhersla á nauðsyn þess að samvinnufyrir- tækin geti haldið áfram að þróast sem mikilvægur þáttur í norrænu efnahagslífi. Dregið er í efa að þekking á málefnum samvinnu- rekstrarins sé nægilega útbreidd meðal Norðurlandabúa, og úr því verði að bæta með því að stórauka fjárframlög til rannsókna á því sviði. Þetta eigi við allar rannsóknir á samvinnumálum, og einkum þó rannsóknir á fyrirtækjum sem starfa að neytendasamvinnu. Tillaga þessi er Iögð fram af átta þingmönnum frá Norðurlöndun- um öllum. I þeirra hópi er m.a. Anker Jorgensen frá Danmörku. Tillagan er nú til umfjöllunar í efnahagsmálanefnd Norðurlanda- ráðs, og hefur hún sent hana all- mörgum aðilum til umsagnar, m.a. Sambandi ísl. samvinnufélaga og fleiri aðilum hér á landi. Að þeim umsögnum fengnum verður samið um hana nefndarálit, og síðan gert ráð fyrir að hún verði tekin til af- greiðslu á næsta þingi Norður- Iandaráðs í Kaupmannahöfn í mars næsta vor. myntir. Séu margar veðsetningarmyntir í gangi kunna að koma upp erfið- léikar með innborganir á lánin. Þess vegna er óskað eftir því við framleiðendur að við útskipun vöru sé tilgreint í hvaða mynt hún var veðsett. Sölusamtökin þurfa síðan að sjá um það við skil til Lands- bankans að þess3r upplýsingar fylgi með. Framleiðslulánasamningar verða endurnýjaðir um áramót og verður núverandi texta í samningunum breytt. Vilji menn breyta í aðrar veðsetningarmyntir nú 1. nóv. gilda umsóknareyðublöð sem bráða- birgðasamningur til áramóta. ft SJ Heilbrigðisfulltrúi Staða heilbrigðisfulltrúa við HeiIbrigðiseftirlit Reykja- víkursvæðis er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 15. des. nk. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmanna- félags Reykjavíkurborgar. Um menntun, réttindi og skyldur fer samkvæmt reglugerð nr. 150/1983 ásamt síðari breytingum. Urnsækjendurskulu hafalokið háskólaprófi I heilbrigð- iseftirliti eða skyldum greinum svo sem I llffræði, mat- vælafræði, hjúkrunarfræði eða hafa sambærilega menntun. Umsóknir ásamt gögnum um menntun og fyrri störf skulu hafaborist formanni svæðisnefndar Reykjavíkur- svæðis (borgarlækninum í Reykjavík) fyrir 1. desember nk., en hann ásamt framkvæmdastjóra heilbrigðiseftir- lits veitir nánari upplýsingar. Borgariæknirinn í Reykjavík. Orðsendmg til fyrirtækja og einstakiínga í atvinnurekstri Skattrannsóknarstjóri hefur ákveðið að kanna bókhald þeirra aðila sem eru skyldir til að gefa út reikninga í viðskiptum sinum við neytendur. Kannað verður hvort farið er eftir þeim reglum sem gilda um skráningu viðskipta á nótur, reikninga og önnur gögn. Dagana 23. september til 7. október verða 400 fyrirtæki úr 27 atvinnugreinum heimsótt af starfsmönnum Skattrannsóknarstióra í þessu skyni. Könnunin nær til fyrirtækja úr eftirtöldum atvinnugreinum: ■ : ■ ■ I H 1 m ■ Éi fm Sft Númeratvlnnu- grelnar: Heltl atvlnnugrelnar.- 261 Trésmfði, húsgagnasmlði 262 Bólstrun 332 Gleriðnaður, speglagerð 333 Leirsmíði, postulínsiðnaður 339 Steinsteypugerð, steiniðnaður 350 Málmsmíði, vélaviðgerðir 370 Rafmagnsvörugerð, raftækiaviðgerðir 383 Bifreiðaviðgerðir, smurstöðvar 385 Reiðhjólaviðgerðir 395 Smíði og viðgerö hijóðfæra 410 Verktakar, mannvirkjagerð 420 Bygging og viðgerð mannvirkja 491 Húsasmíði 492 Húsamálun 493 Múrun 494 Pípulögn 495 Rafvirkiun 496 Veggfóðrun, dúklagning 497 Teppalögn 719 Ferðaskrifstofur 826 .Tannlækningar 841 Lögfræðiþjónusta, fasteignasalar 842 Bókhaldsþjónusta, endurskoðun 843 Tæknileg þjónusta 847 Innheimmtustarfsemi 867 Ljósmyndastofur 869 Persónuleg þjónusta ót. a„ t.d. heilsuræktarst. SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI g mm ■ I WÉk BB ■ ■ mmmmm

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.