Alþýðublaðið - 15.05.1986, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 15.05.1986, Qupperneq 5
Fimmtudagur 15. maí 1986 5 alþýðu- íaFTETTM Þriöjudagur 13. maí 1986 Alþýöublaöiö, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 81976 Útgefandi: Blaö hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaöamenn: Jón Daníelsson og Ása Björnsdóttir Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 Askriftarsíminn er 681866 ÁHRIF JAFNAÐARMANNA VERÐA AD AUKAST Hvernig liti Reykjavíkurborg út, ef Sjálfstæö- isflokkurinn hefði ekki farið með meirihluta- vald í marga áratugi? Væri skipulagið betra og manneskjulegra? Væri mannlífið betra? Væri betur hugsað um þarfir aldraðra og ungu kyn- slóðarinnar? Væri borgarbragurinn annar, spillingin minni og gæðingarnir færri? Það gæti verið skynsamlegt að velta þessum spurningum fyrir sér. Það leikur ekki minnsti vafi á því, að Reykvikingar byggju í betri borg ef valddreifingin hefði verið meiri; ef samkeppnin um að gera betur hefði ráðið ferðinni. Áratuga völd Sjálfstæðisflokksins i höfuðborginni eru bæði óeðlileg og stjórnkerfinu hættuleg. Það er engum blöðum um það að fletta, að Sjálfstæðismenn eru farnir að líta á Reykjavík- urborg eins og hvert annað fyrirtæki, sem þeir geta stjórnað að eigin geðþótta. Þeir tala um skattpeninga borgaranna eins og sitt eigið fé, og eyða því í samræmi við það. Þeir eru örlátir á fjármuni til flokksbræðra, hika ekki við að leggja þeim til tugi milljóna króna, sem unnt hefði verið að nota til að efla félagslega þjón- ustu. Slóð núverandi borgarstjórnarmeirihluta er vörðuð fjármálahneykslum. Flest þeirra gerast á bak við lokaðar dyr; aðeins örfá sjá dagsins Ijós. Gæðingarnir raða sér á básana og enginn nema þeir vita hvað gefið er. Síðan reyna þeir að sefja borgarbúa með þeirri kenningu, að þeir einir geti komið í veg fyrir glundroða. En það ereinmitt glundroði, sem nú blasirvið Reykvíkingum, ef þeirviljasjáhann. Glundroð- inn felst í skipulagi ómanneskjulegra borgar- hverfa, hörmulegri afkomu lítilmagnans, bág- um kjörum skjólstæðinga Félagsmálastofnun- ar, húsnæðisleysi aldraðra, sóun á almannafé, hörmulegum kjörum húsbyggjenda og sleitu- lausum þrældómi launafólks í borginni. Ef að líkum lætur yrðu svör sjálfstæðis- manna við þessum fullyrðingum þau, að hið slæmaástand stafaði af stjórnvaldaaðgerðum. En menn mega ekki gleyma því eitt einasta augnablik, að Sjálfstæðisflokkurinn í borgar- stjórn og Sjálfstæðisflokkurinn í ríkisstjórn er eitt og hið sama. Það er orðin mikil þörf á því að lofta út í „Arn- arhreiðrum" íhaldsmeirihlutans í Reykjavík. Það er nauðsynlegt að stöðva fjárausturinn til íhaldsfjölskyldnanna. Það er brýnt að sjónar- mið félagshyggju og samhjálpar fái að ráða ferðinni meira en verið hefur. w I baráttunni fyrir þessar borgarstjórnarkosn- ingar leggur Alþýðuflokkurinn höfuðáherslu á húsnæðismálin og málefni aldraðra. Hann vill að áhrifa jafnaðarmanna gæti meira í borgar- stjórn en verið hefur. Hann telur ónauðsynlegt að tíundi maðurinn á lista Sjálfstæðisflokks- ins nái kjöri, maður, sem flokkurinn sjálfur hafnaði. Alþýðuflokkurinn skorar á kjósendur að efla áhrif jafnaðarmanna í borgarstjórn þvf hann er sannfærður um, að ef borginni hefði á undan- förnum árum verið stjórnað meir og betur í anda jafnaðarstefnunnar, væri Reykjavík betri borg en hún er nú. þjónustu borgarinnar svo hátt sem raun er, þvert ofan .í gefin loforð fyrir seinustu kosningar, nota bene. í rauninni er ástæöa til að spyrja sig þeirrar spurningar, hvar lýðræði sjálfstæðismanna komi fram í Reykjavík, þar sem þeir geta haft hlutina eins og þeir vilja. Jú, það er umtalsvert frelsi manna í alls konar rekstri. Stétt verslunareigenda hef- ur sjaldan haft það eins gott og nú. En þegar kemur að því að veita hin- um almenna borgara eitthvert vald, þá er Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur flokkurinn þeirra. Þá bara þora þeir ekki. Og félagslegum mál- efnum sinna þeir ekki nema til- neyddir. Þess vegna væri það Sjálfstæðis- flokknum hollt ef borgarbúar efldu til áhrifa flokk með félagshyggju og samhjálp að leiðarljósi. Þá yrði Sjálfstæðisflokkurinn um leið knú- inn til frjálslyndari viðhorfa og unnt væri að afmá þau þreytu- merki, sem eru á stjórn þeirra í dag. Ertu að segja að það þurfi að hafa vit fyrir Davíð? — Nei, ég er að segja, að það þarf að veita sjálfstæðismönnum aðhald. Við treystum okkur til þess að veita þeim þetta aðhald, hvort sem er í stjórn eða í stjórnarand- stöðu, svo að þeir rati ekki í villu t. d. í félags- og menningarmálum. Stjórnmálaafskipti Jóns Baldvins bitnað á mér Hvað var það öðru fremur, Bryn- dís, sem varð til þess að þú ákvaðst að taka þátt í slagnum í Reykjavík? — Undanfarin misseri hef ég tengst pólitík meira og meira, hvort sem mér hefur líkað það betur eða verr. Stjórnmálaafskipti Jóns Bald- vins hafa líka í reynd bitnað á mér, t. d. uppi í sjónvarpi, þar sem ég hef ekki fengið verkefni miðað við reynslu og hæfileika, að mínu mati. Ég hef því á vissan hátt goldið stjórnmálaafskipta hans. Þegar ég stend síðan frammi fyrir því að ganga einu skrefi lengra og taka þátt í þessu af lífi og sál, þá er það kannski minna skref en margir halda. En það hefur þó gert útslag- ið að ég get varla sagt nei, þegar fast er eftir leitað og ég sé þörfina. Og sérstaklega slæmt er það fyrir konu að skorast undan. Ég vil breyta þessu samfélagi í Reykjavík og berj- ast fyrir málefnum jafnaðarmanna í þessari kosningabaráttu — þó að það kosti mig æruna. þh í LANDSBANKANUM FÆRÐU DOLLARA, PUND, MÖRK, FRANKA, PESETA, FLORINUR, ESCUDOS OG LIRUR HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATÉKKUM g þá er ekki allt upp talið. í öllum afgreidslum Landsbankans geta ferðalangar nánast fyrirvaralaust gengið að gjaldmiðlum allra helstu viðskiptalanda okkar vísum. Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum helstu gjaldmiðlum. Við minnum líka á Visakortið, - athugaðu gildistímann áður en þú leggur af stað. Góða ferð. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.