Tíminn - 26.10.1967, Page 9

Tíminn - 26.10.1967, Page 9
FIMMTUDAGUR 26. október 1967. TIMINN Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdast.ióri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb) Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Ritstj.skrifstofur I Eddu- húsinu. símar 18300—18305 Skrifsofur: Bankastræti 7 Af- greiðslusimi: 12323 Auglýsingasími: 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300 Askriftargjald kr 105.00 á mán innanlands. — I lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Þjóðarbúskapur, ríkis- búskapur og atvinnulif Þegar ráöherrar og stjórnarmálgögn ræða um þessar mundir um efnahagsvandamálin og ráðstafanir rikis- stjórnarinnar er sem þessir aðiiar geri sér ekki fulla grein fyrir einstökum þáttum þessara mála eða sam- verkan þeirra- Eins og hver getur séð, sem lítur á fjár- iagafrumvarpið og fylgifiska þess eru nú lagðar á fólk nýjar álögur og verðhækkanir, sem nema 750—800 milljónum króna, og þetta fé á að ganga til þess að jafna stórfelldan halla, sem orðinn er eða fyrirsjáanlegur á reikningi ríkissjóðs. Allt á þetta að ganga í ríkisbúskap- inn. Eigi að síður tala ráðherrar og málgögn þeirra sí og æ um, að þetta sé gert til þess að jafna halla á þjóðar- búinu eða jafnvel til hjálpar atvmnuvegunum. Að sjálf- sögðu eru þessir þrír þættir oít æði samslungnir, en samt er það mikil blekking að gera ekki eðlilegan greinar- mun á þeim, og oft er það jafnvel svo, að sérstakar ráð- stafanir til hags fyrir ríkisbúskapinn eru á kostnað þjóðar- búskaparins, og svo er einmitt um þær ráðstafanir, sem ríksstjómin boðar nú og hefur æði oft verið eðli ráðstaf- ana í krafti stjórnarstefnunnar á síðustu árum. Það er brýn nauðsyn, að menn geri sér ljóst, að kjaraskerðingarráðstafanir ríkisstjórnarinnar eru aðeins til þess að jafna beinan halla ríkissjóðs, eins og hann horfir nú við, en vandinn 1 þjóðarbúskapnum og atvinnu- lífinu er alveg óleystur, og samband þessara þótta er með þeim hætti, að alls ekki er hægt að vita eða segja til um þarfir ríkisbúskaparins, fyrr en nagur atvinnulífsins hefur verið fullkannaður og efnt hl nauðsynlegra læknisað- gerða á þessari slagæð og hjarta þjóðarbúsins. Þá fyrst sést, hvers ríkisbúskapurinn þarf við og einnig hvaða leiðir er heppilegt að fara til þess að leysa þarfir hans. Af þessu er augljóst, að það er alröng aðferð, sem ríkisstjórnin hefur viðhaft og byrjað alveg á öfugum enda. í þeim mikla vanda, sem við er að etja nú eftir átta ára ranga og hættulega stjórnarstefnu, sem sýnt er að þolir enga ágjöf lækkandi verðs og minnkandi afla, verður að skoða kjarna málsins fvrst. skoða mál þjóðar- búskapar og atvinnulífs í heild á undan fjárþörf ríkis- sjóðs, og þá mun allt liggja Ijósar fyrir. Aðferð ríkis- stjórnarinnar er hins vegar eins og manns, sem hyggst sundriða ána á ófæru til þess að leita að vaðinu. Vinna keypt erlendis Yfirlit Hagstofunnar um verzlun við útlönd í septem- ber sýnir, að vöruskiptahallinn er nú orðinn geigvæn- 'ega mikill, eða um 2,2 milljarðar króna, það sem af er árinu, og útflutningur til septemberloka aðeins 2,9 miljarðar. Inn hafa verið fluttar vörur fyrir 5,2 milljarða króna en á sama tíma í fyrra var innflutningurinn 4,9 milljarðar. Þrátt fyrir stórmirmkaða gjaldeyrisöflun hefur innflutningur á árinu v.axið um nær 300 milljónir- Morgunblaðið hefur jafnan þá sKýringv á þessu, að þetta sýni, að minnkandi tekjur séu ekki enn farnar að kreppa að almenningi. En það er falssKvring að verulegu leyti. Hinn síhækkandi innflutningur stafar .ffyrst og fremst af hruni innlenda iðnaðarins. þvi að nú verðum við að kaupa sífellt meira af fullunnum 'ðnaðarvörum, sem eru brýnustú lífsnauðsynjar en íslenzkar hendur unnu áður að öllu eða einhverju leyti. Yið kaupum í sívaxandi mæli vinnu erlendra manna sem leysa hana af hendi í heima- landi sínu. Það eru