Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 2
2 Laugardagur 29. nóvember 1986 ritstjQrnargrein .. ...... Var einhver að hrópa á réttlæti? Menn velta því ósjaldan fyrir sér hvaö verður um þá miklu fjármuni, sem vinnandi hendur skapa í undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinn- ar, og hafa líklega aldrei verið meiri en einmitt nú. Þessi verðmæti fara ekki í launaumslög verkafólksins, heldur virðast þau renna eftir einhverjum ósýnilegum og óbreytanlegum far- vegi f sjóði fjármagnseigenda. Hin efnalega stéttaskipting, sem nú blasir við, er ótvíræð sönnun þessa neðanjarðar-hagkerfis. Þá hefur það lengi verið vitað, að fjármagns- eigendur og ýmsir atvinnurekendur hafa getað spilaðágatslitiðog hálfónýtt skattkerfi aðvild. Milljarða undandráttur á söluskatti hefur verið staðfestur, og enn á ný hefur verið sýnt fram á það, að þúsundir sjálfstæðra atvinnurekenda greiða engan tekjuskatt. Ríkissjóður verður af umtalsverðum tekjum og þarf fyrir bragðið að seilast æ dýpra í vasa launafólks eftir aurum til útgerðar hins opinbera. m I svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Jó- hönnu Sigurðardóttur, sem dreift var á Alþingi í fyrradag, um skattgreiðslur atvinnurekenda, kemur m.a. fram, að tæpur helmingur þeirra, sem töldu fram tekjur af sjálfstæðum atvinnu- rekstri s.l. tvö ár, greiddu engan tekjuskatt. Arið 1985 greiddu rúmlega 11 þúsund sjálf- stæðir atvinnurekendur tekjuskatt af tekjum ársins 1984, en tæplega 9.500 greiddu engan tekjuskatt. Laun þeirra af atvinnurekstrinum hafa því verið lægri en gengur og gerist hjá fólki í láglaunastörfum, t.d. verkamönnum í byggingavinnu, konum, sem skúra gólf eða standa við fiskverkunarborð allan daginn svo ekki sé nú talað um einhleypa foreldra í ýmsum stéttum. Og lítið hafa tekjurnar hækkað hjá einstak- lingum í sjálfstæðum atvinnurekstri á síðasta ári. Þá greiddu 13.500 einhvern tekjuskatt, en rúmlega 8.600 höfðu greinilega svo lágar tekj- ur, að þeir hafa verið undir fátæktarmörkum. Þeir greiddu engan tekjuskatt. Sjálfstæðir atvinnurekendur þurfa ekki að stunda skattsvik til að sleppa við tekjuskatt. Ætla má, að viðmiðunarreglur, sem embætti ríkisskattstjóra notar til að ákvarða sjálfstæð- um atvinnurekendum tekjur, séu fjarri öllum veruleika. Vegna skattársins 1984 var þessi við- miðun frá 176 þúsund krónum og upp í 528 þús- und krónur. Undir þennan hæsta flokk féllu m.a. lyfjafræðingar, lögfræðingar, verkfræð- ingar og tannlæknar. Þegar viðmiðunin er svo lág sem raun ber vitni, er það auðvitað freist- andi fyrir hátekjumenn að láta áætla á sig. Ef aftur er miðað við skattárið 1984 voru árs- tekjur launþega, samkvæmt skattframtölum 351 þúsund krónur. Þetta sama ár voru meðal- tekjur sjálfstæðra atvinnurekenda 214 þúsund krónur. * I könnun, sem gerð var á ísafirði fyrir nokkru, kom í Ijós, að 12 einstæðar mæður greiddu samtals 986 þúsund krónur í tekjuskatta. Tólf karlar, sem stunduðu sjálfstæðan atvinnu- rekstur, voru með rösklega 41 þúsund krónur samtals í tekjuskatta. Var einhver að hrópa á réttlæti? Þetta sýnir enn og aftur, að það ereitt af brýn- ustu hagsmunamálum þessarar þjóðar, að skattkerfið verði gert skilvirkt svo launþegar þurfi ekki áfram að greiða skatta fyrir tekju- hæstu hópa þjóðfélagsins. Útboð Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar fyrir hönd bygg- ingardeildar óskar eftir tilboöum (jarðvinnu við bygg- ingu Reykjavlkurborgar að Vesturgötu 7. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuö á sama staö þriðjudaginn 16. des. n.k. kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik Frá menntamálaráðuneytinu: Lausar kennarastöður Við Fjölbrautaskólann á Sauöárkróki er laus til um- sóknar kennarastaða I stærðfræði og eölisfræði. Við Menntaskólann á Egilsstöðum vantar stærðfræði- kennara og frönskukennara I 2/3 hluta starf frá áramót- um. Við Menntaskólann á ísafiröi er laus staöa islensku- kennara frá næstu áramótum eða frá 1. febrúar. í boði er lltil íbúð. Upplýsingar veitir skólameistari I síma 94—3599 og 94—4119. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavlk fyrir 15. desember næstkomandi. Menntamálaráðuneytið. Kosningaskrifstofa Láru V. Júlíusdóttur Vegna prófkjörs Alþýðuflokksins helgina 29. og 30. nóvember er að Síðumúla 20 2. hæð (Gluggasmiðjan). Símar 681080 — 681077 og 38220. Víkurútgáfan: Mannssonuriim eftir Kahlil Gibran — í þýðingu Gunnars Dal Nú vandast málið. Hvað á svo sem hann ég að segja um eina hug- Ijúfustu bók sem skrifuð hefur ver- ið á tuttugustu öld, svo ekki sé kveðiö fastar að? Ef til vill væri mér sæmast að þegja og segja ekki neitt, þar sem ég hef það á tilfinningunni að það sem ég kynni aö láta frá mér fara á prenti um snilldarverk á borð við Mannssoninn eftir Kahlil Gibran, næði ekki þeim tilgangi sínum að lýsa á nokkurn hátt svo verðmætri bók. í hreinskilni: Það vantar orð. Ég er þó ákveöinn í því að reyna. Ætli nokkurn tímann hafi verið önnur eins þörf og núna fyrir þá mannúð, kærleik manna í millum og ást til alls sem lifir, sem er uppi- staðan í bókinni Mannssonurinn. Ég efast um það. Ég vil líka leyfa mér að segja, að sá sem les þessa bók verður ekki samur maður eftir. Það er einnig skoðun mín að varla sé til svo harðsvíruð sál að hún blikni ekki við lestur bókarinnar. Á tímum þegar argaþras er helsta af- þreying mannanna, er það eins og að leggja frá sér hundrað kílóa poka, sem maður hefur burðast með lengi, að fá slíka bók í hendur og lesa hana. Frá fyrsta stafkrók til hins síðasta er bókin hreinn unaður aflestrar. Kahlil Gibran er Líbani og er Mannssonurinn önnur af hans frægustu bókum. Hin er Spámað- urinn eins og allir vita, en hún hefur nú verið gefin út á íslensku í sjö út- gáfum. Ætti það að segja allnokk- uð um höfundinn og vinsældir hans. Og Mannssonurinn er að vissu Ieyti hliðstæð Spámanninum á ýmsan hátt. Hér er fjallað um líf Krists, umsagnir samtíðarmanna hans á honum, blandin heimspeki og hinum gullnu reglum og leiðum til lífshamingju. Einstæð bók að gæðum. Gunnar Dal þýddi bókina á þann veg að tæpast verður betur gert. Tilvalin lesning um jólin. Örn Bjarnason. Alþýðuflokksfélag Kópavogs Aðalfundurverðurhaldinn mánudaginn l.desemberkl. 20.30. Kjörfundur vegna kosninga um 4. sætið á lista Alþýðuflokksins í Reykjavtk vegna komandi al- þingiskosninga, fer fram dagana 29. og 30. nóvember 1986 I félagsmiðstöð jafnaðarmanna, Hverfisgötu 8—10, kl. 13.00—18.00, báða dagana. Rétt til þátttöku I prófkjörinu hafa þeir einir sem eru flokksbundnir I Alþýðuflokknum, hafa náð 18 ára aldri og eru búsettir í Reykjavlk. Kjörstjórn. Kvenfélag Alþýöuflokksins í Hafnarfirði heldursinn árlegajóla- og afmælisfund fimmtudaginn 4. des. n.k. kl. 8.30. Fjölbreytt dagskrá I umsjón Báru Guöbjartsdóttur og Ernu Frlðu Berg. Mætum vel og stundvfslega og tökum með okkur gesti. Hittumst hress. Stjórnin. Skrifstofustarf Óskum eftir að ráða starfsmann I eina af trygginga- deildum okkar til almennra skrifstofustarfa. Æskilegt að umsækjendur hafi starfsreynslu og geti hafið störf sem fyrst. Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá Starfsmanna- haldi, Ármúla 3, slmi 681411. Samvinnutryggingar g.t.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.