Alþýðublaðið - 16.08.1986, Blaðsíða 15
Laugardagur 16. ágúst 1986
15
Flugvellir
Framhald af bls. 11
L>ar sem við eigum ekki meirihluta i
þeim“.
En, þið hafið komið inn í þegar
þrengingar eiga sér stað?
„Það má segja að við höfum
komið inn í Flugfélag Austurlands
þegar þrengingar voru hjá þeim og
áföll dundu yfir. Hins vegar kom-
um við inn í Flugfélag Norðurlands
þegar það var stofnað í núverandi
mynd. Þegar fyrri eigandi ákvað að
selja gerðist það að nokkrir starfs-
menn hjá honum, flugmenn og
flugvirkjar, og Flugleiðir keyptu af
honum“.
Nú hefur nokkuð verið talað um
að Arnarflug gefi eftir sínar leiðir í
innanlandsflugi. Munu Flugleiðir
sækjast eftir að taka við því flugi?
„Það hefur ekki verið til umræðu
hér að flugleiðir sæki um þessar
leiðir og ég sé það ekki fyrir mér að
Flugleiðir komi þar beint inn í þó af
þessu yrði. — En þetta er nú ekki
nema orðrómur ennþá og ef til vill
heldur Arnarflug bara áfram með
þessar áætlunarleiðir sínar. Hins
vegar hafa Flugfélag Norðurlands
og Flugfélagið Ernir lýst því yfir, að
koma þarna inn ef þetta yrði laust“,
sagði Einar Helgason forstöðu-
maður innanlandsflugs Flugleiða
að lokum.
Húsnæðismál
Framh. af bls. 9
þreföldun á gleri.
3. Endurnýjun á rafkerfi.
4. Endurnýjun á lagnakerfi.
5. Utanhússklæðning.
6. Endureinangrun á þaki
og veggjum.
Óheimilt er að lána til eftirtal-
inna framkvæmda nema um sé að
ræða heildarendurnýjun á íbúðar-
húsnæðinu;
Venjulegt viðhald á íbúð svo sem:
a. Málningarvinna úti og inni.
b. Endurnýjun á innréttingum.
c. Endurnýjun á gólfefni.
Sérstök lán til
einstaklinga með sérþarfir
Heimilt er að veita ellilífeyrisþeg-
um og fötluðum, sem búa við skerta
starfsorku eða eru hreyfihamlaðir,
sérstök lán. Þetta á við þegar upp-
lýst er að mati Húsnæðisstofnunar
að sérþarfir ofangreindra einstakl-
inga leiði til aukins viðbótarkostn-
aðar. Einnig er heimilt að veita
þeim lán sem hafa orðið fyrir meiri
háttar röskun á högum og hafa
vegna fráfalls maka eða af öðrum
ástæðum lækkað svo í tekjum að
þeir geti ekki haldið íbúðum sínum.
Sameining
lífeyrissjóðanna
I ljósi þess sem á undan er komið
má fullyrða að ekki eru öll kurl
komin til grafar í sambandi við
þetta nýja húsnæðislánakerfi.
Spurning er hvort sameining lífeyr-
issjóðanna sé mál sem ætti að hraða
og framkvæma samhliða því að
þetta kerfi tekur gildi. Það myndi
minnka skriffinnskuna allmikið.
Allavega er brýnt fyrir þá sem
hyggja á fjárfestingu í íbúðarhús-
næði að kynna sér möguleika sína
vel áður en af stað er farið.
Lúðueldi
Framh. af bls. 6
Stærri Iúðurnar fara sömuleiðis í
önnur þrjú ker með samsvarandi
þéttleika.
Lúðunum sem safnað var í vetur
verður blandað saman við hinar ný-
veiddu tii að reyna að láta þær
kenna hinum síðarnefndu átið og
þannig auka arðsemismöguleika í
slíku eldi. Gert er ráð fyrir að hluti
af nýveiddu lúðunum verði merkt-
ur. Til að fylgjast með vexti verða
lúðurnar lengdar- og þyngdar-
mældar á þriggja mánaða fresti og
á sama tíma verður slátrað úr kerj-
unum til að viðhalda svipuðum
þéttleika allt árið. Verða sýnishorn
af þessari lúðu send á erlendan
markað til að kanna hvaða verð
fæst fyrir þessa framleiðslu og
hvernig það breytist með stærð
fisksins og árstíma"
,.Ég er að bræða það með mér"
sagði nýbakaða kartaflan sem vildi
| njóta samvistanna við smjörið sem lengst.
<£>
cn
S
f^ÝVERÐLÆKKUN:
Stórt stykki af smjöri kostar tœpar 117 krónur, smjörklípan í kartöfluna 2-3 krónur.
I LANDSBANKANUM FÆRÐU
DOLLARA, PUND, MÖRK,
FRANKA, PESETA, FLÓRÍNUR,
ESCUDOS OG LÍRUR
HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATEKKUM
g þá er ekki allt upp talið. í öllum afgreiðslum Landsbankans geta
ferðalangar nánast fyrirvaralaust gengið að gjaldmiðlum allra helstu viðskiptalanda
okkar vísum.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Góða ferð.
Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar
eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum
helstu gjaldmiðlum.
Við minnum líka á Visakortið,
- athugaðu gildistímann áður
en þú leggur af stað.