Alþýðublaðið - 09.11.1985, Qupperneq 23

Alþýðublaðið - 09.11.1985, Qupperneq 23
Laugardagur 9. nóvember 1985 23 Bókafréttir Nýjar bækur frá Setbergi Þá gefur Setberg út þrjár hand- bækur: „Lófalestur" eftir Peter West. Um langan aldur hefur mönnum fundist eitthvað spenn- andi við að lesa í lófann á sér. En fæstir vita að lófalestur er vísinda- leg aðferð, sem getur veitt margvís- legar upplýsingar um skapgerðar- einkenni manna og hæfileika þeirra á ýmsum sviðum. Náttúran hefur rist óafmáanlega rúnir sínar í hend- ur okkar, og margt óvænt kemur í ljós þegar farið er að lesa í lófann. Margar myndir eru i bókinni. Ósk- ar Ingimarsson þýddi. „Matreiðslubókin mín og Mikka“ kemur nú í nýrri útgáfu. En þessa vinsælu barnamatreiðslubók hefur vantað á markað um eins árs skeið. Hér er að finna skemmtilegar og auðveldar mataruppskriftir fyrir stelpur og stráka. Bókin er öll lit- prentuð, en Guðrún Hrönn Hilm- arsdóttir húsmæðrakennari annast útgáfu hennar. Loks er þriðja handbókin sem heitir „Bókin um köttinn“. Hér fá lesendur svör við fjölmörgum spurningum um köttinn. Hvernig á að velja kött? Hvað á að gera við köttinn í sumarleyfinu? Hvað étur hann og hvaða sjúkdóma fær hann? Hvernig skal umhirðu hans yfirleitt háttað? Margar góðar ráð- íeggingar eru í bókinni um köttinn. Þýðandi Óskar Ingmarsson, en Brynjólfur Sandholt dýralæknir var þýðanda til ráðuneytis. Lokaorð bókarinnar skrifar Guðrún Á. Símonar. Við mótum Framh. af bls. 6 á stjórnkerfinu. Ef sá listi er settur saman, um nauðsynleg umbóta- mál, kemur á daginn að við erum sammála ca. 90%. Miðað við staðreyndir um ástand mála í þessu þjóðfélagi, hvernig búið er að ungu fólki í húsnæðis- málum, skattamálum og öðrum lífskjörum, finnst mér það ekki lengur verjandi að fólk sem er, segj- um 90% sammála um grundvallar- sjónarmið, haldi áfram að dreifa kröftum sínum — þegar þjóðfé- lagsástandið beinlínis hrópar á breytt styrkleikahlutföll og póli- tískt vald bak við umbótakröfur jafnaðarmanna. Við slíkar aðstæð- ur finnst mér fjölgun flokka vera beinlínis lúxus, sem fólk í fjötrum hefur ekki efni á. En ég hef engan veginn gefið upp alla von um að við náum höndum saman um það er lýkur. Róm var ekki byggð á einum degi. Við meg- um ekki búast við að allt gangi okk- ur í haginn, fyrirhafnarlaust. Ég er t.d. þeirrar skoðunar að við getum vel byrjað, stigið fyrsta skrefið, með því að taka höndum saman í þeim borgarstjórnar- og sveitarstjórnar- kosningum, sem framundan eru. — Segðu okkur að lokum, Jón Baldvin: Verðurðu aldrei þreyttur á öllu þessu argaþrasi og vonlítill um að það skili árangri? Hvað heldur þér stöðugt til vinnu í þessu óyndis- lega vinnuherbergi, yfir þessum stöflum af skýrslum og blöðum og tillögum og út um allar grundir til fundahalda kvöld og helgar? — Ég er að vísu húðlatur að eðl- isfari og, eins og aðrir Vestfirðing- ar, fyrst og fremst áhlaupamaður. Uppeldi Vestfirðinga, og annarra þeirra sem aldir eru upp við sjávar- síðuna, er þannig: Við kunnum vel að gera okkur dagamun, milli ver- tíða. En það sem heldur mér til vinnu er vinnugleði, vegna verkefnanna; metnaður, vegna góðs málstaðar; og samúð með meðbræðrum mín- um og systrum, sem eiga skilið að lifa lífi sínu í betra þjóðfélagi en þeim er nú búið. —F.