Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 11
Laugardagur 29. nóvember 1986 11 Börnum einstæðra foreldra mismunað Fyrir nokkru var á Alþingi fjall- að um breytingar á barnalög- um. Jóhann Sigurðardóttir tók þátt í þessum umræðum og fjallaði um veikamikinn þátt í barnauppeldi. Hún sagði m.a.: Það frv. sem ég mæli fyrir hefur það að markmiði að tryggja börn- um, sem aðeins eiga annað foreldri á lífi, sama rétt og löggjafinn hefur þegar veitt börnum einstæðra for- eldra sem leitað geta til meðlags- skylds aðila með framlög vegna menntunar barna sinna. í fimm ár hafa verið í gildi þessi ákvæði barnalaganna sem eru heimildarákvæði þess efnis að hægt er að ákveða framlag frá meðlags- skyldum aðila til menntunar og starfsþjálfunar barna til 20 ára ald- urs. Hér er vissulega um mikilvægt ákvæði í barnalögunum að ræða sem getur haft verulega þýðingu og kannske oft ráðið úrslitum um það hvort börn einstæðra foreldra geta lagt stund á framhaldsnám. En þeg- ar þetta ákvæði barnalaganna var samþykkt fyrir fimm árum var ekki hugað að því að tryggja börnum einstæðra foreldra, sem ekki geta leitað til meðlagsskylds aðila, sama rétt og barnalögin veittu öðrum börnum einstæðra foreldra. Fjöldi þeirra einstæðu foreldra, sem ekki geta nýtt sér ákvæði barnalaganna, er mikill. Það er stór hópur, 1073 einstæðir foreldrar með 1564 börn á framfæri sínu, sem ekki getur leitað eftir þessu fram- lagi vegna menntunar barna sinna til 20 ára aldurs. Hér er því um mjög stóran hóp að ræða og augljóst ranglæti og mismunun i aðbúnaði og kjörum einstæðra foreldra sem með þessu frv. er leitast við að leið- rétta. í frv. er einnig lagt til að börn ör- yrkja og ellilífeyrisþega, sem ekki hafa annan framfærslueyri en bæt- ur almannatrygginga, fái sama rétt. Þar er einnig um stóran hóp að ræða. Þar er samtals um að ræða 617 öryrkja og ellilífeyrisþega með 967 börn á framfæri sínu. Þegar á heildina er Iitið gæfu ákvæði þessa frv. 1690 einstæðum foreldrum, öryrkjum og ellilífeyris- þegum með samtals 2531 barn á Gjafir til Krabbameins- félagsins / x. Krabbameinsfélag Hvamms- tangalæknishéraðs færði Krabba- meinsfélagi íslands myndarlegt fjárframlag, sem á að renna í sjóð sem stofnaður hefur verið til kaupa á brjóstaröntgenmyndatæki fyrir landsbyggðina. Starfsmannafélag Hafskips sam- þykkti, áður en félagið var lagt nið- ur, að gefa Krabbameinsfélaginu það sem eftir yrði af eigum félags- ins. Fyrrverandi formaður starfs- mannafélagsins, ásamt nokkrum úr stjórninni, afhentu Krabbameins- félaginu svohljóðandi gjafabréf: „Undirritaðir, f.h. Starfsmanna- félags Hafskips hf., aflienda hér með Krabbameinsfélagi íslands að gjöf ávísun að upphæð kr. 224.594.00. Gefendur votta virð- ingu og þakkir fyrir árangursrík brautryðjendastörf á vegum Krabbameinsfélags íslands á liðn- um áratugum. Það er von gefenda að gjöfin megi verða lóð á vogar- skálar framtíðarstarfs félagsins". Þessum sjóð verður varið til að koma á fót aðstoð við krabba- meinssjúklinga og fjölskyldur þeirra. Þessi ráðgjafarþjónusta er í þann veginn að hefjast á vegum fé- lagsins og hafa verið ráðnir tveir hjúkrunarfræðingar í hlutastarf til að sinna þessu verkefni. framfæri sínu möguleika á að Ieita eftir framlagi til menntunar barna sinna 18—20 ára. Það ber þó að taka fram að að því er varðar þau heimildarákvæði, sem fyrir hendi eru nú í barnalögum, getur valds- maður metið í hverju tilfelli að- stæður hins meðlagsskylda aðila, þar sem m.a. er tekið mið af efna- hag og öðrum aðstæðum hans og þess foreldris sem forsjá barns hef- ur, þannig að ekki yrði í reynd um að ræða eins stóran hóp og ég hef hér nefnt sem fengi slík framlög sem hér um ræðir. Þegar