Alþýðublaðið - 31.12.1987, Side 6

Alþýðublaðið - 31.12.1987, Side 6
6 Fimmtudagur 31. desember 1987 ur hafi aidrei hækkað fyrr. Hafa þeir sem hæst láta nú t. d. gleymt því, að sam- kvæmt fastbundnum formúl- um hækkaði búvöruverð um 8% I byrjun þessa mánaðar? Hvað kom þá á móti? Ekkert. Loks er ástæðatil þess aö minna á það að kerfis- breytingin mun leiða til lækk- unar á lánskjaravísitölu, sem leiðir af því að byggingar- kostnaöur lækkar um liðlega 2%. Þetta skiptir auðvitað miklu máli fyrir það fólk sem ber þunga skuldaklafa, svo sem húsbyggjendur." 2200 milljónir í lífeyris- og barnabœtur Framfærslukostnaður vísi- tölufjölskyldu hækkar ekki. En hvað um hag barnafólks, einstæða foreldra og lífeyris- þega? „Þær hliðarráðstafanir sem nú hafa verið ákveðnar felast í hækkun barnabóta, hækkun bóta llfeyristrygginga og . auknum niðurgreiðslum. í þessu skyni veröur alls varið liðlega 2200 milljónum króna á næsta ári. Markmiö þess- ara aðgerða er einmitt að verja sérstaklega hag þeirra hópa sem þú nefnir. Lifeyris- bætur hækka um 6—8 af hundraði frá 1. janúar eða svipað og nemur hækkun á matvörum. Barnabætur hækka sérstaklega um 9—10%, en auk þess eru geröar lagfæringar á barna- bótaauka, sem sérstaklega koma til góða barnmörgum fjölskyldum. Að meðaltali nemur þessi hækkun um 5000 kr. með hverju barni. Barnabætur verða greiddar út ársfjórðungslega á næsta ári, í fyrsta skipti í janúar. Út- borgaðar barnabætur hjóna með tvö börn, m. v. að annað sé undir 7 ára aldri, verða þá tæplega 16 þúsund kr. fyrir 1. ársfjórðung. Þegar á þetta er litiö held ég að ekki verði annað sagt, en að hag þessara hópa sé sæmilega borgið. En það er nokkuð lýsandi að þessum þáttum kerfisbreytingarinnar hefur lítt verið haldið á lofti af stjórnarandstöðu." Bætt skattskil Því hefur verið haldið fram að skattsvikin séu ekki í versluninni og að breytingar á söiuskatti geti ekki orðið til þess að bæta skattskil. Hvað hefurðu um þetta að segja? „Ég vil benda á.tvennt í þessu sambandi: í fyrsta lagi minni ég á að menn hafa ver- ið á einu máli um það að ein- földun skattakerfisins og fækkun undanþága eru lykil- atriði ef bæta á skattskil. í þessu sambandi er m. a. hægt að vitna til svokallaörar skattsvikanefndar sem starf- aði undir forystu Þrastar Ólafssonar og skilaöi áliti i fyrravor. í tiliögum til úrbóta segir í upphafi: „Einfalda þarf skattalögin, fækka undan- þágum og afnema hvers kon- ar frádráttarliði þannig að skattstofnar verði skýrir og afmarkaðir og greiðsluskylda auðreiknanleg. Einföldun skattalaga og fækkun undan- þága og frádráttarliða auð- veldar öll skattskil virkara skattaeftirlits. Um leið þarf að fækka skatttegundum og gæta þess að einstakir skatt- stofnar séu ekki ofnýttir." Svo mörg voru þau orð og undir þetta hefur mjög verið tekið, þótt það vilji gleymast þegar til kastanna kemur. í öðru lagi er nauðsynlegt að hafa ( huga, að uppgjör mat- vöruverslana á söluskatti er ákaflega flókið og byggir að verulegu leyti á áætlunum. Kaupmenn geta [ dag valiö um þrjár mismunandi aðferð- ir við að skipta heildarveltu [ skattskylda og skattfrjálsa sölu. Þetta kostar ótrúlega vinnu I matvöruversluninni ( hverjum einasta mánuði. Einnig er augljóst að flóknar reglur um uppgjör auka hættu á villum og valda mikilli vinnu skattyfirvalda við skatteftirlit. Þessi vinna verður hverfandi eftir kerfis- breytinguna. Þess vegna geta menn nú farið að einbeita sér að virkara skatteftirliti. Kerf- isbreytingin mun þess vegna leiða til bættra skattskila. Á því leikur enginn vafi.