Alþýðublaðið - 31.12.1987, Síða 7

Alþýðublaðið - 31.12.1987, Síða 7
Fimmtudagur 31. desember 1987 7 V I Ð ÁRAMÓT AÐ MÓTA EÐA MÓTMÆLA? Það er aðeins rúmur áratugur til aldamóta. Okkur hefur verið tamt að hugsa til ársins 2000 eins og það væri í órafjarlægð, en nú er það handan við hornið. Fyrir nokkrum ár- um voru blöð og tímarit full af lýsingum af ótrúleg- um tækniundrum 21. ald- arinnar, en flestar þessar kynjamyndir af lífi manns- ins hafa þegar rætst. Raunveruleikinn hefur reynst ímynduninni og skáldskapnum ofjarl. En hvað er raunveruleiki og hvað er skáldskaþur þegar horft er til næstu ára í íslensku þjóðlífi. Fjölmörg verkefni munu móta líf okkar til alda- móta. Sum þeirra erum við þegar farin að fást við og önnur þíða úrlausnar. Við erum að umskapa þær aðferðir sem ríkið notar til að afla fjár til sameiginlegra sjóða okk- ar. Á undanförnum árum hefur þessi grunnþáttur samfélagsins, fjáröflunin til hornsteina þess s.s. heilbrigðis- og trygginga- kerfis, vakið deilur milli þjóðfélagshópa vegna ásakana um sviksemi og grunsemda um að margir, sem gætu æxlað byrðarn- ar, geri það ekki. Sú endurskipulagning skatt- og tollkerfis, sem nú stendur yfir, á að gera tvennt. Hún á að tryggja fjármuni í ríkissjóð til að kosta áform okkar um bætta þjónustu ríkisvalds og hún á að minnka skatt- svik, þoka okkur til rétt- lætis og jöfnuðar. Það vekur athygli að flokkar í núverandi stjórn- arandstöðu hafa snúist gegn þessum breytingum, án þess að hafa tillögu til úrbóta. Hvort sem um er að kenna hentistefnu stjórnarandstöðu eða úr- ræðaleysi, er það ámælis- vert að vinna þannig gegn fyrstu róttæku aðgerðun- um, sem stjórnvöld hafa gripið til í langan tíma til að lækna þetta mikla mein. Annar mikilvægur mála- flokkur, sem nú er unnið að og hefur áhrif til langs tíma eru dómsmálin. það sem að almenningi hefur snúið þar er óþolandi seinagangur, dýr mála- rekstur og illskiljanlegt skipulag og samkrull ólíkra verkefna. Úrbætur í þessum efnum eru aðkall- andi og reyndar í undir- búningi. Borgarinn verður að eiga vísa þjónustu dómskerfis, sem hann hef- ur efni á, skilur og treystir. Húsnæðismálin ætla að reynast íslendingum ill- leysanleg. Það bíður nú Alþýðuflokksins að hafa forystu um að móta þar stefnu, sem dugar til fram- tíðar, en er ekki tímabund- Eftir Jón Baldvin Hanni- balsson formann Alþýðu- flokksins ið útspil í samningapóker aðila vinnumarkaðarins. Öll Vesturlönd hafa leyst sín húsnæðismál þannig að einstaklingurinn fái þak yfir höfuðið á álíka áhyggjulausan hátt og hann kaupir sér bíl eða þvottavél. Þjóðarauður og hugvit íslendinga hlýtur að duga til að leysa þessi mál á sambærilegan hátt. Stjórnkerfismál hafa mikið verið rædd á undan- förnum árum. Allar greinar ríkisvalds og stofnana þeirra hafa fengið sinn skerf. Hér að framan var vikið að umræðum um dómsmál. Alþingi er eðlilega sígilt viðfangsefni. Það er álit flestra, að núgildandi kosningalög séu ekki við- unandi. Þau þurfa að verða öllum skiljanleg og um þau má ekki standa ágreiningur milli þéttbýlis og landsbyggðar. hugsan- legt er að í næstu atrennu verði að taka sjálfa kjör- dæmaskipanina til endur- skoðunar, því hinn gífur- legi munur á fjölda kjós- enda í einstökum kjör- dæmum gerir næstum ómögulegt að beita ein- földum og skírum reikn- ingsaðferðum. Starfshættir sjálfs þingsins hafa verið ræddir talsvert að undanförnu í Ijósi málþófs og nætur- funda. Starf þjóðþings verður aldrei skipulagt og