Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 10
10 Laugardagur 29. nóvember 1986 Árni Gunnarsson á aðalfundi Landverndar: íslendingar eru að tapa í baráttunni gegn gróðureyðingu Um 1000 hektarar á hverju ári — Landgrceðslan hefur ekki undan miðað við óbreytt fjárframlög. Á aðalfundi Landverndar, sem haldinn var um síðustu helgi, flutti Árni Gunnarsson framsögu fyrir hönd Alþýðuflokksins um efnið: „Stjórnmálaflokkarnir og umhverfismál“. Fulltrúar allra flokka gerðu grein fyrir afstöðu flokkanna og urðu miklar umræð- ur um málin. Erindi Árna Gunnarssonar fer hér á eftir: Áður en ég kem að hinu eiginlega umræðuefni, sem mér hefur verið falið að gera hér nokkur skil, þ.e. stefnu Alþýðuflokksins í umhverf- ismálum, get ég ekki stillt mig um að segja ykkur dulitla sögu. Sem drengur var ég sjö sumur í sveit í Næfurholti á Rangárvöllum, sem nær stendur Heklu en nokkurt byggt ból á landinu. Næsti bær við Næfurholt heitir Hólar, og norður og vestur af þeim bæ, voru birki- skógartorfur. Ein var öðrum feg- urri og hét Stóru-Flatir. Þarna voru einnig rofabörð, sem enn má sjá leifar af. Síðan ég kom þarna fyrst eru liðin 39 ár. Eftir að sumarvist minni lauk, hefi ég komið þarna nokkrum sinnum á hverju sumri. Nú er ekkert eftir af skógartorfun- um; aðeins standa nokkrar svartar kræklur, Stóru-Flatir eru ekki leng- ur stórar. Sauðfé og vindar hafa tekið sinn toll. Svipaða gróðureyð- ingu má sjá víðar í Rangárvalla- hreppi, þótt tekist hafi að stöðva hana á stórum svæðum. — En í huga mínum eru birkihríslurnar við Háu-Flatir og örlög þeirra spegil- mynd þeirrar ógnar, sem steðjar að íslenskri náttúru og gróðurfari. — Og sannleikurinn er sá, að þrátt fyr- ir margvíslegar tilraunir, sem nú eru gerðar til að stöðva eyðingu lands, þá erum við að tapa orrustunni. Þjóðargjöfin margfræga, sem hafði þann megintilgang að skila landinu aftur til þjóðarinnar, eins og það var við landnámsöld, er lítið annað en orðin tóm. 1000 hektarar Það er ekki fjarri lagi, að á hverju ári glötum við íslendingar um það bil 3500 hekturum gróins lands. Miðað við fjárframlög síðustu ára til landgræðslu, vinnast aftur um 2.500 hektarar. Það eru því um 1000 hektarar, sem tapast á hverju ári. Á síðustu árum, eða allt frá árinu 1977 hafa framlög hins opinbera til landgræðslu farið stöðugt minnk- andi. Þau náðu hámarki 1977, en hafa stórminnkað síðan. í opinberri nefnd um land- græðsluáætlun, sem ég hefi átt sæti í nokkur undanfarin ár, hafa verið lagðir fram lauslegir útreikningar um það, að á föstu verðlagi, miðað við júní-mánuð sl. hafi raunfram- lög til landgræðslu numið rösklega 100 milljónum króna árið 1977. Sambærilegar tölur fyrir næsta ár, 1987, eru rösklega 25 milljónir króna. Miðað við sama útreikning fóru framlögin niður í 17,1 milljón árið 1981 og hafa ekki farið upp fyr- ir 26 milljónir síðan. Að vísu eru skiptar skoðanir um það í nefnd- inni hvaða vísitölu á að nota við Árni Gunnarsson þennan útreikning, en í megindrátt- um tel ég hann réttan. Framlög Iækka Það mun láta nærri að árið 1985 hafi framlög til almennrar land- græðslu lækkað um 29% miðað við 1984. Enn lækkuðu framlögin um 26 af hundraði árið 1986 frá árinu á undan og í því fjárlagafrumvarpi, sem nú liggur fyrir Alþingi er gert ráð fyrir einni milljón króna lægri fjárhæð en 1983. — Landgræðsla ríkisins hefur nú í sinni