Tíminn - 26.09.1967, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 26. sei>t. 1967.
3
„ingólfur" eignast
nýian björgunarbát
Nýi björgunarbáturinn reyndur.
(Tímamynd-GE)
OÓ-Reykiavík. mánudag.
Kvennadeild Slysavarnarfé-
lagsins i Reykjavík afhenti í dag
björgunarsveit Ingólfs nýjan
gúmmíbjörf,i>n'>vhát. Veríiur b-ssi
nýi bátur notaður til að aðstoða
fólk sem er í nauðum statt á
sjó i nágrenni Reykjavikur, en
undanfarið hefur mjög færzt í
vöxt að fólk á smábátum lendir
í háska og þarf aðstoðar við.
Gróa Pétursdóttir, formaði r
Kvennadeildarinnar afhenti Árna
Sigurðssyni, gjaldkera Slvsa-
varnarfélags íslands ávísun að
upplhæð. 50 þús. kr. sem er ancl-
virði gúmmíbjörgunarbáts, og
hafði björgunarsveitin áður pant
að bátinn. Árni afhenti síðan
Yfirlýsíng aðalfundar Skólastjórafélags íslands:
Menntastofnanir lands-
ins nær bví óstarfhæfar!
Aðalfundur Skólastjórafélags ís
lands var haldinn í Barnaskóla
Garðahrepps, laúgardaginn 23.
sept. Fundnrinn ræddi skóla- og
menningarmál, og verða tillögur,
sem fyrir fundinum lágu sendar
föagsmönnum og fræðsluyfirvöld
mn til athugunar. Tillögurn-
ar fjölluðu m.a. um 5 daga skóla-
vDoi, ráðningarskrifstofu kennara
námskeið, s kólabókasöfn, sjón-
varpið, orlof kennara, sérmennt-
aða lestrarkennara, þrísetningu í
skólum, drög að samræmingn á
launakjörum skólastjóra, eflingu
fræðslumálaskrifstofunnar, breyt-
ingu á auglýsingum um kenn-
arastöður, fræðslu barna og ungl-
inga í dreifbýlinu og skólabygg-
ingar. Aðalmál fundarins var samt
kennaraskorturinn í landinu, og
var um hann gerð efjirfarandi á-
lyktun:
„Aðalfundur Skólastjórafélags
íslands haldinn í Barnaskóla
Garðahrepps, laugardaginn 23.
sept. 1967, vekur athygli alþjó'ðar
á hinum geigvænlega kennara-
skorti í landinu' og telur, að van-
mat á störfum þeirra, sem vinna
að fræðslu- og uppeldismálum og
lélég launakjör valdi þar mertu
um. Bendir fundurinn ráðambnn-
um þjóðarinnar á, hve mi'kla á-
byrgð beir taka á sig gagnvart
núlifandi og komandi kynslóðum,
með því að lama svo mennta-
stofnanir landsins að við borð
liiggur, að þær séu óstarfihæfar.
Telur fundurinn að þeir fjármun
ir sem sparast kunni í bili, á
þennan hátt, muni fljótlega eyð-
ast í auknum útgjöldum á öðr-
um siviðum m.a. í lélegri alþýðu-
menntun, takmarkaðri æðri
menntun, auknum afbrotum os
aiukinni löggæzlu o.s.frv. Fundur
inn leggur á það höfuðáherzbi, aö
í stað þess að veikja skólastof".
anir landsins sé þjóðinni nauö
synliegt að efla þær oig treysta
sem mest eins og aðrar þjóðir
eru sem óðast að gera.
Fundurinn telur, að nægilega
margir kennarar séu til í lani-
inu fyrir nær öll fræðslustig
Vandamálið sé að aðeins að f '
þetta fólk til starfa í skólum lauds
ins. Leiðir til úr.bóta í þessu al-
varlegasta vandamáli þjóðarmnar
eru m.á. að hækka stórlega laurr'
kennara ó öllum fræðSlustiigum,
skapa samkeppni um kennar?-
stöður, gera aukna kröfur til kenn
aramenntunar, sjá kennurum fyr-
ir .hentugum og ódýrum íbúðum
og bæta aðbúð og starfsskilyi ði
kennara í skóla- og menntastofn
ðnum landsins. Samtímis þessurn
ráðstöfunum þarf að losa skö1-
ana undan þeirri kvöð, að geta
ekki sagt upp starfskröftum, seui
af eimhverjum ástæðum valda ek'ki
hinu þýðingarmikla og vandasama
kennarastarfi.
