Tíminn - 09.08.1967, Blaðsíða 14
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 9. ágúst 1967
Í4
SÆTANfTING JÚKST i IDNÖ
1
I
Aðalfundur Leikfélags Reykja-
víkur var haldinn fyrir skömmu.
í yfirlitsskýrslu leikliússtjóra
kom í Ijós, að aðsókn að leikhús-
inu hefur verið svipuð í vetur og
undanfarna vetur. Leikhúsgestir
í vetur voru 41.505, en voru. í
Samband ungra Framsókn
armanna efnjr til 16 daga
utanlandsferðar til Mallorca
í haust. Farið verður frá
Reykjavfk 12. október og
flogið tfl Maflorca, þar sem
dvalizt verður á fyrsta
flokks hóteli í 15 daga. Á
hcimleiðinni verður höfð
eins dags viðdvöl í London.
Fargjaldið í þessari 16 daga
ferð er frá 9800 kr. á mann,
og er þá innifalin farar-
stjóm, allar ferðir til og frá,
gisting og fullt fæði í Mall-
orca og gisting og morgun-
verður í London. Öllum er
heimil þátttáka i ferðinni,
en upplýsingar er hægt að
fá á skrifstofu Framsóknar-
flokksins, 'rjarnargötu 26,
sími 1-60-66 og 2-44-80.
fyrra 40.936. Sýningar voru 215,
voru líka 215 í fyrra, að ótöldum
4 sýnjngum á Akureyri. Á und-
inum var Steindór Iljörleifsson
endurkjörinn formaður til næstu
trveggja ára.
Sveinn Einiarsson leiklhússtjóri
sagði í ræðu sinni, að rekstur
hefði verið með iíku sniði og und
anfarin ár. Sýnd voru á árinu 7
leikrit, en tvö verkefnanna voru
tekin aftur til sýninga frá fyrra
leilk-áiri, Dúf-naveizla-n og Þjófar,
Mk og falar konur, sem reyndar
var sýnt þr-iðja árið í röð. Þrjú
af þesisum sjö leikritum voru eft-
ir íslenzk-a hofuuda. Ei-tt þeirra,
Fjalla-E-yvindur ef-tir Jólhann
Sigurjónssion, var sýnt á 70 ára
a-fmæli félagsins 11. j-anúar og
var sýnt 54 sinnum fyrir fullu
húsi til loka lei-kársins, 20. maí.
í ij-ós kom, að sjónvarp dró iminna
úr aðs-ókn en við hafði verið búizt,
sætanýting var í vetur um 83%
en var tæp 81% í fyrra.
Á FLOT
Framhais af bls. 1.
vale á flot, en þá tókst aðeins
að fá einn 100 lesta þát til þess
að kippa í togarann á háflóði, og
hreyfðist hann lítið til á strand
staðnum. Var þá ákveðið að gera
aðra björgunartilraun síðar, þeg
ar ástæður leyfðu. Var varðskipið
Al-bert fengið til þess að gera
þessa björgunartilraun o-g fór hún
fram í kvöld. Náðist togarinn á
flot kl. rúm-lega níu í kvöld og
síðan dró Hugrún frá Bolungar-
vík hann inn til ísafjarðar þar
sem hann liggur nú við bryggju.
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartans þakkir flyt ég þeim fjölmörgu konum og körlum,
sem á nýafstöðnu sjötugs afmæii mínu sóttu mig heim,
færðu mér gjafir, sendu mér kveðjur eða sýndu mér vin-
semd og sæmd á annan hátt.
ÖJlum þeim bið ég um leið biessunar æðri valda.
Jón Skagan.
^fSNPKSHi
Eiginmaður minn, Einar Ástráðsson læknlr, lézt í Landsspítalanum 6. ágúst s. 1. Guðrún Guðmundsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eigin- manns míns, Eiríks Vigfússonar frá Sjávarborg. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Þóranna Einarsdóftir,
Þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför, Jóns B. SigurSssonar, Broddadalsá. Læknum og hfúkrunarliði þökkum við kæfleiksríka ummönnun. Guð blessl ykkur öll. , Aðstandendur.
