Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 7
Laugardagur 29. nóvember 1986 7 Ræður frambjóðenda í prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjavík: „Verum á verði gagnvart ný- frjalshyggjunni!" Björgvin Guömundsson: Alþýðuflokkurinn er í sókn. Jafnaðarstefnan er í sókn. Boð- skapur jafnaðarmanna um réttlát- ara þjóðfélag hefur náð eyrum ís- lendinga. Alþýðuflokkurinn hefur alla sína tíð barist fyrir bættum kjörum ís- lenskrar alþýðu, íslenskra launa- manna. Hann hefur knúið fram margvísleg umbótamál fyrir fólkið í landinu. Og það er á engan hallað þó sagt sé, að Alþýðuflokurinn hafi átt stærstan þáttinn í að skapa það velferðarríki, sem ísland er í dag. Þess gerist ekki þörf í þennan hóp að telja upp öll þau mörgu og marg- víslegu umbótamál, sem Alþýðu- flokkurinn hefur komið fram á 70 ára starfsferli. Við þekkjum þau hér. En þrátt fyrir þetta hefur Al- þýðuflokkurinn oft átt undir högg að sækja varðandi atkvæðastyrk. Það er eins og það hafi ekki alltaf komist til skila, hvað Alþýðuflokk- urinn hefur verið að gera fyrir al- þýðu þessa lands — fyrir fólkið í landinu. En nú virðist breyting orðin á í þessu efni; Alþýðuflokkurinn virð- ist í dag ná eyrum fólksins. Það virðist nú komast til skila það, sem Alþýðuflokkurinn hefur gert og það, sem hann vill gera til þess að breyta islensku þjóðfélagi. Hér eiga margir hlut að máli. Þingmenn Alþýðuflokksins — og þá ekki hvað sist þingmenn Alþýðu- flokksins í Reykjavik hafa verið skeleggir. Sveitarstjórnarmenn og aðrir málsvarar flokksins hafa einnig staðið sig vel. — Úrslit sveit- arstjórnarkosninganna s.l. vor urðu mikill sigur fyrir Alþýðuflokkinn. Og ef marka má skoðanakannanir virðist sókn Alþýðuflokksins halda áfram. Nú fara alþingiskosningar í hönd snemma næsta vor og þá ríður á, að Alþýðuflokkurinn fái sem mest fylgi. Það er áríðandi, að Alþýðu- flokkurinn fái svo sterka stöðu, að hann geti haft forustu um myndun ríkisstjórnar og hrundið í fram- kvæmd þeim umbótamálum, sem hann hefur kynnt og barist fyrir nú síðustu árin. Við, sem hér erum bjóðum okkur fram til baráttu fyrir Alþýðuflokk- inn í því stríði sem framundan er. Við viljum hefja á loft fána jafnað- arstefnunnar og skapa réttlátt þjóð- félag, þar sem allir hafa atvinnu, þar sem allir hafa mannsæmandi laun. Við viljum launajafnrétti karla og kvenna. Við viljum að fólk geti eignast þak yfir höfuðið. Það sem brennur heitast á fólki í dag eru hin smánarlega lágu Iaun verkafólks í lægstu launaflokkum og húsnæðiskreppa unga fólksins, sem ég vil kalla svo. Ungt fólk, sem er að byrja búskap í dag getur ekki eignast húsnæði. Til þess eru launin of lág og lánsbyrði húsnæðislán- anna of þung. Ég vil beita mér fyrir leiðréttingu á þessu hvoru tveggja. Alþýðuflokkurinn á að lagfæra kjör láglaunafólksins í landinu. AI- þýðuflokkurinn á að leysa húsnæð- isvanda unga fólksins. Auk þess vil ég beita mér fyrir viðreisn atvinnulífsins í Reykjavík. — Þegar félagshyggjuflokkarnir fóru með völd í Reykjavik 1978— 1982 voru gerðar margvíslegar ráð- stafanir til þess að efla atvinnulífið í höfuðborginni. Fiskiskipastóll Reykjavíkur var efldur. Reykjavík- urborg keypti 2 nýja glæsilega tog- ara, Jón Baldvinsson og Otto N. Þorláksson til þess að treysta at- vinnugrundvöll höfuðborgarinnar. íhaldið í Reykjavík hefur nú afhent einkafyrirtæki þessi glæsilegu skip. — Á tímabilinu 1978—1982 var einnig hafinn undirbúningur að byggingu skipaverkstöðvar í Reykjavík til þess að ná skipavið- gerðum sem mest inn í landið, auka atvinnu og spara gjaldeyri. íhaldið í Reykjavík hefur nú drepið þetta mál. Ég vil, að mál þetta sé tekið upp á Alþingi. Alþýðuflokkurinn á að taka þetta mál upp á löggjafar- samk. þjóðarinnar. Það eru mikið fleiri mál Reykvík- inga, sem Alþingi þarf að láta til sín taka. Borgarfulltrúar Reykvíkinga kynnast mörgum vandamálum, sem unnt er að leysa á löggjafar- þinginu. Það hefur oft gefist vel á Alþingi að nýta sér reynslu sveitar- stjórnarmanna. Alþýðuflokkurinn samþykkti á síðasta flokksþingi sínu í Hvera- gerði róttæka stefnu í öllum helstu þáttum innanlandsmála. Þar var samþykkt að Ieggja höfuðáherslu á eftirfarandi mál í væntanlegri kosn- ingabaráttu vegna alþingiskosning- anna: Nýtt skattakerfi, sem feli í sér af- nám tekjuskatts af almennum launatekjum. Samþykkt var og að leggja bæri á stighækkandi stór- eignaskatt og að taka bæri upp virðisaukaskatt í stað söluskatts. Þetta