Tíminn - 02.11.1967, Síða 16
250. tW. — FímmKidagur 2. oóv. 1967. — 51. órg.
BANASLYS
í KUAGERÐI
FB-Revkfavík, miðvikudag.
Um klukkan 7,15 í kvöld
varð banaslys í Kúagerði sunn
an við Hafnarfjörð. Tildrög
slyssins voru þau að vörubíll
úr Keflavík, með hlass á, hafði
orðið að stanza í Kúagerði.
Skömmu síðar kom annar bítl
úr Keflavtk, og lenti sá aftan
undir hinn kyrrstæða vörubíl.
Einn maður var í bílnum, og
mun hann hafa látizt sam-
stundis, samkvæmt upplýsing
um lögreglunnar í Hafnar-
firði.
NAUTGRIPABÍLL VALT -
LÓGA VARD ÞREM GRIPUM
KJ—Reykjavík, miðvikudag.
Um hádcgisbiliS í gær vildi
það óhapp til á þjóttveginum
skammt vestan vi8 Vorsabæ í
Austur-Landeyjum í Rangár-
vallasýslu að stórgripaflutninga
bill frá Sláturfélaginu valt og
varð að lóga þrem nautgrip
um á staðnum, af þeim sökum.
Flutningabíllimi var með 15
nautgripi á palli á leiðinni und
an Eyjafjöllum og í sláturhús
SS í Djúpadal f Rangárvalla
sýslu. Orsök þess að bállinn
valt, var sú að stýriskúla brotn
aði í bílnum. Húsið á biTnum
lagðist svo til saman, en samt
slapp bifreiðarstjórinn með
skrámur. Sömuleiðis slapp mað
ur, er var á palli bifreiðarinnar
með skrámur. Fyrst í stað virt
ist svo sem allt væri í lagi með
nautgripina, en þegar betur
var að gáð, kom í ljós að óhjá
kvæmilegt var annað en að
lóga þrem þeirra á staðnum.
Vestur-Landeyingar
fá vatnii á föstudag
FB—Reykjavík, miðvikudag.
Á föstudaginn verður vatni
hleypt á vatnsveitu þá, sem Aust
ur-Landeyingar hafa lagt um
sveit sína út frá vatnsveitu Vest
mannaeyinga, sem er frá Syðstu
Mörk í Vestur-Eyjafjallahreppi.
Nú munu um 40 bæir í Land
Akranes
Framsóknarfélag Akraness held
ur skemmtisamkomu í félagshcim
ili sínu að Sunnubraut 21, sunnu
daginn B. nóv. n. k. kl. 8.30 Spil-
uð verður framsóknarvist og sýnd
ar kvikmynrfir. ÖHum heimill að-
gangur meðan húsrúm leyfir
eyjunum fá vatn frá þessari veitu
og hafa vatnsleiðslumar og heim
æðar verið lagðar í surnar, en
byrjað var á vatnsveitugerðinni
í fyrrasumar. Ekki er gert ráð
fyrir að Veslmannaeyingar sjálfir
fái vatn úr þesari veitu fyrr en
einhvern tíma á næsta sumri, og
er aðalástæðan sú, að afgreiðsla
iei&sla þeirra, sem eiga að liggja
í sjónum milli landis og Eyja taifð
ist mikið.
f sumar liefur verið unnið að
undirbúningi að vatnsveitulögn-
inni í Vestmannaeyjum, og byggja
menn miklar vonir við þessa vatns
veitu, par sem Vestmannaeyingar
hafa hingað til orðið að láta sér
nægja rigningarvatn til neyzlu,
sem þeir hafa safnað af húsþök
um í bænum.
Kjördæmisþing aö Flúðum
Framsóknarmenn i SuSurlandskjördæmi halda kjördæmisþing að Flúð-
um sunnudaglnn 5. nóv. og hefst það kl. 10 f. h.
Slökkviðliösmenn að störfum á brunastað við Aðal stræti 9 í fyrrinótt.
(Tímamynd G. E.)
MIKLAR BRUNASKEMMD-
IR IAÐALSTRÆTI 9
Konu bjargað út á náttklæðum einum
KJ—Reykjavík, miðvikudag.
Geysilegt tjón varð í timb-
urhúsinu Aðalstræti 9 I nótt
er eldur kom upp í húsinu.
Eidri konu sem bjó í rishæð
hússins var naumlega bjargað
á nærklæðunum út um glugga,
en hún var cini íbúi hússins.
f húsinu höfðu verzlunarfyrir
tæki aðsetur, þar voru níál-
flutningsskrifstofur og Gilda-
skálinn, og er talið fullvíst að
eldsupptökin hafi verið í eld-
húsi Gildaskálans.
Rrunakallið barst til Slökkvi
stöðvarinnar klukkan 01.19 í
nótt og var hringt frá nokkr
um stöðum. Þá þegar var ijóst
að um mikinn eld hlyti að vera
að ræða, og var allt lið Slökkvi
liðs Reykjavíkur kvatt út, auk
þess sem leitað var aðstoðar
Slökkviliðsins á Reykjavíkui--
víkurflugvetli. Er Slökkviliðið
var komið á staðinn var vitað
að fólk byggi í húsinu, og
strax gerðar ráðstafanir til að
bjarga því. Aðeins ein kona
var heima, og var henni bjarg
að á nærklæðunum út um
glugga, niður stiga stigabílsins
sem reistur hafði verið við
húsið. Auk þess var gerð
frekari leit að fólki í húsinu,
en engir aðrir reyndust vera
í húsinu. Mikili eldur var á
jarðhæð hússins þegar að var
komið, og þá sérstaklega i
veitingastofu Gildaskálans. Hús
ið var fullt af reyk, en eldur
inn hafði þá ekki borizt upp á
hæðirnar. Beðið var um aðstoð
körfubíla frá Rafveitunni og
Kol og Salt, og í þann mund
sem þeir komu á staðinn, var
eidiurinn farinn að teygja sig
upp á hæðirnar, og var þá
hægt að ráðast að honum 1
gegnum glugga á annarri hæð
inni. Er talið að eldurinn hafi
komist upp á aðra hæð um
stigagang.
Við slökkvistarfið voru notað
ir tíu slökkvibílar, sjö frá SR
og þrír ‘frá Reykjavíkurflug-
velli, auk tveggja kraftmikilla
dæla. Var gott um vatnsöflun
þarna í nágrenninu og góður
þrýstingur á vatninu og því
Framhald á bls 14
FRAM-
SÓKNAR-
VISTIN
FRAMSÓKNARFÉLAG REYKJAVÍKUR GENGST FYRIR FRAMSÓKNARVIS7 AÐ HÓTEL
SÖGU í DAG, FIMMTUDAGINN 2. NÓV. — GOÐ VERÐLAUN. - hÚSIÐ OPNAÐ KL. 8. —
8YRJAÐ AÐ SPILA KL 8,30. — AÐGÖNGUMIÐA ÞARF AÐ PANTA I SÍMA 24480 OG
VISSAST ER AÐ GERA ÞAÐ SEM FYRST. — STJÓRNANDI VlSTARINNAR ER ÓSKAR
JÓNSSON, FULLTRÚI SELFOSSI. — ÁVARP FLYTUR VILHJALMUR HJALMARSSON,
ALÞINGISMAÐUR.
I