Við þökkum Innilega auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar, Olgu Þórarinsdóttur Bjöm Dúason, Páll Kristjánsson, Kristbjörg og Guðný Pálsdætur, Ásdís Aðalsteinsdóttir, fósturdóttlr, stjúpbörn og vandafólk.
Æfingar stand-a nú yfir á frœg
um gamanleik, sem ne-fnist Indí-
ana leiku-r ef-tir Frakkann René
d-e Obaldia. Leiikstjóri er Jón
Sigurbjörnsson, en aðalihlut-verikið
leifcur Brynjólfur Jóhannesson.
Stjómin var endurkjörin, nema
Guðm-u-ndur Pá-lsson, sem haðsf
und-an endurkjöri í stanf með-
stjórnanda. H-ana ski-pa nú .ytein-
dór Hjörlei-fsson formaður, Stein-
þór Sig-urðsson, ritari og Pétur
Einarsson meðstjórnandi. Vara-
formaður er Regína Þórðardóttir.
Verkefnaskrá vetrarins var
sem hér segir:
1. Þjófar lík og falar konur
efirt Dario Fo. Leikstjóri: Ohrist
ian Lund. Tekið upp frá fyrra
leikári, 46 sýningar, samtals 100
sýn.
2. Tveggja þjónn eftir Goldoni.
Leikstjóri Ohristian Lund. 19 sýn.
3. Dúfnaveislan eftir Halldór
Laxness. Lekistjóri: Helgi Skú'la-
son. Tekin upp frá fyrra leikári.
42 sýningar, smatals 64 sýningar.
4. Kubbur og Stu-bfbur, barna-
leikrit eftir Þóri S. Guðbergsson.
Leikstjóri Bjarni Steingrímsson.
37 sýningar.
5. Fjalla-Eyvindur eftir Jóhann
Sigurjónsson. Leikstjóri: Gísli
Halldórsson. 54 sýningar.
6. Tangó eftir Slawomir Mrozek.
Leikstjóri: Sveinn Einarsson. 22
sýningar.
7. Má-lssóknin eftir Barrault og
Gide eftir sögu Kafka. Leikstjóri:
Helgi Skúlason. 5 sýningar.
Styrkur til
náms í Sovét-
ríkjunum
Sovézk stjórnvöld bjóða fram
styrk handa íslendingi til háskóla
náms í Sovétríkjunum námsárið
1967—68. Nemur styrkurinn 90
rúblum á mánuði til styrkþega,
sem ekki hefúh lokið háskólaprófi
en 150 rúbium á mánuði, ef um
er að ræða framha-ldsnám að
loknu háskólaprófi. Auk þess
mun styrkþegi fá ókeypis hús-
næði á stúdentagarði.
Umsóknum um styrk þennan
skal komið til menntamálaráðu-
neytisins, Stjórnarráðshúsinu við
Lækjartorg, fyrir 25. ágúst n. k.,
og fylgi staðfest afrit prófskír-
teina ásamt meðmælum. Umsókn
areyðublöð fást í menntamála-
ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
8. ágúst 1967.
LIÐIÐ í KVÖLD
Fram-hald af bls. 13.
heiður Blöndal, Val, Geirrún
Theódórsd., Fra-m, Díana Ósk-
arsd., Árm., Herdís Björnsd.,
Breiðablik, Hansína Melsted,
KR og Elín Guðm., Vík. .4
undan leiknum í kvöld í
Laugardalshöllinni, leika
Rvík og Hafnarfj. í karlaflokki
og hefst sá leikur kl. 20.15.
RVÍK—HAFNARFJ.
