Tíminn - 21.10.1967, Blaðsíða 8

Tíminn - 21.10.1967, Blaðsíða 8
3 •fr n mm f > •» ■ V-1' i J ‘ * Leikflokkur Lifla sviðsins: YFIRBORÐ DAUÐI eftir Aiice Gerstenberg SIE SMITH eftir Edward Albee - Leikstjóri Kevin Palmer Ekki vantar gróskuna í íslenzkt leiklistarlíf. Tilkoma Þjóðleik- hússins og niánari snerting við erlenda leiklist ber enn vaxandi uppskeru. Leikhús höfuðborgar innar eru tvö, þár sem hinir æfðu leikarar eru að starfi, og í tiveim tilraunialeikhúsum þreifar unga fólki'ð fyrir sér jim nýjung- arnar. Þannig er umihorfs á þess- um haustdögum eftir að fullur tugur ungra leikara, sem lauk pró'fi í Leikskóla f Þjóðleikhússins á þessu ári, hefur stofinað með sér leikflokk, sem hyggst hefja sjálfstæðar sýningar á litla svið- inu í Lindarbæ, þar sem þjóð- leikhúsið hefur haft leiksýningar síðustu vetur. Að sjálfsögðu er það mikill fagnaðarauki, að slík gróska skuli eiga sér stað, en eigi að síður ber hún nokkra hættu í sér. íslendingar eru fáir, og þótt þeir sæki leikhús manna bezt, eru því naum takmörk sett, hve hægt er að fylla mörg leik- hús. Þess vegna gæti svo farið, að þessi ungi leikhópur fengi ekki þá aðsókn, sem hann á skil- ið, og slíkt fálæti um tilraun hans hefði í senn ill óhrif á efna- haginn og sjélfstraustið. En eitthvað verður að gera. Þegar allt að því tveir tugir ungra leikara útskrifast á ári, geta leikhúsin ekki ráðið þá alla, og aðeins örfáir geta farið utan til framhaldsnáms. Og ekki dug- ar að týna niður þvá, sem menn hafa lært. Þess vegna er árœðis- tilraum ungu leikaranna góðra gjalda verð, og fólk er að leggja skerf til leikhúslifs framtíðarinn- ar með því að sækja sýningar ungu ieíka^anna, veitir þeim sryrk til bess að sækja fram og etlast, og það framlag mun skila sér snjöllum leikurum síðar. Annar leikflokkur ungs fólks — Gríma — hefur með sam- vinnu við eldri leikara efnt til sýninga i Tjarnarbæ og tekizt mjög vel, enda lánazt að beina að sér atihyglinni og laða að sér unga áhorfendur. Vonandi tekst Leikflokki litla sviðsins hið saqia. Nauðsynlegt er, að eldri og reyndari leikarar ‘leggi þessu unga fólki lið og starfi með því, taki helzt þátt í hverju einasta leikriti, sem það sýnir, en þó ekki með þeim hætti, að stela senunni frá þvtí. Ég sá þessa nemendur Leik- skóla Þjóðleikhússins flytja þessi verkefni á sviði í vor sem prófverkefni og mat sýninguna eftir þvd. Þegar svo er, verður að minnast, að unga fólkið hlýt- ur að taka á verkefninu með aðrar forsendur í'huga, en þegar það er frjálst. Það er að vonum að leika fyrir prófdómendur skólans og hefur æft með það í huga. En venjulegir leikhúsgestir eru af öðru sau'ðahúsi, og þegar ung- ir leikarar eru frjálsir undan oki skólans og æfa leikrit frá upp- hafi í bví frelsi, hlýtur árangur- inp að verða allur annar. Þar eru skilin milli kunnáttu og sköp unar. Að æfa til prófs hlýtur að skipta mestu að skila kurinátt- unni, en þegar þvi oki sleppir og komið er út í frjálst leikstarf. Iber hærra kröfuna um að beita kunnáttunni til sköpunar. Og það er ekki fyrr en á því stigi, sem réttmætt er, að leikhúsgiest- urinn dæmi leikarann Af þessum sökum held ég, að Iþað væri hinum ungu leikurum hollast að vera ekki að fást vi® þessi prófverkefni of lengi á svið- inu og hafa ekki margar sýning- ar á því fyrir almenning, heldur freista þess að koma fram með önnur verk, sem þeir hafa sjálf- ir valið og æft utan skóla undir stjórn leikstjóra, sem