Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 9
Laugardagur 29. nóvember 1986 9 Til sölu Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og fl. vegna Véla- miöstöðvar Reykjavíkurborgar. 1. Sorpbifreið M-Bens/kuka árg. 1974. 2. HINO vörubifreið með 6 manna húsi árg. 1980. 3. HINO vörubifreið með 6 manna húsi árg. 1980. 4. M-Bens vörubifreið með 6 manna húsi árg. 1974. 5. M-Bens vörubifreið með 6 manna húsi árg. 1974. 6. Citroen mannflutningabifreið (áður við flutninga fjölfatlaðra) árg. 1980. 7. Chevrolet Van sendibifreið árg. 1979. 8. Chevrolet Van sendibifreið árg. 1979. 9. Volkswagen sendibifreið árg. 1978. 10. Volkswagen pallbíll (DC) árg. 1981. 11. M-Bens sendibifreið D-609 árg. 1974. 12. M-Bens vörubifreið án palls 6 tonna árg. 1974. 13. Valtari AVELING BARFORD 8 tonna. 14. Vörubllspallur 5 tonna. 15. Steinsög ABG. 16. Kantsteypuvél. 17. Steinolíuhitarar 2 stk. 5000 BTU. 18. 4 stk. Dfselvélar í blla. Framantalið verður til sýnis I porti Vélamiðstöðvar Skúlatúni 1, dagana 1—4 des. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Frfkirkjuvegi 3, Reykjavík fimmtudag- inn 4. des. kl. 14. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Friklrkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik Útboð — Dagvistarstofnun Hafnarfjarðarbær óskar tilboða í byggingu dagvistar- stofnunar við Staöarhvamm. í framkvæmdinni felst fullbúið hús ásamt lóðarframkvæmdum. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings Strand- götu 6 gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 16. des. kl. 11. Árbók Suðurnesja Jólahappdrætti S.Á.Á.: Aðeins dregið úr seldum miðum Nú um nokkurt skeið hafa likn- arfélög á íslandi treyst einna mest á happdrætti til fjáröflunar. Velvild almennings hefur verið aflgjafi þeirrar starfsemi, sem hvert félag hefur haft með höndum. Hefur þá verið farið að regium, sem dóms- málaráðuneytið hefur sett. Megin- reglan er sú, að heildarverðmæti vinninga skuli nema sjötta hluta verðmætis útgefinna miða. Þegar upp er staðið hefur selst ákveðinn hluti miða og vinningar þar af leið- andi dregist út í svipuðu eða sama hlutfalli. Til dæmis ef selst hefur fjórðungur miða, þá dregst út um fjórðungur vinninga. SÁÁ vill nú í jólahappdrætti sinu koma til móts við fram komin sjón- armið og langar um leið að eyða tortryggni, sem uppi hefur verið. SÁÁ fór þess á leit við dóms- málaráðuneytið, að það heimilaði að dregið yrði úr seldum miðum eingöngu. Var það leyft að nýjum skilyrðum uppfylltum. SÁÁ dregur því eingöngu úr seld- um miðum í jólahappdrætti 1986. Vinningar eru þó engu að siður glæsilegir sem fyrr: 1 Daihatsu Rocky jeppabifreið að verðm. 567.700 kr. 3 Daihatsu Charade fólksbifreið- ar að verðm. 322.200 kr. pr. stk. 10 Daihatsu Cuore fólksbifreiðar að verðm. 269.600 kr. pr. stk. 8 JVC videotökuvélar GR 7C að verðm. 125.900 kr. pr. stk. 75 JVC tvöf. kassettuútvarpstæki að verðm. 11.750 kr. pr. stk. 75 BMX luxus reiðhjól að verðm. 9.900 kr. pr. stk. Heildarverðmæti vinninga er því 6.861.250r krónur. Þar sem eingöngu er dregið úr seldum miðum má sjá að samtökin taka hér vissulega mikla áhættu. Árbók Suðurnesja 1984—85 er komin út. Ritstjórar árbókarinnar eru Jón Böðvarsson og Ragnar Karlsson og útgefandi Sögufélag Suðurnesja. Þetta er þriðja ritið sem Sögufélagið gefur út. í inngangi, segir Jón Böðvarsson m.a., að greinar í ritinu geti talist, efniviður í óskráða sögu Suður- nesja. — Eftirtalið efni er í ritinu. Grein Jóns Böðvarssonar um rúna- steina á Suðurnesjum, grein Ólafs Ásgeirssonar um jarðeigendur á Suðurnesjum á miðöldum. Ólafur skrifar einnig um máldaga Staðar- kirkju í Grindavík. Ragnar Karls- son ritar um „Skammtal og ævi- skuggsjá“ Guðna sýslumanns Sig- urðssonar. Eyþór Þórðarsonar um stórnsýslu á Suðurnesjum. Kristinn Árnason segir frá upphafi vélbáta- útgerðar í Garði og Páll Vilhjálms- son skrifar um „Her og þjóð“. hnetur súkkat rúsínur sítrónubörkur kirsuber rauð og græn og ekta romm aðeins 400 hnetur marsipan súkkulaði og ekta romm aðeins 300 Jólasmákökur 5 tegundir 100 stk. aðeins 390

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.