Alþýðublaðið - 05.11.1988, Page 8
MÐUBieiB
Laugardagur 5. nóvember 1988
Gatasigtið ríkissjóður
KRAFLA ER KOMIN TIL ÚTLANDA
Nokkur vel valin orð um nkisútgjöld fyrr og síðar — er munur á því hvað við eyðum nú
og hvað við eycldum fyrir 10 árum? Ó já .
Rikissjóöur íslands ætlar
aö leggja út i 76.131 milljón
króna útgjöld á næsta ári.
Megnið af þessum útgjöldum
eru mörkuö af lögum og tak-
markað sem rikisstjórnirnar,
hægri eöa vinstri eftir atvik-
um, geta umbylt á stuttum
tíma. Á siðastliðnum áratug
hafa á hinn bóginn átt sér
stað mikilvægar breytingar á
rikisútgjöldunum sem ekki
sjást greinilega ára á milli.
Róttækustu breytingarnar
felast i milljarða samdrætti i
útgjöldum til samgöngumála,
iðnaðarmála, niðurgreiðslna
og dóms- og kirkjumála, en
aukningu á útgjöldum til heil-
brigðis- og tryggingamála,
félagsmála og menntamála.
Útgjaldaaukning er þó allra
mest vegna afborgana og
vaxta af erlendri lántöku rik-
issjóðs og gildir þá einu
hvaða ríkisstjórn hefur staðið
fyrir þeim.
Hvorki svo kallaðar hægri
né vinstri stjórnir hafa haldið
aftur af vexti ríkisútgjalda
sem hlutfall af þjóðarfram-
leiðslu, þótt undantekningar
finnist fyrir einstök ár. Svo
skilgreint geta allar stjórnir
flokkast undir skattauka-
stjórnir báknsútvikkunar.
Sjálfstæóisflokkurinn er jafn
sekur um að hafa aukið
skatta og rikisútgjöld og Al-
þýðubandalagió og Alþýðu-
flokkurinn um að skera niöur
félagsleg útgjöld þegar því
hefur verið að skipta. Fram-
sóknarflokkurinn hefurein-
faldlega tekið þátt i hverju
því sem rekið hefur upp á
fjörur.
VAKNAÐ AF ORKUDRAUMI
Á hverju ári er gert átak á
tilteknum sviðum. Stökk-
breytingar segja þó litla
sögu. A undanförnum árum
hafa gifurlegar breytingar á
ríkisútgjöldum átt sér stað
smám saman. Kökunni
frægu, hversu stór sem hún á
annað borð er, er nú skipt
upp á allt annan hátt en fyrir
fáeinum árum, þótt meginlín-
an sé í flestum atriðum hin
sama. Stærsta breytingin
felst í fráhvarfi frá orku-
draumnum stórtæka um leið
og nútíminn er aö greiöa of-
fjárfestingu fyrri ára dýru
verði. Við erum að tala um
þúsundir milljóna króna.
í nýframlögðu fjárlagafrum-
varpi er gert ráð fyrir 76.131
milljón króna útgjöldum. í
æðstu stjórn ríkisins, þ.e. til
embættis forseta íslands, Al-
þingis, ríkisstjórnarinnar og
fleira, á að nema 601,6 millj-
ónum króna eða 0,79% út-
gjaldanna. Hlutfallið hefur
farið lækkandi, var að meðal-
tali 0,94% á tímabilinu 1979-
1982. Ef sama hlutfall heföi
gilt fyrir nýframlagt frumvarp
hefðu útgjöldín verið um 114
milljónum krónum hærri.
Þótt kakan hafi stækkað tek-
ur æðsta stjórnin því hlut-
fallslega minni skerf en áður.
SVAVAR OG DENNI FAGNA
Til forsætisráðuneytisins
eiga á næsta ári að fara 718,3
milljónir króna eða 0,94% út-
gjaldanna. (fjárlögum yfir-
standandi árs var hlutfallió
0,34%. Munar auðvitað
mestu um 500 milljón króna
framlag til hins umdeilda At-
vinnutryggingasjóðs útflutn-
ingsgreinanna. Hlutfallið
hafði lækkað þar áður, en
verður nú svipað og á árun-
um 1979-1982.
Menntamálaráðuneytið á
að fá 12.324 milljónir króna á
næsta ári eða 16,19% út-
gjaldanna. Hlutfallið hefur
hækkað að undanförnu, var á
síðasta áratugi lægst að
meðaltali árin 1983-1987 eöa
15,40%. Ef það hlutfall gilti
nú færi um 600 milljónum
færri krónur í ráöuneytið á
næsta ári en frumvarpið gerir
ráð fyrir. Á hinn bóginn er
hlutfallió nú íviö lægra en í
fjárlögum yfirstandandi árs.
Utanríkisráðuneytið tekur
almennt ekki miklum sveifl-
um. Stóru liðirnir þar eru lög-
gæslan á Keflavíkurflugvelli,
sendiráðin og alþjóðastofn-
anirnar (t.d. þróunarhjálpin).