Þ.G. Gúmmívinnustofan Framhald á bls. 18 vinnustofunnar geta einnig látið sóla fyrir sig dekk. Mjög fullkominn tölvustýrður raspur er tii þess að raspa niður dekk og eykur hann mjög ná- kvæmni sem og stöðugleika dekkj- anna. Kaldsólun 1. Hjólbarðinn skoðaður og gert við minniháttar skemmdir. 2. Hjólbarðinn raspaður með mestu mögulegri nákvæmni. 3. Raspað með litlum handrasp upp úr öllum sprungum. 4. Hjólbarðinn límborinn. 5. Allarholurogmisjöfnurfylltar með fylligúmmíi, síðan er lagt á millileggsgúmmí. 6. PRUbaninn, sem kemur soð- inn og mótaður frá Ellerbrock í Vestur-Þýskalandi — Topp vara —er límborinn og síðan lagður á hjólbarðann í vél sem stýrir bananum nákvæmlega á hjól- barðann. 7. Utan á hjólbarðann er lagt plast og grisja sem auðveldar lofttæmingu, síðan er sett gúmmíumslag utan um allt saman. Slanga er sett í hjól- barðann og síðan er hjólbarð- inn settur á felgu. 8. Hjólbarðinn á felgunni er sett- ur inn í stóran þrýstipott. Þegar Hjólbarðinn er kominn inn í pottinn er loftbarka kúplað við slönguna, síðan er annar barki sem liggur út úr pottinum settur á umslagið sem er utan um hjól- barðann. Við það að setja 7 kg þrýsting inn í hjólbarðann og 9 kg í pottinn, Iofttæmist um- slagið utan á hjólbarðanum og myndar pressu á banann. Suðu- tími við 95°C hita er um 5 klst. Aðalkosturinn við þessa aðferð þ.e. kaldsólunina, er lágt hita- stig sem veldur minna álagi á hjólbarðann við suðuna og þrýstingurinn í hjólbarðanum er sá sami og undir bílnum. Hjólbarðinn heldur sinni réttu lögun meðan á suðunni stend- ur. 9. Hjólbarðinn tekinn úr pottin- um. Felga og slanga tekin úr hjólbarðanum, plast og grisja rifið af. 10. Hjólbarðinn er skoðaður gaumgæfilega áður en hann er afhentur viðskiptavininum. Heitsólun 1. Hjólbarðinn grandskoðaður, aðeins eru sólaðir fyrsta flokks hjólbarðarl 2. Hjólbarðinn raspaður. Ein- göngu eru notaðir raspar af bestu gerð, þvi nákvæmari sem raspurinn er því nákvæmari, betri og stöðugri verður hjól- barðinn. 3. Hjólbarðinn límborinn. 4. Slitgúmmí lagt á hjólbarðann. Notaðar eru eingöngu bestu fá- anlegu gúmmíblöndur, fram- leiddar hjá Ellerbrock í Vestur- Þýskalandi. 5. Hjólbarðinn hjá okkur er heit- sólaður. Lagt er á hliðarnar svokallað hliðarefni til styrktar og til þess að útlitið verði eins og á nýjum hjólbarða. 6. Suðan. Teknir hafa verið í notk- un fullkomnustu suðupottar sem völ er á fyrir radial hjól- barða. Hin nýja tækni við þessa suðupotta eykur til muna gæði sólningarinnar og kemur í veg fyrir skekkju og aflögun hjól- barðans. í stað þess að nota 10—12 kg loftþrýsting inn í hjólbarðanum er notað heitt vatn með 15 kg þrýstingi. Það gefur jafnari hita í gegnum hjólbarðann og styttir suðu- tímann og minnkar þar með álag á belginn. 7. Eftir suðuna er nýsólaður hjól- barðinn trukkprófaður og skoðaður til þess að koma í veg fyrir að frá okkur fari annað en fyrsta flokks vara. 8. Hvítur hringur settur á hjól- barðann, sagði Viðar Halldórs- son, forstjóri Gúmmívinnu- stofunnar að lokum. Við kynnum nýjan og stærri Suzuki Swift, 5 dyra og fáanlegan með sjálfskiptingu. Komið og kynnið ykkur sparneytnasta bíl sem fluttur er til íslands, og nú á verði sem keppinautarnir öfunda okkur af. Eyðsla frá 3,8 Itr. pr. 100 km. (sparakstur BÍKR). Verð frá kr. 328.000.- (3d. GL) (gengi 20/10’85). SUZUKI SVEINN EGILSSON HF. Skeifunni 17. Sími 685100

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.