“ Undanþágurnar Það er sagt að enn sé mý- grútur af undanþágum eftir i kerfinu. Hvað er hæft i þessu? „Það er svolltið skemmti- legt, að annars vegar skamm- ast menn út af því að undan- þágur falli niður og hins veg- ar út af þv( að undanþágur standi óbreyttar. Viðamestu undanþágur sem eftir standa eru þær sem snúa að inn- lendum atvinnugreinum, sjávarútvegi og iönaöi, fiski- rækt o. fl. Vélar og ýmis bún- aður til þessara greina er undanþeginn söluskatti. Þessum undanþágum er ein- faldlega ætlað að tryggja samkeppnisstöðu innlendra fyrirtækja, sem keppa við út- lend fyrirtæki sem búa við virðisaukaskattskerfi. Það er fjarstæða að ætla að fella þessar undanþágur niður. Enda hefur enginn lagt það til, ekki einu sinni þeir sem verst láta. Önnur mikilvæg undanþága sem eftir stendur er vinna á byggingarstað. Ef þessi undanþága væri af- numin án þess að eitthvað fleira kæmi til myndi slíkt valda 5—7% hækkun bygg- ingarkostnaðar. Það getur varla verið á dagskrá. Það er gert ráð fyrir því að þetta verði skattskylt í virðisauka- kerfi, en þá er líka ráðgert að grípa til annarra aðgerða á móti þannig að ekki komi til kostnaðarhækkana. Skatt- skylda á þessu sviði hefur aldrei verið á dagskrá sem tekjuöflunarmál og það er Ijóst að þessi skattlagning krefst verulegs undirbúnings af hálfu skattyfirvalda." Svindl þrífst í flóknu kerfi Nú hafa ýmsir látið að því liggja að þú sért kaþólskari en páfinn með því að vilja koma á einu skattstigi í sölu- skatti og vitna gjarnan til EB í þessu sambandi! „Það er út af fyrir sig ákaf- lega athyglisvert, að Alþýðu- bandalagið og Kvennalistinn skuli taka það að sér að tala máli Evrópubandalagsins I þessu efni. En þetta er nú eins og fleira á þeim bæjum á misskilningi byggt. Það er rétt, að það eru hugmyndir um það innan EB að koma á samræmdu virðis- aukaskattskerfi meö tveimur þrepum. Staðreyndin er hins vegar sú, að þessar hug- myndir njóta lítils fylgis þannig að nú eru það einung- is Þjóðverjar og Hollendingar sem hafa lýst yfir stuðningi við þær. Kjarni málsins er sá, að þjóðirnar innan EB vilja hverfa frá margþrepa skatti ( þó ekki væri nema tveggja þrepa skatt. Menn treysta sér ekki til þess að ganga lengra. Af hverju skyldi þessar þjóðir vilja hverfa frá margþrepa skatti? Jú, einfaldlega vegna þess að menn eru haettir að ráða við þetta kerfi. Óánægj- an er orðin svo mikil. Eftirlit- ið svo erfitt. Kannast menn nokkuð við þetta úr umræð- um um íslenska söluskatts- kerfið? Það er nákvæmlega þetta sem við erum að reyna aö komast út úr. Við getum líka litið okkur nær, tij hinna Norðurland- anna. í Danmörku, Noregi, Svlþjóð og Finnlandi