Alþýðublaðið - 16.08.1986, Side 1
alþyöu-
Til hamingju með
200 ára áfmælið
Laugardagur 16. ágúst 1986
Þarf aö
greiða
fyrir
gjöfina?
Horfur eru á því að íslenska ríkið
verði að borga skatt til franska rík-
isins fyrir Listaverk Picasso, því
samkvæmt frönskum lögum verður
að greiða 6% útflutningsgjald af
þeim listaverkum sem úr landi fara.
Frú Jacqueline Picasso, ekkja
Pablos Picasso færði forseta ls-
lands Vigdísi Finnbogadóttur eitt
af verkum listamannsins, verkið
Jacqueline, en það var kynningar-
tákn Listahátíðar í Reykjavík 1986.
Aiþýðublaðið hafði samband við
Halldór Reynisson forsetaritara og
innti hann eftir því hvort franska
ríkisstjórnin hefði fellt niður út-
flutningsgjaldið, en samkvæmt
frönskum Iögum verður að greiða
6% skatt af öllum listaverkum sem
úr landi fara. Halldór sagði að þetta
væri vandamál sem upp hefði kom-
ið og að ekki væri búið að ganga frá
þessu endanlega. Þáð yrði leyst
þannig að verkið gæti komið til
landsins. Halldór vildi ekki gefa
upp um hversu háa upphæð væri að
ræða. En til nánari útskýringar má
geta þess að ef verkið er metið upp
á 20 milljónir er þessi skattur um
1200 þúsund.
Aldar-
minning
Ólafs
Friöriks-
sonar
Sjá grein og
smásögu inni
í blaðinu.
Kjörbókin er óbundin og örugg ávöxtunarleið. Hún ber háa vexti, sem leggjast við höfuðstól
á 6 mánaða fresti. Til þess að tryggja að Kjörbókareigendur njóti ávallt hagstæðustu kjara
er ávöxtun Kjörbókarinnar ársfjóróungslega borin saman við ávöxtun bundinna 6 mánaða
vísitölutryggðra reikninga og hagstæðari leiðin valin.
Kjörbókin er góð bók fyrir bjarta framtíð. Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna