Tíminn - 21.10.1967, Page 14

Tíminn - 21.10.1967, Page 14
LAUGARDAGUR 21. október 1967. Gjafir til Laugameskirkju G'ÞE-Reykjavík, föstudag. Laugarneskirkju hafa áskotnazt fjórir veglegir silfurstjakar og róðu'kross að gjöf. Gefiendurnir bræðumir Einar B. Vestmann járnsmiður á Akranesi og Jóhann Bjarnason sjómaður í Reykjavík. Með gjöf þessari vilja'þeir heiðra minningu foreldra sinna, Bjarna Guðmundssonar frá Dúkskoti í Reykjavík og Valgerðar Einars- dóttur frá Háhóli í Mýrasýslu, en þau eru bæði látin. Gripirnir verða á altari Laugarnfeskirkju. Þeir eru áletraðir og hefur Björn Halldórsson annast leturgröft. Meðfylgjandi mynd af gripunum á altari kirkjunnar tók Ijósmynd- ari blaðsins GE. Halda námskeið fyrir rjúpnaskyttur Á síðastliðnu hausti hélt Hjálp arsyeit skáta í Reykjavík nám- skeiö íyrir rjúpnaskyttur og aðra ferðamenn í meðferð áttavita og landabréfa. Þá voru haldin tvö námskeið og voru þau vel sótt. Nú hefur verið ákveðið að halda fleiri silík námskeið og mun hvert námskeið standa yfir tvö kvöld. Fyrra kvöldið verður leiðbeint um meðfcrð áttavita og landabréfa, en siðara kvöldið verður sýndur ýmis íerðaútbúnaður og síðan far ið i smá áttavitaæfingu út fyrir borgina. Námskeiðin verða hald- in . Iðnskólanum við Vitastíg og hefst fyrsta námskeiðið á mánu- daginn (23. okt.) kl. 20,00. Þeir sem á þessu hafa áhuga, eru heðnir að hafa samband við I Skátabúðina við Snorrabraut, sími 12045, en þar liggur frammi áskriftarlisti. Undanfarin ár hefur töluvert boriö á því. að rjúpnaskyttur og aðrir ferðamenn hafi lent í erfið- leikum og villum á heiðutn uppi og hafa þá oft verið gerðir út leið angrar til hjálpar. Hefur þá oft verio kennt um kunnáttuleysi í meðferð áttavita og landabréfa og lélegum ferðaútbúnaði .Það er von Hjálparsveitarinnar, að mál þessi breytist til batnaðar og vill sveiíin beina þeim tilmœlum til almennings að fara varlega á heiðum uppi og hafa ávallt nægi legan og góðan ferðaútbúnað með ferðis. Þing dðmsmálaráð- herra Norðurlanda ^ómismála- og iðnaðarmiálaráð herra, Jóhann Hafstein, fór utan í dag. Erindi ráðherrans er að sitja dómsmálaráðherrafund Norð urlanda, sem haldinn er í Stokk- hólmi. Jafnframt mun ráðherrann dveijast í Osló nokkra daga í boði norska iðnaðarmálaráðherrans, og eiga þar viðræður um uppþygg- ingu og horfur á norskum iðnaði. Fulltrúi ráðherra í iðnaðarmála ráðuncytinu er í för með ráðherrj anum en hann mun dveljast í; Oslo um tveggja vikna skeið, á vegum iðnaðarmálaráðuneytisins norska til þess að kynna sér s'kipu lag þcss og iðnaðarstofnana og samtaka í Noregi. Að lokum mætir dómsmálaráð herra á fundi ráðherra frá Norð- urlondum og íorseta Norðurlanda ráðs tii þess að fjalla um aðild Færeyja og Álandseyja að Norð- uriandaráði og undirbúa miálið fyrir næsta fund ráðsins. ÞAKKARÁVÖRP Mínar beztu þakkir til ailra sem glöddu mig með • heimsóknum, gjöfum og skeytum, á 80 ára afmæli mínu 6. þessa mánaðar. Pálína Stefánsdóttir, Dalshöfða. TÍMINN KRA Framhals af bls. 1. lýsingar frá Alþýðusambandi íslands, Sambandi ísl. banka- manna, Sveinafélagi húsgagna- smiða í Reykjavík, Verkalýðs félagi Norðfirðinga, Málarafé ' lagi Reykjavíkur og Iðju, fé- lags verksmiðjufólks á Akur eyri. Má því segja, að flest nelztu verkalýðsfélög landsins hafi mótmælt ríðstöfunum rík- isstjórnarinnar og eins heildar samtök verkalýðsins. Samband ísl. bankamanna Á fjölsóttu aukaþingi Sam bands ísl. bankamanna, fimmtu daginn 19. okt. var einróma samþybkt svohljóðandi tillaga: ,Aukaþing Samlbands ísl. bankamanna haldið fimmtudag inn 19. október 1067 mótmælir þeim aukmi álögum á laun- þega í landinu, sem felast í síðustu efnahagsráðstöfunum ríkisstjórnarinoar, þar sem Ijóst er að þær lenda með mest um þunga á þeim, sem marga hafa á framfæri sínu auk sjúkra, öryrkja og aldraðra. Þingið skorar því á ríkis- stjórnina að endurskoða nú þegar ráðstafanir þær, sem hún hefir boðað og > komnar eru til framkvæmda að nokkru leyti. Þingið leggur áherzílu á, að ríkisstjórnin leysi þann vanda er hún telur þjóðina vera í, án þess að rýra kjör launþega meira en orðið var.