Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 12
12 Laugardagur 29. nóvember 1986 Líkamsrœktin í Kjörgarði 5 ára: Hófleg áreynsla er líkamanum nauðsynleg Rœtt við Gústaf Agnarsson, líkamsrœktarstjóra „Líkamsræktin hér í Kjörgarði tók til starfa 31. október 1981 og er því 5 ára um þessar mundir. „Orkubót“ í Brautarholtinu hafði opnað nokkru áður, en það má segja að Líkamsræktin hér i Kjör- garði hafi verið sú fyrsta sinnar tegundar á íslandi, það er af þess- um stóru sem bjóða upp á alhliða þjónustu, æfingar í tækjum, Ijósabekki, heitavatnsnuddpotta, gufuböð, ráðleggingar um matar- æði o.s.frv. Og um þetta leyti, árið 1981, varð sannköllluð bylting í afstöðu almennings til líkams- ræktar og bættrar heilsu al- mennt,“ sagði Gústaf Agnarsson, líkamsræktarstjóri i Líkamsrækt- arstöðinni í Kjörgarði í samtali við Alþýðublaðið. Flóðbylgjan skall yfir „Enda fór það svo að strax eftir að við opnuðum skall flóðbylgjan yfir okkur. Aðsóknin var svo mik- il fyrstu mánuðina að við gátum tæplega annað öllum þeim sem til okkar leituðu! Margir héldu að þetta væri aðeins bóla sem myndi ná einhverju hámarki og springa síðan með háum hvelli, en sú varð ekki raunin. Margar Iíkamsrækt- arstöðvar opnuðu skömmu síðar, þannig að allur þessi fjöldi sem vildu notfæra sér þessa þjónustu og bæta líkamsástand sitt, dreifð- ist á hina ýmsu staði. En eftir að þetta jafnaðist út þá hefur að- sóknin hjá okkur verið að aukast hægt en örugglega. Ljósaböð í sólarleysinu Ein skýringin á þessum mikla áhuga íslendinga á líkamsrækt er líklega sú að þessi Iíkamsræktar- aðferð hentar okkur mjög vel. Sólarleysið á veturna er til dæmis mjög gott að bæta upp með því að stunda ljósabekkina. Eins eru réttar æfingar í tækjunum sér- staklega heilsubætandi. Guðmundur Sigurðsson lyftinga- maður hefur sýnilega haft gott af œfingunum hjá Gústal Fyrsta bylgjan, á meðan lík- amsræktin var eins konar tísku- fyrirbrigði, stóð í um það bil þrjá mánuði. Síðan dofnaði áhuginn nokkuð eftir að nýjabrumið fór af þessu, en síðan fór áhuginn að koma aftur og nú virðist aðsóknin vera komin i jafnvægi og aukn- ingin er hæg en nokkuð örugg. Fjölbreytt þjónusta Þess má geta að sumir koma aðeins til þess að fá sér gott bað, fara í heitavatnsnuddpottinn, í gufubað og síðan í sturtu. Aðrir notfæra sér alla þá þjónustu sem Líkamsræktin hefur upp á að bjóða og það eru þeir sem fá auð- vitað mest út úr þessu. Aðalatrið- ið er þó að fólk getur valið um hvað það vill notfæra sér af þess- ari fjölbreyttu þjónustu. Mat- vælafræðingur er hér til staðar fyrir þá sem vilja fá ráðleggingar í þeim efnum. Upphaflega vorum við sex eig- endur að Líkamsræktinni, en þetta hefur breyst í gegnum árin og nú er ég og mín fjölskylda eig- endur fyrirtækisins og höfum ver- ið í um það bil fjögur ár. Líkamlegt ástand kannað Þegar kemur til mín einstakl- ingur sem vill byrja að rækta lík- ama sinn og stunda okkar æfinga- dagskrá, þá byrja ég á því að kynna mér líkamlegt ástand við- komandi, t.d. hvort hann eða hún hafi stundað svipaðar æfingar eða íþróttir áður, hvort einhver meiðsli séu til staðar og ef svo er hvers eðlis þau séu. Ef um alvarleg meiðsli er að ræða þá ráðlegg ég viðkomandi að ráðfæra sig við sjúkraþjálfara, því fyrsta boðorð- ið er að taka aldrei neina áhættu með heilsu fólksins. Ef viðkomandi er hins vegar í þokkalegu ástandi, þá læt ég hann fara í gegnum létt prógramm og kynni mér þrek hans og þol og tek síðan ákvörðun í framhaldi af því hvernig ég ráðlegg honum að „sigla“ inn í æfingarnar. Þessi regla gildir fyrir fyrsta mánuðinn eða þar um bil. Eftir það kemur þetta nokkuð af sjálfu sér og við- komandi bætir við þyngdina smám saman. Höfuðreglan er samt alltaf sú að vera aldrei með of þungt. Það er mjög áríðandi. Menn eru ekki pískaðir út, það er mikill misskilningur og má aldrei gerast. Svo eru það ekki aðeins vöðvarnir sem styrkjast. Sinar, sinafestingar og bein styrkjast einnig, — og i raun og veru allur líkaminn. Gústaf Agnarsson. Að vakna til lífsins Það eru mörg dæmi þess að fólk hefur komið hingað í mjög slæmu ástandi og náð undraverð- um árangri. Ég man sérstaklega eftir tveimur einstaklingum. Eitt sinn kom til mín maður, mjög illa á sig kominn greir.ilega. Hann sagði mér að hann hefði skömmu áður fengið hjartaáfall og var næstum dáinn. En á fjór- um til fimm mánuðum varð algjör