Fram-hald af bls. 13.
lagi Rvíkurliðið. Miðað við,
hve margar „stjörnur" vantaði
í lið Rvíkur, var sigur Hafnar
fjarðar lítil-l. Liðin mætast aft
ur í kvöld. Mörk Hafnarfj.:
Geir 7, Viðar 6, Stefáu 4. Jón
2, Birgir og Páll 1 h-vor. Mörk
Rvíkur: Hermatin 5 Gyifi 4,
Stefán, Einar og Jón Á. 3
hver og Hilmar 1.
FRÉTTABRÉF FRÁ
HALLORMSSTAÐ
ÓII-Hallonnisstað, 31. j-úlí.
Tlíð hefur verið frem.ur köld
hér, það sem af er heyska-par-
tímanum. Þó fengum við fimm
yndislega daga uim miðjan júl-í,
en þá fór hitinn oftast y-fir 20
gráður í skuig-ganum. Síðan hef-
ur austnorðaustan áttin verið ríikj
andi, oift súld og rigning með, en
aðfiararnótt s. 1. föstudags 28. júlí
va-rð kuldiinn svo mikill, að snjó-
aði í fjöll a-ltveg niður í miðjar
hlíðar á Út-Völlum. Fjarðarheiði
og Möðr-udalSöræifi urðu þungíær-
ar mi-nn-i bílum. Minnti þetta ei-gi
allilítið á veður það hið mi-kia og
vonda, sem svo skyndilega brast
á um svipað leyti fyrir ári, en þá
skemmdust, eins og k-unnug-t er,
hús, hey fauk og kartöflugarðar
eyðiTögðust.
Sltátt-ur hófst hér almennt 2-—3
vikum seihna en ven.julega, eða
ekki að ráði fyrr en í hlýinda-
dögunu-m. Segja má, að han« hafi
gengið sæmilega, þrátt fyrir stirt
tíðarfar. Tún enu yifirleitt ekki
kalin hér efna og sæmilega sprott
in, en eilthvað mun bera á kali
á Út-Oéraði, og allur grasvöxtuir
er þar m.i-klum mun seinni- Tæp-
1-eg-a verður um há-anslátt að ræða,
nema ef til vill þar sem fyrst var
slegið, en þnátt fyrir það er hægt
að láta sér detta í hug, að hey-
fenguir verði nolrkuð góður, ef
seinni hluti sumarsins verður
e'kki þeirn mún v-erri.
Ferðamannastraumuirinn hefur
verið mikill hingað upp í Hall-
ormsstað síðustu vik-u-rna-r, enda
má víst segja, að „nú hni-gi vötn
öll til skógarins“ fyri-r þá, sem á
annað borð hætta sér austur yfir
öræfin til Aiusturlands. Aðstaða
ti'l gistingar og móttöku á ferða-
fólki hefur mjög ba-tnað hér með
tilkomu nýja bamaskólans, sem
n-otaður hefur verið til gistingar
í viðbót við húsmæðrasfcólann,
en-da hefur aðsóikn a-lltaf verið
mikil. Hingað hafa m. a. komið
tveir hópar barna á skólaferða-
la-gi og leigt svefnpoka-pláss.
Margir kjósa þó heldur að
tjalda í At-lavik, sem virðast hafa
mikið aðdráttara-fl, en þar he-fur
getið að líta tjöld í ýmsu-m stærð
um og liitum skreyta flatirnar.
Reynt er að halda Víkinni hreinni
og snyrtilegri, eftir því sem föng
eru á, og verður að segjast, að
umgengni ferðaifólks hefur yfir-
leitt verið mjög góð. Er ekki vafi
á, að mjög m-á bæta umgen-gnis-
menni-ngu alla á útihátíðarsvæð-
um, ef Skynsamlega er að unnið,
t. d. með úiti-lofciun ölvunar og að
nægilega sé séð fyrir hentugum
sorpálátum. Má í því sambandi
minna á, að síðan tekið v-ar upp
áfengisban-n á sam-komum í Atla-
VALSSTÚLKUR
Framhald at bls. 13.
er ekki óeðlilegt, þegar tillit
er tekið til þess, að danskur
kvennahandknattleikur rís
hátt um þessar mundir og
danskt kvenfólk í fremstu röð.
