Alþýðublaðið - 15.05.1986, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 15.05.1986, Blaðsíða 4
4' Fimmtudagur 15. maí 1986 „Jú, ég get ekki neitað því að ég finn fyrir breyt- ingu hjá fólki í viðmóti eftir að ég gaf kost á mér í stjórnmálastarf Flestir eru vitanlega elskulegir í viðmóti eins og maður á að venjast og stjórnmála- þátttaka hefur engu breytt hjá þeim. En hjá öðrum finn ég fyrir svo- lítilli tortryggni, jafnvel fyrirlitningu. Svo finnst kannski sumum að ég sé ekki á réttum stað í flokkakerfinu, finnst á ég œtti að vera í Sjálfstœð- isflokknum, en ekki krati. Vitanlega má fólk hugsa það sem það vill. En ég get ekki látið þess- ar skoðanir hafa of mikil áhrif á mig. Ég tók þá ákvörðun að gefa kost á mér í borgarmálastarf fyrir Alþýðuflokkinn. Ég er staðráðin að berjast fyrir ákveðnum málitm, sérstaklega málefnum aldraðra. Pólitísk barátta er ákveðin ögrun og þess vegna spennandi. Eg veit ekkert, hvernig ég mun standa mig í þessari bar- áttu. Stjórnmálastarf er eins og hvert annað verk- efni, sem maður tekur að sér til ákveðins tíma — og svo lýkur því eins og öllu sem maður tekur sér fyrir hendur á lífsleið- inni.“ Þannig svaraði Bryndís Schram fyrir sig í upphafi viðtals á dögun- um, er hún var spurð hvort hún merkti einhverja breytingu í við- móti fólks eftir að hún gaf kost á sér í stjórnmálabaráttuna í borginni. En hvað er Bryndís að gera i póli- tík? Hún hefurstaðiðsig sem kenn- ari, ritstjóri og skólameistari svo eitthvað sé nefnt af um tugi starfa, sem hún hefur gegnt um ævina. En hefur hún eitthvað að gera í 1. deild stjórnmálanna, borgarmálin í Reykjavík? — Já, hvers konar reynslu á stjórnmálamaður að hafa? Þarf hann endilega og alltaf að vera lög- fræðingur? Ég lít svo á, að einmitt það að ég hef reynslu af starfi í menningar- og atvinnulífi, geri mig hæfa til að takast á við verkefni í stjórnmálum. Um hvað er pólitík annars? Hún er ekki fagmennska um eitthvað sem almenningur ekki skilur. Hún fjallar um okkar dag- lega líf frá vöggu til grafar. Þegar við ferðumst í strætó eða förum á heilsugæslustöðina, erum við að nota aðstöðu, sem stjórnmálastarf hefur skapað. Og ótrúlega mikið af okkar velferðarmálum er komið á einmitt fyrir tilstilli okkar jafnað- armanna. En eitt skal vera klárt. Ég lít á þetta sem ákveðið þegnskylduverk. Ég býð mig fram til þjónustu fyrir fólkið í þessari borg. Ég veit að þetta er ekki alltaf skemmtilegt starf, það er erfitt. En ég gef kost á mér á þeirri forsendu, að ég ætla að gera mitt besta. Nú ert þú ekki þekkt af miklu starfi innan Alþýðuflokksins, Bryndís? — Af persónulegum ástæðum hef ég ekki getað beitt mér — reynd- ar ekki fundið þörf hjá mér til þess. Mér hefur fundist, að það væri nóg að hafa einn úr fjölskyldunni í póli- tík. Kannski að ég hafi verið of önn- um kafin við að dekra við sjálfa mig; skara eld af eigin köku. En nú er svo komið, að enginn má Iiggja á liði sínu, ekki ég frekar en aðrir. Það er hlutverk jafnaðarmanna að breyta þessu þjóðfélagi, gera það að réttlátu þjóðfélagi, færa það til betri vegar“ Þrjár konur af fjórum efstu Ertu ánægð með hlut kvenna á þessum lista ykkar í Reykjavík? — Já, ég er það. Sveitarstjórnar- mál skipta konur ákaflega rniklu máli. Á lista okkar eru þrjár konur í fjórum efsþr sætunum. Annars gildir sú regla hjá okkur, að jafn margar konur og karlar eiga sæti á listanum. Annars er mér tamast að Iíta á fólk sem einstaklinga, fremur en hvort það eru karlar eða konur. Því miður erum við svo félagslega vanþroska, að kynferði er oft tekið fram yfir hæfileika og mannkosti. Og konur eiga ekki síður sök á þessu en karlar. Þannig er augljóst að margar konur treysta konum síð- ur. Líttu t. d. á prófkjör sjálfstæðis- manna í Reykjavík; þar eru hverf- andi fáar konur komnar til áhrifa og virðist jafnvel stefna í öfuga átt. Og vitanlega eru það íhaldskonur engu síður en karlarnir sem mótuðu þessa