umbreyting á þessum manni, það var í rauninni ómögulegt að þekkja hann fyrir sama mann. Það var ótrúleg breyting og mér mjög minnistæð. Hann hafði að vísu æft íþróttir löngu áður og það hefur örugglega haft sitt að segja. Það er eins og líkaminn „muni“ slíkt. Þessi maður byggði sig upp frá því að vera liðið lík og upp í það að ná mjög góðu formi. Langvarandi gigt hvarf Hitt dæmið sem ég man sér- staklega er af konu sem kom til mín og var mjög illa haldin af gigt. Hún hafði verið mjög kvalin í mörg ár og þurft að ganga í sprautur og annað slíkt. Hún fór að æfa hjá okkur og ári síðar sagði hún mér að hún hefði ekki í langan tíma fundið fyrir neinni gigt. Gigtin virtist sem sagt vera gersamlega horfin og lífsútsýni þessarar konu var orðið allt annað og betra. Við verðum að athuga að hæfi- leg áreynsla er líkamanum bæði eðlileg og nauðsynleg, — það er engin spurningþ sagði Gústaf Agnarsson, líkamsræktarstjóri í Líkamsræktinni í Kjörgarði. Málverkasýning: Ragnar Lár sýnir í M.Í.R. salnum Myndir frá síðustu þremur árum í dag opnar Ragnar Lár mál- verkasýningu í MIR salnum að Vatnsstíg 10 (fyrir neðan Hverfis- götuna). Sýningin verður opin virka daga frá kl. 15.00 til 20.00, en frá kl. 14.00 til 21.00 helgidaga. Sýningin stendur aðeins í rúma viku, lýkur sunnudaginn 7. desem- ber. Á sýningunni eru 32 verk, olíu- málverk, vatnslitamyndir og gvass- myndir málaðar á síðustu þremur árum. Ragnar Lár hélt sína fyrstu sýningu í Ásmundarsal fyrir réttum 30 árum að loknu námi í Handíða- og myndlistarskólanum. Ragnar Lár naut handleiðslu Gunnars heit- ins Gunnarssonar, Iistmálara, um margra ára skeið. Hann sýndi síðast í Reykjavík haustið 1984 í Gallerí Lækjartorg. Kvótakerfið: Neyðarráðstöfun sem á ekki lengur við — segir m.a. í ályktun bœjarstjórnar Isafjarðar um nú- gildandi fiskveiðistefnu. Á fundi bæjarstjórnar ísafjarðar 20. nóvember s.l. var eftirfarandi tillaga að ályktun bæjarstjórnar ísafjarðar um stjórn fiskveiða ásamt greinargerð samþykkt: „Bæjarstjórn ísafjarðar lýsir al- gjörri andstöðu við fram komnar hugmyndir um framlengingu gild- andi laga um stjórn fiskveiða til árs- ins 1990. Bæjarstjórnin tekur undir álykt- un 45. fjórðungsþings Fiskideild- anna á Vestfjörðum, sem haldið var á ísafirði 19. okt. 1985, um fisk- veiðistefnu til 5 ára“ í greinargerð með ályktuninni segir: „Núverandi kvótakerfi var sett á sem neyðarráðstöfun, þegar þorsk- stofninn var í lægð og nauðsynlegt var talið að takmarka ársaflann af þorski við 200 þús. lestir. Þar sem leyfilegur hámarksafli er nú mun hærri, eða um 350 þús. lest- ir, og fer að líkindum hækkandi, er ljóst að neyðarráðstafanir eiga ekki lengur við. Fiskveiðistefna sem mörkuð er til langs tíma þarf að gegna þríþættu hlutverki: 1. að tryggja æskilega sókn í ein- staka fiskistofna, 2. að tryggja atvinnuöryggi fisk- vinnslufólks og sjómanna, 3. að tryggja jafnt framboð á helstu fiskmörkuðum okkar. Algjör uppstokkun á núverandi kvótakerfi er forsenda þess að hægt sé að ná þessum markmiðum. Þorskveiðar eru og verða undir- staða byggðar á Vestfjörðum. Und- anfarin ár hefur hlutdeild Vestfirð- inga í þorskafla landsmanna lækk- að úr 15,3% árið 1980 niður í 13,7% árið 1985. Þessi þróun kemur ekki síst fram á ísafirði, þar sem hlut- deild í þorskafla hefur verið frá 3,5% og upp í rúm 4% en var á ár- inu 1985 komin niður í 2,8% af heildar þorskafla landsmanna. Vestfirðir hafa sérstöðu meðal kjördæma landsins. Á Vestfjörðum eru engar aðrar auðlindir en fiski- miðin undan ströndinni. Aðrir landshlutar hafa blómleg landbún- aðarhéruð, heitt vatn úr iðrum jarð- ar og virkjanlegt vatnsafl. Slíku er ekki til að dreifa á Vestfjörðum. Vestfirðingar hljóta að gera þá kröfu til Alþingis að það taki sér- stakt tillit til sérstöðu fjórðungsins við ákvörðun á stjórnunar aðferð- um fiskveiða!1 Bifreiðastjórafélagið Sleipnir: r Oánægja Bifreiðastjórafélagið Sleipnir, hélt aðalfund sinn á Hótel Esju fimmtudaginn 30. október 1986. Fundarsókn var góð. Fundarmenn lýstu yfir óánægju sinni á úrskurði gerðadóms sem kom seint og síðarmeir við síðustu kjarasamninga. Fannst þeim ekki vera lagt mat á störf þeirra bifreiða- stjóra er annast fólksflutninga við ýmsar aðstæður. Ákváðu þeir að beita sér af alefli við að ná fram betri kjörum við gerð komandi kjarasamninga.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.