Alþýðublaðið - 15.05.1986, Page 15
Fimmtudagur 15. maí 1986
15
RÉTT AÐ BYRJA
Hvað vilt þú segja um frammi-'
stöðu borgarstjórnarmeirihluta
Sjálfstæðisflokksins?
„Því er ekki að neita að borgar-
stjórnarmeirihluti sjálfstæðis-
manna er sterkur. En það er ekki
nóg að hafa vinsælan borgarstjóra
og sterkan meirihluta, ég vil meina
að slíkt sé aukaatriði. Það sem
skiptir máli eru þau mál sem meiri-
hlutinn er með og koma fram.
Sjálfstæðismenn hafa komið ýsmu
í framkvæmd, en það eru þó smá-
vægileg mál miðað við þau stórmál
sem ekki hafa verið framkvæmd.
Þeir hafa haldið áfram þeirri lág-
launastefnu sem ríkt hefur. Þeir
hafa gert sig seka um mikla einræð-
istilhneigingu, t. d. með því að
standa fyrir fækkun nefnda og ráða
á vegum borgarinnar. Ég nefni sem
dæmi að það stendur til að leggja
niður sjö manna Æskulýðsráðið og
fimm manna íþróttaráðið og stofna
í staðinn eitt fimm manna ráð.
Borgarstjórnarmeirihluti Sjálf-
stæðisflokksins hefur — eins og
ríkisstjórnin — í rauninni fátt að-
hafst í málum hins almenna borg-
ara. Það sem helst má tala um að
náðst hafi fram hefur þá verið fyrir
tilverknað utanaðkomandi áhrifa.
Sjálfstæðismenn í ríkisstjórn
standa fyrir 1500 milljón króna
halla á ríkissjóði og í borginni ríkir
stöðnun og spilling.
Ef fólk vill á annað borð breyt-
ingu og fá nýja menn í valdastólana
þá gerir það svo með því að hafna
íhaldinu í borgarstjórnarkosning-
unum. Það er ekki hægt að slíta úr
samhengi meirihluta sjálfstæðis-
manna í Reykjavík og ríkisstjórnar-
setu þessa sama flokks. Það er höf-
uðatriði í þessu máli, að ef menn
vilja breyta þjóðfélaginu í átt til
meiri jöfnuðar þá verður að byrja
hér í borginni. Það þarf að velja
sterkan jafnaðarmannaflokk og
hverfa frá forsjárhyggju íhaldsins.
Við verðum að taka valddreifingar-
stefnu Alþýðuflokksins fram yfir
einræðistilhneigingar Sjálfstæðis-
flokksins. Fólkið sjálft verður að fá
meiri völd og ábyrgð“
Ertu bjartsýnn, nú þegar kosn-
ingarnar nálgast óðfluga?
„í stjórnmálastarfi verða menn
alltaf að vera bjartsýnir. Ég hef sagt
það oft, að ef við jafnaðarmenn
ætlum okkur að skipta hér ein-
hverju máli þá verðum við að sam-
einast um að kjósa A-listann. Við
verðum að muna að það er stefnan
sem skiptir máli, en láta allan
persónulegan ágreining lönd og
leið. Til að geta ráðið einhverju að
marki verðum við að fá að minnsta
kosti þrjá borgarfulltrúa og að því
stefnum við. í skoðanakönnun í
mars var okkur ekki spáð einum
einasta borgarfulltrúa og aðeins um
4% atkvæða. í skoðanakönnun í
Helgarpóstinum nú í apríl vorum
við síðan komnir með um 10% at-
kvæða og við finnum fyrir þessari
uppsveiflu, sem þó er rétt að byrja.
Ég trúi því fastlega að jafnaðar-
menn fái þrjá borgarfulltrúa í borg-
arstjórn Reykjavíkur.“
Við eigum til afgreiðslu strax örfáa KIAMASTER
sendíbíla á einstöku verði. KIAMASTER eru
MAZDA sendibílar, samsettir í Suður-Kóreu:
Verð:
Lokaður sendibíll með 2200 cc
dieselvél..................................kr. 384.000
Lokaður sendibíll með 1600 cc
bensínvél.................................. kr. 373.000
gengisskr. 29.4.86
Nú er um að gera að hafa hraðar hendur því að-
eíns er um fáa bíla að ræða.
Mjúkt, ndtogöruggt dömuinriegg
BOSSI
Lynghálsí 3 Reykjavík Sími 687949
VIÐ LÆKKUM VERÐIÐ!
Ódýrustu
og bestu
dömu-
innleggin
í dag
Dömuinrúegg-alla daga