íslenzka þjóðin veitir, eins og
vera ber miklu fé til fræðslu- og
skólamála, og á mannfundum og
í skálaræðum er sífellt á það
minnt, ^ð góð menntun og traust
sé bezta fjárfestingin, sem <>in
þjóð getur lagt í. En hjvernig nýt-
ast þessir fjármunir þegar starfs-
fólk skóla-' og menntástöfhaúa,
sem á að bera þær uppi og reka
þær, ef - vánrækt og illa að því
búið? Fundurinn telur, að hin
tíðu og árlegu kennaraskipti hati
truflandi áihriif á allt skólastarf
og miður góð áhrif á börn ag
ungiiniga. íslenzka þjóðin þarf.
hið allra fyrsta, að gera sér grein
fyrir hinum margvíslegu vanda-
málum, sem kennaraskorturinn í
landinu veldur, og vinna mark-
visst og skipulega að því að
finna lausn á h-onum.
Fundurinn leggur á það höfuð-
áherzlu, að þjóðinni hafi aldrai
verið meiri nauðsyn en nú, að
kennarastéttin sé vel menntuð
og geti óskipt helgað sig kennslu-
og u'pþeldismálum, árið um kring,
sífellt aukið þekkingu sína og not
ið eðlilegs sumarleyfis í stað þess
að eyða því í endalaust brauðstrit.
Fundurinn skorár á bæjar- og
s’veitarfélög að hafa ávallt á boð-
stólum hentugar og ódýrar íbúð-
ir fyrir kennara, og bendir á-, að
það eitt út af fyrir sig, geti
mörgum tilfelhwn ráðið bót á
kennaraskortinum. Ennfremur
bendir fundurinn fræðsluyfirvöld
um á, þá staðreynd, að snyrti-
legur oig vel viðhaldinn skóli, bú-
inn nauðsynlegustu tækjum jg
húsgögnum, laðar öðru fremnr
ungt fólk að kennarastarfinu og
gerdr sitt til þess að örva það til
þess að setjast að í hinum dreifðu
bygigðum landsins."
Aðalstjórn félagsisn var öll end
urkjörinn, en hana skipa: Hans
Jörgenson Rivík., form., Vilbergur
Júlíusson Garðahreppi, ritari og
Fá'll Guðmundsson Seltjarnarnesi
gjaldkeri. f varastjórn eiga sæti:
Gunnar Guðmundsson skólatsjóri
Kópavogi og Óli Kr. Jónsson yfir
kennari, Kópavotgi.
f
ni
GANGA ÞEIR AÐ TIL-
BOÐISAS-RÍKJANNA?
Umboðsmannafundur Loftleiða hefst í dag
TK-Reykjavík, mánudag.
Á morgun kl. 10 f. h. hefst
fundur umboðsmanna og helztu
starfsmanna Loftleiða með
stjórn félagsins. Mun fundur
þessi standa í 3 daga og verður
á honum m. a. tekin afstaða ‘il
tilboðs SAS-ríkjanna um Iend-
ingarleyfi RR-400 véla Loftleiða
á Norðurlöndum.
Um 30 umboðsmenn og starfs
menn á skrifstofum Loftleiða
erlendis munu sækja þennan
fund, 6 frá New York, 1 frá
Mexíkó 3 frá London, 1 frá
Glasgow. 3 frá Luxemborg, 1
frá Osló, 2 frá Gautaborg, 2
frá Þýzkalandi, 2 frá París, 1
frá Amsterdam 3 frá Kaup
mannak., ) frá Vínarb., 1 frá
ríelsinki, 1 frá Tel Aviv. Auk
þess sitja fundinn deildarstjór-
ar félagsins hþr í Reykjavík og
helztu starfsmenn auk félags-
stjórnarinnar. Á fundi þessum
verður rætt um starfsemi fé-
lagsins að undanförnu og lagt á
ráðin um starfsemi félagsins í
framtíðinm. Stærsta málið, sem
verður til umræðu á þessum
fundi er að sjálfsögðu tilboð
SAS-rí-kjanna um lendingarrétt-
indi RR-400 véla Loftleiða á
Norðurlöndum. Tilboð þetta
kom eins og kunnugt er fram
á fundi samgöngumálaráðherra
Norðurlanda í Kaupmannahöfn
í fyrri viku. Felst í þvf leyfi
fyrir Loftleiðir að lenda þrisv
ar sinnum í viku á sumrum
með ótakmarkaðan farþega-
fjölda í RR-400, sem mest geta
borið 169 farþega. en tvær ferð
ir á viku á vetrum með farþega
fjölda takmarkaðan við 114 fat
þega í hvorri ferð.
