Tíminn - 21.10.1967, Page 9

Tíminn - 21.10.1967, Page 9
LAUGARDAGUR 31. október 1967 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvœmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar Þórannn Þórarinsson (áb) Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og indriði I G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar- Tómas Karlsson Aug- lýsingastjóri: Steingrímur Gislason Ritstj.skrifstofur ' Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifsofur Bankastræti 7 Af- greiðslusimi: 12323 . Auglýsingasími- 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300 Askriftargjald kr 105.00 á mán innanlands — f lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Víðtæk samtök um lausn alls vandans Engum dylst að þau stórKostlegu vandamál, sem nú er við að eiga 1 íslenzkum þ.íoðarbúskap stafa fyrst og fremst af alrangri, hættulegri oo úreltri stjórnarstefnu, sem beitt hefur verið s.l. átta ar, og þess vegna eru atvinnuvegirnir og efnahagskerfið svo veikt fyrir áföllum verðfalls og minnkandi afla, aíöllum, sem hefðu ekki þurft að leiða þjóðina í hættu, ef góðæri undangenginna ára hefði verið nýtt með hagfeHdri stjórnarstefnu með hagsmuni atvinnuveganna og launafólks fyrir augum, í stað þess að óðadýrtíð hefur verið látin þjarma að launafólki en verðbólga og harðsvíraðar peningaráðstaf- anir að atvinnuvegunum- Einmitt af þessum ástæðum — að hér er við grund- vallarvandamál íslenzks efnahags- og atvinnulífs að ræða en ekki aðeins takmörkuð og tímabundin áföll, og að afleiðingar þessarar röngu grundvallarstefnu eru miklu meiri og alvarlegri en enn ev Komið upp á yfirborðið, rlður nú mest á því að sem aUra víðtækust samtök náist um lausn alls vandans, með þjóðarsamstöðu að baki, og að tekið verði á vandamálunum í réttu orsakasamhengi. I^Það' hr að sjálfsögðu spor j rétta átt, að viðræður hefjist miili ríkisstjórnar o^ launþegasamtakanna, og fyrsta ályktun ráðstefnu Alþýðusambands íslands, sem birt er í dag, sést að þar er vilji fyrir hendi til þess að taka skynsamlega á málum. Þar eru sett fram eðlileg skilyrði um, að „óhagganlega verði staðið gegn því, að tengshn milli launa og verðlags verði rofin“, eins og nú er ástatt, og þar er lögð þung áherzla á hjálp við atvinnuvegina, og loks er bent á þá staðreynd, að þar sem framkvæmd þessara máia se pólitísks eðlis, sé rétt „að um þær fari einnig fram viðræður milli þingflokk- anna, enda hafi ríkisstjórnin boðið viðræður innan þings og utan“. Þetta atriði í ályktun IASÍ er bæði atíiyglisvert og raunhæft . Framsóknarflokkurinn gerir sér ijóst, að þegar um svo djúpstæðan þjóðarvanda er að ræða, sem nú er í komið, eftir langa öfugstjórn, skiptir meginmáli að skapa þjóðarsamstöðu um lausn alls vandans. Um þetta sagði Halldór E. Sigurðsson í útvarpsumræðunum í fyrrakvöld: „Það er yfirlýst stefna okkar Framsóknarmanna, að það verði að sitja fyrir öllum etnabagsaðgerðum í íslenzku þjóðfélagi að koma atvinnurekstri landsmanna á heil- brigðan grundvöll og að efla ísienzkt framtak í atvinnu lífi þjóðarinnar. Það er því krafa Framsóknarmanna, að málefni atvinnuveganna verði tekin til gagngerðrar at- hugunar nú þegar og lausn þeirra gangi fyrir því að afla tekna í ríkissjóð. Ég legg áherzlu á það, eins og við Framsóknarmenn gerðum í kosningunum í vor og hefur verið gert í um- ræðum á Alþingi undanfarna