niðurstöðu. Ég hef á hinn bóginn sagt, að við konur getum það sem við viljum. Alltof margar okkar eru huglausar og værukærar. Við látum karlana kúga okkur og ráðskast með mál sem skipta okkur miklu. En í stað þess að leggja í ein- hverja sérvisku og sérhyggju kvenna eigum við að fara inn á þau svið þjóðmálanna, þar sem ákvarð- anir eru teknar. Ef við ætlum að breyta, þá verðum við að hafa þor til þess. Vænlegasta leiðin er að gefa Bryndís með börnum sínum. Frá vinstri: Kolfinna, Glúmur, Aldís og Snæfríður. „ÞÓ AÐ ÞAD KOfTI MIG ÆRUNA“ — Bryndís Schram í baráttuviðtali kost á okkur sjálfum, ekki skorast undan, heldur takast forystu á hendur, þegar eftir því er leitað. Til forystu, segirðu. Er e’ ki við- búið að þið kratar farið inn í lítinn minnihluta í borgarstjórninni? — Ég ætla að minna þig á að kosningabaráttan er frar.rundan; hún er ekki afstaðin. Vitaskuld get- um við lent í þeirri stöðu að verða áhrifalítill stjórnarandstöðuflokk- ur í borginni. Vegna sterkrar stöðu sjálfstæðismanna er sú hætta fyrir hendi. í rauninni er staða íhaldsins hérna í borginni óskastaða þeirra. Þeir telja sig ekki þurfa af hafa áhyggjur af öðrum skoðanahóp- um, en þeim sem rúmast innan Sjálfstæðisflokksins. En það er ekki gott lýðræði, þar sem meiri- hlutinn kúgar minnihlutann. At- hugaðu hvernig þeir hafa notað þetta vald sitt. Hvernig er staða t. d. gamla fólksins í þessari borg Da- víðs? Hvaða félagsleg tæki hefur það til að láta sér líða vel síðustu æviárin? Á annað þúsund manns á biðlista Á annað þúsund manns eru nú á biðlista í borginni eftir hentugu húsnæði, allt gamalt fólk, sem hef- ur lagt hönd á plóginn við að gera þetta velferðarþjóðfélag okkar að veruleika. Á fimmta hundrað manns eru á svokölluðum neyðar- lista. Þessi valdamikli meirihluti sjálfstæðismanna notar því ekki hið mikla pólitíska vald sitt til að gera réttu hlutina. Gamalt fólk og ellilífeyrisþegar eru hér á vergangi, búandi í vatnslausum íbúðum í kjöllurum og uppi á hanabjálka eða þurfa að flytja inn á vandamenn sína. Hver hefði trúað því að valda- mikill meirihluti sjálfstæðismanna i hagaði sér þannig á árinu 1986? Við þekkjum að vísu sögu þeirra. Áhrifamiklir íhaldsmenn hafa oft barist gegn miklum réttlætismál- um, eins og vökulögunum, sjúkra- tryggingum og verkamannabústöð- um. En að þessi kreppuhugsunar- háttur réði enn ríkjum í svo stórum flokki sem Sjálfstæðisflokkurinn er, það er með ólíkindum. Kreppu- hugsunarhætti af þessu tagi þurf- um við jafnaðarmenn að breyta þegar við komumst til áhrifa. Það hefur ætíð verið hlutverk okkar að ná fram auknu réttlæti í þjóðfélag- inu. Svo verður áfram. Smánarblettur á þjóðfélaginu Hvernig eigum við að gera það? — Við eigum að gera stórátak í byggingu leigu- og þjónustuíbúða fyrir aldraða. Það á að vera verk- efni okkar nr. 1 í borginni. Til þess eigum við að negla niður ákveðið hlutfall af útsvörum í borginni, þar til settu marki er náð, þ. e. að þessi smánarblettur verði afnuminn, að hún sjái ekki gamla fólkinu sæmi- lega farborða í velferðinni. Annað forgangsverkefni? — Já, húsnæðismál ungs fólks. Það er hræðileg tilhugsun, finnst mér, að horfa fram á að börnin okkar lendi í svipuðu basli í hús- næðismálum og okkar kynslóð hef- ur orðið að þola. Ég vil ekki þurfa að hugsa til þess, að þessir krakkar eigi eftir að basla í 20 ár og eyða besta hluta ævinnar í þetta rugl. Al- þýðuflokkurinn býður einn upp á skynsamlega og sannfærandi lausn á þessum vanda. Með kauleigu- íbúðunum opnast Ieið fyrir alla launþega að eignast húsnæði á við- unandi kjörum. Allir út að sópa Þetta eru stóru málin. En svo á ég mér nokkra drauma fyrir Reykja- vík. Borgin þolir t. d. ekki þessa miklu bílaumferð. Það sér hver maður. Bensínið er dýrt og einka- bíllinn tekur mikið af tekjunum okkar. Samt notum við lítið strætó, þótt hann sé langódýrasta lausnin fyrir alla. í öllum borgum þykir nauðsynlegt að