Nú á ráðuneytið að taka til
sín 850,2 milljónir króna eða
1,12% útgjaldanna. Hlutfallið
var 1,27% á árunum 1983-
1987 og á því aö lækka litil-
lega, en hærra hlutfallið gæfi
þó 117 milljónum fleiri krónur
á næsta ári.
FÓGETAR OG RÆNDUR SÁRIR
Hið umdeilda landbúnaðar-
ráðuneyti tekur til sín æ
færri krónuren útflutnings-
uppbætur er stærsti liður
ráðuneytisins. Ráðuneytið á
að fá til sín 2.778 milljónir
krona á næsta ári eóa 3,65%
útgjaldanna. Á árunum 1979-
1982 var hlutfallið að meðal-
tali 4,55% og það hlutfall
gæfi árinu 1989 alls 3.464
milljónir króna. Niðurskurður-
inn er því um 686 milljónir
króna frá þeim árum.
Sjávarútvegsráðuneytið
hefur stundum virst nafli
landsmálanna. Þó á það nú
„aðeins" að fá 2,14% útgjald-
anna eða 1.632 milljónir
króna. Ráðuneytið fær nú
heldur meiri skerf en fyrir
nokkrum árum og fékk 1,74%
að meöaltali árin 1979-1982.
Slíkt hlutfall gæfi á næsta ári
307 milljónum færri krónur á
næsta ári en frumvarpið seg-
ir.
Dóms- og kirkjumálaráöu-
neytið hefur þurft að mæta
niðurskurði hlutfallslega,
þjóðkirkjan að vísu undan-
skilin. Ráðuneytiö skal fá á
næsta ári 3.417 milljónir
króna eða 4,49% útgjald-
anna. Hlutfallið var 5,90% að
meðaltali árin 1979-1982 og
hefði það hlutfall þýtt 4.492
milljónir á næsta ári. Má því
segja að ráóuneytið eigi að
fá rúmlega 1 milljarði minna
en þegar best lét síðustu ár-
in. Munar um minna.
FÉLAGSMÁL OG
HEILBRIGDISMÁL í ÖNDVEGI
Félagsmálaráðuneytið
snertir margan manninn sem
stendur í húsnæðismálum og
sveitastjórnir landsins mæna
þangað títt. Mikið átak var
gert í peningum talið árið
1985 í útgjöldum bygginga-
sjóðanna en það átak hefur
hlutfallslega dregist saman.
Á næsta ári stendur til að
ráðuneytið verji til sinna
mála 3.254 milljónum króna
eða 4,27% útgjaldanna. Það
er lægra hlutfall en gilti að
meðaltali 1983-1987, en á ár-
unum 1979-1982 var hlutfalliö
„aðeins" 2,92%. Frá þeim
tíma á þvi nú að verja rúm-
lega 1 milljarði fleiri krónum,
þótt hlutfallið hafi lækkaö frá
því sem það var hæst.
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið er fjárfrekast
allra ráðuneyta og kannski
ekki að undra. Rúmur helm-
ingur rennur til Trygginga-
stofnunar ríkisins vegna
tryggingamálefna, en þaö
hlutfall fer þó lækkandi.
Ráðuneytió fær í heild á
næsta ári 29.605 milljónir
króna eóa 38,89% útgjald-
anna. Utgjöld ráðuneytisins
voru að meðaltali 36,49% ár-
in 1983-1987. Slíkt hlutfall
heföi gefió 1.825 milljónum
færri krónur á næsta ári en
fyrirhugað er. Þess má geta
að hlutfall tryggingamála hef-
ur Iækkað úr 28,5% í 23% á
sama tíma og hlutfall heil-
brigðismála hefur hækkað úr
8,25% i 15,71%. Áherslur
hafa því breyst innan ráöu-
neytisins undanfarin ár.
Fjármálaráðuneytið á að fá
3.627 milljónir á næsta ári
eða 4,76% útgjaldanna.
Stærstu liðirnireru uppbæt-
ur á lifeyri og „launa- og verð-
lagsmár. Þetta samsvarar í
heild rúmlega 600 milljónum
fleiri krónum en lög ársins
gera ráð fyrir.
RÁÐUNEYTIN SEM MÆTA
AFGANGI
Samgönguráðuráðuneytið,
iðnaðarráðuneytið og við-
skiptaráðuneytið hafa á und-
anförnum árum þurft að
mæta umtalsverðum niður-
skurði, ráðuneytin 3 hátt í 10
milljarða króna miðað við eitt
ár. Samgönguráðuneytið, þar
sem vegamálin vega þyngst,
á að fá 4.877 milljónir króna á
næsta ári eða 6,41% útgjald-
anna. Hlutfall ráðuneytisins
var hins vegar 9,70% að með-
altali árin 1979-1982. Slikt
hlutfall gæfi ráöuneytinu nú
2.508 milljónum króna fleiri
krónur, þar af 1.851 milljónir
vegna vegamála.
lönaðarráðuneytið er varla
svipur hjá sjón nú orðið. Það
á að fá á næsta ári 1.220
milljónir króna eða 1,60% út-
gjaldanna. Árin 1979-1982,
þegar sjálfstæðismenn voru
með ráðuneytið 1983-1987 var
hlutfallið að meðaltali 7,09%.