daga af formanni flokksins og fleiri, að vandinn í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðar innar er mikill. Hann stafar hvort tveggja af rangri stjórnarstefnu og utanaðkomandi áhrifum, aflaleysi og verðfalli afurða. Leiðin til að leysa vandann er að gera sér grein fyrir því, hver hann 3r og sameina þjóðina síðan um lausn alls vandans“. Og loks benti Halldór á, að sú leið, sem valin yrði til lausnar t vanda atvinnuveganna hlyti að hafa miki] áhrif á efnahagskerfi þjóðarinnar og fyrr lægi ekki fyrir með neinni vissu. hver tekjuþörf ríkssjóðs raunverulega yrOi né hvernig heppilegast væn að leysa hana. TÍMINN 9 Walter Lippmann rit ar urn aiþ|óðamál: Bandaríkin eru áhrifameiri sem fyrirmynd en herveldi I.yndon B. Johnson og frú ÉG hefi dvalið í Evrópu mestan hluta suma^sins og fátt gert annað en að sitja auðum höndum og hlusta og horfa á, og nú finnst mér alveg eindregið, að Evrópu- menn og Bandaríkj'amenn eigi í höfuðdráttum við sama vand- ann að stríða. í augum okkar allira er heimurinn í órei'ðu og háskasemd hlaðinn, lýtur ekki stjórn og er raunar óstjórn- andi að því er virðist. Hvar- vetna eru menn uggandi og vita ekki sitt rjúkandi ráð. Almenningur ber kviða í brjósti, vegna hugsanlegrar kjarnorkustyrjaldar, byltinga og gagnbyltinga, en langflest- ir eiga fyrst og fremst fullt í fangi með að lifa lífi sínu í nútímanum og annirnáí við þá erfiðleika slæva kvíðann að nokkru. Riíkisstjórnir þeirra þjóða, sem framarlega standa og vaxnar eru upp úr fyrstu vonibrigðum frelsunar og sjálf stæðis, eru allar óvinsælar, þar sem þeim hefir ekki tekizt, að hafa í fullu tré við óeirðir erlendis og aðsteðjandi erfið- leika heima fyrir. Meðal hinna þróaðri þjóða, hvort sem þær lúta stjórn kommúnista eða andstæðinga þeirra, liiir eng- inn nærandi saméinandi, og uppörvandi trú, engin björg- unaráform eru á prjónunum og ekki vaka neinar vermandi vonir um bjartari framtíð og betri. ÞESSAR drungalegu fram- tíðarhorfur gefa að minu áliti til kynna þá sorglegu stað- reynd, að við erum staddir á Lokaskeiði hinna þrautreyndu, hefðbundnu lífshátta. Við er- um staddir við upphaf mik- illar baráttu við endurmótun menningar okkar, og sú bar- átta stendur sennilega yfir marga mannsaldra. Þetta er ekki æskilegur eða heppilegur tími fyrir venjulega stjórn- málamenn. Þetta er fyrst og fremst tilvalinn tími fyrir spá- menn, leiðtoga, könnuði, upp- fyndingamenn, brautryðjend- uj- og aðra þá, sem reiðubúm- ir eru að gróðursetja tré, til þess að afkomendurnir geti setið í skugga þeirra. Sú heimsskipan og regla, sem þróazt hefir síðan á mið- öldum og hin miklu, vestrænu stórveldi komu á, mótuðu og stjórnuðu, hefir gliðnað og splundrazt. Sumir gera sér í hugarlund, að vi® getum end- uireist hina gömlu skipan og Látið Bandaríki Norður-Amer- íku koma í staðinn fyrir Stóra- Bretland nítjándu aldarinnar. En aliir þeir, sem þanndg líta á málin, eins og Johnson for- seti, Rusk utanríkisráðherra og Nixon til dæmis, gera ekki annað en að magna óreiðu og stjórnleysi hinnar aiþjóðiegu heimsskipuinar. Það er ekki annað en barnaleg blekking, að ímynda sér, að árið 1967 sé árið 1939, suð-austur Asía sé Vestur-Evrópa, Mao Tse- tung sé Hitler og Lyndon Johnson sé Churchill. Slíkt og þvílfkt er ekki til þess að leiða til traustrar og frjálsr- ar skipunar í heimsmálunum, heldur ótræðasta