samgöngutæki eins og strætó og járnbrautir séu sem öflugastar. En hjá okkur letja borg- aryfirvöld fremur en hitt til notkun- ar almenningssamgangna. Ég held að við þurfum bæði að breyta leiða- kerfinu og skoða verðlagninguna til að koma meira til móts við almenn- ing í borginni að þessu leyti. Við þurfum að gera ferð með strætó að- laðandi og eftirsóknarverða. Svo mundi ég i sporum borgarstjóra hvetja fólk til að gera hreint fyrir sínum dyrum. Hugsaðu þér hvað það væri gaman ef borgarbúar tækju sig til og sópuðu gangstétt- irnar framan við hús sín reglulega. Fólk myndi kynnast upp á nýtt og um leið losa sig við allan þann óþrifnað sem er á gangstéttum borgarinnar. Reykjavík hefur farið aftur að þessu leyti. Þegar Geir Hallgrímsson var borgarstjóri, var gert mikið gatnagerðar- og þrifnað- arátak í borginni. Rykið er eitt þreytumerkið á stjórn Davíðs og fé- Iaga hans í borginni. Lítill hlutur sem verður stór af því hann er látinn ógerður. Vantar meira líf í borgina Svo finnst mér alltof lítið um lif- andi uppákomur í Reykjavík. Hugsaðu þér að í öllum borgum í Evrópu getur fólk brugðið sér í lystigarðinn á sunnudögum og not- ið fyrsta flokks skemmtana eða bara hvíldar. Það er hægt að búa til svona aðstöðu í Reykjavík — miða við veður og staðhætti, nota heita vatnið okkar og skjólgóða staði til að byggja upp svona umhverfi. í Reykjavík er Iíka allt uppfullt af hressu listafólki, leikhópum og öðr- um, sem hægt væri að fá til sam- starfs. En þetta fólk fær ekki einu sinni aðstoð í húsnæðismálum, hvað þá að forystumenn vilji eiga við það nokkurt samstarf um þessi mál. Ég vil beita mér fyrir því að borgin hafi frumkvæði um að taka höndum saman við þetta unga fólk til að gera borgina menningarlegri. Það má t. d. opna húseignir borgar- innar, leikhúsin og aðra heppilega staði fyrir fleiri aðilum. Þá þarf sunnudagsbíltúrinn ekki lengur að snúast um að kaupa ís í Edensgarði. Hvað finnst þér annars um Davíð borgarstjóra og stjórn sjálfstæðis- manna svona úr fjarlægð? — Ég þekki Davíð ekki persónu- lega. En mér virðist hann snjall strákur og fljótur að taka ákvarð- anir. Það hefur sína kosti að hafa slíkan mann í forystu. Á hinn bóg- inn virðast sjálfstæðismenn ekki leggja honum það til lasts að hann er meira og minna einráður um málefni borgarinnar. Ég hélt, að Sjálfstæðisflokkurinn boðaði lýð- ræði. Ég tel að mestu skipti fyrir borgarstjóra að hafa skilning á mál- efnum borgarinnar og geta tekið til- lit til ólíkra hagsmuna og skoðana meðal borgarbúa og fulltrúa þeirra. Þarna virðist veikur hlekkur í stjórn Davíðs á borginni, enda er nú svo komið að fólk veit ekki hvað hinir borgarfulltrúar flokksins heita, hvað þá meira. Auðvitað er þetta óþolandi of- ríki. Einn maður getur aldrei haft þá yfirsyn og þekkingu til að bera, að hann fái einn stjórnað öllu. Enda sjáum við mistökin alveg himinhrópandi. Meðan gamalt fólk er á vergangi í Reykjavík hrópar Grafarvogsævintýrið á okkur með öllum þeim milljónum, sem varið var til framkvæmda, en neytendur reyndust ekki fyrir hendi. Eða hringlið í kringum hús Verndar í vetur. Þessi mistök Davíðs eru reyndar betur gleymd en sum hon- um til Iítils sóma. Minna lýðrœði Enn alvarlegra er að nú stendur til að fækka borgarfulltrúum í fimmtán og það dregur fremur úr möguleikum borgaranna til að hafa áhrif á gang málanna hjá borginni. Ég er sjálf mjög fylgjandi því að fara allt aðra leið. Mér fyndist rétt- ara að auka lýðræðið í Reykjavík, fremur en að draga úr því. Ég er mjög skotin í þeirri hugmynd, að hvert hverfi í borginni fái sinn hverfisstjóra og hverfisstjórn. Færa valdið nær fólkinu. Líttu t. d. á mitt hverfi í Reykjavík, Vesturbæinn, þar er skóli í niðurníðslu, sundlaug, sem þarfnast mikillar viðgerðar og svo mætti lengi telja. Svo finnst mér það kolvitlaus stefnumörkun hjá borgaryfirvöldum að hafa verðlag á

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.