Alþýðublaðið - 15.05.1986, Page 22

Alþýðublaðið - 15.05.1986, Page 22
22 'Fímrintudágúr 15. máTÍ986 Ji anna 1 in. rmagn sem þannig fengist yrc »0 milljónir hvort árið um sig — verður að telja eðlilegt að 2— milljónir á ári eða allt að 600 ulljónir af því fjármagni renni til s 'tarfélaganna til að tryggja að fran væmdaáætlun um byggingu eða kaup 6000 kaupleiguíbúða verði að veruleika. Að því er bygg- inga jóðina varðar þá er áætlað að verulega aukið fé komi til sjóðanna í tengslum við nýgerða kjarasamn- inga gegnum skuldabréfakaup líf- eyrissjóðanna. Ætla verður að sam- staða geti náðst um það að 5—600 milljónir af þessu fé renni árlega til kaupieiguíbúða sem fyrst og fremst kæmu láglaunafólki til góða, en það er það viðbótar fjármagn sem þarf að renna til Byggingasjóðs verkamanna til þess að tryggja að við þessa framkvæmdaáætlun sé hægt að standa. — Ekki þarf til að koma aukið fjármagn í Bygginga- sjóð ríkisins vegna kaupleiguíbúða frá því sem nú er gert ráð fyrir. — Skýrist það af því að gert er ráð fyr- ir að almennum lánveitingum úr Byggingasjóði ríkisins skuli fækka í hlutfalli við fjölda kaupleiguíbúða sem byggðar eru á hverju ári. — Undirstrika skal, að með þessu er ekki gert ráð fyrir að heildarlánveit- ingum fækki úr Byggingasjóði rík- isins, heldur yrði fyrst og fremst um nýjan kost að ræða sem tryggir fólki nýjan valkost í almenna hús- næðislánakerfinu. Kaupleiguíbúðir fjármagnaðar úr Byggingasjóði verkamanna kæmu til viðbótar þeim félagslegu íbúðarbyggingum sem byggðar eru í dag og tryggðu að árlega yrðu byggðar 600 íbúðir fyrir láglaunafólk eins og lög gera ráð fyrir, en á undanförnum árum hafa aðeins verið byggðar að meðaltali um 160 íbúðir árlega. Sveitastjórnarmál Því hefur verið lýst hér hvernig jafnaðarmenn vilja breyta þeirri húsnæðisstefnu sem fylgt hefur verið. Hvort það tekst ræðst ekki síður á vettvangi sveitastjórna en Alþingis, þar sem sveitarfélögin yrðu í flestum tilfellum fram- kvæmdaaðilar. Það skiptir því verulegu máli fyrir unga fólkið — fyrir alla húsbyggjendur og íbúðar- kaupendur hvaða stjórnmálaöfl ráða ferðinni á vettvangi sveita- stjórna á næstu fjórum árum. Ég nefni ekki síst Borgarstjórn Reykjavíkur, því íhaldsmeirihluti Davíðs Oddssonar hefur ekki stutt tillögur borgarfulltrúa Alþýðu- flokksins um að leggja fjármagn til kaupleiguíbúða. Húsnæðisöryggi án skuldabasls Hér hefur verið sýnt fram á að við jafnaðarmenn berjumst fyrir nýrri lausn og breyttri stefnu í hús- næðismálum. Fáum við til þess að- stöðu á vettvangi sveitastjórna og Alþingis munum við innleiða nýja stefnu í húsnæðismálum, sem marka mun tímamót í húsnæðis- málum íslendinga. Við viljum gefa fólki val i húsnæðismálum eftir efnum og ástæðum — val sem byggir á því að fólk þurfi ekki að eyða bestu árum ævi sinnar í vinnu- þrældóm og að það þurfi ekki að fórna eðlilegu fjölskyldulífi til að eignast húsaskjól. Við viljum að fólki sé búið það húsnæðisöryggi, að það þurfi ekki að lifa í sífelldum ótta um að missa eigur sínar. Við viljum reka þá hús- næðisstefnu að heiðvirt fólk sem vinnur myrkranna á milli sé ekki gert að vanskilamönnum og sjálfs- virðing þess sé brotin niður, af því að því er um megn að standa í skil- um þrátt fyrir langan vinnudag. Við viljum breyta því að húsnæðis- stefnan hneppi fólk í fjötra skulda og basls. Við viljum að fólk fái val um hvernig það vill lifa lífinu og verja þeim fjármunum sem það vinnur fyrir. Við viljum skapa þær aðstæður í húsnæðismálum fyrir fjölskyldur í landinu að það geti lif- að eðlilegu fjölskyldulífi, í stað vinnuþrældóms, skuldabasls og fé- lagslegra vandamála, sem húsnæð- isstefna og misskipting eigna og tekna hefur kallað yfir margar fjöl- skyldur í þessu landi. Húsnæðislausn aldraðra HEIMA ER BEST Alls staðar er að finna fólk, sem komið er á ellilífeyrisaldur og býr í stórum íbúðum. Kannanir sýna ótvírœtt að þetta fólk vill dveljast í eigin híbýlum, eins lengi og kraftar leyfa. Það vill geta notið heimilishjálpar. Eins og nú háttar er ekki unnt að