ekki hefur verið aðalkennari í leikskólanum. Þegar þessir ungu leikarar skila LAUGARDAGUR 21. október 1967. Leikendur í einþáttungunum. þeim hlutverkum, verður l'róð- legra að þeim að hyggja nú. Við þessar röksemdir bætist. að þessi tvö litlu leikverx. sem nú eru sýnd, hljóta aö hafa veriö valin með nokkurri hliðsjón af gildi þeirra sem prófverkefni. hæði með tölu leikenda í huga. og gildi hlutverka til prófmats. Mlér finnst þau satt að segja ekki sérlega áhugaverð fytrir fslenzkan leikhúsgest árið 1967. Fyrri þátt- urinn. Yfirborð, birtir ósköp hvimleiðan brag heimsku og yfir- drepsskapar, sem raunar er hvers dagsleg kynni í öðiru hverju sam- kvæmi eða gylliboði, eða saan- skiptum manna yfirleitt, og varla réttmætt að eigina það konum einungis .Að vísu er reynt að skera litið eitt til kýlisins, en það er engin læknisaðgerð. Yfir- drifin skopstælingin býður óreynd um leikurum upp á ofleik, sem vart verður í þessu prófi, eink- um hjá Auði Guðmundsdóttur, sem þó sýnir góða leikhæfileika og föst tök á verkefninu. Hiriar stúlkurnar, Margrét Helga Jó- hannsdóttir, Anna Guðmundsdótt ir og Guðrún Guðlaugsdóttir sýna einnig ótvíræða kunnáttu og hæfi leika, en óréttmætt væri að gera þarna einhvern mun á í dómum. eins og til er stofnað. Hiinn þéfturinn, Dauði Bessie Smith, eftir Albee, er meira leik- verk og stórlbrotnara, og það -el- ur í sér bæði ádeilu og jákvæða boðun, og þar er einnig reynt að þjarma að óhrjálegum mann- gerðum og viðhorfum, en þetta viðfangsefni er okkur varla nógu nærstætt eða heimalegt til þess að það vekji verulegan áhuga okkar. Það er vöxtur úr anharri mold, og það styðst vi8 rtnn- verulega atburði, sem varla gætu gerzt hér, þó að við skýldum ekki sverja af okkur svipaðan djöfuls- skap í öðrum rnyndum. Leikararnir í þessum þætti gera hlutverkum sfnum yfirleitt myndarleg skil, sem bera vott um þaulæfingu, en gaili þaulæf- ingarinnair er sá, að maður sér fátt nýtt í túlkun við endur- tekningu. Hjá góðum og reynd- um leikara er hins vegar hægt að sjá nýja fyllingu í túlkun hlutverks á hverri sýningu. Slíkt er frjálsum mainni eðlilegt. Allir leikaramir skila hlutverk um sínum af kunnáttu og oft góðum leik, én spurningunni am sköpunina er enn ósvarað. Þó sást votta fyrir tilxaunum til persónusköpunar, t.d. hjá Katli Larsen, og þótt margt megi að henni finna, verður hún leikhú^- gestinum eitt hið minnisverð^sta úr sýningunni. Maður hlýtur einn ig að dást að kunnáttu og tækm Jónínu H. Jónsdóttur í sínu mikia og erfiða hlutverki. Þar er þrótt- urinn augsýnilega fyrir i ríkum mæli, en spurningunni um sköp- unina er þar einnig ósvarað. Leikur Hákonar Waage í hlut- verki Jacks svertingja var lík- lega bezta innlifunin á sviðinu, og leikur Sigurðar Skúlasonar í hlutverki lækna-nemans sýndi lík- lega nærfærnust tök á efninu. Leikur Jóns Gunnarssonax og Sigrúnar Bjöínsdóttur stóð einn- ig fyrir sínu. Niðurstaðan verður öll hin sama. Mann langar til þess að geta lesið úr leik þessa unga fólks, hverjir eru þar stór- leikarar framtíðarinnar og hverj- ir ekki, og því horfir maður á það með forvitni og atbvrli. cn treystlst ekki tíl þess að' ráða gátuna að sinni. En gaman verður aö sjá næstu verkefni þessara ungu leikara og. sjálfstæðari tök þeirra. Þá gæti málið tekið að skýrast. AK. Auður Guðundsdóttir og Margrét Helga Jóhannsdótlir í lilutverkum sínum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.