Talið er víst, að ákvörðun
verði tekin um það á ’þessum
fundi, hvort tilboði þessu verð
ur tekið eða reynt verður að
fá íslenzku ríkisstjórnina til að
leggja fram gagntilboð fyrir
hönd ^oftleiða á fundi forsætb
ráðherra Norðurlanda í næsta
mánuði. Tilboð SAS-ríkjanna
stendur hins vegar opið til i
apríl 1968.
Baldri Jónssyni, formanni Ingólfs
upphæðina. Baldur þakkaði gjöf-
ina oig sagði að hún kæmi í góð-
ar þarfir; því björgunarsveitmni
væri mikil nauðsyn á að eiga sIík
an bát, og ekki sízt fyrir þá sök
að björgunarbáturinn Gísli J.
Johrtsen, er nú í lamasessi, og
þarf að skipta um vél í honum.
Gat Baldur þess að kvennadeild-
in hafi á undanförnum 6 árum
a'fihent Slysavarnarfélaginu upp-
hæð sem nemur 1.8. millj. kr
Auk þess hafi deildin lagt r'ram
fé tii kaupa á ýmiss konar tækj-
um fyrir Slysavarnarfélagið jg
iátið reisa skipbrotsmannaskvh
N.v> gúmmíbjörgunarbátur-
inn getur borið allt að 12 manns
og gengur fyrir utanborðsmótor.
Ingólfur átti annan gúmmíbjörg-
unarbát fyrir, en hann er orðinn
lélegur og hvergi nærri eins full-
kominn og sá sem sveitin hjfur
nú eignast. Var mikil þörf fyrir
Jjörgunarsveitina að eignast stór
an og hraðskreiðan björgunarbát
sem jafnframt getur siglt á
grunnu vatni og allt upp í fjöru
borð er þörf er á.
Jóih-annes Briem, sem yfirle'tt
stjórnar björgunaraðgerðum Ing-
ólfs, sagði blaðamönnum í dag,
að orðið væri geigvænlegt Wí-
líkt aðgæzluleysi menn á hrað-
bátum sýndu, en slíkum bátum
fer sífellt fjölgandi og eru menn
Framhald á bls. 15
Síldin
Fremur óihagstætt veður var á
síldarmiðunum s.l. sólarhring. Eru
skipin nú einkum að veiðum um
400 milur NA af Langanesi. —
Alls tilkynntu 13 skip um afla
2375 lestir.
Raufaihöfn:
Lestir
Heiga Guðmundsd. BA 210
Keflvíkingur KE 215
Héðmr, ÞH 185
Hannes Hafstein EA 150
Örn RE 200
Ingioei Ólafsson GK 150
Faxi GK 160
Dalatangi:
Magnús Ólafsson GK 230
Ólafui Sigurðsson AK 265
Sólisri AK 130
Arnat RE 130
GullDerg NS 150
Birtingur NK 200
Leitað upplýsinga
vegna morðs í
Skotlandi
KJ Reykjavík, mánudag.
Klukkan hált fjögur á sunnudags
nóttina barst lögréglunni í Reykja
vik oeiðni um upplýsingar frá
Edinoorgarlögreglunni vegna
moröv á bandarískri stúlku í Skot
.andi Stúlkan hafði dvalið hér
síðas-i ágúst. og flogið utan með
Loftíeiðum. Vissi Edinborgarlög.
•egiar um ferðii hennar hér, en
e kk4 um neimilisfang hennar
ves'ra Lögreglan hér gaf upplýs
ingai um heimilisfang hennar, og
nugjdúlega te'ðafélaga, og þannig
hjáipao ti’ við að upplýsa þetta
morðmál, sem Scotland Yard hefur
o únndir höndum. Stúlkan fannst
myr. s cjaidstæði í Skotlandi á
laugardagskvöldið.