veita slíka þjónustu nema í afar takmörkuðum mœli. Vilji þetta fólk hins vegar minnka við sig, þá er vandinn sá, að það getur ekki losnað við stóru íbúðirnar vegna þess að unga fólkið ræður ekki við að kaupa þær. EINSEMD OG EINANGRUN Afleiðing alls þessa hefur orðið sú, að gamla fólkið heldur áfram að búa í alltof stórum íbúðum án þess að geta það. Það einangrast, vegna þess að það getur ekki farið allra sinna ferða, heimsótt ættingjana, gert innkaup, o.s.frv. Smám saman tekur einsemdin völdin. SKULDAFEN ELLINNAR Núverandi þjónustuíbúðir, sem einkaframtakið hefur látið reisa, leysa aðeins vanda lítils hluta þess hóps. 4—5 herbergja íbúð selst í dag á markaðsverði á 2.5 til 3 milljónir. Núverandi þjónustuíbúðir kosta hins vegar um 3.6 milljónir. Hver láir sjötugu fólki, þótt það veigri sér við að taka lán til að borga milljón á milli? ÚRRÆÐIJAFNAÐARMANNA Svo eru aðrir, sem engar íbúðir eiga. Það fólk býr í leiguhúsnæði, hjá ættingjum, eða það sem verra er, er á götunni. Úr- ræði jafnaðarmanna ná líka til þeirra. Öryggi handa öllum er grundvallarkrafa. Það eru sjálfsögð mannréttindi í velferðar- þjóðfélagi. Islenzkir jafnaðarmenn bjóða úrræði, sem tryggja öldruðum þessi mannréttindi. HUGMYNDIN Hugmyndin er sáraeinföld. Unga fólkinu, sem vill kaupa stóru íbúðirnar af gamla fólkinu, býðst jafnhá lán úr húsnæðis- lánakerfinu og nú eru veitt til nýbygginga. Gamla fólkið endurlánar kaupverðið banka í tengslum við sveitarfélagið. Það notar aftur lánin til að fjármagna byggingu þjónustuíbúða fyrir aldraða. IBÚÐARRÉTTUR Gamla fólkið á eftir sem áður innistœðuna hjá bankanum. Það er ekki að kaupa þjónustuíbúðina, heldur að tryggja sér . íbúðarréttinn til æviloka. Reikningur þess hjá bankanum er verðtryggður, en ber hins vegar enga vexti. Ellilífeyrisþeginn leggur þannig fram allt andvirði þjónustuíbúðarinnar. Ef hann hættir við, eða fellur frá, fær hann, eða aðstandendur hans, upphœðina alla endurgreidda með verðtryggingu. ENGUM GLEYMT Þeir, sem eiga enga íbúð, gleymast ekki. Ein af hverjum tíu íbúðum í byggingu þjónustuíbúða er í eigu sveitarfélagsins. íbú ar hennar greiða þá aðeins húsgjald, sem er hœfilegt hlutfall af ellilífeyrinum. Sveitarfélagið tryggir næga heimilisþjónustu, bæði íbúum þjónustuíbúðanna og þeim, sem kjósa að halda heimili sjálfir. Það er þjóðhagslega hagkvæmt, að fólk dveljist eins lengi heima og unnt er. En það sem mestu máli skiptir, er að einsemd og einangrun er rofin. Allir njóta öryggis í ellinni — eins og vera ber. Jafnaðarmenn Húsnæðislausn KAUPLEIGA — RÉTTLÆTI Allir þurfa þak yfir höfuðið. Framkvæmd sjálfseignarstefnu í húsnæðismálum hefur verið allsherjar martröð. Jafnaðarmenn vilja breytingar hér á. Við viljum framkvæma sjálfseignarstefnuna með kaupleigufyrirkomulagi. KAUPLEIGA — FRELSI Fólk á að geta valið í húsnæðismálum. Jafnaðarmenn vilja, að fólk geti valið um að eiga eða leigja húsnœði. Kaupleigan tryggir val — hún veitir fólki frelsi. KAUPLEIGAN — VIÐRÁÐANLEG KJÖR Kaupleigan miðast við að húsnæði borgist á 40 árum. Vilji fólk leigja borgar það mánaðarlega leigu. Vilji fólk eignast íbúðina borgar það mánaðarlega vegna húsnæðisláns og til sveitarfélagsins. Hvenær sem er getur kaupandi fengið afsal með því að borga að fullu hlut sveitarfélagsins. Og þar með ráðið íbúðinni. KAUPLEIGA — MIKILVÆGASTA FÉLAGSMÁLIÐ IDAG Kaupleiga er leið forsjálni og fyrirhyggju. Draumurinn um sjálfseignarstefnu í húsnœðismálum með mannsæmandi hætti verður að veruleika. Hófleg greiðslubyrði gerir margt annað auðveldara — allt umhverfið verður afslappaðra — samvera við fjölskyldu og vini verður meiri — vinnuþrælkun hverfur — frítími verður verðmætari og þar með um leið vinnutíminn. Kaupleigan er lykill að bœttum kjörum — betra lífi. KAUPLEIGAN — OG KOSNINGARNAR Með því að kjósa jafnaðarmenn velur þú kaupleiguleiðina. Við þurfum stuðning þinn til að framkvæma hugmyndina. Framtíðarlausnin í húsnœðismálum felst í atkvæði þínu. Jafnaðarmenn T

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.