Alþýðublaðið - 31.12.1987, Page 15
Fimmtudagur 31. desember 1987
15
VID ÁRAMÓT
flokkum gengur betur aö
sinna hlutverkum sínum
en þeim gömiu. Þaö má
heldur ekki gleymast aö
stjórnmálahreyfing er ekki
aðeins til aö smíða hug-
myndir og ræða þær.
Henni er líka ætlað að
koma þeim í framkvæmd.
Hún er tæki til að breyta
og til að breyta þarf vilja
.til að nota vald.
Það er því umhugsunar-
efni að Kvennalistanum
virðist ætla að vera hug-
leiknara það hlutverk að
mótmæla en aö móta. Eft-
iróumdeildan kosninga-
sigur sinn kaus flokkurinn
að sitja í andstöðuhlut-
verkinu áfram. Þegar
flokkur skýtur sér undan
ábyrgð á þann hátt verður
hann aldrei tæki til valda
og áhrifa. Hann verður í
besta lagi sæmileg mál-
fundahreyfing. Menn geta
því á líkingamáli spurt sig
hvort Kvennalisti verði
strætisvagn, sem beri sig
og sína til nýs ákvörðunar-
staðar, eða biðstöð, þar
sem fólk staldri um stund
en taki síðan aðra vagna.
Alþýðubandalagið er í
óvissu, sem að einhverju
leyti er af heimatilbúnu
valdabrölti, en ekki síður
vegna óbærilegs hiks við
að taka afstöðu í málefn-
um nútíðar og kveða niður
drauga fortíðar. Það er til
dæmis ótrúleg þversögn,
að flokkur sem hefur reynt
að gera tilkall til þess að
vera kallaður fulltrúi nú-
tíma vestrænnar jafnaðar-
stefnu, skuli á sama tíma
standa í harðvítugum inn-
byrðis deilum um það
hvort hann gangist að ein-
hverju leyti við markaðs-
lögmálum í verslun, við-
skiptum og atvinnulífi.
Það er ekki séð fyrir
átökin í Alþýðubandalag-
inu. Þau liggja niðri, enda
hafa flestir forystumenn
þess verið uppteknir við
næturlestur á Alþingi. En
þvi er ekki að neita að
elskendur jafnaðarstefnu á
íslandi velta því fyrir sér,
hvernig blað muni skilja
bakka og egg?
Alþýðuflokkurinn hefur
á s.l. 3 árum gengið í
gegnum mikið breytinga-
skeið. Hann hefur markað
sér skýra og afdráttar-
lausa stefnu; skaþað sér
sérstöðu meðal íslenskra
stjórnmálaflokka. Stjórnar-
andstaða flokksins á sein-
asta kjörtímabili var virk,
enda tókst flokknum að
ná frumkvæði I stjórn-
málaumræðunni. Allar
skoðanakannanir bentu til
þess að flokkurinn gæti
vænst stórsigurs í sein-
ustu kosningum, uppskor-
ið fylgi á bilinu 20-25%.
Tilviljunarkenndar upp-
ákomur í öðrum herbúð-
um á lokaspretti kosn-
ingabaráttunnar ollu þvi
að sá stóri sigur gekk okk-
ur úr greipum í það sinn.
Engu að síður styrkti
flokkurinn mjög stöðu
sína og bætti uþp, það
sem á vantaði, með því að
ná frumkvæði í stjórnar-
myndunarviðræðum.
Flestum sem með þeim
fylgdust ber saman um,
að þar hafi flokkurinn
haldið vel á spilunum.
Niðurstaðan varð sú að
flokkurinn afréð að freista
stjórnarþátttöku til þess
að koma fram stórum um-
bótamálum fremur en að
bíða enn færis í kjölfar
stærri kosningasigurs.
Þetta staðfesti það sem
öllum má Ijóst vera af
sögu og reynslu flokksins,
að hann er að lífsskoðun
og upplagi ábyrgur um-
bóíaflokkur, en ekki bara
mótmæla- eða málfunda-
hreyfing.
★
í kosningabaráttunni
dreifðum við blaði, sem
hét: Tvær hliðar á sama
máli. Þar lýstum við því
hvernig við teldum nauð-
synlegt að endurskiþu-
leggja tekjuöflun hins op-
inbera annars vegar og út-
gjöld þess hins vegar. Við
kölluðum þetta tvær hlið-
ar á sama máli vegna þess
að til þess að ná takmarki
okkar um aukna fjármuni
til félags- og trygginga-
kerfis, var nauðsynlegt að
tryggja fjármögnun ríkis-
sjóðs.
Þetta sögðum við fyrir
kosningar og við þetta
höfum við staðið. Með
þeim stórkostlegu breyt-
ingum sem við erum að
hrinda í framkvæmd í
tolla- og skattamálum, er-
um við að efna loforð okk-
ar um þá hlið málsins sem
snýr að tekjuöfluninni. Á
þeim grunni ætlum við
svo að byggja nýtt og
traustara velferðarríki,
eins og vikið hefur verið
að hér að framan.
Þetta hlutverk okkar í
ríkisstjórninni er erfitt.