afleiðingar stiórnarstefnunnar. FRÉTTABRÉF FRÁ NEW YORK: Bandaríkjamenn gera sér Ijósa marga galla þjóðfélags síns Málfrelsið er meginstyrkur hins bandanska New York, 23. okt. 1 GREIN, sem hinn þekkti ameríski blaðamaður, Roscoe D'rummond skrifaði nýlega í „The Washington Fost“, er komizt að þeirri niðurstöðu, að alil Bandaríkjamanna hafi sennilega ekki verið minna meðai annara þjóða en um þessar mundir. Þetta sé ekki fyrst og fremst að kenna Viet- nam-styrjöldinni, þótt aðstoð Bandaríkjanna við Suður-Viet- nam sæti mikilli gagnrýni víða, Heldur komi fleira til. sem geti iiaft varanlegri áhrif. í því sam bandi sé fyrst að nefna kyn- þáttadeilurnar, sívaxandi glæpi og margvíslega uppreisnar- nneigð, einkum meðai yngri Kynslóðarinnar. Drummond segir í grein sinni, að ekki sé óeðlilegt, þótt Banda ríkjamenn séu í litlu áliti í Komimúnistalöndunum, þar sem rekmn sé skipulagður áróður gegr þeim. Hitt sé alvariegra, að álit Bandaríkjamanna fari "ersnandi meðal vinveittra þjoða, eins og t.d. í Vestur- Evrópu. Hann kennir blöðun- um ,kvikmyndunum og sjón- varpi mikið um þetta. Þessir aðilar dragi aðallega fram dökku hliðarnar á Bandaríkj- unum. Hitt hverfi oft í skuggann, sem betur fer eöa vet er gert. Drummond telur það mikil- vægt fyrir Bandaríkin, að þau hefji fræðslustarfsemi til að breyta því áliti, sem sé að skap ast á Bandaríkjamönnum og sé a margan hátt rangt. í því .iambandi bendir hann einkum a eftirfarandi atriði: 1. Óeirðirnar í fátækrahverf um stórborganna stafa ekki af þyí, að lítið sé gert til að út- rýma þeim, heldur af þvi að rösklega hefur verið hafizt handa. Það hafi vakið aukna athygli á því, sem miður fer, og gert fólk ófúsara til að sætta sig við það, sem það laidi viðunandi áður. 2. Það er ekki lengur neitt deilumá’ að veita svertingjum fuli borgaraleg réttindi. Þeim hafi verið tryggð þau með lög- um og markvisst er unnið að þvi að framkvæma þau. Þar skiptir mestu að útrýma fá- tæktinni og er unnið að því með margvislegum hætti, ekki sízí með þvi að bæta mennt- unarskilyrðin. 3. Stvrjöldin í Vietnam hefur vissulega þau áhrif, að minna ré er fyrir hendi til aðkallandi umbóta en ella. Á fjárlögum samríkisinis er þó varið 25 bilj. doliara til ýmiskonar velferðar má.la, eins og menntamála, tryggings og húsnæðismála. Við þetts bætast svo framlög hinna einstöku ríkja, borga og sveitarfélaga, að ógleymdum emkaCramlögum til skóla og mannúðarstofnana. 4. Bandaríkjamenn reyna ekki að fela það, sem miður fei. Þeii horfast í augu við bar ÞÓTT ég sé Drummond að miklu leyti sammála um þessi atriði, finnst mér síðasta atrið- ið mikilsverðast. Bandaríkja- menn leyna því sannarlega ekki er miður fer hjá þeim, heldur iraga það hiklaust fram í dags ijosið. Það er sameiginlegt, íaínt hjá blöðunum, kvikmynda féiógunum og sjónvarpsstöðv- unum. Þótt gagnrýni sé alltaf a vissan hátt neikvæð, leiðir hún oftast til jákvæðs árang- urs. Hún er upphaf þess, að eitthvað sé gert. Það þarf ekki lengi að fylgj ast með blöðunum, kvikmynd- unum og sjónvarpinu, til þess að gera sér ljóst, að margt er . Bandaríkjunum öðru vísi en það á að vera. Mikil vanda- mál fylgja fátæktinni, sem aiitof stór hluti þjóðarinnar verður að glíma við, og er eng in þörf að rekja það. En vel- meguninni fylgja líka vanda- mái. Mikið ber á uppreisnanhug ag óihlýðni hjá stórum hluta ninnar yngri kynslóðar, og gæt ir þess ekki síður hjá þeim, sem alast upp við. góð efni, en hinum, sem búa við lakari kjör.' Uppeldisfræðingar deila svo um það fram og aftur> hvort lausnin á þessum málum sé meiri agi eða meira frjáls- ræði. í þessu sambandi má t.d. geta þess, að nefnd sérfróðra manna hefur nýlega skilað rækilegu áliti um áfengisvanda málið. Aðal tillögur hennar ganga i þá átt að dregið verði úr ýmsunr hömlum og áfengi verði meira haft um hönd í heunahúsum. Sú tízka er mjög tik i Bandaríkjunum, að