umsjá 70 landgræðslugirðingar, sem eru samtals 850 kílómetrar að lengd og um 176 þúsund hektarar að stærð. Til nauðsynlegra framkvæmda á þessum svæðum eru ætlaðar 25 milljónir króna á næsta ári. Þessir fjármunir fara til viðhalds girðinga og sáningar en aðeins verður unnt að bera á um 2% af flatarmáli allra girðinganna. Aðeins tvö af þessum 70 landgræðslusvæðum eru í þeirri landgræðslu- og landverndaráætl- un, sem nú er unnið að fyrir árin 1987 til 1991. Landgræðslan mikilvægust Þessar tölur nefni ég aðeins til að það komi skýrt fram hve mikill vandinn er. En við getum líka haft á bak við eyrað, að talið er að við landnám hafi um 60 þúsund fer- kílómetrar af okkar 104 þúsund ferkílómetra landi, verið gróið. Nú eru 23 þúsund ferkílómetrar eftir af grónu landi. Ég geri mér fulla grein fyrir því, að það er fleira landvernd en land- græðsla. En á meðan við höfum ekki undan að stöðva landeyðing- una, hlýtur hin eiginlega land- giæðsla að vega þyngst. Það hlýtur öllum að vera ljóst, að ef ekki á að stefna í hreinan voða, verður að stuðla að þjóðarvakningu á þessu sviði. Ég nefndi áðan skógartorfu efst í Rangárvallahreppi. Örlög hennar minntu mig óhugnanlega mikið á gífurlega stór landsvæði í norðan- verðri Eþíópíu, sem ég fór um á síð- asta ári. Þar höfðu þurrkar og lát- laus ágangur búfénaðar breytt sam- felldri gróðurvin í svarta eyðimörk. — En nóg um það! Hvað vill Al- þýðuflokkurinn gera? Þjóðareign Alþýðuflokkurinn hefur ekki, fremur en aðrir flokkar, neinar ein- faldar lausnir á þessum þætti vand- ans. Hins vegar hefur landverndar- þátturinn, af augljósum ástæðum, ávallt verið nátengdur tillögum flokksins um þjóðareign á landi. Því verður ekkert leynt að oft hafa landeigendur, sem m.a. eiga hagsmuna að gæta á afréttum og víðar, snúist öndverðið gegn til- lögum, sem fram hafa komið um aðgerðir til að draga úr gróðureyð- ingu. Má þar m.a. nefna hugmyndir um búskaparhætti í samræmi við landshætti, ítölu, takmörkun hrossabeitar og fleira. — í þessum orðum mínum felst ekki ásökun, heldur vil ég benda á, að menn hafa mismunandi hugmyndir um það hvað gróðureyðingu veldur og um einstaka þætti hennar. Alþýðuflokkurinn vill binda þjóðareign Iandsins í stjórnar- skránni. Hann vill að íslenska þjóð- in öll, einn fyrir alla og allir fyrir einn, eigi ísland allt, gögn þess og gæði og að Alþingi fari með um- ráðarétt yfir þessari eign. — Það gefur auga leið, að ef þjóðareign á landi væri orðin að veruleika, yrði tilfinning einstaklinganna fyrir landi sínu og þróun gróðurfars mun ríkari en nú er. í stefnuskrá Alþýðuflokksins segir orðrétt: „Eins og þjóðin á sameiginlegan rétt til lands síns og gæða þess, svo ber henni sameigin- lega skylda til að varðveita fjöl- breytta náttúru landsins, auka gróðurríki þess og halda mengun innan þeirra marka, sem loft, land, vatn og haf þola til frambúðar!1 Velferðarmál gróðurríkisins í stjórnmálaályktun síðasta flokksþings Alþýðuflokksins segir „Fertugasta og þriðja flokksþing Um þessar mundir er staddur hér á landi fyrsti sendiráðsritari í sendi- ráði Nicaragua í Stokkhólmi, Uriel Perez. Hingað kemur hann til að greina frá gangi og stöðu mála í Nicaragua. Hann mun einnig ræða við ýmsa einstaklinga, sem láta sig varða málefni þjóðar hans. 1 dag, laugardag, klukkan 14 seg- Alþýðuflokksins hvetur íslensku þjóðina til að vernda og varðveita þau ómetanlegu auðæfi er felast í óspilltri náttúru. Vaxandi mengun lofts, láðs og lagar ógnar nú mann- kyni. íslendigum ber að taka virkari þátt í baráttunni fyrir aukinni nátt- úruvernd og berjast gegn mengun og landeyðingu!