kviksyndis, sem þessi þjóð hefir nokkru sinni lent í. \ . • NAUMAST verður annað fundið, sem meira sé til máls- bóta fyrir Johnson forseta, en viðurkenning þess, að aðrir forystumenn stórþjóða eigi einnig í miklum erfiðleikum. Niðurstaða skoðanakannana Gallups í París, London. Moskvu, Nýju Delhi og Pek- ing sýna dapurlega hneigð. En þessar aimennu óvinsæLdir for ustumanna stórþjóðanna varpa óneitanlega nokkru Ljósi á vandann. En þær hrökkva hvorki til að skýra né upp- hefja það, sem gerzt hefir í Washington. í Meiri kröfur eru gerðar til forseta Bandaríkjanna en nokkurs annars stjórnarieið- toga og meira vænzt af hon- um, þar sem Bandaríkin eru svo ótvírætt öflugasta ríki heims. að þar koma engin önnur til greina til samjafn- aöar. Og enn kemur til að hinn upphaflegi tilgangur Bandaríkjanna glæddi eftir- væntingu ailra manna hvar- vetna og vakti þeim vonir í brjósti. Það var ekki upphaf- leg köllun bandarísku þjóðar- innar né forlög hennar, að stjórna heiminum, heldur að vera fyrirmynd annarra um það, hvemig lifa ætti við fulit freisi. RAMMT kveður að van- trausti manna á Bandaríkjum Johnsons forseta og óvild í þeirra garð. Þegar allt kemur til alls hygg ég, að undirrót- in sé sú tilfinning, að þau hafi brugðizt. Sú sannfæring ryður sér sífellt meira og meira til rúms, að Bandaríki Johnsons forseta séu ekki framar hin fornu, söguiegu Bandaríki, heldur óekta heims veldi, sem neyti afis til þess að koma ætian sinni fram ög sé ekkj framar til fyrirmynd- ar um viturieika og mannúð hitts frjálsa samféiags. Vita- skuld á öfund, ótti og\ af- brýðisemi sinn þátt í and- stöðu umheimsins gegn John- son. En undirrótin og upp- sprettan er sú tiifinning manna, að þeir hafi verið sviknir og yfirgefnir, Banda- rikin hafi horfið frá sínu upp- haflega fyrirheiti og svikið það. Þessar tilfinningar haifa magnazt til muna við hið ein- staka árangursLeysi þeirra að- ■ fara Johnsons að beita hern- aöarafli. Máttugasta herveLdi heims hefir háð baráttu ár eftir ár. án þess að geta knúið fámenna og vanþróaða þjóð til undirgefni við vilja sinn. „Haukarnir" á meðal okkar kenna hinni opinberu stefnu, að t-eyna að særa andstæðing- inn, en drepa hann ekki. um þennan skort á sigursæLd. Hcrnaðarárangurinn í Viet- nam væri hreint hneyksli, ef hann væri ekki einmitt sönn- un, sem er alveg einstaklega táknræn og mikilvæg sögulega eða sönnun þess, að beiting skothæfni nútíma hergagna getur aö vísu gjörbreytt and- stæðingnum, eða gert hann óskaðlegan, en aldrei sveigt hann undir viLja þess, sem vopnunum beitir. Benda má á hina áhrifa- miklu fyrirmynd bandarískra lífshátta sem aigera andstæðu hernaðaröngþveitisins í Viet- nam. Líking eftir Bandaríkja- mönnum flæðir yfir heiminn í stríðum og ómótstæðilegum straumi, vegna flugvélanna okkar. tölvanna. heimilistækj- anna, tiLbúins klæðnaðar og vélvæðingar skemmtanaiðnað- arins. og bei meö sér það, sem er anægjulegt og þægilegt í lífsháttum okkar, en einnig sumt af hinu grófa. Staðreynd fyrirmyndar okk- ar að þessu le;ti er miklu öflugri en mátturinn, sem t'elst i hergögnum okkar. Ef við gerum okkur þetta nægi- lega ljóst. ef okkur stjórnuðu menn. sem gerðu sér þess grein. að öid þeirra Roose- veits og Churchills er liðin, þá synnum við að geta farið að byrja að brjotast fram úr kviksyndinu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.