Tíminn - 16.12.1967, Side 16
imitni
288. tbl. — Laugard-'nir 16. des. 1967. — 51. árg.
SAFNRIT KOMIÐ
UM HAFÖRNINN
IGÞ-Reykjavik, föstudag.
Komin er út sérlega vönduð
bók Um haförninn, sem Birgir
Kjaran hefur tekið saman og Bók
fellsútgáfan gefur út. Aðalhöfund
ur auk Birgis er Finnur Guð-
mundsson, en í síðari hluta bók-
arinnar eru birtar frásagnir og
munnmæli um þennan konung há-
loftanna, og amarljóð eftir fimm
stórskáld frá öldinni sem leið.
Birgir skrifar formála og eftir-
mála, en Árni Böðvarsson hefur
gert bókarauka, sem nefnist
„Nokkur orð um heiti arnarins".
Atli Már hefur séð um útlit bók-
arinnar og myndskreytt hana.
Birgir Kjaran skýrði frá út-
komu bókarinnar á fundi með
blaðamönnum, ásamt Finni Guð-
mundssyni og Atla Má. Sagði
Birgir m. a.. að það væri von
hans, að þessi bók yrði til að
glæða áhuga fyrir því að láta
örninn í friði. Aðrir höfundar en
þeir Birgir og Finnur eru einir
tólf að tölu, allt menn, sem hafa
búið í nábýli vi@ erni, og lýsa
þeir viðkynningunni í kaflanum
„Frásagnir og munnmæli“.
Stærstan hluta Ijósmynda í bók-
inni tók Björn Bjömsso-n frá
Norðfirði. En í henmi eiga líka
myndir Magnús Jóhannsson, Birg-
ir og Finnur og Gísli Gestsson,
safnvörður, sem tók myndir úr
Þjóðminjasafni. Þá eru þama
prentuð tvö málverk af erninum,
er annað eftir HDöskuld Bjöms-
son, en hitt eftir Guðmund Ein-
arsson frá Miðdal.
Birgir sagði, að sivona verk
væri hvergi nærri tæmandi, en
það væri sikrifað til að vekja at-
bygli á erninum, oe þeirri hættu,
sem hann væri í, og til að reyna
að tryggja það, að hans biðu ekki
sömu örlög og geirfuglsins.
Finnur Guðmundsson uppiýsti
að Örninn hefði verið alfriðaður
frá því árið 1918. Samt hefði
þessi friðun ekki leitt til fjölgun-
ar, þótt hún á hinn bóginn hefði
sennilega komið í veg fyrir að
örninn væri aldauða í dag. Fugl-
inn tímgast hægt og margt verð
ur honum að fjörtjóni, jafnvel
brögð að því að hann sé skotinn,
sagði Finnur. Nú er tali®, að 40—
50 erair séu í landinu, og miá á
því sjá, að ekki má mikið út af
bera.
Tveir starfsmenn SVR vinna að því að koma keðjum á vagn.
(Túnamynd GE)
Hiti í strætisvaanabílstjórum út af „keðjumálinu"
SEGJAST EKKI
FÁ KEÐJURNAR
Birglr Kjaran
EJ-FB-Reykjavík, föstudag.
í gær og dag hefur verið mikill
urgur í strætisvagnabílstjórum f
Reykjavík vegna útbúnaðar stræt-
isvagnanna í hálku. Komst málið
á hástig, þcgar eitt blaðanna í
Reykjavík hafði það eftir Ragnari
Þorgrímssyni, einum eftirlits-
manni Strætisvagnanna, að bíl-
stjórarnir beri ábyrgð á örýggis-
útbúnaði vagnanna, og „ef einhver
hefði beðlð um keðjur, hefði hann
fengið þær“. Þessi fullyrðing hef-
ur komið strætisvagnabflstjórum
mjög á óvart, þar sem þeir hafa
engar keðjur fengið, þótt þeir
bæðu um þær, eftir því sem
nokkrir strætisvagnabflstjórar
tjaöu blaðinu i dag.
Ljóst er, að strætisvagnabílstjór
arnir bera ábyrgð á bifrei® þeirri,
er þeir aka. Þeir éiga því að sjá
um að ökutækin hafi fyllsta ör-
yggisútbúnað. í mikilli hálku und
anfarið hefur verið ábótavant í
þessu efni. Er það einkum, að
keðjur á bifreiðarnar eru ekki
fyrir hendi. Að vísu mumu til ein
hverjir „keðjugarmar", eicis og
einn bílstjórinn orðaði það, en
þær eru of litlar fyrir snjódekk.
Því er það, að bflstjórar, sem
beðið hafa um keðjur í flughálku,
hafa ekki fengið þær. í gær voru
tvö góð dsemi um það.
í öðru tilfelli var um að ræða
strætisvagnaíbilstjóra, sem lenti í
árekstri á laugardaginn vegna
hálku. f gær vildi hann ekki una
þessu lengur og bað um keðjur,
Þær fékk hann ekki. Eftir nokkra
orðasenna við eftirlitsmann, fór
svo að yfirmaðurinn ók bifreið-
inni sjálfur, og sagði bílstjóran-
um að fara heim. Bilstjórinn
hringdi þá í Bifreiðaeftirlitið og
skýrði því frá ástandi vagnsins,
en hjólbarðar a® framan munu
hafa verið mjög slitnir í þokka-
bót.