Slíkt hlutfall nú gæfi alls
5.400 milljónir króna og blas-
ir því við að ráðuneytið hefur
verið skorið niður um rúm-
lega 4 milljarða króna frá þvi
sem best lét. Þarna er aö
finna mestu breytinguna á út-
gjöldum rlkisins á undanförn-
um árum og nær allt á sviði
orkumálanna — Kröfludraug-
urinn er að komast í bönd.
Útgjöld viðskiptaráðuneyt-
isins hafa að mestu verið
fólgin í niðurgreiðslum og
styrkjum. Níðurgreiöslur hafa
farið lækkandi til muna á
undanförnum árum en hald-
ast um það bil 97% af út-
gjöldum ráðuneytisins. Á
næsta ári á ráðuneytið að fá
3.714 milljónir króna eða
4,88% útgjaldanna. Hlutfallið
var hins vegar 8,50% að með-
altali á árunum 1979-1982 og
slíkt hlutfall hefði á næsta
ári gefió rúmlega 6.300 millj-
ónir króna. Niðurskurðurinn á
þeim slóðum samsvarar því
nær 2,6 milljörðum króna frá
þeim tíma.
ARFUR BARNANNA GJÖRIÐi
SVO VEL
Sá liður sem ekki síst hef-
ur bundið hendur fjármála-
ráðherranna og annarra
stjórnarherra nefnist því sak-
lausa nafni „Fjárlaga- og hag-
sýslustofnun". Sú stofnun
annast æ vaxandi erlendar
lántökur ríkissjóðs, þ.e. að sjá
um afborganir og vexti þess-
ara lána. A næsta ári verður
samkvæmt frumvarpinu varið
7.422 milljónum króna til
þessa óvinsæla „ráðuneytis“
eða 9,75% útgjaldanna.
Þarna má tala um umturnun,
þvi á árunum 1979-1982 var
hlutfallið „aðeins" 2,56%.
Slíkt kærkomið hlutfall hefði
þýtt 1.950 milljón króna út-
gjöld á næsta ári. Því má
segja að afborganir og vaxta-
greiðslur af erlendum lánum
hafi heft ríkissjóð um tæp-
lega 5,5 milljarða á einu ári.
Þetta samsvarar í hnotskurn
því sem ríkisstjórnin ætlar á
næst árf að verja til húsnæð-
ismála, sjávarútvegsmála,
menningarmála og iðnaðar-
mála. Það samsvarar um leið
öllum niðurskurðinum til
samgöngumála og niður-
greiðslna og rúmlega það,
FÞG
ÞANNIG SKIPTAST RÍKISÚTGJÖLDIN Ef lesandinn ímyndar sér að ríkisútgjöldin samsvari 100 krónum í hvert skipti getur hann séð á eftirfarandi töflu hvernig ríkisstjórnirnar hafa varið þeim krónum. Taflan gefur ekki til kynna umfang ríkisútgjaldanna heldur hvernig kökunni hefur verió skipt, annars vegar 1979-1982, á árum „vinstri" stjórna og hins vegar 1983-1987, á tímum „hægri“ stjórna, sam- kvæmt ríkisreikningum og síðan skiptingin samkvæmt fjárlögum fyrir yfirstandandi ár og samkvæmt nýframlögðu fjárlagafrumvarpi. Þannig má sjá að af hverjum 100 krónum ætlar núverandi stjórn að verja 55 krónum og 8 aurum samtals til heilbrigðis-, trygginga- og menntamála á næsta ári.
Útgjöld Útgjöld Fjárlög Frumvörp
Ráðuneyti ’79—’82 ’83—’87 ’88 ’89
Æðsta stjórn 0,94 0,89 0,86 0,79
Forsætisráðuneytið 0,89 0,47 0,34 0,94
Menntamálaráóuneytið 15,79 15,40 16,45 16,19
Utanríkisráðuneytið 1,20 1,27 1,07 1,17
Landbúnaðarráðuneytið 4,55 4,13 3,80 3,65
Sjávarútvegsráðuneytið 1,74 2,11 2,37 2,14
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið 5,90 5,20 4,91 4,49
Félagsmálaráðuneytið 2,92 4,46 4,55 4,27
Heilbrigðis- og tryggamálaráóuneytið .... 36,95 36,49 39,70 38,89
Fjármálaráóuneytið 4,08 3,93 4,34 4,76
Samgönguráðuneytið 9,70 8,29 7,10 6,41
Iðnaðarráðuneytið 4,19 7,09 1,76 1,60
Viðskiptaráðuneytið 8,50 4,13 4,67 4,88
Erlend lán og fleira 2,56 6,06 7,66' 9,75