Tíminn - 21.10.1967, Qupperneq 1
ÍSLANDSBLAÐinfonnatðmFYLGIRTIMANUM I LAUSASCLU
Augiýsing í TÍMANUM
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
■ ierist askrifendui að
ríMANUM
tirUigið i sima 12323
240. tbl. — Laugardagur 21 okt. 1967- — 51. árg.
TyifbgmatMML
- vort sæmummer
ISLJ
Isiand ’67
I dag kemur Islandsblað
Information út samtúnis í
Danmörku og á íslandi. í
íslandsblaðinu er einkum
fjallað um efni varðandi
menningar- og efnaliagsmál,
rætt um að viðskiptajöfnuð-
ur okkar við Danmörku sé
óhagstæður og úr því þurfi
að bæta og Hans Tabor, ut-
anríkisráðherra Dana, skrif-
ar grein, sem hann nefnir
„Hið dansk-íslenzka sam-
starf“. Viðtöl eru við ráð-
herrana dr. Bjama Bene-
diktsson og Emil Jónsson.
FjÖldi íslenzkra fyrirtækja
auglýsir í blaðinu, sem er
skemmtilegt að öllum frá-
gangi. Tíminn varð við
þeirri ósk Information að
gera fslandsblaðið að fylgi-
riti Tímans í lausasölu í
dag.
J
Hernámsár-
in fnimsýnd
9. nóvember
OÓ-Reykjavík, föstudag.
Fyrri hluti kvikmyndarinnar
Hernámsárin 1940—45 verður
frumsýndur í Háskólabíói
fimmtudaginn 9. nóvember. Síð
ari hluti myndarinnar verður
sýndur snemma á næsta ári.
Það er Reynir Oddsson, kvik-
myndagerðarmaður, sem á veg
og vanda af þessar. mynd og
fjallar hún um hernámið á
íslandi t heimsstyrjöldinni síð
ari, og samskipti Islendinga við
hernámsliðið.
Frumsýningin fer fram með
pompi og prakt. Viðstaddir
verða 500 boðsgestir í sínuTi
finasta samkvæmisklæðnaði ns
eftir sýninguna verður haldið
í næsta hús, sen er Ilótel Saga
og eiga hátíðahöldin þar að
standa yfir, fram eftir nóttu.
Þessa dagana er verið að
leggja síðustu hönd á fyrri
hluta myndarinnar í London,
samsetningu hennar og tón-
Framhald á 15. síðu
KRAFA SKYNDIRÁÐSTEFNU ASÍ:
Vísitalan tengd kaupi
áfram eða laun hækki
Benda á nauðsyn viðræðna milli þingflokka
EJ—Reykjavík, föstudag.
★ f ályktun þeirri, sem Skyndiráðstefna Alþýðu-sambands íslands samþykkti í gær, er því lýst yf-
ir, að samtökin muni ekki sætta sig við að tengslin milli launa og verðlags verði rofin. Ef verka-
lýðshreyfingin geti ekki komið í veg fyrir slíkt, þá eigi hiin ekki annars úrkosta en að knýja tafar-
laust fram launahækkanir, sem að minnsta kosti kosti bæta kjaraskerðinguna upp að fullu.
ic Þá hefur Samband ísl. bankamanna haldið aukaþing um kjaraskerð'ngarmálin, og er í ályktun
þingsins skorað á ríkisstjórnina að endurskoða nú þegar ráðstafanir þær, sem hún hefir hoðað og
komnar eru til framkvæmda að nokkru leyti, jafnframt sem áherzla er lögð á, a8 ríkisstjórnin
leysi þann vanda, sem hún telur þjóðina vera i, án þess að rýra kjör launþega meira- en orðið
var áður en ráðstafanirnar voru boðaðar.
ir Jafnframt halda mótmælayfirlýsingar, stöðugt áfram að berast frá verkalýðsfélögum um allt
land, og er í þeim ölium hvatt til öflugrar samstöðu til verndar Iífskjörum almennings. .
