Alþýðublaðið - 29.11.1986, Page 1
Ný útvarpsstöð
Hafnar eru tilraunaútsendingar á
nýrri útvarpsstöð sem úvarpar
kristilegu efni. Sendir hún út á
FM-102,9. Útvarpsstöðin hefur
hlotið nafnið ALFA og er kristileg
útvarpsstöð.
Útsendingar stöðvarinnar verða
fyrst um sinn bundnar við Reykja-
vík og nágrenni, en næst einnig til
Keflavíkur og Akraness. Formleg
opnun ALFA FM-102,9 verður á
morgun 30. nóvember kl. 14.00.
Fjármálaráðherra á Alþingi:
9500 sjálfstæðir atviimu-
rekendur tekjuskattslausir!
9500 sjálfstæðir atvinnu-
rekendur greiddu engan tekju-
skatt á árinu 1985. Þetta kom
fram í svari fjármálaráðherra
við fyrirspurn Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, sem dreift var á Al-
þingi i fyrradag. 11000 sjálf-
stæðir atvinnurekendur greiddu
samtals 954 milljónir króna í
tekjuskatt sama ár.
I svari fjármálaráðherra kom
einnig fram að sjálfstæðir at-
vinnurekendur greiddu eina
krónu á móti fjórum krónum
sem aðrir einstaklingar greiddu
í tekjuskatt.
Vegna þessa hafði Alþýðu-
blaðið samband við Jóhönnu
Sigurðardóttur, og spurði hana
nánar út í þetta mál.
Kom ekki á óvart
„Þær upplýsingar um að 9500
sjálfstæðir atvinnurekendur, eða
þar urn bil, séu nánast tekjuskatts-
lausir, koma mér í sjálfu sér ekki á
óvart. Það eru margar smugur í
skattkerfinu sem gera sjálfstæðum
atvinnurekendum þ'etta mögulegt,
án þess þó að það þúrfi að vera um
bein skattsvik að ræða. Ég nefni
sem dæmi og það segir sína sögu,
að samkvæmt skattframtölum voru
launþegar með að meðaltali 351
þúsund krónur í árstekjur, á sama
tíma að skattframtöl sýndu að
sjálfstæðir atvinnurekendur höfðu
214 þúsund krónur í árstekjur.
Ég er þeirrar skoðunar að þær
viðmiðunarreglur sem ríkisskatt-
stjóri notar til að ákvarða sjálf-
stæðum atvinnurekendum tekjur,
sem síðan eru lagðar til grundvallar
við ákvörðun skatta, þurfi að end-
urskoða. Ég tel að þær séu í mörg-
um tilfellum langt frá raunveruleik-
Framh. á bls. 14
Laugardagur 29. nóvember 1986 231 tbl. 67. árg.
BBaMmmmmM&mmKmBBBB&mamaBauBummmmaaaBmmaMaBmmmmmm
Innfluttar tölvur og tölvubúnaður:
1 milliarður
á síðasta ári
— Miklar efasemdaradd-
ir um arðsemi slíkra fjár-
festinga.
Samkvæmt upþlýsingum sem Al-
þýöublaðió aflaði sér hjá Hagstofu
Islands voru fluttar inn tölvur og
tölvubúnaöur fyrir um 1 milljarð á
síðasta ári, er hér átt við fob. verð.
Fyrstu átta mánuði þessa árs hafði
innflutningur numið um 750 mill-
jónum þannig að reikna má með að
innflutningur verði meiri í ár en í
fyrra. í tonnum talið var innflutn-
ingurinn á síðasta ári tæplega 400
tonn. í ár fram til september var bú-
ið að flytja inn til landsins um 250
tonn.
í Tölvumálum sem Skýrslu-
tæknifélag íslands gefur út er vakin
athygli á því að í Bandaríkjunum
hafi fyrirtæki fjárfest í tölvubúnaði
fyrir þúsundir milljarða króna á
umliðnum árum en það hafi þó
ekki haft merkjanleg áhrif á fram-
leiðni fyrirtækjanna. Segir að þeirri
skoðun vaxi nú fylgi, að sjálfvirkni
hafi þegar á heildina er litið skilað
mjög vafasömum ágóða.
í septemberblaði Tölvumála var
greint frá víðtækri könnun sem
bandarískur hagfræðingur að nafni
Stephen S. Roach vann úr upplýs-
ingum sem safnað var um fram-
leiðslu á öllum sviðum atvinnulífs á
ve§um alríkisstjórnarinnar.
í þessari athugun kemur m.a.
fram, að þrjá fjórðu hluta af launa-
kostnaði bandarískra fyrirtækja
megi rekja til skrifstofumanna eða
„hvítflibba“ eins og þeir eru stund-
um nefndir á máli hagfræðinga.
Mun meira hlutfall, eða 90% af öll-
um tölvukostnaði megi rekja til
starfa þessara sömu manna.
í nýútkomnum Tölvumálum er
aftur vakin athygli á þessu máli.
Greinarhöfundur, Stefán Ingólfs-
son deildarstjóri hjá Fasteignamati
ríkisins, segir að tímabært sé fyrir
íslenska tölvumenn rekstrarráð-
gjafa og stjórnendur að átta sig á
stöðu þessara mála hér á landi.
Stefán vitnar til greinarinnar sem
hann skrifaði í septemberblaðið og
segir að því sé ekki að leyna að
greinin hafi verið ólík að efni til
þeim greinum sem birtast í tölvu-
blöðum og blöðum sem fjalla um
tölvumál hérlendis. Stefán segir:
„Því miður séu allmargar greinar
um þessi mál, eins og seljendur
tölva og tölvubúnaðar hafi samið
þær til að lýsa eigin framleiðslu.
Stundum minni þær óneitanlega á
strákinn, sem sagði í aðdáunartón
um félaga sinn, sem þótti all sjálf-
umglaður. „Mikið skratti er hann
Tóti gáfaður" Þegar hann hefði síð-
an verið inntur eftir því af hverju
hann teldi félaga sinn gáfaðan hafi
ekki staðið á svörum: „Nú hann
segir það sjálfur“.
Stefán segir, að því miður hafi
ekki skapast umræða um málið.
Telja megi víst að margir séu á önd-
verðum meiði við þessi sjónarmið
en engu að síður sé tímabært að
menn ræði þessi mál.
. ■ 0,«otltnS“ V\
08
SftSíSlf ,iml. ívtsu Vtnnins.
'lnnandi V*. . , 000.000,««1 í'f
A?> mionsta kornnat áUreiU. iava'.
MUNDU EFTIR
MILLJÓNINNI!