eru róttækar aðgerðir í skattamálum. Alþýðuflokkurinn hefur haft forystu fyrir því að berj- ast fyrir afnámi tekjuskatts af al- mennum launatekjum. Fái flokkur- inn afl til mun hann framkvæma það stefnumál sitt. — Hinn al- menni launamaður er í dag að kikna undan þungri skattbyrði. Þetta á ekki aðeins við um verka- fólk í hinni gömlu merkingu þess orðs heldur einnig opinbera starfs- menn og annað skrifstofufólk. Það er lítið eftir þegar búið er að draga af laununum fyrir skattinum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur reynt að gera það stefnumál Al- þýðuflokksins tortryggilegt að vilja leggja á stóreignaskatt. íhaldið hef- ur sagt, að Alþýðuflokkurinn vildi hækka skatta á venjulegum íbúðum fólks. Það er rangt. Alþýðuflokkur- inn vill aðeins að stóreignamenn leggi meira til samneyslunnar. Og að sjálfsögðu mun álagning stór- eignaskatts auðvelda afnám tekju- skatts af almennum launatekjum. Annað aðal baráttumál Alþýðu- flokksins í væntanlegri kosninga- baráttu er að komið verði á nýju húsnæðislánakerfi. Það kerfi á að byggjast á traustum fjárhagsgrunni og fullnægja eðlilegri lánaþörf á húsnæðismarkaðnum. Alþýðu- flokkurinn vill auka framlag til fé- lagslegra íbúða. Með félagslegum íbúðum á Al- þýðuflokkurinn við verkamanna- bústaði — aðrar íbúðir, sem sveitar- félög reisa , þar á meðal kaupleigu- íbúðir og íbúðir á samvinnugrund- velli. Alþýðuflokkurinn vill að fólk geti valið um það, hvort það vill búa í eignaríbúð eða leiguíbúð. En Ijóst er, að húsnæðisvandinn verður aldrei leystur til fulls nema byggðar verði margar leigu- og kaupleigu- íbúðir. — Nýleg könnun Húsnæð- isstofnunar leiðir í ljós, að það vantar 2000—2500 nýjar leiguíbúð- ir til þess að fullnægja eftirspurn. Þessi niðurstaða sýnir glöggt hvert vandræðaástand ríkir í húsnæðis- málum. Ljóst er, að það þarf að gera stórátak í þessum málum. Það jsarf að bæta aðstöðuna til kaupa á nýjum og notuðum íbúðum. Einnig þarf að byggja mikinn fjölda leigu- íbúða og kaupleiguíbúða. Þriðja stórmálið, sem Alþýðu- flokkurinn berst fyrir í væntanlegri kosningabaráttu er sameiginlegur lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn. Stefna Alþýðuflokksins er sú, að í stað hundrað sérsjóða, sem nú starfa, komi einn sameiginlegur líf- eyrissjóður fyrir alla. Hér er um stórmál að ræða. Mikið misrétti ríkir i dag í lífeyrissjóðamálunum. Margir eru alveg afskiptir. Alþýðuflokkurinn vill leiðrétta þetta misrétti. Fjórða málið, sem Alþýðuflokk- urinn berst fyrir í væntanlegum kosningum er ný atvinnustefna. Þar er lögð áhersla á að byggja upp nýjar atvinnugreinar í landbúnaði og sjávarútvegi. Auk þess er lögð áhersla á margvíslegan nýtækni- iðnað. Og fimmta stórmálið sem A1 þýðuflokkurinn leggur áherslu á i væntanlegum kosningum er sam- ræmd launastefna og kjarasátt- máli. Alþýðuflokkurinn bendir á, að samræmd launastefna er forsenda árangurs í baráttunni við verðbólg- una. Tryggja þarf að ávinningur síðustu kjarasamninga verði ekki stundarsigur heldur undirstaða var- anlegrar sóknar til bættra lífskjara og aukins réttlætis í launamálum. Þannig og á þann hátt einan er unnt að skapa grundvöll fyrir þeim kjarasáttmála, sem Alþýðuflokkur- inn hefur árum saman barist fyrir. Alþýðuflokkurinn vill, að launa- fólk fái lífvænleg laun fyrir átta stunda vinnu. Framh. á bls. 15 Auglýsing um innlausn happdrættísskuldabréfa rOdssjóðs I. flokkur 1976 Hinn 1. desember nk. hefst innlausn happdrættisskuldabréfa ríkissjóðs í I. flokki 1976, (litur: bleikur). Hvert skuldabréf, sem upphaflega var að nafnverði gkr. 2.000,00, nú kr. 20,00, verður innleyst með verðbótum samkvæmt breytingum, sem orðið hafa á lánskjaravísitölu frá útgáfudegi á árinu 1976 til gjalddaga í ár. Innlausnarverð hvers skuldabréfs í greindum flokki er kr. 715,40 Til leiðbeiningar fyrir handhafa happdrættisskuldabréfanna viljum vér benda á, að bréfin eru eingöngu innlevst í afgreiðslu Seðlabanka fslands. Hafnarstræti 10. Revkjavík. Þeir handhafar skuldabréfa, sem ekki geta sjálfir komið í afgreiðslu Seðlabankans, geta snúið sér til banka, bankaútibúa eða sparisjóða hvar sem er á landinu, sem sjá um innheimtu þeirra úr hendi Seðlabankans. Eftir gjalddaga greiðast engar verðbætur vegna hækkunar lánskjaravísitölu Skuldabréfin fyrnast á 10 árum, talið frá gjalddaga hinn 30. nóvember 1986. Reykjavík, nóvember 1986 SEÐLABANKJ ÍSLANDS

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.