Þegar við tókum við ríkis-
fjármálunum stefndi í mik-
inn halla á árinu 1987 og
við óbreytt ástand hefði
hallinn 1988 orðið gífur-
legur og steypt okkur í
seðlaprentun, skuldasöfn-
un og aðrar kunnuglegar
kringumstæður úr óða-
verðbólgu síðustu ára.
Við þessu höfum við
brugðist af hörku. En okk-
ur hefur einnig verið lögð
á herðar öll ábyrgðin. Það
er sérkennilegt hlutskipti,
því staðreyndin er sú, að
öll erfiðustu verkefni
þessarar stjórnar eru
óleyst vandamál og van-
rækslusyndir þeirrar síð-
ustu. Það gildir um fjár-
lagahallann, klúðrið í hús-
næðismálunum og lin-
kindina í Útvegsbankamál-
inu og skipulagsmálum
bankakerfisins í heild á
síðasta kjörtímabili.
Þessi verkefni bíða
þess nú, Alþýðuflokkurinn
hafi frumkvæði að lausn
þeirra.
Framundan bíða okkar
mörg, stór og heillandi
verkefni. Við munum
ganga til verka hér eftir
sem hingað til, af djörfung
og áræði. Vonandi gefst
jafnframt betri tími til að
afla skilnings á nauðsyn
hinna stóru umbótamála
Alþýðuflokksins sem jafn-
framt eru umbótamál
þjóðarinnar allrar. Ég el þá
von í brjósti að hreyfing
Tilkynning frá
lögreglunni í
Reykjavík
Lýst er eftir Inga Jóhanni
Hafsteinssyni, sem ekki
hefur spurst til síðan 3. nóv.
s.l.
Ingi Jóhann er 35 ára
180 cm á hæð í meðalhold-
um, frekar breiðleitur, með al-
skegg og Ijóst, litað hár.
Síðast sást til ferða Inga
Jóhanns á Skagaströnd, að
morgni 3. nóv. s.l.
íslenskra jafnaðarmanna
megi vaxa af verkum sín-
um. Að svo mæltu óska
ég íslenskum jafnaðar-
mönnum og allri íslensku
þjóðinni farsæls komandi
árs, um leið og ég þakka
ánægjuleg samskipti á
liðnum árum.
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins
Þeir sem gefið geta upp-
lýsingar um ferðir hans frá
þeim tíma eru beðnir að gefa
sig fram við lögregluna.
W [b ® ® B 0 ð B 0 ® G3 & B 8 W B Q'TP & G3 EJ &
Bftirtaliii virmingsnúmer komu upp í happdrætti
Flugbjörgunarsveitanna, 24. desember 1987
95066 - 109752
MacintoshPlus
tölwti*:
4861 - 7480 - 22893
26842 - 30482 - 65724
67049 - 77030 - 82398
87068 - 100964 -106049
114646 - 125503 156240
162231 - 163848
GoldStcir
mjrudbattdstæki:
5366 - 9135 - 14761
25450 - 28394 - 29327
36676 - 39297 - 39765
52383 - 94386 - 113575
139083- 141160- 144731
148452 - 151138
ldjómbckjasiædur:
8122 - 11571 - 21115
29030 - 31339 - 53568
55644 - 62521 - 80195
84306 - 89104 - 124268
139129- 142216- 147672
150692 - 150998
Hcimilispakkar:
17495 - 90704
111229 - 159148
A MITSUBISHI
farsimar:
6197 - 24629 - 28354
36790 - 46168 - 69164
75445 - 81529 - 81827
90033 - 93646 - 126712
133864- 134052- 135455
148679 - 151204
GoldStcir
20" sjóuvarpstæki:
4913 - 19780 - 30938
57136 - 70216 - 70830
75564 - 77165 - 85048
89567 - 92614 - 129631
130269- 147858- 150128
156342 - 159706
GoldStor GoldStar
fcrdatæki:
13434 - 17595 - 19643
19863 - 36214 - 46077
58117 - 66907 - 68489
99818 - 113950- 122404
145110- 150524- 151924
159025 - 162771
(Birt án ábyrgöar)
Vinninganna skal vitjað hjá Grími Laxdal í Radíóbúðinni hf., Skipholti 19, Rvk.
Flugbjörgunarsveitin Reykjavík
Flugbjörgunarsveitin Hellu
Flugbjörgunarsveitin Skógum
Flugbjörgunarsveitin V-Húnavatnssýslu
Flugbjörgunarsveitin Varmahlíð
Flugbjörgunarsveitin Akureyri
FLUGBJÖRGUNARSVEITIRNAR
Laus staða áhaldasmiðs
Staða áhaldasmiðs við tækni- og veðurathugunar-
deild Veðurstofu íslands er laus til umsóknar. Laun
samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Um-
sækjendur þurfa að vera hagir á tré og járn og hafa
iðnréttindi í einhverri grein smíða. Ennfremur þurfa
þeir að hafa bílpróf.
Umsóknir ásamt uþplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sem og meðmælum ef fyrir hendi eru,
skulu hafa borist samgönguráðuneytinu fyrir 22.
janúar 1988. Nánari upplýsingar um starfið gefur
deildarstjóri tækni- og veðurathugunardeildar
Veðurstofunnar.