er eitt skatthlutfall á bilinu 19—23,5%. Frá þessu er létt- væg undantekning að því er varðar einstakar greinar þjón- ustu ( Svíþjóð. Af hverju er aðeins eitt skatthlutfall í þessum löndum? Reynslan er alls staðar sú sama. Fram- kvæmdaörðugleikar, undan- drátturog svindl þrffst ( flóknu kerfi. í stað þess að beita margþrepa söluskatti leita menn annarra leiða til tekjujöfnunar. Það er einfald- lega árangursrlkari leið að beita beinum sköttum, fjöl- skyldu- og barnabótum frem- ur en mörgum söluskatts- þrepum til þess að ná fram auknum jöfnuði í tekjuskipt- ingu.“ Undanþága fyrir afruglara Ein undanþágan sem eftir stendur í söluskattinum er undanþága fyrir afruglara. Hvernig stendur á þessu? „í fjárlögum hefurverið heimild til fjármálaráöherra til þess að fella niður að- flutningsgjöld og söluskatt af þessum búnaði. Þessi heimild er tekin upp í sölu- skattsfrumvarpi. Það er þess vegna um að ræða heimild til eftirgjafar á söluskatti, en ekki á öðrum gjöldum. Ég hef ekki tekið ákvörðun um það hvort þessi heimild verður notuð. Það kann m. a. að ráð- ast af þvf hvort látið verður af þeirri einokun sem innflytj- endur þessa búnaðar hafa áskilið sér að því er varðar sölu á honum. Hitt er svo annað mál, að auðvitað er tómt mál að tala um frelsi l útvarpsmálum okkar ef við göngum þannig frá hnútum að Ríkisútvarpið geti skattlagt landsmenn með afnotagjöidum, sem hafa hækkað langt umfram verðlag, en skattleggjum aðra miðla með óbeinum hætti. Ég lít þess vegna svo á að þessar undanþágur hafi verið nauðsynlegar, en þær þurfa auðvitað ekki að vera eilffar." Hvers vegna er veriö að leggja söluskatt á fisk og endurgreiða svo á móti? „Til þess aö komast hjá þv( að hafa nokkrar undanþágur [ almennum matvöruverslun- um. Þær verða engar. Það er ákaflega mikið gefandi fyrir það að losna við þær reikni- reglur ( versluninni sem ég nefndi áðan. Það gerum viö ekki nema að hafa skattinn undanþágulausan og með einu skattþrepi. Fiskur er hins vegar mikilvægur hluti daglegs kosts okkar og þess vegna varð niðurstaöan sú að endurgreiða hluta af sölu- skatti á fisk. Þetta er líka eðlilegt þegar haft er i huga að kjöt verður niöurgreitt ( mjög auknum rnæli." Manneldissjónarmið Hvernig samrýmast skatta- breytingarnar manneldissjón- armiðum sem nú eru uppi? „í fyrsta lagi þá leggst vörugjald á sælgæti og sykr- aða drykki. Óhollustan verður því skattlögð sérstaklega. í öðru lagi lækka ýmsar holl- ustuvörur í verði, t. d. nýtt grænmeti. í þriðja lagi verður verðhækkun á fiski t. d. hald- ið við um 10% með endur- greiðslu söluskattsins. Hins vegar er ýmislegt í þessum breytingum sem illa samrým- ist manneldissjónarmiðum. Það er rétt, en að hluta til er það af því að þau sjónarmið stangast á við önnur sjónar- mið eða hagsmuni. Líttu t. d. á grænmeti, sem lækkar reyndar en er ein af fáum teg- undum matvæla sem ber ein- hvern toll. Af hverju? Jú, meðal annars af því að það sjónarmið er ríkjandi að við eigum að stærstum hluta sjálfir að framleiða okkar mat. Af því að matjurta- og grænmetisrækt á undir högg að sækja vegna innflutnings og