njörvað niður eins og á embættiskontór. Það er hins vegar Ijóst að fólkið í landinu telur það ekki þjóna hagsmunum sínum að þingmenn standi næt- urlangt með vökustaura og lesi upp úr bókum í ræðustól. Þótt þessi átök geti sýnst mikilvæg í svefndrukknum augum sjálfra þingmannanna, er Ijóst að stór hluti almenn- ings telur þau til óþurftar. Það er Ijóst að langar ræður munu alltaf verða hluti af varnar- og sóknar- búnaði þingmanna, en al- mennum kröfum um við- spyrnu þings gegn ofríki ríkisstjórnar verður að vinna fylgi á annan hátt. Annar þáttur gagnrýn- innar á stjórnkerfið hefur varðað starfsemi ráðu- neyta. Skipulag stjórnsýsl- unnar er á þann hátt að flest verkefni smá og stór, lenda á einhverju stigi á borðum ráðuneyta. Þar koma til úreltar reglur um kostnaðarhlutdeild, leyfis- veitingar og fleira. Þetta veldur því að langstærstur hluti starfa í ráðuneytum snýst um ýmisskonar dag- legar afgreiðslur sem ekki virðast einu sinni til al- mennar reglur um. Þetta amstur við smá- málin veldur því að ráðu- neytin skortir yfirsýn og aðstæðurtil að sinna stefnumótun og úrvinnslu í stórum málaflokkum. En sá hluti stjórnkerfis- umræðunnar sem hefur verið fyrirferðarmestur, snýst um ábyrgð embætt- is- og stjórnmálamanna á gjörðum slnum. í hverju málinu á fætur öðru hefur fjármunum almennings virst sóað, án þess að hægt sé að fá skynsam- lega umræðu um málsat- vik. Nýjustu dæmin eru Út- vegsbanka-, Hafskips-, Flugstöðvar- og Sjóefna- vinnslumál. Þar hefur stjórnmálamönnum og fjölmiðlum ekki tekist að greina sundur umræður um annars vegar form, þ.e.a.s. hvernig var tekin ákvörðun og hver ber ábyrgð og hins vegar inni- hald, þ.e.a.s. var gert rétt eða rangt. Þessi ruglingur er trú- lega að stærstum hluta vegna þess að íslenskum stjórnmála- og embættis- mönnum hefurekki verið sýnt um að draga hver annan til ábyrgðar og því hafa þeir hvorki samið lög né reglur til slíks. Dæmi um þetta eru lög um ríkisbankana, linar að- haldsstofnanir ríkisvalds og viljaleysi Alþingis til að sinna eftirlitshlutverki sinu. Hér verða menn að taka sig á. Á næstu árum þarf að búa svo um hnútana að fólk fái aukið traust á embættisfærslu opinberra aðila. Því þarf að skilgreina ábyrgð og ganga eftir henni, setja reglur um hagsmunaárekstra og upplýsingaskyldu stjórn- valda. Þannig verða öllum Ijósar skyldur sínar og al- menningur getur fylgst með störfum hins opin- bera gegnum fjölmiðla. Hér að framan hefur verið minnst á ýmis verk- efni sem munu móta um- hverfi okkar næsta áratug- inn og við erum þegar far- in að vinna að. Önnureru í sjóndeildar- hringnum en bíða úrlausn- ar. Á næstu árum er trú- legt að heimsmynd okkar breytist talsvert. Henry Kissinger hefur spáð því að á næsta áratug rísi upþ sterkt ríki eða ríkjaheildir í Austurlöndum nær og fjær, í Afríku og Suður- Ameríku og verði stórveldi í efnahags- og hernaðar- legu tilliti. Hann íelur að í sam- kegpni við þessa risa muni Evrópuríki verða áhrifalaus smáríki og hrekist til valdaleysis og versnandi hags, nema að þau gangi öflugar til verks í sameiningarmálum Evr- ópu. í skugga þessara spá- dóma er Ijósara en áður hve mikilvægt það er að hyggja að stöðu íslands og samskiptum við Evr- ópubandalagið. Okkur hef- ur óað við þeim missi eig- in hagstjórnartækja sem innganga í bandalagið hefði í för með sér. Óbreytt fiskveiðistefna þess er líka algerlega óað- gengileg íslenskum hags- s»> >

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.