karl- menn strmdi vínveitingastaði, og telur nefndin að þetta Ieiði í mörgum tilfellum til of- drykkju og eyðileggingar á heimilislífi. Vafalaust verður deilt mikið um þessar niður- stöður. Varðandi vandamál eins og þau, sem hér fcefur verið arepið á, er meðalvegurinn vaiaíátið beztur, en líka vand- farnastur. Forðast verður of- miklar hömlur, en frelsið má heidur ekki vera takmarka- laust. EB ÉG ÆTTI, eftir stutta dvöl í Bandaríkjunum að nefna eittihvað eitt, sem ég teldi þeim og stjórnskipulagi þeirra til serstaks lofs, myndi ég fyrst og fremst nefna umræðurnar um Vietnam-styrjöldina. Banda nikjamenn hafa hér lent í styrjöld, sem er að verða þeim dyrari ’ mannslífum og fjár- hagslegum kostnaði en þátttak an ■ síðari heimsstyrjöldinni var. Venjan er sú, þegar þjóð hefur lent í styrjöld, að reynt se að þagga niður alla gagn- ryni, því að hún hjálpi and- dæðingunum. Þvi skaá ekki aeu.að, að Johnson og fylgis- menn hans hafa nokkuð beitt pessum aróðri, en þó fcingað a, innan hóflegra takmarka. enda myndi annað bera öfug- an árangur. Þeir, sem hafa /erið andvígir styrjöldinni eða styr.ialdarrekstrinum, hafa lát- ð óspar; til sín heyra og það ekki síðm stjórnarsinnar en st’órnarandstæðingar. f þeim stjornskipulags. hopi er að finna marga helztu stjórnmálamenn beggja aðal- 'lokkanna og mörg áhrifamestu olöðin Ótvírætt er. að þessi náiflutníngur hefur knúið itjórnina til meiri varfærni og ■mrið henni styrkur í átökun- ■im við herforingjana, sem hafa viijað færa styrjöldina enn meira út. Ef til vill yæri nú naiin allsherjar styrjöld, ef skki nefði ríkt frjáls málflutn- mgur í Bandaríkjunum og kost >r hans ekki sízt notið. sín á umræddum vettvangi. Það er ekki sízt ástæða til að geta þess, að flokkarnir í Banda rikjunum eru ekki eins klafa- bundnir og einstrengingslegir o-g Evrópu Innan þeirra ríkir nuklu meira frjálsræði. Þar þykii það enginn dauðasynd, neidui oft og tíðum manndóms merki, ef stjórnarþingmaður lysir annarri s-koðun en for- setinn. Þetta stafai að vissu ieyti af þeirri heilbrigðu stjórn skipan í Bandaríkjunum, að aðskilja til fulls löggjaf- arvald og framkvæmdavald. Þess vegna er þingið þar miklu áhrifameira en þingin í Evrópu. sem yfirleitt hafa misst vald sitt í fcendur ríkisstjórnanna og eru því ekki nema svipur af ovi sem þeim er ætlað að vera. i ÞEIRRI kosningabaráttu, sem er að hefjast í Bandaríkj- unum, mun Vietnamstyrjöldina vafalaust bera mjög á góma og verða deilt um hana og rekst- ur hennar fram og aftur. Þó spá ýmsii þvi, að önnur mál mum bera enn hærra, eins og fátæktina og kynþáttamuninn, vaxandi glæpi og aukna hneigð ungu kynslóðarinnar til upp- reisnar gegn ýmsum fornum iyggðum Margir stjórnarsinn- ar munu vafalítið nota sér þau ummæli, sem Fulbright öld- ungadeildarþingmaður lét ný- lega falla, að hið mikla þjóð- félag, sem Johnson hafi boðað, haíi snúizt í sjúkt þjóðfélag. Sannarlega verður heldur ekki erfitt að rökstyðja þetta frem ui en svc víða annars staðar. Skuggahliðarnar í hinu banda- riska þ'óðfélagi eru vissulega .nargar. En hinn sterki þáttur bandarísku þjóðlífi, og sem ;nginn andstæðingur Bandaríkj anna skyldi vanmeta, er hinn frjáisi málflutningur og vægð arlaus afhjúpun blaða, kvik- mynda og sjónvarps á mörgu þvi. sem miður fer Ef til vill U' meginstyrkur Bandarikja- manna fólgin í því að hafa opn ari augu fyrir göllum sínum en flestai þjóðir aðrar. Þess vegna er það trúlegt, að sú aaxða og óvægna kosningabar- ítta sem er að hefjast í Banda rikjunum, verði þeim til góðs, hvort heldur það verður John- son eða keppinautar hans, sem oer sigui úr býtum Ég held, að þær umræður, sem eru hafn ar um fátæktina. kynþáttamun inn glæpina og önnur félags- leg vandamiál, verði til að beina augum Bandaríkjamanna frá Vietnam-ævimtýrinu og aS þeim Framhalc 6 15. síðu )

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.