Tíminn - 21.10.1967, Blaðsíða 3

Tíminn - 21.10.1967, Blaðsíða 3
LAUGAKDAGUR 21. október 19€7 3 TÍMINN Barnaheimili sitja á hakanum hjá íhaldinu hæðir, sem ætlaðar væru til þess í fjárhagsáætlun borgarinnar. Þaö ætti sízt að verá ástæða til þess á þessu ári að draga þess- ar framkvæmdir á langinn. Auð- veldara mun vera nú en um langt skeið að fá vinnuafl til bygginga- framkvæmda og aldrei er brýnni þörf á stofnunum eins og dagheim ilum og leikskólum heldur en þegar atvinnutekjur heimilisfeðr- anna minnka og ógerlegt er að framfleyta heimilunum án þess að búsfreyj'urnar geti drýgt tekj- urnar með vinnu utan heimihs. Sú tekjuöflun, sem felst í því, að heimilin njóti dagvistar fyrir 'börnin á því verði, sem þeim er gert að greiða fyrir hana, er enn iþá mikilvægari nú, þegar kreppt er að efnahag barnmörgu heimil- anna, fremur en að nokkrum öðr- um hekniliseiningum, með stór- tTamhaid a bls. 15 Kristján G. Gíslason form. Verzl.ráðs H! EFNIR TIL NÁMSKEIÐS Í ULLARVINNU FlB-iReykjav'ik, föstudag. Heimilisfélag íslands hefur ákveðið að efna til námskeiða í meðferð ullar, þ. e. tóvinnu, spuna, jurtalitun, listvefnaði og munsturgerð til vefnaðar. Verða þessi námskeið fyrst og fremst ætluð handavinnu-, vefnaðar- og teiknikennurum, en einnig verða aukanámskeið haldin í desember- mánuði fyrir annað áhugafólk um þessi efni, i jurtalitun og í tó- vinnu og spuna. Samkvæmt lögum Heimilisiðn- aðarfélagsins er tilgangur Þess að vinna að verndun þjéðlegs, ís- lenzks heimilisiðnaðar, auka hann og efla, stuðla að vöndun hans og fegurðar og vekja áhuga lands- manna á því, að framleiða fallega og nytsama hluti, er hæfa kröfum nýs tíma, en hafi rót sína í hin- um gamla þjóðlega menningararfi. (Hefur því félagsstjórnin ákveðið að efna til áðurnefndra námskeiða. Gert er ráö fyrir, að þátttakend ur í listvefnaðarnámskeiðinu geti orðið 6—7 talsins, en líklega um 10 í tóvinnunámskeiðinu, en nám skeiðin verða að Fjölnisvegi 14, þar sem félagið hefur tekið á tTamr.aio a ots 15 Bíli gjöreyöilagðist í árekstri OÓ-Reykjavúk, föstudag. Þá er búið að keyra niður eina brúarstólpann, sem eftir var á brúnni í Fossvoginum. Laust fyrir kl. 2 s. 1. nótt var fólksbíl af Vauxhall gerð ekið á stólpann með þeim afleiðingum, að brúin er orðin stólpalaus og billinn ger- eyðilagður. Ökumaðurinn var eion Framhald á 15. síðu Á fundi stjórnar Verzlunarráðs íslands, fimmtudaginn 19. þ. m., fór fram kosning formanns og varaformanna og skipun fram- kvæmdastj órnar. Formaöur var endurkjörinn Kristján G. Gíslason, stórkaupmað ur, 1. varaformaður Magnús J. Brynjólfsson, kaupmaður, og 2. varafiormaður Gunnar J. Friðriks- son, framkvæimdastjóri. Auk þeirra tóku sæti í fram- kvæmdastjórninni; Björgvin Sohram, Gunnar Ásgeirsson, Hilm ar Fenger, Othar Ellingsen, S g- urðuir Magnússon og Sigurður Öli Ólafsson. Varamenn í framkvæmdastjorn inni eru Bergur G. Gíslason, Björn Hallgrímsson, Haraldur Sveins- son, Jónatan Einarsson, Stefán G. Björnsson, Sveinn B. Valfells og Þorvaldur Guðmundsson. OÓ-Reyk)avik, föstudag. — Lítill sendiferðabíll frá Landssímanum hvolfdi á Reykjanesbraut í Fossvogi í morgun. Lenti