Tíminn - 26.10.1967, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 26. október 1967.
13
VÖRUMARKAÐUR
Seljum nœstu vikur, vefnaðarvöru og leikföng á mjög niðursettu verði
ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR
Nærfatnaður barna, kvenna og herra. Verð frá kr. 22,00
Sokkabuxur barna og kvenna. Verð frá kr. 38,00
Barnanáttföt. Verð kr. 65,00
Drengjanáttföt. Verð kr. 98 00
Herranáttföt. Verð kr- 198,00
Nylonskyrtur drengja. Verð kr. 98,00
Nylonskyrtur herra. Verð kr. 135,00
Drengjapeysur. Verð frá kr. 165,00 til 250,00
Telj>napeysur. Verð frá kr. 85,00 til 275,00
Kvenpeysur. Verð frá kr. 205,00 til 295,00
Nylonúlpur drengja. Verð kr. 505,00
Nylonúlpur kvenna. Verð kr. 595,00
Nylonsokkar kvenna. Verð aðeins kr. 15,00
Sængurver. Verð frá kr. 189,00
Koddaver. Verð frá kr. 30,00
Ullargarn. Verð frá kr. 19,00 pr. hespa.
ítalskar brúður 13. teg. Verð frá kr. 45,00 fíl kr. 380,00
Disney svampdýr 9 teg. Verð frá kr. 80,00 til kr. 260,00
Smábílar 50 teg. Verð frá kr. 35,00 til kr. 180,00
Brúðuhúsgögn. Verð kr. 55,00
Upptrekt leikföng. Verð kr. 55,00 og kr. 60,00
Uppstoppuð leikföng. Verð frá «cr. 85,00 til kr. 320,00
Tréleikföng. Verð frá kr. 30,00 til kr. 435,00
Japönsk, brezk, þýzk, dönsk og kínversk leikföng-
Litfilmur 6x9. Verð frá kr. 40,00
Litfilmvr 35 mm. Verð kr. 45,00
) Filmur svart/hvítar 6x9. Verð kr. 20,00
Filmur svart/hvítar 35 mm. Verð kr. 35,00
Karlmannsúr 22 steina með eins árs ábyrgð.
Verð frá kr. 700,00 til kr 900,00
NÝJAR TEGUNDIR DAGLEGA.
Komið og geríð góð kaup - Póstseudum
GEFJUN, KIRKJUSTRÆTI
SUMARBÚÐIR
Framhald aí Ws. 5.
ferskt líf inn í skógræktarst'arf-
semina, kæmn hinum ungu fé-
lögum í snertingu við hugsjóna-
starf og kölluðu nýja forystumenn
til starfa.
Verkefnin bíða alls staðar.
Heiðmörk.
Stærsta átakið til landgræðslu,
gróðurverndar og skógræktar,
sem félag á íslandi hefur ráðizt í,
er Inðun Heiðmerkur. Þettk var hið
mesLa 'happaverk, sem framtíðin
á eftir að lofa Skógræktarfélag
Reykjavíkur fyrir. Stærð Heið-
merkur er nú um 2200 hektarar,
og var land þetta svo hrjóstrugt,
er það var tekið til friðunar, að
víða lá við örtröð. Gróðurbreyting
ar þar eru orðnar ótrúlega mikl-
ar á skömmum tima. en friðunin
hófst 1949. Gegnir jafnvel furðu,
að friðun Heiðmerkur skyldi vera
framkvæmanleg á þeim tíma. Og
þegar Reykjavík stækkar, kemur
fyrst í ljós gildi þess að eiga svo
fagurt friðland fyrir íbúa nennar.
En starfsemin í Heiðmörk á senni
lega eftir að hafa enn þá víðtæk-
ari áhrif. Ef horfið yrði að því
ráði að stofna til sumarbúða og
skapa vinnu fyrir unglinga við
{•æktunarstörf, má meðal annars
sæxja fyrirmyndir og reynslu til
Heiðmerkur.
Þá hafa nokkur bæjarfélög auk
Reykjavíkur komið upp skógrækt
argirðingurrj, þar sem unglingar
starfa sumarlangt, til dæmis Akur-
eyri, Hafnarfjörður og ísafjörður.
í nágrenni annarra á ofbeit sér
aftur á móti stað, svo að til ör-
traðar getur leitt. Slík svæði
mætti friða, græða upp, t. d. með
lúpínum og öðrum belgjurtum, og
plægja þannig akurinn fyrir trjá-
rækt, en slíkt hefur verið gert a
nokkrum stöðum hérlendis. Og í
nokkrum kauptúnum er'fátt- sauð-'
fé og fer fækkandi. Friðun yrði
því auðveld á slíkum stöðum.
Árið 1930 mirintist þjóðin m. á.
þúsund ára afmælis Alþingis með
því að stofna Skógræktarfélag ís-
lands, og 1944 var Landgræðslu-
sjóður stofnaður. Brátt líður að
árinu 1974.
Ellefu aldia afmælis búsetu á
íslandi væri maklega minnzt á
þann hátt að taka samjbúð lands
og þjóðar til rækilegrar endur-
skoðunar. Efla síðan þau félags-
samtök, er vinna að landgræðslu
og skógrækt og síðast en ekki
sízt stuðla að aukmum kynnum
ungu kynslóðarinnar við land sitt.