“ Þá hefur blaðinu borizt eft- irfarandi mótmælaályktun frá Sveinafélagi Húsgagnasmiða: Sveinafélag húsgagnasmiða „Fundui í trúnaðarmanna- ráði Sveinafélags húsgagna- smiða i Reykjavík, haldinn fimmtudaginn 19. október, 1987, mótmælir harðlega ráð- stöfunum þeim í efnahagsmál um, sem ríkisstjórnin hefur ný- lega lagt fram á Alþingi. Með þessum ráðstöfunum er ráðist enn á ný á þá þjóðfélags hegna sen, verst eru settir. Fundurinn telur. aó Alþýðu samband íslands eigi tvímæla laust að beita sér fyrir kröft ugum aðgerðum gegn pessum árásum ríkisvaldsins á launa- fólk.“ Málarafélag ' Reykjavíkur Og hér er ályktun frá Mál- arafélagi Reykjavíkur: „Fundur fullskipaðs trúnað- arráðs Málarafélags Reykjavík ur 19. okt. 1967, mótmælir harðlega aðgerðum ríkisstjórn arinnar í efnahagsmálum, þar sem um er að ræða stórfellda árás á alla alþýðu og lífskjör hennar, á sama tíma og versn andi atvinnuástand hefur nú pegar rýrt tekjur launþega að mun, og fyrirsjáanleg minnk- andi atvinna í mörgum grein )um m. a. í byggingariðnaði. Ennfremur mótmælir fundur inn innflutningi erlends vinnu afls, hvort heldur það er í formi tilbúins iðnaðarvarnings eða iðnverkafólks“. í kvöld barst síðan mótmæla ályktun frá Verkalýðsfélagi Norðfirðinga. Fer hún hér á eftir: \ VerkalýSsfélag NorSfirðinga „Stjórn og trúnaðarráð Verka ' lýðsfélags Norðfirðinga sam- FA A.S.Í. þykkti á fundi sínum 17. þ. m. svohljóðandi ályktun vegna ráðstafana ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum sem kunngerð- ar voru 12. þ. m. Fundur í stjórn og trúnaðar ráði Verkalýðsfélags Norðfirð inga haldinn 17. okt. 1967 nót mælir harðlega þeim árásum ríkisvaldsins á kjör hins al- menna launþega í landinu, sem felast í ráðstöfunum ríkisstjórn arinnar í efnahagsmálum sem kunngerðar voru þann 12. okt. Með ráðstöfunum þessum svíkur ríkisstjórnin júnísam- komulagið og riftir grundvelli allra kjarasamninga þar sem sú sitórfellda hækkun á nauð synjavörum, sem nú kemur til framkvæmda á ekki að hafa áhrif á kaupgjald, svo sem lög og samningar segja íil um. Fundurinn leggur á það þunga áhcrzlu að ráðstafanir þessar looma þyngst niður á þeim sem þyngsta hafa framfærsl- una þar sem hér er að mestu um að ræða hækkun á nauð synjavörum. Einnig bendir fundurinn á að atvinnutekjur hafa verulega minnkað á þessu ári vegna minnkandi yfirvinnu. Jafnframt þessu bendir fund urinn á að verzlunin, sá at- vinnuvegur sem bezt hefur þrifizt á undanförnum árum og skilað stór gróða, er í engu látinn bera hinar nýju álögur heldur fenginn í hendur með þeim aukinn gróði. Stjórn og trúnaðarráð Verka lýðsfélags Norðfirðinga skorar á alla launþega að standa sam an sem órofa heild um að hrinda af sér þessari hatrömmu árás ríkisvaldsins og starfa markvisst að því takmarki að dagvinnutekjur hækki svo að þær standi undir mannsæm- andi lífskjörum." ISja á Akureyri Og loks er það ályktun Iðju á Akureyri: „Stjórnir og trúnaðarmanna- ráðsfundur haldinn í Iðju, fé- lagi verksmiðjufólks á Akur- eyri þann 17. okt. 1967, mót- mælir harðlega þeim harkalegu ráðstöfunum, sem ríkisstjórnin hefur gert með því að afnema niðurgreiðslur á lífsnauðsynj- ar almennings, sem veldur því að þær stórhækka í verði til neytenda, án þess að launabæt ur komi í staðirm. Teiur fundurinn að þessi ráð stöfun sé alger röskun á grund velli þeim er launasamningar almennt í landinu hafa byggzt á um mörg undanfarin ár. Þessar ósvífnu aðgerðir ríkis- stjórnarinnar eru í alla staði óverjandi og þeim mun harka legri sem þær leggjast með ofurþunga á lægst Ijunuðu stéttir þjóðfélagsins, sem sízt geta undir þeim risið, en man ar sáralitlu fyrir þá tekjuháu og efnameiri í landinu. Hafi ríkisstjórnin haft þörf fyrir auknar tekjur í ríkiskass ann hefði hún að sjálfsögðu átt að ganga fast að skattsvikurum og öðrum þeim, er rakað hafa saman fé á dýrtíðarstefnu rík- isstjórnarinnar. Fundurinn vill ennfremur benda á að ráðstaf- anir þessar fela einnig í sér stórhækkuð útgjöld bæjar- og sveitarfélaga, sem koma fram í hækkuðum útsvarsgreiðslum almennings þegar á næsta ári. Þar sem hér er um að ræða mestu og harkalegustu árás, sem gerð hefur verið á lífskjör almennings fyrr og síðar, skor ar fundurinn á alla þá alþingis menn, sem nú sitja á löggjafar þingi þjócfarinnar að beita áhrifum sínum til þess að fyrir ætlanir ríkisstjórnarinnar um lífskjaraskerðingu nái ekki fram að ganga.“ TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu- GUÐM ÞORSTEINSSON gullsmiður Bankastræti 12.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.