Alþýðublaðið - 14.11.1987, Side 23
Laugardagur 14. nóvember 1987
23
SMÁFRÉTTIR
Doktorsvörn
Þórir Dan Björnsson ver
doktorsritgerð sína, sem
læknadeild Háskóla íslands
hefur áður metið hæfa til
doktorsprófs, laugardaginn
14. nóvember. Heiti ritgerðar-
innar er Clinical Pharmaco-
logy of Heparin: Studies on
its Pharmacokinetics and
Pharmacodynamics.
Andmælendur af hálfu
læknadeildar verða Magnús
Jóhannsson prófessor og
Sigmundur Magnússon
dósent. Deildarforseti lækna-
deildar, prófessor Ásmundur
Brekkan, stjórnar athöfninni.
Doktorsvörnin fer fram í
Odda, stofu 101, og hefst kl.
14.00. Öllum er heimill að-
gangur.
Barnabóka-
kynning
Borgarbókasafn Reykjavík-
ur gengst I samvinnu við
bókaútgáfuna Vöku-Helgafell
fyrir kynningu á barnabókum
laugardag. Kynningin
verður í Bústaðasatni
kl. 13.30 og ( Borgarbókasafn-
inu í Gerðubergi kl. 15.30.
Rithöfundarnir Guðmundur
Ólafsson og Kristín Sveins-
dóttir munu lesa úr nýút-
komnum bókum sínum.
Kristfn úr bókinni „Fransk-
brauð með sultu“ og Guð-
mundur úr bókinni „Klukku-
þjófurinn klóki.“ Þau hafa
bæöi hlotið verðlaun úr Verð-
launasjóð (slenskra barna-
bóka, sem stofnaður var 1985
í tilefni af 70 ára afmæli
Ármanns Kr. Einarssonar.
Hlutavelta og flóamarkaður
verður í Hljómskálanum í dag
14. nóv. kl. 14.
Lúðrasveitakonur
Tíunda konan
vígð til prests
á íslandi
Yrsa Þórðardóttir, guðfræð-
ingur verður vígð til prests-
þjónustu af settum biskupi
Islands, séra Sigurði Guð-
mundssyni, á morgun sunnu-
dag 15. nóvember. Athöfnin
verður ( Dómkirkjunni í
Reykjavlk og hefst kl. 11.00.
Yrsa hefur verið kjörinn prest-
ur I Hálsprestakalli I Þingeyj-
arprófastsdæmi.
Vlgsluvottar eru allar vígð-
ar konur og er það (fyrsta
skipti hérlendis að svo sé.
Móöir vígsluþega, séra Auður
Eir Vilhjálmsdóttir, lýsir
vlgslu en aðrir vlgsluvottar
eru systir Yrsu, séra Dalla
Þórðardóttir á Miklabæ, for-
veri Yrsu á Hálsi séra Hanna
María Pétursdóttir í Skálholti
og séra Miyako Þórðardóttir
prestur heyrnleysingja. Altar-
isþjónustu auk biskups ann-
ast séra Hjalti Guðmunds-
son. Guðni Þ. Guðmundsson
og Dómkórinn leiða kirkju-
söng.
Auður Eir var fyrsta ís-
lenska konan sem var vígð til
prests, árið 1974. Næst í röð-
inni var dóttir hennar séra
Dalla Þórðardóttir. Nú er röð-
in komin að annarri dóttur-
inni. Yrsa er tíunda konan
sem tekur prestsvígslu hér-
lendis. Hún er 25 ára gömul,
dóttir Auöar Eir og Þórðar
Arnar Sigurðssonar M.A. Hún
lauk guðfræðiprófi frá Há-
skóla íslands nú f haust og
er eiginmaður hennar Carlos
Ferrer, sem mun væntanlega
Ijúka guðfræðiprófi um
næstu áramót.
Auglýsing
Kjararannsóknanefnd opinberra starfsmanna óskar
eftir að ráða mann til starfa fyrir nefndina.
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun eða
reynslu á sviði hagfræði, viðskiptafræði tölfræði
eða talnavinnslu.
Um getur orðið að ræða ráðningu í hlutastarf eða
fullt starf.
Umsóknum skal skilað til:
Kjararannsóknanefnd opinberra starfsmanna
b/t. fjármálaráðuneytið
Arnarhvoli
Reykjavík
Laus staða
Staða Ijósmyndara, sem hafa skal umsjón með
myndastofu Landsbókasafns, er laus til umsóknar
og verður ráðið I hana frá næstu áramótum.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil skulu hafa borist menntamálaráðuneyt-
inu fyrir 10. desember næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið, 11. nóvember 1987
REYKJHJÍKURBORG
£<iu&vt Stödwi
Heimilisþjónusta
fyrir aldraða
Starfsfólk óskast í heimilishjálp, heilsdagsstörf/
hlutastörf.
Hentugt fyrir húsmæður og skólafólk.
Upplýsingar í síma 18800.
Þaðerdýrt
rafmagnið sem þú dregur að borga
Rafmagn er svo snar þáttur
í lífi okkar að við veitum því
varla athygli. Flest heimilistæki
og vélar á vinnustað ganga
fyrir rafmagni og við erum svo
háð þeim að óbeint göngum
við sjálf fyrir rafmagni.
Þessu ,,sjálfsagða“ raf-
magni er dreift til okkar af
rafmagnsveitu. Rafmagnsveita
Reykjavíkur leggur metnað
sinn í stöðuga og hnökralausa
dreifingu til neytenda. Dreif-
ingarkostnaður greiðist af
orkugjaldi.
*
Ogreiddir reikningar hlaða
á sig háum vaxtakostnaði sem
veldur því að rafmagnið er nær
þriðjungi dýrara hjá þeim
skuldseigustu — þar til þeir
hætta að fá rafmagn.
Láttu rafmagnsreikninginn
hafa forgang!
RAFMAGNSVEIIA
REYKJAVlKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMIÓ86222
ARGUS/SÍA