* Á þessu flokks- þingi var samþykkt að kjósa fimm manna nefnd til að fjalla um um- hverfismál og er henni ætlað að skila fyrir næsta flokksþing ítarleg- um drögum að nýrri stefnu flokks- ins í umhverfismálum. En þótt orð séu til alls fyrst, þarf meira að koma til. Alþýðuflokkur- inn, eins og aðrir stjórnmálaflokk- ar verða að gera sér betur grein fyrir þeirri ábyrgð, sem á honum hvílir, ef það er ætlun okkar kynslóðar að gefa ekki eftir í baráttunni við gróð- ureyðinguna og skila landinu til næstu kynslóðar ögn gróðurríkara en það nú er, a.m.k. ekki lakara. — Hér er ekki á ferðinni neitt flokks pólitískt mál, heldur velferðarmál gróðurríkis íslands og lífsspursmál þjóðarinnar í heild. — Það er ein- læg von mín að við vöknum af þeim Þyrnirósarsvefni, sem á okkur féll eftir þjóðargjöfina, þegar flestir héldu að nú væri allt klappað og klárt og ástæðulaust að hafa frekari áhyggjur. — En að glata 1000 hekt- urum gróðurlands á hverju ári er ekki í anda þjóðargjafar. Þess vegna er rétt að fara að vakna og vekja aðra um leið. ir hann frá ástandinu í Nicaragua á fundi á Hótel Borg. Þar greinir hann frá skemmdarverkum Contra-skæruliða og fjárstuðningi Bandaríkjastjórnar við þá. Fyrir- spurnum verður svarað og frásögn Uriels verður þýdd á íslensku. í byrjun fundar mun Torfi Hjart- arson sýna og útskýra nokkrar lit- skyggnur frá Nicaragua. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Starfsfólk óskast I heimilishjálp. Heilsdags- og hluta- störf. Hentugt fyrir húsmæður og skólafólk, sem hafa tlma aflögu. Vinsamlegast hafið samband við heimilisþjónustu Fé- lagsmálastofnunar, Tjarnargötu 11, slmi 18800. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja- vlkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Verkfræðingur Laust er starf forstööumanns hönnunardeildar við embætti bæjarverkfræðings I Hafnarfirði. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf skulu berast bæjarskrifstofunum I Hafnarfirði eigi síðar en 4. des. n.k. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir afi og langafi. Halldór Símonarson Barónstíg 78. verður jarðsunginn frá Frlkirkjunni I Reykjavlk þriðju- daginn 2. des. kl. 13.30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuö. Óla Guðrún Magnúsdóttir Margrét Halldórsdóttir Axel Jónsson Bergljót Halldórsdóttir Leifur ísleifsson Asdís Halldórsdóttir Kristján Eyjólfsson barnabörn og barnabarnabörn. Símaskráin 1987 Tilkynning til símnotenda Breytingar I símaskrá 1987 þurfa að berast fyrir 15. desember n.k. Breytingar á heimilisfangi frá seinustu símaskrá þarf ekki að tilkynna sérstaklega. Ritstjóri símaskrár. LAUSAR STÖÐUR HJÁ :l REYKJAVÍKURBORG Staða umsjónarfóstru við dagvistunarheimili Reykja- vlkurborgar, framhaldsmenntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 15 desember. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Dagvista, I slma 27277. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja- vfkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöðum er þar fást. Æíf Ræðir um Nicaragua á fundi á Hótel Borg

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.