Af dönsku stúlkunum vöktu
mesta athygli Anetta Dahl í
markinu, Birte Hansen (6),
Ditte Poulsen (2) og Anna
Ohristiansen. Hjá Val voru
Sigrún G. og Sigríður Sig.
beztar, en í heild átti liðið slak
an dag og allt of lítil hreyfing
á því.
vík, hetf-ur vinna við hreinsun
samkomusvæðisin-s minnkað mjög
og orðið öll önnu-r og aðgengi-
legri, svo ekki sé meira sagt.
Flestir leggja lei-ð sína í Mörk-
in.a, þar sem uppeldi trj-áplantn-
an-na fer fram, og svo auðvitað
í Guttormslundinn, eina barr-
skóginn á íslandi, og flestir fara
héðan vonandi með góðar og Ijúf
ar endurminningar.
Framkvæmdir við barnaskólann
sem eins og k-unnugt er er ekki
lokið, hafa legið niðri um sinn,
en m-unu hefjast á nýj-an leik í
n-æsta mán'uði. Er rá-ðgert að
Ijúka byg-gingunni fyrir haustið,
og er n-úna verið að v-inna í lóð-
in-ni umhverfis, en Skógræktin
sér um það verk. Auk barnaskól-
ans er hér nærri fullkláruð for-
stöðukonuiibúð fyrir húsmæðra-
skólann, og á hún eihnig að v-erða
tilbúin fyrir veturin-n. Brúnás hf.
á Egil&stöðum sér um báðar fram
kvæm-dí-rnar.
Nokkrir umiferðarlei-kiflokkar
hafa sýnt í Valaskj-álf í sumar.
T. d. sýndi Þjóðleikhúsið Prjóna-
stofuna Sólina og Gríma sýndi
Ótta og eymd Þráðjia ríkisins, eft-
ir Bertolt Brecht.
Dagana 10.—11. júní s. 1. g-ekkst
Prestaféiag A-usturlands fyrir
fermingarbarnamóti á Eiðum,
[þar sem mættu nálega ei-tt hundr
að börn víðs vegar að af Austur-
landi. Mótið var sett í Eiðakdrkju'
kl. 2 á laug-ardag af séra Heimi
Steinssyni á Seyðisfirði, sem
jafnframt stjórnaði mótinu af hin
uim mesta skörungsskaip. Mótstím
anum var skipt mill-i gamans og
al-vöru, og á laugard-agskvöldið
önnuðust börnin sjáif kvöldvöfcu,
þar sem flutt var efni úr ö-llum
prestaköllum, sem þarna áttu M1
trúa. Á sunnudag var messað í
Eiðafcirkjiu og miótssli-t kl. 3 e. h.
Mótdð t-ókst vel og var öllum, sem
að því stóðu, til hins mesta sóma.
STYRKIR TIL
KYNNISFERÐA
Frétt frá dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu um styrki Evrópu-
ráðsins á sviði læknisfræði og
heilbrigðisþjdnustu fyrir árið
1968.
Evrópuráðið veitir á árinu 1968
styrki tiil náms og kynnisferða fyr
ir lækna og starfsfólk í heilbrigð
isþjónustu.
Tilgangur styrkjanna er, að
styrkþegar kynni sér nýja tækni
í starfsgrein sinni í löndum innan
ráðsins.
Styrkurinn er veittur hverjum
einstaklnigi í 1 til 12 mánuði og
er að upphæð franskir frankar
850 til 1000 á mánuði, auk ferðs
kostn-aðar.
Styrkjatímabilið hefst 1. apríl
1968 og lýkur 31. marz 1969
Umsóknareyðublöð ásamt upp
lýsingum fást í skrifstofu land
læknis o-g í dóms- og kirkju
málaráðuneytinu.
Umsóknir skulu sendar dóms
og kirkjumálaráðuneytinu fyrir
1. október n. k.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
8. ágúst 1967.