til þess er litið, herra for- seti, að fjárhagslegar og félagslegar aðstæður þessara einstæðu for- eldra, sem ekki geta leitað til með- lagsskylds aðila og fá þess vegna ekki þessi framlög vegna menntun- ar barna sinna, geta verið eins, svip- aðar eða jafnvel verri en foreldra þeirra barna sem nú geta leitað eftir framlögum vegna menntunar barna sinna, þá er furðulegt að Al- þingi skuli ekki hafa tekið af skarið í þessu máli og veitt börnum þess- Jóhanna Sigurðardóttir ara einstæðu foreldra sama rétt og börn annarra einstæðra foreldra hafa. Og ég trúi því ekki að þriðja þingið líði frá því að þetta frv. var fyrst og lagt tram án þess að AI- þingi samþykki það frv. sem hér liggur fyrir. Ef það verður ekki gert er ástæðan ekki sú að hér sér um stóran útgjaldaauka fyrir ríkissjóð að ræða ef þetta frv. verður að lög- um. í fskj. með frv. liggur fyrir um- sögn Fjárlaga- og hagsýslustofnun- ar um þetta frv. sem allshn. Nd. fékk á siðasta þingi. Það er mat Fjárlaga- og hagsýslustofnunar að eingöngu sé um að ræða útgjalda- auka upp á 4—5 millj. á ári verði frv. þetta að lögum. Því tel ég, ef hv. þm. þessarar deildar íhuga þetta mál og velta fyrir sér í alvöru hvað mikið óréttlæti felst í því að skilja eftir stóran hóp barna einstæðra foreldra án þess réttar sem löggjaf- inn hefur þegar tryggt öðrum börn- um einstæðra foreldra, þá hljóti AI- þingi að geta fallist á að samþykkja frv. sem ekki hefur meiri útgjalda- auka í för með sér en ég hef hér lýst. Helgi Hólm fyrrverandi landsliðsmaður og þjálfari í frjálsum íþróttum: ’Það þarf stefcir taiigar í startíð. Drekktu mjólk!'* Viðbúnir.tilbúnir.bang! (viðbragðsstöðu fyrir hlaup er hver taug þanin til hins ítrasta. Þar ræöur styrkur, jafnvægi og öryggi úrslitum. Helgi Hólm íþróttakennari og þjálfari veit lengra nefi sínu um taugamar í startinu - og hvemig mjólk getur aukið andlegt og líkamlegt þrek. Það þarf sterkar taugar i fleira en íþróttir. Yfitvegun og andleg vellíðan skiptir alla máli og rannsóknir sýna að mataræði hefur ævinlega mikil áhrif á skaphöfn og geð. Að minnsta kosti 20 bætiefni, - vítam ín, steinefni og aminósýrur - hafa margslungin áhrif á andlega líðan og skortur á þessum efnum bitnar oft fyrst á taugakerfinu. Mjólk er ein besta uppspretta bætiefna í daglegu fæði okkar. Úr mjólkurmat fáum við á milli þriðjungs og sjöttungs af mikilvægustu B-vítaminum auk kalks og steinefna sem hafa mikil áhrif á taugakerfið. Þess vegna er mjólk góð fyrir svefninn - og á morgnana - og um miðjan daginn! MJÓLKURDAGSNEFND Aðalsteinn Bernharðsson, margfaldur islandsmeistari og landsliðsmaður í frjálsum íþróttum, drekkur mikið af mjólk. Þannig styrkir hann taugar og bein og rennir styrkum stoðum undir afrek sin á hlaupabrautinni. Áhrif B vítamínskorts eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson Tegundir Bvitamína Einkenni á taugakerfi við skort á B vitamínum Þíamín(B,) Kjarkleysi, þunglyndi, taugalömun Ribóflavin (B,) Þunglyndi, skynvilla, vitfirring Niasín Þunglyndi, skynvilla, vitfirrinq Pantóbensvra Svefnlevsi.persónuleikabrevtinqar BBvitamín Sinnuleysi, þunglyndi, svefnleysi Eólasín Þunglyndi, rugl, minnistap B12vítamin Sinnuleysi. mænu- og taugarýrnun, dauði Bíotín Þunglyndi, sinnuleysi, svefnleysi Eins og sjá má getur B-vítamínskortur valdiö ótrúleg- ustu einkennum á taugakerfi. Sem betur fer er alvar- leg B-vítamínvöntun úr sögunni á Islandi. En vægur skortur er sennilega algengur. Úr mjólkurmat fáum viö milli þriöjungs og sjöttungs af mikilvægustu B-vita- minunum. Auk þess hefur kalkið, og fleiri stemefni áhrif á taugakerfið. Og hvaðan fáum viö 70% kalksins? Gettu! I

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.