af þv( að þetta er mikil- væg atvinnugrein, ekki síst I dreifuðum byggðum út um land. Þegar á þetta er litið er Ijóst, að það verður að þræða einhvern meðalveg sem sætt- ir ól(k sjónarmið" Að tryggja hag þeirra verst settu Því er haldið fram að skattaálögur hafi sjaldan eða aldrei verið jafn miklar og nú er stefnt að á næsta ári og að það sé yfirklór að halda því fram að skattarnir verði borgaðir til baka að stórum hluta, — í raun séu allir skattar borgaðir til baka? „Það er rétt að skattar hækka töluvert á næsta ári. Hjá því varð ekki komist, enda stefndi í 8 milljarða halla ef ekkert hefði veriö að gert. hver borgar halla á ríkis- sjóði? Auðvitað geta engir aðrir en landsmenn gert það fyrr eða síðar. Það var óverj- andi að ætla að reka ríkis- sjóð með methalla á sama tíma og viö búum við góðæri til lands og sjávar. Það var óðs manns æði, að ætla enn að auka á þenslu í þjóðfélag- inu með hallarekstri ríkis- sjóðs. Það varð að grípa ( taumana, annað hefði verið hreint ábyrgðarleysi. Skatt- lagningunni er á hinn bóginn reynt að haga þannig að hún komi ekki verst niður þar sem síst skyldi, gagnvart lág- launafólki. Skattleysismörk hækka mjög verulega í stað- greiðslunni og við höfum þegar talað um barnabætur og lífeyrisgreiöslur. Hinn þáttur hliöaraðgerða eru auknar niðurgreiðslur. Það var auövitað mjög mikilvægt að koma kerfisbreytingunum á án þess að slíkt leiddi til verulegrar verðlagshækkunar. Það reyndist unnt með því að auka niðurgreiöslur. Það er auðvitað, mikill eðlismunur á þeim skattahækkunum sem þessum endurgreiðslum er samfara og örðum. Það er verið að afla tekna til þess annars vegar að halda aftur af verðlagshækkunum og hins vegar til þess aö tryggja hag þeirra verst settu. Þess vegna er það ákaflega kald- hæðnislegt, að það hafa ekki s(st verið talsmenn Alþýðu- bandalagsins og Kvennalist- ans sem ráðist hafa harka- lega gegn þessum aðgerð- um.“ Einstakir þingmenn hafa látið að því liggja að skatt- lagning stefni langt fram úr því sem nauðsynlegt væri til þess að ná jöfnuði i ríkisbú- skapnum? „Þetta er því miður mikill misskilningur. Auðvitað heföi veriðæskilegt að þurfa ekki að hækka skatta og að sjálf- sögðu eru menn ekki að gera sér leik að því að ganga lengra í þeim efnum en ástæða er til. Fjárlög voru samþykkt með 50 millj. kr. tekjuafgangi og þau byggjast á bestu áætlunum um tekjur og gjöld ríkissjóðs á næsta ári. Það hefur hins vegar vafalaust villt einhverjum sýn að upphafleg tekjuáætlun tók ekki jafn miklum breyt- ingum og oft áður. Fjárlaga- frumvarpið eins og það var lagt fram byggði á áætluðu meðalverðlagi 1988.“ Hert söluskattseftirlit Eru einhverjar aðgerðir fyrirhugaðar til þess að tryggja að lækkun aðflutn- ingsgjalda á ýmsum vörum skili sér til neytenda? „Þetta verður auðvitað að tryggja sem best. í sumum tilvikum fengu neytendur nokkurt forskot í þessum efn- um í jólakauptíðinni. Einhver dæmi eru um að kaupmenn hafi tekið á sig lækkun í stað þess að sitja uþþi með óseld- ar birgðir. Viðskiptaráðherra hefur síðan beint því til Verð- lagsstofnunar að hún fylgist sem best með þvl að lækkun- in skili sér [ vöruverði eftir áramót. Það verður allt gert til þess að svo verði.