Þannig mætti vinna að því, að
þll byggðarlög eignuðust friðland,
þar sem unnt yrði að njóta kyrrð
ar, fegurðar og hvíldar, en um
leið skapa æsku byggðanna holl,
frjó og skemmtileg viðfangsefni.
Stóriðja og skógrækt.
f fyrrgreindum orðum nefur
einkum verið drepið á þrennt:
útivistarsvæði eða friðlönd skóg
ræktarfélaganna, unglingavinnu
og sumarbúðir, en lítið ei:t á
þjóðgarða.
Blöðin hafa ritað óvenjumíkið
um öli þessi mál i sumar. Stofnuð
hefui verið náttúruverndarnefnd
innan vébanda Hins íslsnzka
náttúrufræðifélags, og Samband
íslenzkra samvinnufélaga hefur
rætt um að setja á stofn þjóð-
garð. En hið opinbera —ríkisvald
ið — verður að ganga á undan
og styðja fyrrgreinda starfsemi.
En hvaðan á að afla alls þess fjár,
sem þarf til þessara framkvæmda’
Hér dugir ekkert smátt, ef eitt-
hvað raunhæft á að gera.
Er ekki réttlætismál, að sjóður
sá, sem hin erlenda stóriðja á
íslandi á að greiða fé tilj leggi
hér fé að mörkum?
Á þann hátt mundi hún styrkja
skógrækt í landinu, gera héraðs
skógræktarfélögunum l^leift að
starfa af meiri þrótti og stuðla
að landgræðslu almennt. Og íiá
henni ætti fjármagn í sumarbúð
ir unglinga að koma.
Margir eru uggandi vegna stor-
iðjuframkvæmdanna og láta í ljcs
efasemdir, að þær séu tímabærar.
En þær eru óumflýjanleg stað-
reynd, og er þá ekki sjálfsagt að
gera þær kröfur á hendur stór-
iðjunni, að hún vinni að því að
bæta landið? Ekki er unnt að nota
fé þetta betur en til landvarna í
eiginlegustu merkingu þess orðs
og í þágu ungu kyhslóðarinnar.
í sumar var háð uppeldismála-
þing, þar sem þjóðernismálin voru
efst á baugi. Skólastjórar héldu
og þing og fjölluðu um hið sama,
en blöðin birtu viðtöl við kunna
skólamenn.
Allar viðvaranir um þessi mál
eiga án efa rétt á sér. Bentu fyrr
greindir aðilar á m. a., að
kennslu í sögu þjóðarinnar þyrfti
að auka. Án efia ber enginn brigð
ur á, að slíkt er naúðsynlegt. En
aðalatriðið er þó, að alþjóð skilji,
að samskipti við landið bæði í
starfi og leik er náskyld þjóðern
ismálunum.
Á meðan þjóðin rýrir gæði
landsins, er hún ekki á réttri
braut, og slæm umgengni um bað
ber ekki vott um heilbrigt þjóðar
stolt.
En þegar rætt er um skógrækt
og unglingavinnu, hlýtur nafn
Hákonar Bjarnasonar að bara hátt
en hann var sextugur nú fyrir
skemmstu. í tilefni þess rita ég
þessa grein. En störf hans í
þágu lands og þjóðar eru svo
kunn, að þarft er að telja þau
upp. Þau tala sínu máli um land
ellt.
Það er gæfa að kynnast. slíkum
manni, fá að takast á við svo
heillandi verkefni sem skógrækt
á íslandi er, þótt oft gefi á s6át-
inn. |
En hitt er þó ef til vill dýr-
mætara, að Hákon hefur kennt
mönnum að taka starfið fram yfir
eigin hégóma. Og loks þegar mest
á reynir og flestir bregðast, þá
er Hákon skiLningsbéztur.
Slíkt er eðli hins næmgeðja
drengskaparmanns.
Ég þakka Hákoni Bjarnasyni
aldarfjórðungs kynni og vona, að
þjóðin megi njóta hæfni hans
sem lengst, því að skógrækt á
íslandi krefst forustu afreks-
manns.
ATVINNA
Stúlka utan af landi óskar
eftir vinnu. Margt kemur
til greina. Er vön af-
greiðslu. Upplýsingar í
sima 18398.
(oníinenfal
Hjólbarðaviigeeðir
OPIÐ ALLA DAGA
(LfKA SUNNUDAGA)
FRÁ KL. 8 TIL 22
GÚmÍVINNUSTOFAN HF.
Skipholt! 35, Reykiavile
SKRIFSTOFAN: slmi30688
VERKSTÆÐIÐ: sími3W55
Auglýsið í Tímanum
Kjalarneshreppur:
Oskilahross
Dökkrauður hestur 3ja vetra,
sneitt framan vinstra.
Lemjós hestur, blesóttur
3ja vetra.
ftauður hestur, standfjöður fr.
hægra, biti aftan vinstra.
Grár hestur, taminn, sýlt, biti
aftan vinstra.
Rauð hryssa, 2ja vetra, heil-
rifað hægra, sneitt framan
vinstra.
Jarpskjóttur hestur 5 vetra.
Brúnn hestur 5 vetra.
Steingrár hestur eins vetra.
Hreppstjóri.