bíllinn ofan í skurði og stóðu hjólin beint upp þegar að var komið. Tveir menn voru í bílnum og hlutu báðir smávægileg meiðsli. Sendiferðabíllirn var á suðurleið og var að aka fram úr öðrum bíl nærri vegamótum Reykjanesbrautar og Sléttuvegar. Um leið og bíllinn var að fara framúr fannst ökumanninum vinstra framhjólið festast og við það snérist bíllinn og fór út af veginum vinstra megin og hafnaði á hvolfi úti í djúpum skurði, sem er við vegakantinn. (Tímamynd.—GE). Ljósmynd þessa tók G.E. á aðalfundi Skógræktarfélags ís- lands, sem nú stendur yfir. Fundinn, sem settur var í dag, sitja um 80 fulltrúar víða af landinu. í dag voru fluttar ræð ur um skógræktarmál á breið- um grundvelli, og fjallað um ýmis áhugamál félagsins. Síðaii héldu fundarmenn upp í Kolla- fjörð, þar sem skoðaðar voru skógræktarstöðin að Mógilsá, svo og laxeldisstöðin í Kolla- firði. Þá var og skoðaður skrúð garður Sigurjóns Guðmundsson ar, en hann er rétt við skóg- ræktarstöðina. f kvöld fjallar fundurinn áfram um skógræktai-májin, en á morgun vprða ýmsar ályktan- ir og tillögur bornar undir fundarmenn. Fundinum verður slitið í Tjarnarbúð annað kvöld. enta. Xjörgreinakerfi verður tekið upp i 3. bekk skólans í vetur, og geta nemendur valið um 6 bók- legar greinar ' rir utan auka- greinar. Við skólasetningu flutti dr. Gylfi Þ. Gíslason menntamáila ráðherra ræðu, og tilkynnti, að í vetur yrði hafizt handa um bygg ingu skólahúss fyrir æfinga- og tilraunaskóíann, og verður það á loð Kennaraskólans. Hið nýja húsnæði við Stakkahlíð þrengir þegar mjög að starfsemi skólans. (Tímamynd—GE). AK-iReykjavík, föstudag. Á fundi borgarstjórnar í gær var til umræðu tillaga Alþýðu- bandalagsins, þar sem bent var á þá staðreynd, að ekki væru enn hafnar framkvæmdir á eftirtöld- um framkvæmdum, sem fé er ætlað til á fjárhagsáætiun borg- arinnar á þessu ári: Bagheimili í Vogum, kr. 6 millj., Leikskóli í Vogum 1,5 millj., Leikskóli á Hvassaleiti 1,5 millj. og lítil vist- heimili 2 millj. Bö'ðvar Pétursson fylgdi tiliög- unni úr hlaði og lýsti því, hva alvarlegt væri, að þessar fram- kvæmdir drægjust úr hömlu, þar sem þörf fyrir þessar stofnanir væri mjög brýn. Borgarstjóri let vísa tillögunni frá og hafði það sér helzt til afsökunar, að fram- kvæmdafé borgarinnar væri knappt og kæmi seint inn á ár- inu og því yrði dráttur á fram- kvæmdum. Sigráður Tho'rlacius, borgarfull- trúi Framsóknarflokksins ræddi þessi mál nokkuð og sagði, að það væri mjög alvarlegt mál, þeg ar bygging dagheimila, leikskóla og vistheimila drægist og ekki væri unnið fyrir þær naumu fjár Kristján G. Gíslason Frá setningu Kennaraskóla fs- lands í Háskólabíói í dag, dr. Broddi Jóhannesson skólastjóri flytur setningarræðu. í vetur munu alls 675 nemendur stunda nám við skolann, en þar tekur til starfa i vetur ný deild, lærdóms deild, og mun hún útskrifa stúd- Trío of London . Um næstu helgi kemur hingað á vegum Tónlistar- félagsins enskt tríó, „Trio of London“ og ætlar að halda tven.na tónleika fyrir styrktarfélaga Tónlistarfé- Iagsins, á þriðjudagskvöld F’-amhaic 8 15 siðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.