“ Hvað um bætta innheimtu á söluskatti? Er eitthvað á döfinni i því efni? „Söluskattseftirlit verður hert. Ég vænti þess að menn hafi af því fregnir fljótlega á nýju ári. Það er mjög brýnt að auka virkt eftirlit til að mynda úti í verslunum og fyrirtækj- um á þjónustusviði. Þetta verður að gera annars vegar með tíðari heimsóknum skatteftirlits í fyrirtæki og með einfaldari kerfi vinnst þetta miklu léttara en áður. Aðalatriðið er það að eftir söluskattsbreytingarnar þjón- ar kerfið til aðhalds og eftir- lits. Það er nú eins og gata- sigti, sem ekkert ræðst við.“ Niðurgreiðslur og vísitölurugl Nú eru niðurgreiðslurnar gagnrýndar og m. a. bent á að þær verði ekki varanlegar og að úr þeim verði dregið þegar frá líður. „Niðurgreiðslurnar hafa verið gagnrýndar m. a. fyrir að þær séu svo miklar. Stað- reyndin er sú að þær verða á næsta ári aðeins um þriðj- ungur þess sem þær voru fyrir fimm árum. Hitt er svo annað að auðvitað eru niður- greiðslurnar ekki markmið í sjálfu sér. Markmiðið með þeim er að jafna byrðarnar og koma í veg fyrir verðlags- hækkun. Með staðgreiðslu- kerfinu höfum við aðrar leiðir til þess að jafna tekjuskipt- inguna. Þessar leiðir hljótum við að gaumgæfa þegar reynsla fæst af kerfinu. Vísi- töluruglið sem við búum við er sérstakt vandamál í þessu sambandi. Það er þannig gert, svo dæmi sé tekiö, að lækkun niðurgreiðslna sem mætt er með samsvarandi hækkun á barnabótum, mæl- ist einvörðungu til hækkunar en ekki til lækkunar. Út úr þessum vítahring þurfum við að komast." Læt ekki staðar numið Eitthvað að lokum Jón Baldvin? „Sú kerfisbreyting sem nú er til umfjöllunar hér á Al- þingi er viðamesti uppskurð- ur á skattakerfinu sem fram- kvæmdur hefur verið um ára- tuga skeiö. Það er vissulega erfitt en jafnframt ánægju- legt fyrir okkur alþýðuflokks- menn að leiða þessar breyt- ingar. Við höfum öðrum frem- ur gagnrýnt skattakerfið á liðnum árum, nú gefst okkur færi á að koma fram ákaflega mikilvægum breytingum. Hér verður ekki látið staðar num- ið. Virðisaukaskattur, endur- skoðun á skattlagningu at- vinnurekstrarins og sam- ræmd skattlagning eigna- tekna er næst á dagskrá. Þessum verkefnum þurfum við að Ijúka á næsta ári. Hitt er mjög miður, að margt hefurverið afflutt um efni þessara breytinga. Á liðnum árum hafa flestir lok- iö upp einum munni um nauðsyn breytinga af þessum toga. Þegar á reynir kýs stjórnarandstaðan nú að beita fyrir sig blekkingum. Við höfum búið við úrelt og úr sér gengið skattakerfi. Við megum ekki vera hrædd við að breyta því sem breyta þarf á þessu sviði frekar en öðrum. Reynslan mun sýna okkur, aö þessar breytingar sem nú eru á döfinni munu skila okkur réttlátara skatta- kerfi, það mun stuðla að bættum skattskilum og styrkja íslensk fyrirtæki í harðri samkeppni við útlend- an atvinnurekstur. Sleggju- dómar stjórnarandstöðu á Al- þingi þessa dagana munu til allrar hamingju engu breyta um þennan dóm sögunnar."

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.