Alþýðublaðið - 13.10.1988, Qupperneq 13
Fimmtudagur 13. október 1988
13
legt slys ef þessi auðlynd
væri eyðilögð. Fleira má
nefna, eins og t.d. verslunina.
Það hefur ekki verið gert
neitt heildarskipulag á
verslun á höfuðborgarsvæð-
inu, hvað þá að það hafi í því
tilliti verið tekið tillit til sam-
gangna, til að auðvelda fólki
sem t.d. ferðast með almenn-
ingsfarartækjum að komast
að þessum verslunarstöðum.
Menn hafa um tvo kosti að
velja sem stendur viövíkjandi
svæðisskipulagi höfuðborg-
arsvæðisins. Annar er sá að
gera eins og strútarnir,
stinga höfðinu í sandinn og
gera ekki neitt. Það kostar
auðvitað ekki neitt en kemur
hinsvegar til með að koma í
bakið á okkur með marg-
földum kostnaði á við það
sem heildarskipulagning
myndi kosta. Á hinn bóginn
geta menn byrjað að velta
þessum vandamálum fyrir
sér í alvöru og rannsaka hvað
hinar ýmsu breytingar hefðu í
för með sér. Það gerist að
vísu ekki öðruvísi en með
mun nánari samvinnu þess-
ara sveitarfélaga sem héreiga
hlut að máli og sömuleiðis
með því að hið opinbera, ríkið,
hætti að skipta sér af smá-
málum í hverju sveitarfélagi,
hvort bílskúrsþak megi halla
svo og svo mikið o.s.frv.,
heldur einbeiti sér að því að
mynda heildarstefnu viðvíkj-
andi þróun þessasvæðis sem
einstök sveitarfélög gætu
síðan unnið eftir.“
HLUTUR HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS AF ÍBÚA-
FJÖLDA LANDSINS.
1 þykkt beina eykst þar til um
dur. Mikilvægt erað bein hafi
ilum styrk og þroska þegar
m ágerist. Einnig verðurað
oess að fá nægilegt kalk úr
)unni til að hamla á móti
beingisnun.
\
, ' * 70
é '1
^ m,t
m
Við eðlilegar aðstæður getur
mjólk dregið úr tannskemmd-
um. Hið háa hlutfall kalks,
fosfórs og magnium er
verndandi fyrir tennurnar.
Hvernig
ertu inn
viö beinið?
Hefurðu hugsað út í það að beinin eru kalkbanki
líkamans-banki sem er í stöðugri endumýjun, líka
á fullorðinsárum. Ef líkaminn fær ekki nægilegt kalk
úr fæðunni gengur hann á forða kalkbankans
og úrkölkun beina (beingisnun) á sér stað. Þess
vegna er afar mikilvægt að tryggja sér nægilegt
magn af kalki úr fæðunni alla ævi.
Mjólk og mjólkurvörur eru lang mikilvægasti
kalkgjafinn og alhliða næringargildi mjólkurinnar er
með því besta sem við þekkjum.
Kalkþörfin er mismunandi eftir kyni og aldri frá 2-4
mjólkurglös á dag.
Tilþess að beinabygging verði eðlileg
þarfhlutfall hinna ýmsu steinefna í
fæðunni að vera rétt.
I mjólk eru þessi hlutföll mjög
hagstæð.