Viðræðunefnd ASÍ og BSRB
kom saman til fundar um kl.
14 í dag, og var þar rætt um
málin vítt og breitt. Er útlit
fyrir, að viðræður við ríkis-
írtjórnina hefjist fyrst á mánu
dag eða þriðjudag í næstu viku.
Blaðinu barst I dag ályktun
Skyndiráðstefnu ASÍ, sem hald
in var í gær.
Ályktun þessi var samþykkt
einróma og er svohljóðandi:
„Skyndiráðstefna Alþýðu-
sambands íslands, samanköil-
uð 19. október, 1967, til að
fjalla um efnahagsmálaaðgerð
ir ríkisstjórnarinnar, lýsir yfir
því, að óhjákvæmilegt sé að
beita samstilltu afli samtak-
anna studdu af almenningsálit
inu í landinu gegn þeirri stór
felldu lífskjaraskerðingu, sem
felst í efnahagsmálaaðgerðum
ríkisstjórnarinnar og harðast
mundu bitna á þeim, sem sízt
skyldi.
Ráðstefnan er þeirrar skoð
unar, að unnt sé að leysa að-
steðjandi vanda með öðrum úr-
ræðum en í tillögum ríkisstjórn
arinnar felast og felur fulltrú
um Alþýðusambandsins i við
ræðunefndinni að standa ó-
hagganlega gegn því að tengsl-
in milli launa og verðlags
verði rofin.
Verði efnahagsmálaaðgerðir
ríkisstjórnarinnar hinsvegar
knúðar fram, telur verkalýðs
hreyfingin sig ekki eiga annars
úrkosta en að knýja tafarlaust
fram launahækkanir, sem að
minnsta kosti nemi kjaraskerð
ingunni og bæti hana upp að
fuliu.
Þá telur ráðstefnan sjálfsagt
að til lausnar vandamálunum
'verði leitað allra hugsanlegra
úrræð'a, sem ekki auki fram
leiðslukostnað atvinnuveganna
og bendir m. a. í því sambandi
á breytingar á skattakerfinu,
lækkun á gjaldabálki fjárlaga,
víðtækari verðlagsákvæði og
strangt verðlagseftirlit, svo og
öðrum ráðstöfunum í þá átt.
En þar sem slíkar aðgerðir
eru bæði í undirbúningi og
framkvæmd pólitísks eðlis, tel
ur ráðstefnan rétt, að um þær
fari einnig fram viðræður milli
þingflokkanna, enda hefur rík
isstjórnin boðið viðræður um
vandamálin innan þings og
utan.
Ráðstefnan fagnar hinm al-
geru samstöðu sem orðið hefur
um þessi mál milli Alþýðusam-
bandsins og B.S.R.B. og telur
rétt, að viðræðurnar við ríkis
stjórnina fari fram sameigin
lega.
Þá telur ráðstefnan rétt, að
á lokastigi viðræðnanna við
ríkisstjórnina verði kvödd sam
an fjölmennari ráðstefna til að
fjalla um málið, áður en end
anlegrar ákvarðanir séu teknar
um afgreiðslu þess.“
Blaðið hefur, frá því ríkis-
stjórnin skellti kjaraskerðing-
unm yfir landsmenn, birt mót-
mælayfirlýsingar frá eftirtöld
um aðilum: Sjómannaráðstefnu
Sjómannasambands íslands,
Verkamannafélaginu Dagsbrún
Félagi járniðnaðarmanna í
Reykjavík, Sjómanna- og verka
lýðsfélaginu Bjarma á Stokks-
eyri, Verkamannafélaginu Hlíf
í Hafnarfirði, Sveinafélagi hús-
gagnabólstrara í Reykjavik,
Verkalýðsfélagi Akraness,
Verkalýðsfélaginu Eining á
Akureyri, Iðju, félags verk-
smiðjufólks í Reykjavík, Tré-
smiðafélag Reykjavíkur, Banda
lagi Starfsmanna ríkis og
bæja.
Hér á eftir fara síðan yfir-
Framhald á bls ,4