Tíminn - 02.11.1967, Blaðsíða 2

Tíminn - 02.11.1967, Blaðsíða 2
\ 1 TÍMINN FIMMTUDAGUR 2. nóvember 1967 SfftllUlk - • • ræsir bílinn SMYRILL LAUGAVEGI 170 - SÍMI 12260 Fyrsta flokks rafgeymir sem fullnægir ströngustu kröfum (gníiiteníal SNJÓHJÓLBARÐAR MEÐ NÖGLUM sem settir eru í, með okkar íull- komnu sjálfvirku neglingarvél. veita íyllsta öryggi í snjó og hálku. Nú er allra veðra von. — Bíðið ekki eftir óhöppum, en setjið CONTINENTAL hjólbarðá, með eða án nagla, .undir bílinn nú þegar. Vinnustofa vor er opin alla daga frá kl. 7,30 til kl. 22. Kappkostum að veita góða þjón- ustu með fullkomnustu vélum sem völ er á. GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f. Skipholti 35 — Sími 3-10-55. JOHNS • MANVILLE Glerullareinangrunm BILAVIÐGERÐIR Réttingar, Doddýviðgevði: aimenn viðgerðaþjón usta. — Pantið ■ tima » nma H7260 Bifreiðaverkstæði VAGNS GUNNARSSONAR Síðumúls 13. Hieir ot úein oota Jotins Manville síierullareinangrun- uia meh álpappirnum haob ei'- oeztn elnangrunar- efrr.í lafnframi það ■ ai,?OflVrasta Þe. alika fyrir 4” J M glerul og 2Vi’’ frauð- Dlajreir.angrur os fáið auk ’j-'.c? aipappú með Hagkvaemr greiðsluskilmálar Sennum uir íand allt — Jaínve) <1i>gfrag» borgar sig. Jón Loftsson hf. tir rgbraui 121 Simi 10600. Asureyn: G erárgótu 26 Simi 21344. RAFVIRKJUN Ný.'dgmi og viðgerðir — Simi 418711 — Þorvaldur Hafberg rafvirkjameistari. Guðrún Bjarnadottir Guðrún Bjarnadóttir fyrrum hús freyja að Laugum í Hraungerðis hreppi andaðist 8. októtoer s. 1. á Sjúkrahúsi Selfoss eftir alllanga vanheilsu 81 árs að aldri og var jarðsett að Hraungerði laugardag 14. sama mánaðar, að viðstöddu fjölmenni. Guðrún var fædd að Túni í Hraungerðishreppi 3. október 1886. Voru foreldrar hennar hjón in í Túni Bjarni bóndi, Eiríksson ar bónda þar og Guðfinna Guð- mundsdóttir bónda í Hróarsholti, Tómassonar prests í Villinga'holti. Voru og eru þetta traustar og vel virtar ættir. Börn þeirra Túns- hjóna voru mörg og urðu öll merk og vel virt. Stendur sá ættmeiður með miklum blóma og teygir lim sitt víða. Guðrún ólst upp í föðurgarði í hópi sinna gjörvilegu systkina, sem öll tóku ung að aldri, að reyna kraftana, enda sá einn kost ur fyrir hendi að duga sem bezt því'mörg þeirra voru á bemsku aldri þegar faðir þeirra drukknaði ásamt félögum sfnum í fiskiróðri frá Stokkseyri á vetrarvertíð. Þegar Guðrún var uppkomin þá hrá hún sér öðru hverju að heim an til dvalar á ýmsum stöðum, en á'tti heimili sitt í Túni. Hún varð fyrir því óhappi eins og margir af. hennar kynslóð að smitast af berklaveiki og af þeim sökum dvaldi hún úm skeið á Vífilsstaða hæli. Hún yfirvann sjúkdóminn, en varð þó aldrei heilsusterk. Kom þar einnig til, að hún þjáðist um mörg ár af magasári og gekk loks undir mikinn holskurð sér til lækninga. Táp hennar sigraði í þeirri raun og hún fékk fullan bata. Árið 1927 giftist Guðrún Gísla Illugasyni bónda á Laugum, en hann var um það leyti að taka við búi af foreldrum sínum Illuga Jóhannssyni ættuðum úr Suður- Þingeyjarsýslu og Guðbjörgu Gísladóttur hreppstjóra í Bitru. Þótti mikið jafnræði með þessum ungu hjónum. Gísli var athafna maður til allra starfa. Lærður trésmiður, hinn bezti bútoöldur og svo hugljúfur drengskaparmaður, að hann eignaðist hvers manns vináttu. Guðrún var frið k'ona, hress og glöð í viðmóti, einörð og hreinskilin. Naut hún virðingar vegna fyrirmanmlegrar framkomu og traustra kvemlegra dyggða og hæfileika. En, skjótt brá sól sumri í lífi HBPPDRIEITI SfBS DREGIÐ Á MÁNUDAG OPIÐ TIL KL. 22 Á FÖSTUDAGSKVÖLD EnDURHVJUn LVKUR RHRDEGI DRRITRRDRGSI þessara ungu hjóna og dökka bliku dró á loft. Eftir þriggja ára samhúð þeirra andaðist Gísli af völdum krabbameins í maga. Stóð hann í þeirri þrautafullu baráttu lengur en stætt var og gekk til móts við örlög sín æðru laus. Var hann öllum harmdauði, en engum þó meir en konunni, sem fyrir þremur árum hafði gerzt brúður hins góða drengs, en var nú orðin ekkja og móðir umgrar dóttur. Sár og þung var einnig sorg foreldra hans, sem voru öldr uð orðin og þrotin að kröftum. Allir sem Guðrúnu þekktu vissu, að hún var þrátt fyrir tæpa heilsu gædd skapstyrk og vilja þreki, enda komu þeir hæfileikar nú í góðar þarfir. Hún hélt áfram búskap og var svo heppin, að fá til bús með sér frábæran iðju- og búsýslumann Ástgeir Björnsson. Henni tókst að veita tengdaforeldrum sínum skjól og hjúkra þeim í ellinni og hjá henni luku þau ævi sinni. Guðrún brá búi árið 1943 og var það marga vetur ráðskoma , heima vistarbarnaskóla sveitar sinnar og gégndi ýmsum störfum á sumrum meðan kraftar leyfðu. Lengst var hún við matreiðslu- og heyvinnu störf hjá Eiríki Bjarmasyni á Selfossi á búi hans að Árbæ í Ölfusi. Guðrún var mjög stjórn söm og föst fyrir og vakti virðingu og traust á sér. Hún var því ákjósanleg ráðskona í heimavistar barnaskóla. Hún hlaut eins og hér hefur verið drepið á mikla og erfiða lífsreynslu, en lét aldrei bpgast og hélt reisn sinni, kjarki og virðuleik. Henni veittist sú gæfa í hinu skamvinna hjónabandi, að eignast með manni sínum myndarlega og góða dóttur og að fá, að njóta samvista við hana því hjá Guð- björgu dóttur sinni og Skúla Magn ússyni járnsmið á Selfossi tengda syni sínum átti hún heimili og gladdist þar hin síðari árin meðai annars af því, að lltill dótturson ur Gísli að nafni lék sér við kné hennar og settist í kjöltu ömmu simnar. Slíkur sólargeisli á ævi- kvöldinu var mikil harmabót. Blessuð sé minning merkrar konu. Ágúst Þorvaldsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.