Bílstjóri á annarri leið bað líka
um keðjur, og var honum svarað
■því, að hann væri ekki hæfur til
að aka. fyrst hann þyrfti keðjur,
dagar til jóla
og var þá annar miaður settur á
bílinn.
Þessar aðfarir allar — og yfir-
lýsing Ragnars í áðurnefndu vi@-
Framhald á 14. sí@u
HITAVEITll-
FUNDUR Á
MIÐVIKUDAG
EJ-Reykjiavík, föstudag.
Só almenni fundur, sem Hlús-
eigendafélag Reykjaivíkur hefur
'boðað til um hiibaveitumálin, verð
ur haldinn á mi@vikudagiinn í Sig-
túni og hefst kl. 20,30.
Á fundi þessum mæta þeir Geir
líallgrímsson, borgarstjóri og
Jóhannes Zoega, hitaveitustjóri,
og gera grein fyrir hitaveitumál-
unum frá sjónarmiði borgaryfir-
valda. Eru allir velkomnir á þenn
an fund.
KRISTINN FINNBOGASON
ENDURKJÖRINN FORMAÐ-
UR FRAMSÓKNARFÉL. R.
FB-Reykjavík, föstudag.
Aðalfundur Framsóknarfélags
Reykjavíkur var haldinn í Fram-
sóknarhúsinu við Fríkirkjuveg
fimmtudaginn 14. des. s. 1. For-
maður, Kristinn FinnbogaSon,
setti fundinn og skipaði Jón A.
Ólafsson fundarstjóra og Sigurð
Björnsson fundarritara.
í upphafi skýrslu formanns
minntist hann látinna félaga á
árinu og risu fuadanmenn úr sæt-
um og vottuðu þeim virðiagu sína.
f skýrslunni kom fram, að starf-
semi félagsins hafi verið mjög
fjölbreytt á árinu, og að yfir 6000
manns hefðu sótt fumdi og skemmt
anir félagsins á starfsárinu.
Gjaldkerj félagsins, Þórður
Hjaltason, flutti skýrslu um fjár-
hag félaigsins og kom í ljós, að
hann var mjög góður. Þá fór fram
stjórn'arikosniing. Kristinn Finn-
bogason var endurkjöriam formað-
ur og aðrir í stjórm me® honum
Jón S. Pétursson. Hanmes Páls-
son, Kristján Friðrdksson, Jónas
Jónssoa, Þórður Hjaltason og
Jón A. Ólafsson. í varastjórn
Björn Stefánsson, Markús Stefáns
9on, Eimar Eysteimsson og Gissur
Gissurarson. Endurskoðendur
Ólafuir Kristjámsson og Sigurður
Jóhannesson. Þá voru kosnir 49
fulltrúar í fulltrúaráð Framsókn-
arfélaganma. Þá samþykkti fumd-
urinn, að gera 17 af elztu félög-
um félagsins að æviflélögum.
Að Loknum aðalfundarstörfum
flutti Kristján Benediktsson borg
arfuiltrúi ræðu um fjárhagsáætl-
un Reyk j avíkurborgar fyrir árið
1968 og svaraði síðan fyrirspurn-
um fumdarmammia.
mm
Glæsilegasta bingóið!
VINNINGAR AÐ VERÐMÆTI YFIR 100 ÞÚSUND KRÓNUR DREGNIR ÚT
Einar
Ágústsson
Jólabingó Framsóknarfélags
Reykjavíkur verður að Hótel
Sögu annað kvöld, sunnudag,
og hefst kl. 20,30. Stjórnandi
verður Baldur Hólmgeirsson.
Meðal vinninga eru: Þvottavél,
Faeo-herrafatnaður, Coróna-föt,
Gefjunarföt, kvenkjóll úr
Karnabæ, Rómer-kvenúr, plötu
spilarj, hárþurHia, Vicomat-
kaffivél, útvarpstæki, útvarps-
borð, flugfar með Loftleiðum
til Kaupmannahafnar og heim
aftur, sex glæsilegar matar-
körfur með jólamat, gjafakort
frá Rímu, Ritsafn Jóns Trausta,
ávextir, segulband, brauðrist,
leikföng, Lesbók Tímans frá
upphafi og fleira og fleira.
Að loknu bingóspili flytur
Einar Ágústsson ávarp og síðí>n
verður dansað til kl. 1 eftir
miðnætti. Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar leikur. Aðgöngu-
miða má fá á skrifstofu Fram-
sóknarflokksins, Hringbraut 30.
og afgreiðslu Tímans, Banka-
stræti 7, til kl. 12 á hádegi og
á Hótel Sögu í dag frá kl. 4 til
6 og sunnudag frá kl. 5 síðd.
Baldur
Hólmgeirsson